Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Segir farsælast að hafa opinn leigupott við hlið nýtingarsamninga Farsælast er að hverfa með öllu frá hugmyndum um byggða- og ívilnunarpotta við úthlutun byggðakvóta í nýju fiskveiðistjórnunarfrumvarpi. Þá er rétt að lögskylda útgerðir til að bjóða allan óunninn fisk á innlendan markað. Þetta segir Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður, en nýtt frumvarp verður lagt fram á vorþingi. 28.12.2011 12:08
Margar götur illfærar Íbúagötur eru margar illfærar í Reykjavík eftir óvenju harða tíð undanfarið. Nítján snjómoksturstæki hafa verið að störfum í dag en allt upp í hundrað og þrjátíu tonn af salti hefur farið á göturnar á einum degi sem er fjórfalt meira en venja er. 28.12.2011 12:07
Cameron vill lög um lágmarksverð á áfengi David Cameron, forsætisráðherra Breta, ætlar að leggja fram frumvarp sem felur í sér að sett verði lágmarksverð á áfengi. Með þessu vill Cameron stuðla að takmarkaðra aðgengi að áfengi og bættri heilsu. Nákvæm útfærsla á þessum aðgerðum Camerons liggur ekki fyrir en líklegt er að ódýrasta vínið verði skattlagt þannig að verðið hækki. Þessar aðgerðir Camerons eru hluti af stærra aðgerðaráætlun gegn áfengisböli. Upphaflega stóð til að kynna aðgerðaráætlunina í næsta mánuði en því hefur verið frestað fram í febrúar. 28.12.2011 11:16
Krókódíll réðst á garðsláttuvél Krókódíll í Ástralska skriðdýragarðinum olli miklum usla á dögunum þegar að hann réðst á slátturvél sem starfsmaður garðsins var með og sökkti henni í gryfjunni hjá sér. Krókódíllinn sem er fimm metra langur heitir Elvis, eftir söngvaranum sáluga. Hann dró slátturvélina ofan í vatn í gryfju sinni og vaktaði hana í meira en klukkustund. 28.12.2011 10:43
Gullni hringurinn illfær tvo daga vikunnar Tvo daga vikunnar, á þriðjudögum og laugardögum, er Mosfellsheiðin og Gjábakkavegur ekkert mokuð. Þetta hefur valdið því að bílar sem hyggjast aka Gullna hringinn, leiðina á milli Þingvalla, Geysis í Haukadal og Gullfoss, komast ekki leiðar sinnar. Hjá Vegagerðinni fengust þær upplýsingar að þungfært hafi verið á þessum leiðum í gær. Það fékkst jafnframt staðfest að Vegamálastjóra bærust reglulega athugasemdir frá aðilum í ferðaþjónustu vegna þessa, en fólk hefði þó skilning á að fjárframlög til stofnunarinnar hefðu verið skorin niður að undanförnu. 28.12.2011 10:05
Nær að hreyfa fætur og fingur Vandasöm aðgerð sem Fanney Þorbjörg Guðmundsdóttir, landsliðskona á skíðum, þurfti á að halda í gærmorgun á Ullevål-sjúkrahúsinu í Ósló í Noregi þótti heppnast vel. Fanney, sem er 19 ára gömul, slasaðist alvarlega á aðfangadag þegar hún var við æfingar í Geilo í Noregi. 28.12.2011 09:00
Víða hægt að skíða Gert er ráð fyrir að skíðasvæðið í Bláfjöllum opni klukkan tíu og verði opið allt þangað til klukkan níu í kvöld. Þó gæti svæðinu verið lokað fyrr ef veður verður mjög vont, en gert er ráð fyrir töluverðum vindi síðdegis. Gríðarleg aðsókn var að skíðasvæðinu í gær og þurfti fólk að bíða í löngum röðum til að kaupa aðgang að lyftunum. Þá verður skíðasvæðið í Hlíðarfjalli við Akureyri opið frá klukkan tíu til sjö í dag. Þar mun vera logn og mjög gott skíðafæri. Skíðasvæðið í Tindastóll verður opið frá klukkan tólf til fjögur í dag. Það er mikill og góður snjór í Tindastól og engin fyrirstaða að koma til fjalla. Það er hægviðri, tæplega 10 gráðu frost og stjörnubjartur himinn. Jafnframt er opið í Böggvisstaðarfjalli á Dalvík frá klukkan tólf til fjögur. Þar mun vera fínt veður og færi. 28.12.2011 08:37
