Fleiri fréttir Selfossþjófarnir lausir úr haldi Mennirnir tveir sem handteknir voru í gærmorgun grunaðir um innbrot í sumarhús í Úthlíð eru lausir úr haldi lögreglu. 18.8.2011 07:49 Má ekki mæta í kjólfötunum Anders Behring Breivik fær ekki að mæta í kjólfötum fyrir rétt á morgun eins og hann hafði óskað eftir. Síðast þegar hann kom fyrir dómara óskaði hann eftir því að mæta í einkennisbúningi en því var einnig hafnað. 18.8.2011 07:45 Assad segist hafa hætt hernaðaraðgerðum í Sýrlandi Assad Sýrlandsforseti heldur því fram að hernaðaraðgerðum gegn andófsmönnum í landinu hafi verið hætt. 18.8.2011 07:43 Unglingur ætlaði að sprengja skóla sinn í loft upp Lögreglan í borginni Tampa í Flórída hefur handtekið 17 ára gamlann ungling sem ætlaði sér að sprengja skóla sinn í loft upp. 18.8.2011 07:41 Vaðlaheiðargöng að komast á koppinn Samkomulag um framkvæmd fjármögnunar Vaðlaheiðarganga var undirritað á Akureyri síðdegis í gær. 18.8.2011 07:38 Stúlka í bílstól fannst á gangstétt í nótt - foreldrarnir gleymdu henni Lögreglan í Reykjavík fékk tilkynningu klukkan tuttugu mínútur fyrir sex í morgun um ungabarn í barnabílsstól sem var einsamalt út á gangstétt í Vesturbænum. Um var að ræða stúlkubarn í bleikum galla og vel búið með pela. 18.8.2011 07:36 Pláss laus hjá dagforeldrum Nokkuð er um laus pláss hjá dagforeldrum víðs vegar um borgina, sér í lagi í úthverfunum, að sögn Kristbjargar Jónsdóttur, stjórnarmanns í Félagi dagforeldra. Sem fyrri daginn er slíka vistun síst að fá í Mið- og Vesturbæ. 18.8.2011 07:30 Lögregluaðgerð í Kristjaníu endaði í ofbeldi og eldsvoða Aðgerð Kaupmannahafnarlögreglunnar gegn hasssölum í Kristjaníu endaði í töluverðu ofbeldi og eldsvoða í gærkvöldi. 18.8.2011 07:15 Virðisrýrnun eða ofmat við Sparisjóðinn Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að nauðsynlegt sé að leggja öll spilin á borðið vegna sameiningar SpKef og Landsbanka Íslands. Virði eigna sjóðsins hafi rýrnað frá mati stjórnvalda og það verði að skýra. 18.8.2011 07:15 Aldursforseti katta fæddur 17. júní 1989 Læðan Öskubuska er líklegast elsti kötturinn á landinu, en hún varð tuttugu og tveggja ára á þjóðhátíðardegi Íslendinga, 17. júní. Hjónin Höskuldur Stefánsson og Ebba Ólafsdóttir, sem hafa umsjón með Öskubusku, segja að Elli kerling sé vissulega farin að setja mark sitt á hana. 18.8.2011 07:00 Viðkvæmt hellakerfi í Borgarfirði friðlýst Kalmanshellir í Hallmundarhrauni verður friðlýstur á morgun. Markmiðið er að vernda hellinn, einstæðar jarðmyndanir hans og hellakerfið allt og koma í veg fyrir röskun og skemmdir á jarðmyndunum. 18.8.2011 06:30 Segir mótmæli ógna lýðræðinu 18.8.2011 06:15
Sjá næstu 50 fréttir
Selfossþjófarnir lausir úr haldi Mennirnir tveir sem handteknir voru í gærmorgun grunaðir um innbrot í sumarhús í Úthlíð eru lausir úr haldi lögreglu. 18.8.2011 07:49
Má ekki mæta í kjólfötunum Anders Behring Breivik fær ekki að mæta í kjólfötum fyrir rétt á morgun eins og hann hafði óskað eftir. Síðast þegar hann kom fyrir dómara óskaði hann eftir því að mæta í einkennisbúningi en því var einnig hafnað. 18.8.2011 07:45
Assad segist hafa hætt hernaðaraðgerðum í Sýrlandi Assad Sýrlandsforseti heldur því fram að hernaðaraðgerðum gegn andófsmönnum í landinu hafi verið hætt. 18.8.2011 07:43
Unglingur ætlaði að sprengja skóla sinn í loft upp Lögreglan í borginni Tampa í Flórída hefur handtekið 17 ára gamlann ungling sem ætlaði sér að sprengja skóla sinn í loft upp. 18.8.2011 07:41
Vaðlaheiðargöng að komast á koppinn Samkomulag um framkvæmd fjármögnunar Vaðlaheiðarganga var undirritað á Akureyri síðdegis í gær. 18.8.2011 07:38
