Fleiri fréttir

Enn skelfur jörð við Grindavík

Skjálfti af stærðinni 3,4 varð á ellefta tímanum í gærkvöldi um tvo og hálfan kílómetra austnorður af Grindavík. Skjálftinn átti upptök sín skammt undir yfirborði jarðar eða á um 2,5 kílómetra dýpi og því fannst hann greinilega í bænum.

Lögreglan á Selfossi elti meinta innbrotsþjófa til Reykjavíkur

Lögreglan á Selfossi fékk rétt fyrir klukkan fimm í morgun tilkynningu um yfirstandandi innbrot í sumarhús í Úthlíð. Á leið sinni þangað mætti lögreglan meintum gerendum á bíl en þeir sinntu ekki stöðvunarmerkjum og reyndu að komast undan lögreglu.

Skrímsli eru til rétt eins og dýrlingar

Skrímslasetrið á Bíldudal hefur tekið nokkrum stakkaskiptum síðustu daga. Þó að enn dúsi sömu skrímslin innan veggja eru nú önnur komin utan á safnið. Sá sem hefur laðað þessa vætti á veggina er þó enginn heimamaður, og þó. Þarna er að verki spænski myndlistarmaðurinn Ignacio López Moreno, sem jafnframt er prófessor við Háskólann í Murcia.

Bílaumferðin eykst óvænt

Umferð frá höfuðborgarsvæðinu um hringveginn jókst um tólf prósent um síðustu helgi, miðað við sama tíma í fyrra. Þetta er metaukning milli ára, að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar.

Í fangelsi fyrir Facebook-skrif

Um 1.400 einstaklingar hafa verið ákærðir fyrir brot í tengslum við óeirðirnar í Bretlandi í síðustu viku. Flestir hafa þegar farið fyrir dómara og nokkrir þegar hlotið dóma.

SA mótmælir hærri sköttum

Samtök atvinnulífsins hafa sent ríkisstjórninni bréf þar sem þau mótmæla áformum um skattahækkanir á stóriðju, sjávarútveg og banka vegna fjárlagagerðar fyrir árið 2012.

Afli í júlí minni í ár en í fyrra

Heildarafli íslenskra fiskveiðiskipa var rúmlega ellefu prósentum minni í júlí 2011 en í sama mánuði í fyrra. Er þá miðað við fast verðlag. Þetta kemur fram í tölum Hagstofu Íslands. Alls veiddust 103.531 tonn í júlí í ár, en 116.942 tonn í júlí 2010.

Hungurverkfallið heldur áfram

Indverska baráttumanninum Anna Hazare var sleppt úr haldi í gær eftir að hafa verið settur í varðhald vegna fyrirhugaðs hungurverkfalls til að þrýsta á um harðari lög gegn spillingu, sem er landlæg í Indlandi.

Shell berst við leka olíuleiðslu

Starfsmenn olíurisans Shell berjast nú við að komast fyrir leka úr lögn frá einum borpalli fyrirtækisins út af ströndum Skotlands.

Varar við „tröllasögum“ um okurleigu

Óvíst er hvers konar áhrif fyrirhuguð innreið Íbúðalánasjóðs mun hafa á leigumarkaðinn á höfuðborgarsvæðinu. Þetta segir Sigurður Helgi Guðjónsson, formaður Húseigendafélagsins. Hann bætir því við að sögusagnir um háa leigu skaði markaðinn.

„Gaman að æfa með Daly“

Ólafur Björn Loftsson, fyrrverandi Íslandsmeistari úr Nesklúbbnum, varð fyrsti íslenski kylfingurinn til að tryggja sér keppnisrétt á móti á PGA-mótaröðinni með sigri á hinu sterka Cardinal áhugamannamóti á sunnudag. Ólafur hefur með sigrinum ekki aðeins skrifað nýjan kafla í íslenska golfsögu heldur er það mat manna að árangur hans geti haft djúpstæðari þýðingu fyrir íslenskt golf þegar til framtíðar er litið.

Fyrsta gleðigangan í Nepal

Fyrsta gleðiganga samkynhneigðra í Nepal var haldin um helgina í tengslum við hina fornu kúahátíð Gai jatra. Sú hátíð var upphaflega haldin til að minnast látinna ættingja en hefur á seinni árum snúist upp í almenna gleðihátíð, þar sem fólk klæðir sig gjarnan í alls kyns afkáralega búninga og hefur frávik mannlífsins í hávegum.