Kim Jong-Il borinn til grafar Tveggja daga útför norður-kóreska einræðisherrans Kim Jong-Il er hafinn. Viðbúnaður vegna hennar er gríðarlegur í höfuðborginni Pyongyang. Myndir þaðan sýna að þúsundir hermanna hafa safnast saman og lutu þeir höfði þegar stór mynd af leiðtoganum fallna var borin um götur borgarinnar. Myndirnar, sem birtar voru á ríkissjónvarpsstöð í landinu, sýndu jafnframt að arftaki hans og þriðji sonurinn, Kim Jong-un, gekk með fylkingu hermannanna. Fjölmiðlar í Norður-Kóreu segja að Kim Jong-il hafi látist úr hjartaáfalli þann 17. desember síðastliðinn. 28.12.2011 08:33
Danir hallir undir konungsfjölskylduna Engin evrópsk konungsþjóð styður konungsfjölskylduna sína meira en Danir. Þetta sýnir ný skoðanakönnun sem Megafon gerði fyrir danska blaðið Politiken. Niðurstöður könnunarinnar sýnir að um 77% Dana telja að Danmörk eigi áfram að vera konungsveldi en um 16% vilja breyta í lýðveldi. Fyrir rösku ári síðan lét Politiken gera samskonar skoðanakönnun sem sýndi að 25% Dana vildu lýðveldi. Lars Hovbakke Sørensen, prófessor í sagnfræði við Kaupmannahafnarháskóla, segir að samkvæmt þessum niðurstöðum sé stuðningur Dana við konungsveldið töluvert meiri en víða annarsstaðar í Evrópu. Stuðningur í sumum ríkjum við konungsveldið geti farið allt niður í 58%. 28.12.2011 08:05
Athugasemdir gerðar fyrir meira en áratug Meira en áratugur er síðan að gerðar voru athugasemdir við starfsemi franska fyrirtækisins PIP sem talið er hafa framleitt gallaða silikonpúða í brjóst. Fréttir af göllunum hafa valdið skelfingu á meðal kvenna um allan heim að undanförnu. 28.12.2011 08:00
Langflest afbrot hér á landi tengd áfengi og fíkniefnum Fjórðungur allra fanga á landinu situr inni vegna fíkniefnabrota. Árið 1990 var hlutfallið sjö prósent. 28.12.2011 08:00
Forseti Argentínu með krabbamein Cristina Fernandels de Kirchner, forseti Argentínu, greindist nýlega með krabbamein og mun þess vegna gangast undir aðgerð þann 4. janúar næstkomandi, eftir því sem ríkisstjórn hennar hefur greint frá. Meinið er í skjaldkirtlinum en það mun ekki hafa breiðst út í önnur líffæri. Fernandex hóf nýlega annað kjörtímabil sitt eftir að hafa unnið mikinn kosningasigur á landsvísu. Eiginmaður hennar, Nestor Kirchner, fyrrverandi forseti, lést á síðasta ári eftir að hann fékk hjartaáfall. 28.12.2011 07:06
Landsvirkjun endurnýjar veltulán Landsvirkjun hefur skrifað undir samning um nýtt sambankalán á alþjóðlegum bankamarkaði, hið fyrsta sem opinbert íslenskt fyrirtæki gerir frá bankahruni. 28.12.2011 07:00
Hækka um tugi þúsunda á ári Leikskólagjöld hjá öllum stærstu sveitarfélögum landsins hækka um tvö til þrjú þúsund krónur á mánuði um áramótin. Hækkunin nemur tugum þúsunda hjá foreldrum á ársgrundvelli. 28.12.2011 06:30
Gaskútar geta valdið slysahættu í frosti "Ég skrúfa frá gasinu og þá skyndilega leggur eldsúlu upp úr gashellunni sem læsist í gluggatjöldin fyrir ofan. Ég heyri konuna mína strax æpa og skrúfa þá fyrir þar sem ég átta mig á því sem er að gerast. Þetta slapp því í rauninni mjög vel en ég rétt ímynda mér hvað hefði gerst ef ég hefði verið einn þarna og ekki áttað mig. Þá hefði þessi timburbústaður bara fuðrað upp,“ segir Hrafnkell Á. 28.12.2011 06:00
Ekki þörf á byssum fyrir löggur LöggæslaÖgmundur Jónasson innanríkisráðherra segist ekki telja þörf á því að lögreglumenn hafi almennari aðgang að skotvopnum en nú er. 28.12.2011 05:00