Stúlka í bílstól fannst á gangstétt í nótt - foreldrarnir gleymdu henni Lögreglan í Reykjavík fékk tilkynningu klukkan tuttugu mínútur fyrir sex í morgun um ungabarn í barnabílsstól sem var einsamalt út á gangstétt í Vesturbænum. Um var að ræða stúlkubarn í bleikum galla og vel búið með pela. 18.8.2011 07:36
Pláss laus hjá dagforeldrum Nokkuð er um laus pláss hjá dagforeldrum víðs vegar um borgina, sér í lagi í úthverfunum, að sögn Kristbjargar Jónsdóttur, stjórnarmanns í Félagi dagforeldra. Sem fyrri daginn er slíka vistun síst að fá í Mið- og Vesturbæ. 18.8.2011 07:30
Lögregluaðgerð í Kristjaníu endaði í ofbeldi og eldsvoða Aðgerð Kaupmannahafnarlögreglunnar gegn hasssölum í Kristjaníu endaði í töluverðu ofbeldi og eldsvoða í gærkvöldi. 18.8.2011 07:15
Virðisrýrnun eða ofmat við Sparisjóðinn Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að nauðsynlegt sé að leggja öll spilin á borðið vegna sameiningar SpKef og Landsbanka Íslands. Virði eigna sjóðsins hafi rýrnað frá mati stjórnvalda og það verði að skýra. 18.8.2011 07:15
Aldursforseti katta fæddur 17. júní 1989 Læðan Öskubuska er líklegast elsti kötturinn á landinu, en hún varð tuttugu og tveggja ára á þjóðhátíðardegi Íslendinga, 17. júní. Hjónin Höskuldur Stefánsson og Ebba Ólafsdóttir, sem hafa umsjón með Öskubusku, segja að Elli kerling sé vissulega farin að setja mark sitt á hana. 18.8.2011 07:00
Viðkvæmt hellakerfi í Borgarfirði friðlýst Kalmanshellir í Hallmundarhrauni verður friðlýstur á morgun. Markmiðið er að vernda hellinn, einstæðar jarðmyndanir hans og hellakerfið allt og koma í veg fyrir röskun og skemmdir á jarðmyndunum. 18.8.2011 06:30
Fær 5,5 milljónir króna í skaðabætur Ríkið og fyrirtækið Agar ehf. voru dæmd í Héraðsdómi Vesturlands 10. ágúst til að greiða rúmar 5,5 milljónir króna auk vaxta í bætur til konu sem var starfsmaður fyrirtækisins. Talið er sannað að konan hafi orðið fyrir heilsutjóni við störf sín. Frá þessu er greint á vef Bæjarins besta. 18.8.2011 06:00
Uppreisnarsveitir þrengja að Gaddafí Hörð átök brutust út í gær milli uppreisnarmanna og liðsveita Múammars Gaddafí í borginni Savíja, þar sem þeir börðust um yfirráð einu starfhæfu olíuhreinsistöðvar landsins. 18.8.2011 05:45
Fræðimenn í hverju rúmi Hvert hótelrými á höfuðborgarsvæðinu og víðar mun vera bókað helgina 25. til 27. ágúst, en þá verður í Reykjavík fjölmennasta alþjóðlega ráðstefna Íslandssögunnar. 18.8.2011 05:00
Evruhagstjórn hafi forseta Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti og Angela Merkel Þýskalandskanslari telja nauðsynlegt að ný efnahagsstjórn evruríkjanna, sem þau vilja koma á laggirnar, hafi sérstakt forsetaembætti. 18.8.2011 04:30
Þriggja ára áætlun samþykkt, fimm ára áætlun í smíðum Þriggja ára áætlun Reykjavíkurborgar fyrir árin 2012-2014 var samþykkt í dag. Níu borgarfulltrúar greiddu atkvæði með áætluninni en sex sátu hjá. 17.8.2011 22:00
Fundi um framkvæmd verkfalls lauk án niðurstöðu Fundur um framkvæmd verkfalls leikskólakennara fór fram í dag og lauk honum án niðurstöðu. Fundað var stíft frá klukkan 15:00 - 18:30 í dag, en fundurinn var setinn af forsvarsmönnum Kennarasambands Íslands og fulltrúum sveitarfélaganna. 17.8.2011 21:30
Sveitafélög sýna leikskólakennurum vanvirðingu Nýútskrifaður leikskólakennari segir sveitafélögin sýna sinni stétt vanvirðingu með því að ætla að setja ófaglærða einstaklinga í störf þeirra á verkfallstímum. Eftir fimm ára háskólanám fær hún 198 þúsund krónur útborgaðar á mánuði. 17.8.2011 20:45
