Fleiri fréttir

Þór og Mjölnir slá í gegn í Kóreu

Íslenska teiknimyndin Hetjur Valhallar - Þór var frumsýnd í Suður- Kóreu fyrir helgina og hafa móttökurnar verið "hreint út sagt æðislegar,“ að sögn aðstandenda. "Myndin varð vinsælasta erlenda myndin í kvikmyndahúsum Suður-Kóreu þessa helgina og sló út ekki slakari myndir en Star Wars í þrívídd, War Horse, Tinker Tailor Soldier Spy og Happy Feet 2.“

Steingrímur við Sigmund Davíð: Æ, þegiðu

Það kastaðist í kekki milli Steingríms J. Sigfússonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og stjórnarandstæðinga þegar Steingrímur var að stíga úr pontu í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, var að spyrja Steingrím út í afstöðu hans til Evrópumála og barst talið meðal annars að deilu Íslendinga við Evrópusambandið vegna makrílstofnsins.

Whitney aftur komin á vinsældarlista

Hljómplötur söngkonunnar Whitney Houston eru enn á ný komnar á vinsældarlista. Safnplötur hennar eru í öðru sæti á vinsældarlista iTunes í Bandaríkjunum og Bretlandi.

Tveir grunaðir um að hafa keypt vændi af 14 ára pilti

Tveir fullorðnir karlmenn eru enn til rannsóknar vegna gruns um að hafa keypt vændi af fjórtán ára dreng. Þriðji maðurinn var fyrir helgina dæmdur fyrir að kaupa vændi af drengnum. Móðir piltsins telur þann dóm of vægan.

Snorri ætlar að blogga og predika í leyfinu

Snorri Óskarsson, grunnskólakennari á Akureyri, hefur verið sendur í hálfs árs launað leyfi vegna ummæla hans um samkynhneigð. Snorri ætlar að nýta leyfið til að predika.

Sex þúsund sóttu um niðurfellingu skulda

Heildarkostnaður Íbúðalánasjóðs vegna 110% leiðarinnar er um 7,4 milljarðar króna. Um sex þúsund umsóknir bárust um niðurfellingu á skuldum, sem er um þriðjungi minna en áætlað var í upphafi. Framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs segir vinnuna hafa gengið vel, en viðvarandi mikil verðbólga sé mikið áhyggjuefni.

Kísilver í Helguvík í óvissu

Áform um kísilver í Helguvík eru í uppnámi og gæti svo farið að samningum verði rift á næstu dögum og hætt við verkefnið. Ástæðan er krafa bandarískra fjárfesta um afslátt frá orkuverði. Til stóð að 150 manns fengju vinnu við smíði kísilversins, sem átti að hefjast í Helguvík í fyrrasumar. Það bólar hins vegar ekkert á framkvæmdum.

Eldsneytisskattar hafa hækkað 100.000 kr á ári

„Ég hef áhyggjur af því að þetta sé verða einhver lúxus að eiga bifreið." Þetta sagði Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í viðtali í Reykjavík síðdegis í dag.

Snorri í leyfi vegna ummæla um samkynhneigða

Snorri Óskarsson, kennari á Akureyri sem oftast er kenndur við Betel, hefur verið sendur í tímabundið leyfi frá störfum vegna ummæla sinna um samkynhneigða á bloggsíðu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akureyrarbæ.

Löggan stöðvaði 430 ökumenn - þrír voru ölvaðir

Fjögur hundruð og þrjátíu ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni í umferðareftirliti lögreglunnar um helgina. Að sögn lögreglu reyndust þrír ökumenn ölvaðir við stýrið og eiga þeir ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Fjórum til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir leyfilegum mörkum. Nokkra athygli vakti að ljósabúnaði allmargra ökutækja var ábótavant.

Sara nýr formaður Stúdentaráðs

Sara Sigurðardóttir var kjörin nýr formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands á skiptafundi ráðsins í dag og hefur hún nú tekið við störfum af Lilju Dögg Jónsdóttur, fráfarandi formanni. Sara er oddviti Vöku sem vann meirihluta í Stúdentaráði fyrr í þessum mánuði. Hún er nemi við stjórnmálafræðideild og stefnir á að útskrifast vorið 2013.

Eignarhald á íslenskum fjölmiðlum tekið saman

Hin nýstofnaða Fjölmiðlanefnd hefur nú birt lista yfir eignarhald á Íslenskum fjölmiðlum. Lögum samkvæmt þurfa fjölmiðlar sem ekki eru leyfisskyldir að skrá sig auk þess sem allir leyfisskyldir og skráðir fjölmiðlar eiga að veita fjölmiðlanefnd upplýsingar um eignarhald.

