Fleiri
Halldór 02.11.2010 1.11.2010 20:19 Læknum hefur fækkað um 100 Læknum á Íslandi hefur fækkað um 100 síðustu tvö árin, segir Þorbjörn Jónsson, formaður læknaráðs Landspítalans. Þorbjörn sagði í samtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag að þetta væru um 10% allra starfandi lækna á Íslandi. 1.11.2010 19:07 Sárvantar fólk til starfa Hugbúnaðargeirann sárvantar fólk til starfa, segir forstjóri Marorku, og segir að niðurskurður á kennslu í tæknigreinum muni hamla eðlilegum vexti greinarinnar, sem skapað gæti mörg þúsund ný störf á næstu árum. 1.11.2010 18:55 Bjarni Ben vill þjóðstjórn Formaður Sjálfstæðisflokksins vill mynda þjóðstjórn þvert á flokka í nokkra mánuði og boða svo til kosninga en flokkurinn kynnti í dag tillögur í atvinnumálum sem eiga að skapa 22 þúsund ný störf. 1.11.2010 18:45 Hefur mistekist að draga úr kostnaði í heilbrigðiskerfinu Markmið í rekstri heilbrigðisþjónustunnar hefur verið að draga úr kostnaði en það hefur mistekist, sagði Michael Porter, prófessor við Harvard Business School í fyrirlestri um heilbrigðiskerfið í dag. 1.11.2010 18:11 Yfir 100 þjóðir taka þátt í Alþjóðlegri athafnaviku Yfir 100 þjóðir munu taka þátt í Alþjóðlegri athafnaviku sem haldin verður í þriðja sinn dagana 15. - 21. nóvember næstkomandi. Í fréttatilkynningu frá nýsköpunar og frumkvöðlasetrinu Innovit kemur fram að aldrei áður hafi jafn 1.11.2010 17:18 Almannavarnir lýsa yfir lægsta háskastigi Almannavarnir lýsa yfir lægsta háskastigi vegna jökulhlaups og jarðhræringa í Grímsvötnum. Fundur var haldinn í vísindamannaráði í dag vegna nýjustu atburða í náttúru Íslands. 1.11.2010 16:50 Þorleifur: Víst niðurskurður í velferðarmálunum Þorleifur Gunnlaugsson, fulltrúi VG í velferðarráði segir ekki rétt sem fram kom í máli S. Björns Blöndals, aðstoðarmanns borgarstjóra á Vísi fyrr í dag, að ekki standi til að skera niður í velferðarmálum hjá borginni umfram verðlagsbreytingar. Þorleifur segir að á fundi velferðarráðs í dag hafi verið rætt um að skera niður félagsstarf aldraðra, ferðir aldraðra í sund og í strætó, svo dæmi séu tekin. Þá eigi að skerða greiðslur til skammtímavistunar unglinga og til unglingasmiðja. 1.11.2010 16:38 Holtavörðuheiðin opnuð á ný Búið er að opna fyrir umferð á Holtavörðuheiði en hún lokaði í dag eftir að flutningabíll ók aftan á aðra bifreið. 1.11.2010 16:36 Hrekkjavaka í Hvíta húsinu Bandarísku forsetahjónin tóku á móti miklum fjölda skrautlegra klædda barna í tilefni af hrekkjavökunni í gær. Börnin voru úr nálægum skólum. 1.11.2010 16:35 Snekkja Saddams komin heim Einkasnekkja Saddams Hussein kom til hafnar í borginni Basra í Írak í dag. Snekkjan hefur verið í Frakklandi síðustu tvö árin, en frönsk yfirvöld lögðu hald á hana þegar hún kom til Nice á Miðjarðarhafsströnd landsins í lok janúar árið 2008. 1.11.2010 16:32 Ísjaki sleit háspennulínu Ísjaki úr hlaupinu úr Grímsvötnum rakst í háspennumastur sem er við árfarveginn og slitnaði rafmangslína í kjölfarið. Því er rafmagnslaust á Kirkjubæjarklaustri en varðstjóri lögreglunnar á Hvolsvelli segir starfsmenn Landsnets vinna að lagfæringum. 1.11.2010 16:17 Holtavörðuheiði lokuð - flutningabíll þversum á veginum Holtavörðuheiðin er lokuð að því er fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni vegna umferðaróhapps. Að sögn lögreglunnar á Blönduósi sem er á vettvangi var um aftanákeyrslu að ræða. Einn ökumaður kvartaði undan eymslum en mun ekki vera alvarlega slasaður. Flutningabíll rann til við óhappið og er nú þversum á veginum og óljóst er hvenær hægt verður að opna hann á ný. 1.11.2010 15:39 Langveik börn komast í utanlandsferðir Iceland Express og Umhyggja, félag til stuðnings langveikum börnum, hafa gert með sér samstarfssamning til þriggja ára. Með samningnum verður Iceland Express einn af styrktaraðilum Umhyggju. 