35 látnir í árás hersins

35 manns hafa látist af völdum hersins í borginni Latakia í Sýrlandi undanfarna fjóra daga, að sögn íbúa. Af sautján manns sem drepnir voru í landinu á mánudag samkvæmt mannréttindasamtökum voru sex í Latakia.

Einn af virtari viðburðum PGA-mótaraðarinnar

Sedgefield golfklúbburinn geymir mikla sögu enda gestgjafi eins grónasta viðburðar á PGA-mótaröðinni frá stofnun hennar, eða Wyndham Championship. Stofnað var upphaflega til mótsins árið 1938 undir heitinu Greater Greensboro Open, og var Sedgefield klúbburinn gestgjafinn í yfir fjóra áratugi samfleytt. Sagan geymir meistara eins og Sam Snead, Gary Player, Byron Nelson og Ben Hogan, svo fáeinir af frægari kylfingum fortíðarinnar séu nefndir.

Lést í hákarlaárás í brúðkaupsferðinni sinni

Yfirvöld á Seychelles eyjum hafa staðfelst að þrítugur karlmaður frá Bretlandi hafi látið lífið þegar hákarl réðst á hann við Paslin eyju í dag. Maðurinn var staddur á eyjunni ásamt eiginkonu sinni í brúðkaupsferð þeirra hjóna.

Tíu kílómetra maraþon í rafmagnshjólastól

Andri Valgeirsson er einn þeirra sjö þúsund hlaupara sem hafa skráð sig til þátttöku í Reykjavíkurmaraþoninu, sem fer fram laugardaginn 20 ágúst næstkomandi. Þrátt fyrir mikinn fjölda hlaupara má gera ráð fyrir því að Andri komi til með að skera sig sýnilega úr fjöldanum. Andri er nefnilega bundinn við rafmagnshjólastól.

Fálkaunginn dafnar vel í Húsdýragarðinum

Fálkaunginn sem var fluttur særður frá Akureyri til Reykjavíkur fyrir tæpri viku er orðinn aðalstjarna Húsdýragarðsins. Þar dvelur hann í veglegu búri, fær lambakjöt í gogginn og hlýðir á fallega tóna.

Hyggjast uppræta unglingadrykkju á Menningarnótt

Óvenjulegur blaðamannafundur um Menningarnótt fór fram á Hlemmi í dag, strætisvagnabiðstöðinni sem borgarstjóri kallar æskustöðvar sínar. Lögregla hyggst uppræta unglingadrykkju á Menningarnótt.

SA mótmæla skattahækkunum bréflega

Samtök atvinnulífsins mótmæla áformum um skattahækkanir á stóriðju, sjávarútveg og banka vegna fjárlagagerðar fyrir árið 2012. SA telja áformin afar misráðin og benda á að allt kapp verði að leggja á að auka fjárfestingar og hagvöxt eins og stefnt var að við gerð kjarasamninga og fram kemur í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 5. maí.. Þetta kemur fram í bréfi Samtaka atvinnulífsins til Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra. Í bréfinu kemur fram það mat SA að skattheimta á Íslandi sé komin á ystu mörk og engin efni til að hækka skatta frekar en orðið er enda sé Ísland í 4.-5. sæti yfir mestu skattalönd heimsins þegar skoðað er hlutfall skatttekna af landsframleiðslu og tekið er tillit til mismunandi fyrirkomulags lífeyrismála. SA telja að þau áform sem kynnt hafa verið um skattahækkanir beri þess merki að ákveðin uppgjöf hafi orðið við að ná endum saman í ríkisbúskapnum. Ítarleg rök eru færð fyrir því í bréfi SA að hækkun skatta á stóriðju, sjávarútveg og fjármálafyrirtæki sé skaðleg fyrir íslenskt efnahagslíf og leggjast því Samtök atvinnulífsins eindregið gegn áformum ríkisstjórnarinnar. „Aukin skattheimta felur í sér uppgjöf gagnvart því verkefni að efla atvinnulífið, ná niður atvinnuleysinu og bæta lífskjör þjóðarinnar til frambúðar," segja Vilmundur Jósefsson, formaður SA, og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í niðurlagi bréfsins.

Uppreisnarmenn eiga ekki í viðræðum við Sameinuðu þjóðirnar

Leiðtogi uppreisnarmanna í Líbíu hefur vísað því á bug að hann eigi í viðræðum við erindreka Sameinuðu þjóðanna. Þetta kom fram á upplýsingafundi nú fyrr í dag. Leiðtoginn, Mustafa Abdel Jalil, tók einnig fram að hann ætti ekki í nokkrum viðræðum við ríkisstjórn Muammar Gaddafi.