Presthjón sökuð um að myrða börn sín - sögðu þau andsetin

Lögreglan í Suður-Kóreu hefur handtekið prest og eiginkonu hans í tengslum við lát þriggja barna þeirra. Hjónin eru sökuð um að hafa hýtt börnin og svelt þau. Presthjónin segjast hafa verið að reyna að reka illa anda út úr börnum sínum.

Handtekinn á Schiphol

Lögreglan í Hollandi hefur handtekið mann sem læsti sig inni á klósetti á Schiphol flugvelli í Amsterdam og sagðist vera með sprengju innan klæða.

Segja Írana ábyrga fyrir sprengjutilræðum í Ísraelska diplómata

Forsætisráðherra Ísraels, Benjamin Netanyahu, fullyrðir að íranskir leyniþjónustumenn hafi ráðist að ísraelskum diplómötum á Indlandi og í Georgíu. Sprengju var varpað að bíl í Delhí með þeim afleiðingum að einn særðist og segja Ísraelar að svipað sprengjutilræði hafi farið út um þúfur í Tblisi höfuðborg Georgíu.

Halldór Gylfa faðmaði sviðsmanninn eftir óhappið

"Ég er svona að koma til. Mér er svolítið illt í bakinu, er aumur og marinn, og get ekki verið á mikilli hreyfingu,“ segir Halldór Gylfason, leikari í Borgarleikhúsinu. Um helgina féll hann fjóra metra niður hlera sem opnaðist fyrir slysni þegar hann var að leika í sýningunni Galdrakarlinn í Oz.

Jón Þórarinsson látinn

Jón Þórarinsson tónskáld andaðist í gær í Reykjavík. Hann var á 95. aldursári. Hann starfaði lengi við Ríkisútvarpið og var einn af hvatamönnum að stofnun Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Jón lætur eftir sig sjö uppkomin börn. Eftirlifandi eiginkona hans er Sigurjóna Jakobsdóttir.

Vilja að krakkarnir komist í réttir

Fræðslunefnd og sveitarstjórn Flóahrepps hafa sent inn formlegar athugasemdir til menntamálaráðuneytisinsþess efnis að dagsetningar samræmdra próf í grunnskólum landsins í haust stangist á við göngur og réttir hjá nemendum. Þetta kemur fram á fréttavefnum dfs.is.

Býst við reisupassanum í dag

Snorri Óskarsson, kennari við Brekkuskóla, býst við að fá reisupassann í dag vegna ummæla hans um samkynhneigð. Engu að síður telur hann uppsögn á grundvelli trúarskoðana brjóta í bága við stjórnarskrána. Snorri hefur verið harðlega gagnrýndur að undanförnu eftir að hann ritaði bloggfærslu þar sem sagði að samkynhneigð væri synd og að laun hennar væru dauði. Snorri hefur verið kallaður á fund síðdegis í Ráðhúsinu á Akureyri. Hann segist ekki vita nákvæmlega hvað honum verður kynnt á fundinum.

Whitney á hvíta tjaldinu í síðasta sinn í sumar

Bíómynd með Whitney Houston í aðalhlutverki verður frumsýnd í sumar en söngkonan dáða lést um helgina. Myndin Sparkle er endugerð myndar sem bar sama nafn og kom út árið 1976 og var ein af uppáhaldsmyndum Houston. Í myndinni leikur Whitney móður þriggja systra sem hafa slegið í gegn og takast á við erfiðleika sem frægðinni fylgja.

Erum löngu búin með kvótann

Engin kynslóð hefur rétt á að ákveða framtíðarskipan í virkjanamálum segja Andri Snær Magnason og María Ellingsen sem bæði eru í stjórn Framtíðarlandsins. Þau segja nóg hafa verið virkjað á Íslandi og vilja nýta landið á annan hátt, til dæmis með verndun.

Sprengjuhótun á Schiphol í Amsterdam

Schiphol flugvöllur í Amsterdam hefur verið rýmdur að stórum hluta vegna sprengjuhótunar. Reuters fréttastofan hefur eftir lögreglu að fyrsta og annað terminal hafi verið rýmt og er verið að rannsaka byggingarnar. Schiphol er einn fjölfarnasti flugvöllur í Evrópu en óljóst er hvort flugumeferðin hafi eitthvað raskast af þessum völdum.

Engin ákvörðun um áfrýjun í barnavændismálinu

Ríkissaksóknari kannar nú hvort forsendur séu fyrir því að áfrýja dómi Héraðsdóms Vesturlands í kynferðisbrotamáli til Hæstaréttar. Dómurinn var kveðinn upp á fimmtudaginn, en karlmaður var dæmdur í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynmök við fjórtán ára gamlan pilt gegn greiðslu.