Byggja félagsmiðstöð í Spönginni Verja á 650 milljónum króna í byggingu nýrrar félagsmiðstöðvar í Spönginni í Grafarvogi. Þar munu þjóðkirkjan og hjúkrunarheimilið Eir meðal annarra hafa aðstöðu. 28.12.2011 04:00
Óásættanlegt að leyfi hafi verið veitt Hópur fólks og félaga sem eru andvíg því að erfðabreytt bygg verði ræktað í gróðurhúsi Landbúnaðarháskóla Íslands að Reykjum í Ölfusi skorar á sveitarstjórnir á svæðinu að beita sér fyrir því að leyfi til ræktunarinnar verði afturkallað. 28.12.2011 03:00
Stjórnarherinn farinn frá Homs Sýrlandsstjórn kallaði herlið sitt frá borginni Homs í gær þegar fyrstu eftirlitssveitirnar frá Arababandalaginu voru komnar til landsins. 28.12.2011 01:00
Opið öllum en nýtist hernum Kínversk stjórnvöld hafa gangsett staðsetningarnet sem gegna mun sama hlutverki og GPS-staðsetningarkerfið. Kerfið verður opið almenningi eins og GPS-kerfið en mun gera kínverska herinn óháðan bandarískum gervitunglum sem hægt er að loka fyrir. 28.12.2011 00:00
Gæti reynst Pútín erfiður mótherji Fremsti leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Rússlandi þessa dagana er Alexei Navalní, sem hefur lagt meira fram en aðrir til þess að leggja grunn að mótmælahreyfingunni sem nú velgir Vladimír Pútín forsætisráðherra undir uggum. 27.12.2011 23:00
Þurftu að vernda sjúkraflutningamenn á morðvettvangi Myndband, sem gengur nú um á Youtube, og breska vefsíðan Daily Telegraph greinir frá, sýnir lögregluna í Lundúnum vernda sjúkraflutningamenn sem reyndu að koma átján ára pilti til bjargar á Oxford-stræti eftir að hann var stunginn til bana. 27.12.2011 22:00
Slökkviliðsmenn gerðu upp bíl lamaðs bónda Tveir slökkviliðsmenn á Keflavíkurflugvelli sýndu jólaanda í verki þegar þeir tóku að sér að koma nær ónýtum en sérútbúnum bíl lamaðs bónda á Vestfjörðum til Reykjanesbæjar og gera á honum algjöra yfirhalningu. 27.12.2011 21:30
Skilaði milljón til þess að kenna börnunum sínum holla lexíu Fjölskyldufaðirinn Mitch Gilbert kenndi börnum sínum mikilvæga lexíu um heiðarleika. Hann skilaði manni tíu þúsund dollara, eða rúmlega einni milljón króna, eftir að sá sami missti peningana úr vasa sínum. 27.12.2011 21:00
Siku slær í gegn á netinu Rúmlega mánaðargamall grænlenskur ísbjarnarhúnn hefur náð að bræða hjörtu þúsunda netverja með augnaráðinu einu. 27.12.2011 20:00
Handrukkunum fjölgað - dæmi um afklippta fingur og skotárás Málum þar sem handrukkun er beitt hefur fjölgað síðustu misseri að mati lögreglu og meiri hörku er beitt en áður. Dæmi um það eru afklipptir fingur og skotárás. 27.12.2011 18:32
Stríðsfréttaritari Íslands: Ótrúlegt ár Jóns Björgvinssonar Það er líklega óhætt að segja að Jón Björgvinsson sé eini stríðsfréttaritari Íslands. Á þessu ári hefur hann verið mitt í miðjum átökunum í Mið-Austurlöndum, eða arabíska vorinu eins og það hefur oft verið kallað. 27.12.2011 20:20
Landsbjörg býst við góðri flugeldasölu í ár Flugeldasala fer í fullan gang á morgun og býst Landsbjörg við góðri sölu þetta árið. Ný skotgleraugu eru komin á markaðinn til að mæta kröfuhörðum tískuunnendum. 27.12.2011 19:00
Hringja grátandi til fjölskylduhjálparinnar Vegna fjölda beiðna um um mataraðstoð verður Fjölskylduhjálpin með úthlutanir í Eskihlíðinni í Reykjavík á morgun frá klukkan tvö til fimm. Búið var að ákveða að hafa lokað á milli jóla og nýárs, en Ásgerður Jóna Flosadóttir, framkvæmdastjóri Fjölskylduhjálparinnar, segir að neyðin sé mjög mikil, og fólk hringi grátandi til Fjölskylduhjálparinnar og biðji um mataraðstoð. 27.12.2011 16:42