Þrjár kannabisræktanir í Hafnarfirði

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði þrjár kannabisræktanir í Hafnarfirði á föstudag og laugardag. Nokkrir karlmenn voru handteknir og yfirheyrðir í tengslum við aðgerðirnar en lagt var hald á bæði kannabisplöntur og græðlinga auk ýmiss búnaðar sem fylgir slíkri starfsemi. Á einum staðnum var einnig lagt hald á töluvert af peningum sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Á sunnudag var einnig framkvæmd húsleit í Hafnarfirði og þá fundust nokkrir tugir gramma af marijúana. Sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

HR settur í dag - 1300 nýnemar

Háskólinn í Reykjavík var settur í dag þegar tekið var á móti nýnemum skólans. Að þessu sinni hefja um 1300 nemendur nám við Háskólann í Reykjavík. Flestir hefja nám við tækni- og verkfræðideild eða um 400. Tæplega 300 nemendur hefja nám við tölvunarfræðideild og viðskiptadeild og rúmlega 150 nemendur hefja nám við lagadeild. Þá er að geta þess að tæplega 170 nemendur hefja frumgreinanám við skólann á þessu hausti, sem er gríðarleg aukning frá fyrri árum

Sjónvarp drepur

Áströlsk rannsókn hefur leitt í ljós að sjónvarpsgláp styttir líf fólks. Rannsóknin var birt í British Journal of Sports Medicine. Niðurstaðan var að hver klukkutími af áhorfi eftir 25 ára aldur kostar fólk 22 mínútur af lífi.

Átökin í Líbíu - fundir með báðum aðilum

Sérstakur erindreki Sameinuðu þjóðanna í Líbíu tilkynnti í dag að hann muni eiga fund með hvorum tveggja, fulltrúum uppreisnarmanna og liðsmönnum Gaddafi. Fundirnir fela ekki í sér sáttarviðræður, enda fara þeir fram með hvorum aðilanum fyrir sig.

Erfitt að tilkynna vini og nágranna fyrir illa meðferð á dýrum

Algengast er að tilkynningar um slæma meðferð á dýrum varði fólk sem á við félagsleg vandamál að etja. Dæmi eru um að fólk berji og sparki í gæludýrin sín, jafnvel í þeirri trú að það sé að þjálfa þau. Margrét Björk Sigurðardóttir frá Dýraverndunarsambandinu var gestur þáttarins Í bítið í morgun þar sem hún ræddi um slæma meðferð á dýrum. „Þetta er náttúrulega falið vandamál, af því að, eins og hjá gæludýrunum, þá er þetta inni á heimilum fólks, þetta eru oft nágrannar og vinir, þetta eru viðkvæm mál og það er erfitt að taka á þessum málum og maðurl veit að fólk er feimið við að láta vita," segir hún. Ein birtingarmynd sslæmrar meðferðar er vanræksla en tilkynnt hefur verið um fólk sem skilur hundana sína eftir eina í lengri tíma, jafnvel heilu helgarnar á meðan eigendurnir fara í utanlandsferð. Alvarlegustu tilvikin þegar kemur að illri meðferð, vanrækslu dýra og ofbeldi, varða fólk sem vegna eigin vandamála er óhæft til að sjá um dýr. „Það sem er algengast, því miður, er þar sem við sjáum að það eru jafnvel önnur félagsleg vandamál, og þar er ástandið oft verst, og þar skiptir rosalega miklu máli að grípa inn í því það getur verið ljóst að fólkið hefur ekki burði til að gera það sjálft," segir Margrét Björk. Dýraverndunarsambandið fær minnst eina tilkynningu á viku um mjög slæma meðferð á dýrum. Úrræði yfirvalda til að grípa inn í eru af skornum skammti. „Þau hafa samt úrræði í lögum að þau geta farið inn og þau mega taka dýr, þau mega svipta fólk heimild til að halda dýr, en ég veit ekki til þess að þessu hafi nokkurn tíman verið beitt," segir hún. Margrét Björk segir allt of fá mál fara alla leið fyrir dómstólum. „Og dómar hafa yfirleitt verið vægir og dómarar hafa til dæmis aldrei svipt manneskju leyfi til að halda dýr, jafnvel þrátt fyrir ítrekuð brot," segir hún.