Frægir deyja þegar fótboltamaður skorar mark

"Þetta er ótrúlegt. Tölurnar geta komið manni á óvart í sambandi við hvað sem er en ég held að þetta geti allt eins verið tilviljun," segir Hermundur Rósinkranz, talnaspekingur og miðill. Stuðningsmenn Arsenal í Bretlandi tengja nú dauða söngdívunnar Whitney Houston við miðjumann liðsins, hinn velska Aaron Ramsey.

Eigandinn veit ekkert hvernig bíllinn endaði í vatninu

Allt er á huldu um það hvernig stendur á því að jeppa var ekið ofan í Vífilsstaðavatn. Jeppinn fannst um níuleytið í morgun. Lögreglan hefur haft samband við eiganda bílsins og gat hann engar skýringar gefið á því hvernig bíllinn endaði ofan í vatninu.

Enginn í bílnum

Enginn var i bílnum sem fannst um klukkan níu í morgun út í Vífilstaðavatni. Slökkviliðið sendi kafara að bílnum um leið og af honum fréttist. Kafarar fóru samstundis að bílnum og þá kom í ljós að hann var mannlaus. Kafararnir eru nú að að kanna vatnið í kringum bílinn og telja þeir sig sjá spor við bílinn. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu munu kafarar leita ofan í vatninu eitthvað fram eftir morgninum til þess að fullvissa sig um að enginn sé í því. Slökkviliðið er einnig farið að huga að því að koma bílnum úr vatninu.

Bíll fannst í Vífilstaðavatni

Slökkviliðið er statt á Vífilsstöðum og hafa kafarar verið sendir ofan í vatnið. Bíll fannst í vatninu nú rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu var enginn í bílnum. Við segjum nánar frá þessu í fréttum í dag.

Saadi Gaddafi settur í stofufangelsi

Saadi Gaddafi, einn af eftirlifandi sonum Moammar Gaddafi fyrrum leiðtoga Lýbíu, hefur verið handtekinn í Niger og settur í stofufangelsi.

Sýrland hafnar hugmyndum Arababandalagsins

Stjórnvöld í Sýrlandi hafna algerlega þeim hugmyndum Arababandalagsins að sendar verði friðargæslusveitir til Sýrlands en þær yrðu á sameiginlegu forræði bandalagsins og Sameinuðu þjóðanna.

Loðnugangan komin vestur fyrir Höfn í Hornafirði

Aðal loðnugangan er nú komin vestur fyrir Höfn í Hornafirði og nálgast Hrollauglseyjar. Þar eru nú að minnsta kosti tíu loðnuskip og eru að farin að veiða á grunninu og nota nú nætur í stað flottrolla.

Miklar óeirðir á götum Aþenu í nótt

Miklar óeirðir voru á götum Aþenu og víðar í Grikklandi í gærkvöldi og langt fram á nótt meðan á umfjöllun þingsins stóð um skilyrðin fyrir nýju neyðarláni. Kveikt var í yfir 30 byggingum í borginni, þar á meðal kvikmyndahúsum, veitingastöðum og bönkum.

Minnihluti fylgjandi Vaðlaheiðargöngum

Um 28 prósent landsmanna vilja að ráðist verði í gerð Vaðlaheiðarganga í ríkistryggðri einkaframkvæmd en 47 prósent eru því andvíg, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2.

Tæplega 44 prósent vilja falla frá ákæru

Þjóðin er klofin í tvær jafnar fylkingar í afstöðu sinni til þess hvort Alþingi eigi að draga til baka ákæru á hendur Geir H. Haarde fyrir Landsdómi, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2.

Rammaáætlun felur ekki í sér endanlega úthlutun

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra segir ekki rétt að halda því fram að í rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða felist endanleg úthlutun þeirra náttúrusvæða sem þar eru undir. Vinna við áætlunina er á lokaspretti og hún segir hana vera forgangsverkefni hjá sér og Oddnýju G. Harðardóttur, starfandi iðnaðarráðherra.

Minna ofbeldi í miðborginni

Alls urðu 1.578 fyrirtæki gjaldþrota á árinu 2011 og hafa aldrei verið fleiri á einu ári. Til samanburðar urðu 982 fyrirtæki gjaldþrota á árinu 2010. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar um nýskráningar og gjaldþrot sem birtar voru nýlega.

Taldi sig eiga óuppgerð mál

Karlmaðurinn sem varð fyrir hrottalegri árás á heimili sínu á Þórshöfn aðfaranótt sunnudags er ekki í lífshættu, samkvæmt upplýsingum frá Sjúkrahúsinu á Akureyri.

Tilgangurinn var ekki að valda skaða

Karl á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið fyrir sprengjunni sem sprakk á Hverfisgötu, skammt frá Stjórnarráðinu, snemma að morgni 31. janúar síðastliðinn. Hann mun hafa verið einn að verki og hefur verið sleppt úr haldi.

Sjá næstu 50 fréttir