1.11.2010 15:11 Ný lög um lögskráningu sjómanna taka gildi í dag Í dag taka gildi ný lög um lögskráningu sjómanna. Nýju lögunum fylgja þær breytingar helstar að lögskráning færist til útgerða og skipstjóra og framvegis verður skylt að lögskrá alla í áhöfn á öllum skipum sem notuð eru í atvinnuskyni. Siglingastofnun Íslands heldur utan um nýja kerfið og sér um lögskráningar þeirra sem þess óska. 1.11.2010 14:32 Vilja draga skattahækkanir til baka og skapa 22 þúsund störf Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, kynnti hugmyndir þingflokks Sjálfstæðisflokksins í dag, sem þeir kalla „að gefa heimilunum von". 1.11.2010 14:24 Obama sagður ólöglegur innflytjandi Um 25 prósent bandarísku þjóðarinnar trúa því að Barack Obama sé ekki bandarískur ríkisborgari. Það sé því brot á stjórnarskránni að hann skuli vera forseti. 1.11.2010 14:10 Sjá næstu 50 fréttir
Fyrrverandi fjármálaráðherra vill vinna í Róm Árni M. Mathiesen hefur sóst eftir starfi hjá Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO). Ekki hefur fengið staðfest hvort hann hafi fengið starfið en samkvæmt bloggsíðu blaðamannsins, Eiríks Jónssonar, þá hefur hann fengið starfið og mun starfa í Róm. 2.11.2010 09:48
Bæjarfulltrúar sýknaðir: „Óþægilegt að hafa þetta hangandi yfir sér“ „Ég var ekki mjög kvíðinn yfir þessu, en það er óþægilegt að hafa svona lagað hangandi yfir sér," segir Guðríður Arnardóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi. Hún, Ólafur Þór Gunnarssyni og Hafsteinn Karlsson voru sýknuð í morgun í meiðyrðamáli sem Frjáls miðlun höfðaði í Héraðsdómi Reykjaness. 2.11.2010 09:19
Varaformaður Siðmenntar stígur til hliðar í mannréttindaráði Bjarni Jónsson, fulltrúi Samfylkingar í mannréttindaráði, hefur dregið sig í hlé frá afgreiðslu tillögu mannréttindaráðs um samskipti trúfélaga og skóla. Bjarni er varaformaður Siðmenntar, félags húmanista, og gagnrýndu sjálfstæðismenn í ráðinu að Bjarni tæki þátt í afgreiðslu málsins þar sem að þeirra mati hafði hann hagsmuna að gæta af því hver niðurstaðan yrði. Meirihluti ráðsins komst þó að þeirri niðurstöðu að Bjarni væri vel hæfur. Engu að síður hefur Bjarni ákveðið að stíga til hliðar. 2.11.2010 08:58
Þing Norðurlandaráðs sett í dag Þing Norðurlandaráðs verður sett klukkan 14.30 í dag á Grand hóteli. Þetta er 62. þingið sem haldið er. Þingið hefst með ávarpi forseta Alþingis, Ástu R. Jóhannesdóttur og forseta Norðurlandaráðs, Helga Hjörvars. Í kjölfarið hefst Norrænn leiðtogafundur. Efni leiðtogafundarins er: Grænn hagvöxtur - leiðin út úr kreppunni. Að leiðtogafundi loknum kynnir forsætisráðherra Finna, Mari Kiviniemi, formennskuáætlun Finna í Norrænu ráðherranefndinni árið 2011. 2.11.2010 08:39
Franska strandgæslan vill banna sund yfir Ermarsund Franska strandgæslan vill banna sundmönnum að synda yfir Ermarsundið. Telur strandgæslan það aðeins tímaspursmál hvenær alvarlegt slys verði vegna þungrar skipaumferðar um sundið. 2.11.2010 07:58
Umferð um þjóðveginn eykst að nýju Umferð jókst um rúmlega þrjú prósent á hringveginum í síðasta mánuði, samkvæmt talningu Vegagerðarinnar á 16 mælingastöðvum umhverfis landið. 2.11.2010 07:52