Örþreyttir björgunarsveitamenn á aðfangadag Þeir voru margir þreyttir björgunarsveitarmennirnir á aðfangadag eftir að hafa unnið þrekvirki við að aðstoða fólk sem var í hremmingum vegna óveðursins sem geysaði á aðfangadag á stórum hluta landsins. 27.12.2011 15:15
Sjö ára í heljarstökki Benedikt Friðbjörnsson, sjö ára gamall drengur á Akureyri, hefur náð alveg hreint ótrúlegri færni á snjóbretti þau tvö ár sem hann hefur æft. Á meðfylgjandi myndskeiði sést hann fara í afturábak heljarstökk og gerir það leikandi létt. 27.12.2011 14:17
Bandaríkjamaður sakaður um njósnir Réttað var yfir bandarískum ríkisborgara í Íran í dag en maðurinn var handtekinn á dögunum grunaður um að vera njósnari á vegum bandarísku leyniþjónustunnar CIA. Hinn 28 ára gamli Amir Hekmati var fæddur í Arizona en á rætur að rekja til Írans. Faðir hans segir af og frá að sonur sinn sé njósnari. Hann hafi verið að heimsækja ömmur sínar í Íran þegar hann var handtekinn. Íranir segja hinsvegar að Hekmati sé þrautþjálfaður sérsveitarmaður sem hafi verið staðsettur í Írak og Afganistan áður en hann hafi farið til njósnastarfa í Íran. 27.12.2011 14:09
Breskur túristi myrtur á jóladag á Sri Lanka Breskur ríkisborgari var myrtur á jóladag á ferðamannastað á Sri Lanka. Lögregluyfirvöld í bænum Tangalle segja að ráðist hafi verið á manninn og rússneska konu sem var með honum í för, eftir að honum hafði sinnast við annan gest á hótelinu sem þau voru á. Fjórir hafa verið handteknir vergna málsins og á meðal þeirra er formaður bæjarstjórnarinnar í Tangalle. Konan sem var með fórnarlambinu berst nú fyrir lífi sínu á gjörgæslu. 27.12.2011 14:08
Pútín vill ekki rannsaka kosningarnar Vladímír Pútín, forsætisráðherra Rússlands, hefur vísað á bug áskorunum þess efnis að kosningarnar í landinu á dögunum verði rannsakaðar. Í til stuðningsmanna sinna sagði hann að þá sem kvartað hafi yfir úrslitum kosninganna skorti skýr markmið og óljóst sé hverju sé verið að mótmæla. Í kjölfar úrslitanna, þar sem flokkur Pútíns fór með sigur af hólmi þrátt fyrir fylgistap, hafa brotist út mestu mótmæli Rússlands í áratugi. 27.12.2011 13:57
Þúsundir mótmæla í Homs Þúsundir mótmælenda hafa í dag komið saman í sýrlensku borginni Homs en í dag komu til landsins eftirlitsmenn frá Arababandalaginu til þess að fylgjast með framferði stjórnvalda gegn aðgerðarsinnum. Bandalagið hefur ályktað um að ofbeldinu í landinu verði að linna og segja talsmenn mótmælenda að skriðdrekar stjórnarhersins hafi hörfað frá borginni nokkrum klukkutímum áður en eftirlitsmennirnir mættu á svæðið. 27.12.2011 13:56
Níu brennur á höfuðborgarsvæðinu Byrjað verður að taka á móti efni í áramótabrennurnar í fyrramálið en þær verða á sömu stöðum og í fyrra. Vel er fylgst með því hvað fer á brennurnar og eru um það skýrar reglur hvað má fara í bálkestina. "Best er að fá hreint timbur á brennurnar", segir Þorgrímur Hallgrímsson brennukóngur og rekstrarstjóri á hverfastöð Framkvæmda- og eignasviðs. "Plast, gúmmí og unnið timbur á ekki erindi á köstinn.“ Starfsmenn hverfastöðvanna verða á vettvangi og leiðbeina þeim sem koma með efni. Hætt verður að taka á móti efni þegar brennurnar eru orðnar hæfilega stórar eða í síðasta lagi klukkan 12 á gamlársdag. 27.12.2011 13:53