Jackass sprelligosinn Steve O til Íslands Sprelligosinn Steve O úr Jackass er á leið til landsins í haust með uppistandið sitt. Skipuleggjandi sýningarinnar segir hana alveg örugglega verða bannaða innan sextán. 17.8.2011 20:26
Keyra til minningar um látinn félaga Vinir og félagar Eyþórs Darra Róbertssonar, sem lést í hörmulegu bílslysi á Geirsgötunni, segja mikilvægt að vekja fólk til umhugsunar um öryggi í umferðinni. Þeir hafa skipulagt minningarakstur um vin sinn. 17.8.2011 20:15
Viktoría á von á barni Viktoría krónprinsessa Svía er með barni. Þetta staðfesti sænska hirðin í dag en fæðingardagur er áætlaður í mars á næsta ári. Öll konungsfjölskyldan er sögð himinlifandi með tíðindin en þetta verður fyrsta barnabarn Karls Svíakonungs en hann á tvö önnur börn auk Viktoríu. Karl Reinfeldt forsætisráðherra Svíþjóðar sendi einnig frá sér tilkynningu í dag þar sem fréttunum er fagnað. 17.8.2011 14:23
Reglur ESB of strangar Svíþjóð munu banna úlfaveiðar í ár vegna reglna Evrópusambandsins. Framkvæmdastjórn sambandsins, segir veiðarnar brjóta í bága við tilskipanir þess. 17.8.2011 15:49
Sveltir sig í Indlandi Tugþúsunda mótmæli í Indlandi sýna engin merki þess þau muni lognast útaf. Mótmælin hófust í gær þegar þekktur aðgerðarsinni þar í landi, Anna Hazare, var hnepptur í fangelsi fyrir mótmæli. 17.8.2011 15:21
Ofsaakstur á Reykjanesbraut Karl á þrítugsaldri var staðinn að ofsaakstri á Reykjanesbraut í Garðabæ á þriðja tímanum í nótt. Bíll hans mældist á 155 km hraða en manninum var veitt eftirför uns hann nam staðar í Breiðholti. Þá kom jafnframt í ljós að ökumaðurinn var í annarlegu ástandi. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð. 17.8.2011 15:05
Frumlegt húsnæði til sölu Fimm herbergja hús með forláta grafhvelfingu og beinagrind í kjallaranum er til sölu í Svíþjóð. Húsið var reist kringum 1750 á grunni rússneskrar kirkju. 17.8.2011 14:45
Málari í fangelsi fyrir skattsvik Norski listmálarinn Odd Nerdrum var í dag dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir gróf skattsvik. Hann er sakfelldur fyrir að selja málverk að andvirði nær 300 milljóna íslenskra króna án þess að gefa það upp til skatts á tímabilinu 1998-2002. Hann var og dæmdur til að greiða 10.000 norskar krónur, sem samsvarar um 210.000 isk, í sekt. 17.8.2011 13:39
Fjölgar í hópi nema í heimilislækningum Tólf læknar hafa verið ráðnir í sérnám í heimilislækningum innan Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu. Fleiri hafa sýnt náminu áhuga og gæti hópurinn því stækkað enn frekar áður en formlegt nám hest í lok þessa mánaðar. Forsvarsmenn heilsugæslunnar telja þennan fjölda umsókna sýna aukinn áhuga á heimilislækningum. Alma Eir Svavarsdóttir, kennslustjóri sérnáms í heimilislækningum er að vonum ánægð með þann mikla áhuga sem læknar sýna sérnáminu ekki síst í ljósi þeirrar vöntunar sem er á heimilislæknum hér á landi um þessar mundir. Fyrir eru 12 læknar í sérnámi í heimilislækningum á vegum Velferðarráðuneytisins en þær stöður sem nú bætast við eru kostaðar af Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins Til að mæta þeim kostnaði hefur lausum stöðum sérfræðinga innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins verið breytt í sérnámsstöður í heimilislækningum. Sérnámsstöðurnar eru til þriggja ára en námið er skipulagt í samvinnu við Landspítala háskólasjúkrahús. Að þeim tíma loknum taka læknarnir þau tvö ár sem þá vantar til að ljúka fimm ára sérnámi í heimilislækningum ýmist hér heima eða erlendis. 17.8.2011 13:16