Berlusconi berst fyrir pólitísku lífi sínu vegna hneykslismáls Silvio Berlusconi forsætisráðherra Ítalíu berst nú að nýju fyrir pólitísku lífi sínu vegna hneykslismáls sem komið er upp. 2.11.2010 07:48
Skriðdrekaflugskeyti skotið að húsi í Nörresundby Skriðdrekaflugskeyti var skotið að húsi í Nörresundby skammt frá Álaborg í Danmörku í gærkvöldi. 2.11.2010 07:47
Þrír sluppu ómeiddir úr bílveltu Þrír sluppu nær ómeiddir þegar bíll þeirra fór út af veginum á Fróðárheiði á Snæfellsnesi um átta leitið í gærkvöldi og valt nokkrar veltur. 2.11.2010 07:43
Hlaupið í Gígju gæti náð hámarki í kvöld Vatnsrennsli og þar með vatnshæðin jukust jafnt og þétt í Gígju í alla nótt og rafleiðnin í vatninu stígur líka nokkuð nokkuð hratt, sem bendir til vaxandi hlutfalls jarðhitavatns. 2.11.2010 07:40
Vopnaðir menn rændu flugvél á alþjóðaflugvelli í Hondúras Fimm vopnaðir menn réðust inn á herbækistöð við La Mesa alþjóðaflugvöllinn í Hondúras í gær og stálu þar flugvél sem yfirvöld í Hondúras lögðu hald á í fyrra þegar ráðist var til atlögu við fíkniefnasmyglara. 2.11.2010 07:38
Lögreglan náði ölvuðum ökumanni á hlaupum Ölvaður ökumaður ók á vegkant og umferðarskilti við Gullinbrú í Reykjavík í nótt og varð bíllinn óökufær eftir. 2.11.2010 07:27
Hitabeltisstormurinn Tómas ógnar íbúum Haíti Hitabeltisstormurinn Tómas gæti aftur náð fellibylssyrk síðar í vikunni þegar hann skellur á Haíti en Tómas hefur herjað á Karabíska hafinu undanfarna daga. 2.11.2010 07:22
Ákært um eða eftir áramót Ekki er útlit fyrir að landsdómur komi saman vegna ákæru á hendur Geir H. Haarde fyrr en í kringum áramót. Undirbúningur er nú í gangi, bæði hjá saksóknara Alþingis og á skrifstofum Hæstaréttar. 2.11.2010 06:45
Atvinnuleysi mælist 7,5 prósent Atvinnuleysi mælist nú 7,5 prósent í Þýskalandi, sem merkir að rúm 3,1 milljón manna er þar án atvinnu, samkvæmt upplýsingum hagstofu Evrópusambandsins. 2.11.2010 06:00
Kynnir skýrsluna fyrir ráðuneyti Nettósparnaður vegna niðurskurðar á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða yrði um 28 milljónir króna, samkvæmt skýrslu sem unnin var fyrir hönd grasrótarsamtakanna Heimavarnarliðsins. Skýrslan var unnin af Dóru Hlín Gísladóttur, verkfræðingi og talskonu Heimavarnarliðsins, og Kristni Hermannssyni hagfræðingi. 2.11.2010 06:00
Verður kynnt á næstu dögum Stefnt er að því að kynna niðurstöður sérfræðingahóps stjórnvalda sem reiknar nú út kostnað við mögulegar aðgerðir stjórnvalda fyrir skuldug heimili í þessari viku. 2.11.2010 06:00
Landsdómur þarf að velja á milli hjóna Ákveðið hefur verið innan Háskóla Íslands að Björg Thorarensen, prófessor í stjórnskipunarrétti, muni taka sæti í landsdómi. Það veldur því að annað hvort hún eða Markús Sigurbjörnsson, hæstaréttardómari og eiginmaður Bjargar, verður að víkja úr sæti dómara þegar landsdómur kemur saman, þar sem hjón mega ekki sitja í dóminum. 2.11.2010 06:00
Vilja hótel í Hafnarstræti á ný Fosshótel hafa áhuga á því að starfrækja hótel á ný í Hafnarstræti 98 á Akureyri, gamla Hótel Akureyri. Fyrirtækið hefur skoðað málið með byggingafyrirtæki og eigendum hússins, Saga fjárfestingabanka og KEA, að undanförnu. 2.11.2010 05:30
Jarðvarmageiri þarf umgjörð til að dafna „Tími er kominn til að ræða um framtíðina og láta af umræðu um orsakir kreppunnar,“ sagði prófessor Michael Porter á Iceland Geothermal jarðvarmaráðstefnunni sem fram fór í Háskólabíói í gær. Á henni var fjallað um klasamyndun í jarðvarmageira og hvernig hún gæti orðið grundvöllur aukins hagvaxtar. 2.11.2010 05:00
