Fleiri fréttir

Björn vill vera forstjóri áfram

Björn Zoega, starfandi forstjóri Landspitalans, segir líklegt að hann muni sækjast eftir því að gegna starfinu áfram. Heilbrigðisráðuneytið auglýsti í dag eftir nýjum forstjóra Landspítalans. Hulda Gunnlaugsdóttir var ráðinn

Ekki fengið leyfi fyrir flotbryggju

Sigurður Áss Grétarsson, forstöðurmaður hafnarsvið Siglingastofnunar, segir að bæjarstjórn Vestmannaeyja hafi ekki fengið leyfi Siglingamálastofnunar til að koma upp lítilli flotbryggju í Landeyjahöfn líkt og fullyrt var í hádegisfréttum Bylgjunnar og á Vísi. Sigurður Áss segir að málið verði í fyrsta lagi afgreitt í lok mánaðarins.

Barist um bæjarstjórastólinn í Árborg

Gunnar Birgisson segist reiðubúinn að söðla um og flytja til Árborgar, reynsla hans muni nýtast vel í þetta starf. Vísir ræddi við nokkra umsækjendur um bæjarstjóraembættið í Árborg, þeir eru sammála um að miklir möguleikar séu á svæðinu og framtíðin sé björt.

Hringurinn þrengist um Moat

Lundúnalögreglan hefur sent fjörutíu vopnaða lögreglumenn til Norður-Umbríu til þess að hjálpa til við leit að morðingjanum sem þar leikur lausum hala. Fé hefur verið lagt til höfuðs honum.

Guðrún Norðfjörð ráðin framkvæmdastjóri Listahátíðar

Stjórn Listahátíðar í Reykjavík hefur ráðið Guðrúnu Norðfjörð í stöðu framkvæmdastjóra Listahátíðar í Reykjavík. Í tilkynningu segir að tuttugu og fjórar umsóknir hafi barist um starfið, en umsóknarfrestur rann út 25. júní síðastliðinn.

Margfalda greiðslur til formannsins

Stjórn Blaðamannafélags Íslands (BÍ) samþykkti fyrir skömmu að formaður félagsins yrði framvegis á launaskrá hjá félaginu.

Vill að bæjarstjóri Hveragerðis haldi akstursdagbók

„Okkur finnst bara eðlilegt að menn haldi akstursdagbók,“ segir Róbert Hlöðversson, oddviti A-listans í Hveragerði, en hann gagnrýnir bæjarstjóra Hveragerðis harðlega fyrir há laun. Það var Fréttablaðið sem sagði fyrst frá launum bæjarstjórans en A-listinn lagði fram tillögu um að launin yrðu lækkuð þar sem heildarlaun bæjarstjórans eru ein milljón og fimmtíu þúsund krónur.

Prófmál um gengistryggðu lánin flutt fyrir dómi í dag

Prófmál um uppgjörsvexti gengistryggðra lána var flutt fyrir héraðsdómi Reykjavíkur nú í morgun. Búast má við niðurstöðu í málinu eftir mánuð. Fjármögnunarfyrirtækið Lýsing vill að myntkörfulán verði uppreiknað miðað við verðtryggða vexti.

Ekki borað í Bobby

Stórblaðið New York Post heldur því fram að borað hafi verið í gegnum kistu Bobby Fischer til að ná lífsýnum hins látna skáksmeistara. Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, segir frétt New York Post ranga.

Blaðasalar á kreik á ný

Útgáfufélag DV hefur gefið ungmennum kost á að selja blaðið í lausasölu í miðborg Reykjavíkur aftur eftir hlé um árabil. Bogi Örn Emilsson, framkvæmdastjóri útgáfufélagsins, segist telja að minnst áratugur sé liðinn frá því að þetta fyrirkomulag var við lýði. Hann segir að eftirsjá sé eftir blaðsölufólkinu.

Einn játar sök en segist ekki kannast við Davíð

Einn af fimm sem hafa verið ákærðir fyrir stórfelldan kókaíninnflutning játaði sök í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Maðurinn, sem heitir Pétur Jökull Jónasson, sagðist þó ekki geta staðfest að Davíð Garðarsson hefði átt hlut að máli.

Seldu fíkniefni fyrir milljónir

Tveir af mönnunum fimm sem ákærðir eru fyrir stórfellt fíkniefnasmygl frá Alicante á Spáni í mars og apríl eru einnig ákærðir að hafa staðið að sölu fíkniefna um nokkurt skeið fram í apríl síðastliðinn. Orri Freyr Gíslason er

Hvílast minna og aka lengur

Yfirstjórn ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA, hefur samþykkt undanþágur fyrir Ísland frá nokkrum ákvæðum reglna um aksturs- og hvíldartíma atvinnubílstjóra í farmflutningum.

Ítalskir ökumenn í evrudraumi

Ökumenn á ferð um suðurhluta Ítalíu þóttust hafa himinn höndum tekið þegar þeir óku fram á mikið magn af evrumyntum á hraðbrautinni milli Cesena og Bari síðdegis í gær.

Lindsay Lohan dæmd í 90 daga fangelsi

Leikkonan Lindsay Lohan hefur verið dæmd í 90 daga fangelsisvist fyrir brot á skilorðsbundnum fíkniefnadómi sem hún hlaut árið 2007. Lohan átti samkvæmt dóminum að sækja tíma í misnotkun áfengis en stóð ekki við það.