Símahleranir - Murdoch-feðgar í vandræðalegri stöðu

Feðgarnir og fjölmiðlabarónarnir James og Rupert Murdoch standa nú í meiriháttar veseni. Hjá Ofcom, sem er nokkurs konar útvarpsréttarnefnd Bretlands, stendur yfir rannsókn á því hvort þeir séu enn hæfir til að reka fjölmiðil. Þá vex einnig þrýstingur á James að segja af sér sem formaður SKY. Þingmaðurinn Tom Watson kallaði málið „stærstu yfirhylmingu sem hann hefði séð á ævinni".

Ósammála um hvort loka þarf leikskóladeildum

Lögfræðingur Kennarasambands Íslands, sem Félag leikskólakennara heyrir undir, er ósammála þeirri túlkun forsvarsmanna Sambands íslenskra sveitarfélaga að leikskóladeildir geti starfað áfram ef deildarstjórinn er í verkfalli. "Lögfræðingur okkar túlkar þetta á annan hátt og það er sú túlkun sem við munum fara eftir," segir Haraldur F. Gíslason, formaður Félags leikskólakennara. Í hádegisfréttum RÚV var greint frá því að Inga Rún Ólafsdóttir, sviðsstjóri kjarasviðs sambandsins, segi það mat sambandsins að leikskólastjórum skuli sjá til þess að allar deildir séu starfandi á meðan verkfalli stendur, og nýta til þess það starfsfólk sem ekki er í verkfalli. Að mati sambandsins geta leikskólastjórnendur fært starfsfólk á milli deilda með það að markmiði að halda sem flestum deildum opnum. Þessu er lögfræðingur Kennarasambandsins ósammála. Haraldur segir í samtali við fréttastofu að hans fólk setjist á fund með lögfræðingnum nú klukkan tvö þar sem farið verði yfir stöðuna. Fyrir liggur að einhverjar leikskóladeildir halda áfram að starfa þrátt fyrir verkfall, sama hvaða túlkun er miðað við, þar sem ófaglærðir starfsmenn leikskóla sem ekki eru í Félagi leikskólakennara munu áfram mæta til vinnu. Þá heyra stjórnendur á leikskólum ekki undir félagið heldur eru þeir í Félagi stjórnenda í leikskólum. Upp úr samningaviðræðum slitnaði í gær og blasir við verkfall næstkomandi mánudag. Verkfallið mun hafa áhr8

ÍLS ætlar að setja fleiri eignir í sölu

Íbúðalánasjóður hyggst setja fleiri fasteignir á markað til sölu á næstu mánuðum. Velferðarráðherra segir þó að lánshlutfall sjóðsins verði lækkað og eiginfjárkrafan hærri.

Hungursneyð í Afríku

Eftir langvarandi þurrka og uppskerubresti er mikill skortur á matvælum og hráefnum í Afríku.

Barnaníð í Eyjum: Aðalmeðferð í dag

Aðalmeðferð fer fram í dag við Héraðsdóm Suðurlands í máli manns á fimmtugsaldri sem sakaður er um að hafa misnotað stúlkubarn svo mánuðum skipti í Vestmannaeyjum. Athæfið átti sér stað síðari hluta árs 2009 og fyrri hluta ársins 2010 og í fórum mannsins fannst fjöldi ljósmynda og hreyfimynda sem hann hafði meðal annars tekið af sér og barninu.

Varað við gaskútaþjófum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar fólk við gaskútaþjófum sem hafa verið víða á ferð að undanförnu. Því ættu gaskútaeigendur að gera ráðstafanir ef þeir mögulega geta, ekki síst þeir sem eru með gaskúta á fellihýsum sínum. Fjórum gaskútum var stolið í Reykjavík og Kópavogi á föstudag og laugardag að því er fram kemur í tilkynningu.

Heimili og skóli: Verkfall mun hafa lamandi áhrif

Landssamtök foreldra, Heimili og skóli, segjast í yfirlýsingu hafa miklar áhyggjur af yfirvofandi verkfalli leiksskólakennara. „Slíkt verkfall mun hafa mjög slæmar afleiðingar fyrir leikskólabörn og foreldra í landinu og lamandi áhrif fyrir samfélagið í heild,“ segir í yfirlýsingunni. Þá hvetja samtökin samningsaðila til að komast að samkomulagi sem fyrst. „Mikilvægt er að í leikskólum landsins starfi metnaðarfullt fagfólk því þar fer fram mikilvægt starf þar sem grunnur er lagður að þroska og menntun barna.“

Sextán ára grunaður um morð

Lögreglan í Bretlandi hefur ákært sextán ára dreng fyrir morð sem átti sér stað í óeirðunum í London.