Sjónir manna beinast að Nevada Skoðanakannanir í Bandaríkjunum spá demókrötum ekki góðum árangri í þingkosninunum, sem haldnar verða í dag. Þeir hafa haft öruggan meirihluta í báðum deildum þingsins, en nú virðist ætla að verða breyting þar á. 2.11.2010 05:00
Deilur um þrotabú banka streyma til dómstólanna Holskefla ágreiningsmála vegna föllnu bankanna hellist nú yfir héraðsdómstóla. Fyrstu níu mánuði ársins voru höfðuð 561 ágreiningsmál vegna gjaldþrotaskipta. Þetta eru um 25 sinnum fleiri mál en í meðalári, þegar þau fylla gjarnan annan tuginn. 2.11.2010 04:00
Hver listnemi kostar allt að þremur milljónum króna Verja á samtals 9,4 milljörðum króna til kennslu í háskólum landsins á næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpinu. Fjárframlög til hvers skóla um sig eru ákveðin út frá reiknilíkani þar sem tekið er tillit til kostnaðar við kennsluna. 2.11.2010 04:00
Þriðjungur landsmanna styður stjórnina „Þau stjórnvöld sem fara af hjörunum yfir því að mælast lágt í miðjum erfiðleikum eru ekki vandanum vaxin,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður Vinstri grænna. 2.11.2010 04:00
Brýnt að bæta stöðu aldraðra hér á landi Þing Norðurlandaráðs verður sett í dag klukkan 14.30 á Grand Hóteli í Reykjavík. Alls eru 35 erlendir ráðherrar nú staddir hér á landi til þess að sitja þingið ásamt um 600 fjölmörgum embættismönnum og almennum starfsmönnum. 2.11.2010 03:15
Upphaf Paradísar lofar góðu Einn og hálfur mánuður er liðinn síðan Bíó Paradís tók til starfa í gamla Regnboganum. Þessum nýju heimkynnum listrænna bíómynda, klassískra mynda og kvikmyndahátíða hefur verið vel tekið að mati Lovísu Óladóttur framkvæmdastjóra. 2.11.2010 00:01
Þrir til skoðunar eftir umferðaróhapp á Fróðarheiði Þrír voru fluttir á sjúkrahús til skoðunar þegar að bifreið valt á Fróðarheiði í nágrenni við Ólafsvík í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Snæfellsnesi var um tvo karlmenn og konu að ræða. 1.11.2010 22:10
Ellefu vilja í Turninn á Lækjartorgi Ellefu aðilar gerðu tilboð í leigu á Turninum á Lækjartorgi. Tilboðin voru opnuð í morgun hjá Innkaupaskrifstofu. Eins og fram hefur komið var turninn fluttur á Lækjartorg í sumar eftir að hafa verið geymdur annarsstaðar um skeið. 1.11.2010 20:59
Læknum hefur fækkað um 100 Læknum á Íslandi hefur fækkað um 100 síðustu tvö árin, segir Þorbjörn Jónsson, formaður læknaráðs Landspítalans. Þorbjörn sagði í samtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag að þetta væru um 10% allra starfandi lækna á Íslandi. 1.11.2010 19:07
Sárvantar fólk til starfa Hugbúnaðargeirann sárvantar fólk til starfa, segir forstjóri Marorku, og segir að niðurskurður á kennslu í tæknigreinum muni hamla eðlilegum vexti greinarinnar, sem skapað gæti mörg þúsund ný störf á næstu árum. 1.11.2010 18:55
Bjarni Ben vill þjóðstjórn Formaður Sjálfstæðisflokksins vill mynda þjóðstjórn þvert á flokka í nokkra mánuði og boða svo til kosninga en flokkurinn kynnti í dag tillögur í atvinnumálum sem eiga að skapa 22 þúsund ný störf. 1.11.2010 18:45
Hefur mistekist að draga úr kostnaði í heilbrigðiskerfinu Markmið í rekstri heilbrigðisþjónustunnar hefur verið að draga úr kostnaði en það hefur mistekist, sagði Michael Porter, prófessor við Harvard Business School í fyrirlestri um heilbrigðiskerfið í dag. 1.11.2010 18:11