Einn íslenskur fangi fluttur inn fyrir hvern sem fer utan

Sex erlendir fangar hafa á undanförnum tveimur árum verið fluttir úr fangelsum hér til heimalanda sinna, Litháens og Hollands, til að ljúka afplánun þar. Á sama tíma hafa jafnmargir íslenskir brotamenn, sem setið hafa í fangelsum erlendis, verið fluttir hingað til lands til að ljúka afplánun sinni hér.

Kjósa frekar stöðugt hagkerfi

„Ég tel hættuna á fyrirtækjaflótta því miður raunverulega,“ segir Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, um þær breytingar sem orðið hafa á rekstrarumhverfi innlendra fyrirtækja í alþjóðlegum rekstri eftir hrun. Ofan á gengissveiflur og skattahækkanir setja gjaldeyrishöft þeim þröngar skorður.

Skyggnast milljarða ára aftur í tímann

Evrópska geimvísindastofnunin hefur birt fyrstu myndirnar frá Planck-gervihnettinum en þeim er ætlað að skera úr um heimsmyndina sjálfa; hvernig upphafið átti sér stað og þróunina fyrstu árþúsundin. Um er að ræða hráa mynd af öllu himinhvolfinu og er ætlunin að skyggnast fjórtán milljarða ára aftur í tímann.

Málefni fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga

Samkomulag hefur tekist milli ríkis og sveitarfélaga um fjárhagslegar forsendur fyrir flutningi málefna fatlaðra til sveitarfélaganna 1. janúar 2011. Þetta er viðamesta endurskipulagning á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga frá flutningi grunnskólanna árið 1996. Tekjustofnar sem nema 10,7 milljörðum króna flytjast til sveitarfélaganna á næsta ári samhliða yfirfærslu málaflokksins.

Kona sveik út barnavagna

Kona á fertugsaldri hefur verið dæmd í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að svíkja tvo barnavagna út úr fólki.

Gerir áætlunina ótrúverðugri

Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, segir að með því að ganga lengra í að útiloka orkuvinnslu á friðlýstum svæðum en kveðið er á um í rammaáætlun sé unnið gegn þeirri sátt sem verið hefur um rammaáætlun. „Það gerir rammaáætlunarvinnuna ótrúverðugari,“ segir Ólöf.

Efla samstarf Íslands og Kína

Kínverski kaupsýslumaðurinn og ljóðskáldið Huang Nubo hefur stofnað menningarsjóðinn China Iceland Cultural Fund, í þeim tilgangi að efla menningarlega samvinnu milli Íslands og Kína. Áhersla verður lögð á bókmenntir, einkum ljóðlist.

Bíða yfirmats um áhrif skítalyktar

„Við höldum því til haga að við eigum ekki að bæta þennan skaða,“ segir Laufey Jóhannsdóttir, sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar, um afstöðu sveitarfélagsins til skaðabótakröfu eigenda jarðarinnar Melaleitis vegna reksturs svínabús Stjörnugríss á næstu jörð.

Umferð á þjóðvegunum snarminnkar

Umferð á þjóðvegum landsins hefur verið mun minni í ár en í fyrra. Eftirlit á sextán völdum talningarstöðum víðs vegar um landið leiddi í ljós tæplega níu prósenta minni umferð en í sama mánuði í fyrra. Miðað við fyrri árshelming er munurinn 4,6 prósent á landsvísu.

Halda áfram að mótmæla á morgun

Hópur fólks ætlar að halda áfram að mótmæla á morgun fyrir framan Seðlabanka Íslands. Fólkið ætlar að hittast klukkan tólf á hádegi og halda uppteknum hætti en fólkið mótmælti í dag. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík er ekki búið að gera neinar ráðstafanir vegna mótmælanna, en þau fóru friðsamlega fram í dag.

Söluturn kemur í staðinn fyrir grasker á Lækjartorgi

Nú þegar að Besti flokkurinn hefur látið fjarlægja graskerið á Lækjartorgi, eins og Jón Gnarr borgarstjóri lofaði nokkrum mínútum eftir að hann settist í stól borgarstjóra, ætlar flokkurinn að koma söluturninum sem er í Mæðragarðinum fyrir á Lækjartorgi. Heiða Kristín Helgadóttir, aðstoðarkona borgarstjóra, segir að söluturninn hafi verið þar áður en hann var færður í Mæðragarðinn fyrir mörgum árum.

Fjórtán keyrðu of hratt á Reykjanesbraut

Fjórtan voru teknir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbrautinni í dag, að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum. Þá var einn tekinn grunaður um ölvun við akstur innan bæjar og annar var tekinn fyrir að keyra réttindalaus.

Hitabylgja í Bandaríkjunum

Hitabylgja fer nú yfir austurhluta Bandaríkjanna. Veðurstofan Accuweather sagði að hitinn hafi farið yfir 38°C í New York, Washington DC. og Richmond Virginíu. Búist er við því að hitabylgjan vari út vikuna.

Endurskoða lög um erlendar fjárfestingar

Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, segir að unnið sé að endurskoðun laga um takmarkanir á erlendri fjárfestingu. Hann segir líklegt að frumvarp til endurskoðaðra laga verði lagt fram á haustþingi. „Ég get samt engu lofað," segir Gylfi.

Össur undirritaði tvísköttunarsamning við Króatíu

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti í dag fundi með utanríkisráðherra Króatíu, Gordan Jandrokovic, og forseta landsins, Ivo Josipovic, í Zagreb þar sem utanríkisráðherra er í opinberri heimsókn. Þá heimsótti Össur króatíska þingið og ræddi við forseta þess.

Sjá næstu 50 fréttir