Hitler hélt jólin Myndir af Adolf Hitler og öðrum leiðtogum Nasistaflokksins við jólatré um jólin 1941 voru nýlega birtar opinberlega. Á meðal þeirra sem eru á myndunum með Hitler er Heinrich Himmler. Það var Hugo Jaeger, einn af persónulegum ljósmyndurum Hitlers, sem tók myndirnar. Hann gróf þær í glerkrukku þegar stríðinu lauk. Þar voru þær í tíu ár, eða allt þar til þær voru fluttar í bankahólf. 27.12.2011 12:45
Margar konur nefndar til sögunnar sem næsti biskup Síðan Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands tilkynnti við upphaf síðasta kirkjuþings að hann hygðist láta af embætti á næsta ári hefur legið fyrir að biskupskjör fer fram á næsta ári. 27.12.2011 12:18
Hvítabjarnarhúnninn Siku bræðir hjörtu Netverja Nýjasta stjarna Netheima er hvítabjarnarhúnninn Siku. Hann er mánaðargamall og á heima í dýragarði í Kolind Í Danmörku. Hann fæddist 22. nóvember og umferð á vefsíðu garðsins hefur vaxið gríðarlega frá því sá stutti kom í heiminn. Þúsundir hafa fylgst með Siku og beðið í ofvæni eftir að hann opnaði augun, sem hann gerði víst í gær. 27.12.2011 12:15
Litadýrð í loftinu Þessi fallegu glitský sáust á suðausturhimni á Akureyri í morgun um klukkan 10:25. Glitský hafa sést nokkrum sinnum í vetur en um er að ræða ákaflega fögur marglit ský sem myndast í heiðhvolfinu, oft í um 15 - 30 kílómetra hæð, eftir því sem fram kemur í svari Halldórs Björnssonar veðurfræðings á Vísindavefnum. Glitský sjást helst um miðjan vetur, um sólarlag eða við sólaruppkomu. Litadýrð þeirra er mjög greinileg því þau eru böðuð sólskini, þótt rökkvað sé eða jafnvel aldimmt við jörð. 27.12.2011 11:51
Ekkert vitað hver braust inn í Fjölskylduhjálp Enn er ekkert vitað um það hver braust inn í aðsetur Fjölskylduhjálpar Íslands á Suðurnesjum um jólin og stal þaðan gjöfum og tölvu með viðkvæmum persónuupplýsingum. Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar málið. Meðal þess sem þjófarnir tóku, auk fyrrnefndar tölvu, voru 66° Norður gallar. 27.12.2011 10:26
Enn á gjörgæslu en ekki í bráðri lífshættu Tveir liggja enn á sjúkrahúsi eftir árekstur á Vesturlandsvegi síðdegis í gær. Fólkið var í sömu bifreiðinni. Kona liggur á gjörgæslu alvarlega slösuð en er ekki í bráðri lífshættu að sögn vakthafandi læknis. Karlmaður var lagður inn á slysa- og bráðadeild þar sem hann var undir eftirliti í nótt og er hann með minniháttar áverka. 27.12.2011 10:24
Átök á milli lögreglu og strangtrúaðra gyðinga Til átaka kom á milli lögreglu og strangtrúaðra gyðinga í ísraelska bænum Beit Shemesh, nálægt Jerúsalem og voru nokkrir handteknir. Miklar deilur hafa staðið á milli hinna strangtrúuðu og annarra gyðinga í bænum en hinir fyrrnefndu krefjast algjörs aðskilnaðar kynjanna og að konur klæði sig á ákveðinn hátt. Til átakanna í gær kom þegar lögregla reyndi að fjarlægja skilti þar sem hvatt er til aðskilnaðarins. 27.12.2011 09:17
Stunginn til bana á Oxford Street - ellefu í haldi Fjórtán hafa verið handteknir og ellefu eru í haldi lögreglu í kjölfar morðs sem framið var á einni fjölförnustu verslunargötu heims, Oxford Street í Lundúnum. Átján ára karlmaður var stunginn til bana fyrir framan íþróttavörubúð í götunni í gær. 27.12.2011 09:15
Einn skotinn til bana og tveir særðir í Malmö Einn var skotinn til bana og tveir særðust í skotárás sem átti sér stað að kvöldi annars dags jóla í sænsku borginni Malmö. Vitni segja að skotmaðurinn hafi allt í einu hafið skothríð á mennina þrjá. Hann var með einskonar öskudagsgrímu fyrir andlitinu og komst undan. Að sögn sænskra miðla er enginn grunaður í málinu sem stendur. Mennirnir þrír sem urðu fyrir kúlunum eru allir svokallaðir góðkunningjar lögreglunnar. 27.12.2011 09:14