Yfir 100 þjóðir taka þátt í Alþjóðlegri athafnaviku Yfir 100 þjóðir munu taka þátt í Alþjóðlegri athafnaviku sem haldin verður í þriðja sinn dagana 15. - 21. nóvember næstkomandi. Í fréttatilkynningu frá nýsköpunar og frumkvöðlasetrinu Innovit kemur fram að aldrei áður hafi jafn 1.11.2010 17:18
Almannavarnir lýsa yfir lægsta háskastigi Almannavarnir lýsa yfir lægsta háskastigi vegna jökulhlaups og jarðhræringa í Grímsvötnum. Fundur var haldinn í vísindamannaráði í dag vegna nýjustu atburða í náttúru Íslands. 1.11.2010 16:50
Þorleifur: Víst niðurskurður í velferðarmálunum Þorleifur Gunnlaugsson, fulltrúi VG í velferðarráði segir ekki rétt sem fram kom í máli S. Björns Blöndals, aðstoðarmanns borgarstjóra á Vísi fyrr í dag, að ekki standi til að skera niður í velferðarmálum hjá borginni umfram verðlagsbreytingar. Þorleifur segir að á fundi velferðarráðs í dag hafi verið rætt um að skera niður félagsstarf aldraðra, ferðir aldraðra í sund og í strætó, svo dæmi séu tekin. Þá eigi að skerða greiðslur til skammtímavistunar unglinga og til unglingasmiðja. 1.11.2010 16:38
Holtavörðuheiðin opnuð á ný Búið er að opna fyrir umferð á Holtavörðuheiði en hún lokaði í dag eftir að flutningabíll ók aftan á aðra bifreið. 1.11.2010 16:36
Hrekkjavaka í Hvíta húsinu Bandarísku forsetahjónin tóku á móti miklum fjölda skrautlegra klædda barna í tilefni af hrekkjavökunni í gær. Börnin voru úr nálægum skólum. 1.11.2010 16:35
Snekkja Saddams komin heim Einkasnekkja Saddams Hussein kom til hafnar í borginni Basra í Írak í dag. Snekkjan hefur verið í Frakklandi síðustu tvö árin, en frönsk yfirvöld lögðu hald á hana þegar hún kom til Nice á Miðjarðarhafsströnd landsins í lok janúar árið 2008. 1.11.2010 16:32
Ísjaki sleit háspennulínu Ísjaki úr hlaupinu úr Grímsvötnum rakst í háspennumastur sem er við árfarveginn og slitnaði rafmangslína í kjölfarið. Því er rafmagnslaust á Kirkjubæjarklaustri en varðstjóri lögreglunnar á Hvolsvelli segir starfsmenn Landsnets vinna að lagfæringum. 1.11.2010 16:17
Holtavörðuheiði lokuð - flutningabíll þversum á veginum Holtavörðuheiðin er lokuð að því er fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni vegna umferðaróhapps. Að sögn lögreglunnar á Blönduósi sem er á vettvangi var um aftanákeyrslu að ræða. Einn ökumaður kvartaði undan eymslum en mun ekki vera alvarlega slasaður. Flutningabíll rann til við óhappið og er nú þversum á veginum og óljóst er hvenær hægt verður að opna hann á ný. 1.11.2010 15:39
Langveik börn komast í utanlandsferðir Iceland Express og Umhyggja, félag til stuðnings langveikum börnum, hafa gert með sér samstarfssamning til þriggja ára. Með samningnum verður Iceland Express einn af styrktaraðilum Umhyggju. 1.11.2010 15:11
Ný lög um lögskráningu sjómanna taka gildi í dag Í dag taka gildi ný lög um lögskráningu sjómanna. Nýju lögunum fylgja þær breytingar helstar að lögskráning færist til útgerða og skipstjóra og framvegis verður skylt að lögskrá alla í áhöfn á öllum skipum sem notuð eru í atvinnuskyni. Siglingastofnun Íslands heldur utan um nýja kerfið og sér um lögskráningar þeirra sem þess óska. 1.11.2010 14:32
Vilja draga skattahækkanir til baka og skapa 22 þúsund störf Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, kynnti hugmyndir þingflokks Sjálfstæðisflokksins í dag, sem þeir kalla „að gefa heimilunum von". 1.11.2010 14:24
Obama sagður ólöglegur innflytjandi Um 25 prósent bandarísku þjóðarinnar trúa því að Barack Obama sé ekki bandarískur ríkisborgari. Það sé því brot á stjórnarskránni að hann skuli vera forseti. 1.11.2010 14:10