Depardieu pissaði á gólf flugvélar í París Franski stórleikarinn Gerard Depardieu ákvað að láta allt vaða þegar honum var meinað að fara á klósettið í flugvél rétt fyrir flugtak í París í gærkvöldi. Sjónarvottar segja að leikarinn hafi verið nokkuð ölvaður, og þegar hann fékk þau skilaboð frá flugfreyjunni að ekki væri hægt að nota klósettið fyrr en nokkrum mínútum eftir flugtak ákvað hann að míga einfaldlega á gólfið þar sem hann stóð. 17.8.2011 12:44
Frekari niðurskurður skerðir þjónustu Þjónusta við sjúklinga skerðist ef gengið verður lengra í niðurskurði hjá Landspítalanum segir formaður Félags hjúkrunarfræðinga og tekur þar með undir orð forstjóra spítalans. Þjónustan geti alls ekki farið aftur sem nemur þremur til fjórum árum líkt og velferðarráðherra vill meina. 17.8.2011 12:12
Líklegt að niðurstaða fáist í leikskólamálum í dag Líkur eru á að niðurstaða fáist í ágreiningsmáli deiluaðila í dag vegna kjarasamnings Félags leikskólakennara um framkvæmd boðaðs verkfalls. Ríkissáttasemjari hefur enn ekki boðað til nýs fundar í deilunni. Enginn fundur hefur verið boðaður í kjaradeilu leikskólakennara og samninganefndar sveitarfélaganna nú þegar fimm dagar eru í fyrirhugað verkfall, en síðasti fundur í deilunni var haldinn var í fyrradag. Leikskólakennarar og foreldrar leikskólabarna eru ekki einungis í óvissu með hvort að af verkfallinu verður, heldur einnig hvaða skólar verða fyrir áhrifum, þar sem deilt er um framkvæmd þess. Samband íslenskra sveitarfélaga telur leikskóladeildir geta starfað áfram ef deildarstjórinn er í verkfalli en lögfræðingur Kennarasambandsins er á öndverðum meiði og segir sveitarfélögin hvetja til verkfallsbrota. Björg Bjarnadóttir, varaformaður Kennarasambands Íslands, segir að óskað hafi verið eftir fundi með forsvarsmönnum sveitarfélaganna vegna ágreiningsins og verður hann haldinn um þrjúleytið í dag. Hún vill sem minnst gefa upp, en segir þó alla helstu forsvarsmenn sveitarfélaganna ætla að mæta ásamt henni sjálfri, formanni og lögfræðingi Kennarasambandsins og aðilum frá Félagi Leikskólakennara. 17.8.2011 12:08
Netskráningu í Reykjavíkurmaraþonið lýkur í dag Rúmlega fjórar klukkustundir eru nú þar til netskráningu í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka ljúki. Skráning fer fram á síðunni marathon.is og lýkur klukkan 16.00. Þegar hafa 8.110 skráð sit til þátttöku. Búist er við að um 10 þúsund manns taki þátt. Hægt verður að skrá sig á hlaupadegi í Laugardalshöllinni. Áheitasöfnun í tengslum við Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka gengur einnig vel en als hafa tæplega 19 milljónir safnast til góðra málefna. Á sama tíma í fyrra var búið að safna 15,4 milljónum og því ekki ólíklegt að söfnunin fari yfir þær tæpu 30 milljónir sem söfnuðust árið 2010. 17.8.2011 11:43
Dómar fyrir facebook-færslur Tveir ungir menn í Norður-Englandi voru í gær dæmdir í fjögurra ára fangelsi fyrir að hvetja til óeirða gegnum facebook. Dómana fengu þeir fyrir að búa til event inná síðunni með tíma- og staðsetningu fyrir þá sem vildu taka þátt í óeirðum. 17.8.2011 11:09
Gibb-bróðir syngur með Bo Hall Einn þeirra Gibb-bræðra úr hljómsveitinni Bee Gees, Robin Gibb, er væntanlegur til landsins fyrir jólin og mun hann koma fram á Jólatónleikum Björgvins Halldórssonar. Bee Gees var skipuð þremur Gibb-bræðrum, Maurice og Barry, auk Robin. Eitt þekktasta lag þeirra er diskósmellurinn Staying alive úr dansmyndinni Saturday Night Fever. Við skyndilegt fráfall Maurice árið 2003 ákváðu Barry og Robin að leggja niður Bee Gees sem hljómsveit eftir 45 ára starf. Samkvæmt tilkynningu frá Senu hafa aðeins Elvis Presly, Bítlarnir, Michael Jackson, Garth Brooks og Paul McCartney selt jafn mikið af plötum, eða meira, en Gibb bræður og eru þeir söluhæsta tríó heims. Á