Assad herðir atlöguna gegn uppreisnarmönnum

Forseti Sýrlands, Bashar Assad, hefur uppá síðkastið hert vígbúnað sinn til muna. Það er tilraun til að kæfa uppreisnina sem þar geisar. Ástæðan er að nú stendur yfir hinn heilagi mánuður múslima, Ramadan. Yfirvöld ætla sér að bæla niður uppreisnarmenn svo halda megin Ramadan heilagan þar í landi.

Gríðarleg flóð í Noregi

Gríðarleg flóð brustu á í suðurhluta Noregs í morgun eftir miklar rigningar og leysingar á stórum svæðum. Verst hefur ástandið verið í Syðri-Þrændalögum og hefur fjöldi fólks neyðst til þess að yfirgefa heimili sín og sumarhús. Loka þurfti hraðbraut nálægt Strandlykka eftir að aurskriða féll á veginn í gær en skriðan fór einnig yfir lestarteina sem tengja Þrándheim og Osló.

Stöðvaður fyrir fíkniefnaakstur

Lögreglan á Akranesi stöðvaði för ökumanns á Akrafjallsvegi í liðinni viku þegar grunur vaknaði um að hann væri undir áhrifum fíkniefna. Ökumaðurinn var færður á lögreglustöð og bráðabirgðaprófanir gáfu til kynna að hann hafi neytt amfetamíns og kannabisefna. Þá var tekin blóðprufa og send í rannsókn, til að staðfesta fíkniefnaneyslu. Lögreglan í umdæminu stöðvaði sex ökumenn í vikunni eftir að þeir mældust á of miklum hraða. Sá sem hraðast ók keyrði eftir Vesturlandsveginum á 136 kílómetra hraða.

Stálu fartölvum, leikjatölvu og hálsmeni

Brotist var inn í íbúðarhúsnæði á Akranesi í liðinni viku á meðan heimilisfólkið var á ferðalagi. Þjófarnir spenntu upp glugga og fóru þar inn. Tveimur fartölvum var stolið, leikjatölvu og hálsmeni, auk þess sem rótað var í flestum hirslum. Málið er í rannsókn.

Óttast brottfall úr stéttinni náist ekki samningar

Haraldur F. Gíslason formaður félags leiksskólakennara segist óttast mikið brottfall úr stéttinni, verði kröfum þeirra ekki mætt, en þeir krefjast þess að fá sambærileg laun og aðrar stéttir með sömu menntun. Þetta kom fram í viðtali við Harald í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Skilja hundinn eftir einan heila helgi

Dýraverndunarsamband Íslands fær að lágmarki eina tilkynningu á viku um slæma meðferð á dýrum. Margrét Björk Sigurðardóttir frá Dýraverndunarsambandinu segir algengast að þeir sem fari illa með dýr eigi við önnur félagsleg vandamál að etja. „Þá erum við jafnvel að sjá mjög slæma vanhirðu á dýrunum, mjög slæma líkamlega meðferð," sagði Margrét Björk í þættinum Í bítið í morgun. Dæmi eru um að fólk berji dýrin sín og sparki í þau. Þá sagði Margrét Björk að dæmi væru um að fólk skildi gæludýr eftir ein lengi og að þetta væri sérstakt vandamál þegar kæmi að hundahaldi. „Fólk jafnvel telur í lagi að skilja þá eftir heilu helgarnar, skreppa jafnvel erlendis og skilja hundinn eftir," segir hún. Hægt er að hlusta á viðtal við Margréti Björk um dýravernd með því að smella á tengilinn hér að ofan. Hægt er að tilkynna illa meðferð á dýrum með því að hafa samband við Dýraverndunarsambandið, við Umhverfisstofnun ef um er að ræða gæludýr, við Matvælastofnun ef um er að ræða búfé, eða hreinlega við lögregluna

Þurfa á milli 30 og 50 sjálfboðaliða

Stígamót eru nú að setja á laggirnar nýtt námskeið fyrir sjálfboðaliða sem munu starfa í nýju athvarfi fyrir þolendur vændis og mansals. Athvarfið verður opnað í byrjun september. Sjálfboðaliðar munu starfa við viðveru og þátttöku í daglegu lífi athvarfsins og telur Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, að samtökin þurfi á milli 30 og 50 konur til starfa.

Sjá næstu 50 fréttir