fjörutíu ára ferli sendu þeir rúmlega 220 milljónir platna og fengu sjö Grammý verðlaun. "Fáar hljómsveitir hafa haft jafn mikil áhrif á dægurmenningu samtímans og í heildina liggja eftir Bee Gees bræður rúmlega 60 toppsmellir. Á meðal þeirra er mörg þekktustu og mest spiluðu lög veraldar: How Deep is Your Love, You Should Be Dancing, Stayin' Alive, Night Fever, More Than a Woman, Nights on Broadway, Jive Talkin', Tragedy, Massachusetts, I've Gotta Get A Message To You, Lonely Days, How Can You Mend A Broken Heart, You Win Again og For Whom The Bell Tolls. Bræðurnir þrír voru einkar samrýmdir og sömdu alla tíð öll lög og alla texta í sameiningu," segir í tilkynningu. 17.8.2011 10:28
Vilja flýta réttarhöldum yfir Mladic Saksóknarar við stríðsglæpadómstólinn í Haag vilja flýta réttarhöldunum yfir Serbneska hershöfðingjanum Ratko Mladic. Ástæðan ku vera sú að þeir óttast um heilsu Mladic og að hann hrökkvi uppaf meðan á réttarhöldunum stendur. 17.8.2011 10:01
Munu leita til félagsdóms Félag leikskólakennara mun leita til félagsdóms ef ekki kemst á hreint hversu langt leikskólastjórar mega ganga til að halda leikskólum opnum í boðuðu verkfalli leikskólakennara, sem hefst að óbreyttu á mánudag. 17.8.2011 10:00
Breivik í kjólföt Nú á föstudaginn kemur Héraðsdómur í Osló saman til að fjalla um þá kröfu lögreglunnar að fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik verði áfram í einangrun. Breivik hefur óskað eftir því að fá að klæðast kjólfötum við réttarhöldin. 17.8.2011 09:39
Hátt í hundrað lögreglumenn verða á vakt Búist er við miklum fjölda í miðborg Reykjavíkur á Menningarnótt, næstkomandi laugardag. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun auka löggæslu til muna og segir Stefán Eiríksson lögreglustjóri að fjöldi lögreglumanna á vakt muni líklega nálgast hundrað. 17.8.2011 09:00
Vilja samhæfða stefnu Samhæfðari stefna í efnahagsmálum er að mati Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, nauðsynleg til að verja evruna. Hún lét þessi orð falla í gær eftir fund með Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta, en meðal þess sem þau leggja til er sameiginleg hagstjórn á evrusvæðinu. 17.8.2011 08:45
Launamunur sem átti ekki að verða Leikskólakennarar hafa dregist aftur úr í launum miðað við grunnskólakennara síðustu ár. Sveitarfélögin voru hins vegar búin að samþykkja fyrir sína parta að slíkur launamunur ætti ekki að vera milli stéttanna, segir formaður Kennarasambands Íslands, Þórður Hjaltested. 17.8.2011 08:30
Sjálfstætt Wales væri 39 prósentum ríkara Ef Wales hefði sagt skilið við Bretland og fengið sjálfstæði þegar Berlínarmúrinn féll, árið 1989, væri það um 39 prósentum ríkara land en það er. 17.8.2011 08:15
Danir orðnir að þjóð af pilluætum Nærri hálf milljón Dana tekur nú lyf gegn þunglyndi og hefur fjöldi þeirra tvöfaldast frá árinu 1999. 17.8.2011 08:00
Fjögur ráðuneyti skoða tolla á kjöti Starfshópur fjögurra ráðuneyta mun bregðast við úrskurði umboðsmanns Alþingis þess efnis að meinbugir séu á tollalögum og þau stangist á við stjórnarskrá. Málið snýr að heimildum ráðherra til ákvörðunar um álagningu tolla á landbúnaðarvörur. 17.8.2011 08:00
Tvö útköll vegna elds Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út í gærkvöldi vegna elds í strætóskýli við Skógarsel í Breiðholti. 17.8.2011 07:57
Burt Reynolds að missa hús sitt Gamla Hollywood hetjan Burt Reynolds má muna fífil sinn fegri en banki hefur gert kröfu um að einbýlishús hans í Flórída verði selt á uppboði þar sem Reynolds hefur ekki borgað af húsnæðisláni sem hvílir á því í um eitt ár. 17.8.2011 07:54