Fleiri fréttir

Óvissustigi ekki aflétt

Þónokkur jarðskjálftavirkni er enn undir Eyjafjallajökli en allir skjálftarnir hafa verið vel innan við tvo á Richter. Óvissustigi hefur ekki verið aflétt.

Steingrímur endurskoði vinnubrögð gagnvart þingflokki VG

Lilja Mósesdóttir þingmaður Vinstri grænna segir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave áfellisdóm yfir vinnubrögðum ríkisstjórnarinnar í málinu. Formaður Vinstri grænna þurfi einnig að endurskoða vinnubrögð sín gagnvart þingflokknum.

Tæp 60% telja að Íslendingar eigi ekki að borga

Tæp 60% svarenda í skoðanakönnun MMR segja að Íslendingum beri alls ekki að ábyrgjast greiðslur til innstæðueigenda í Bretlandi og Hollandi. Fyrirtækið kannaði afstöðu fólks til þess dagana 3.-5. mars hvort það teldi að Íslendingum bæri að ábyrgjast greiðslur til innstæðueigenda vegna Icesave í Bretlandi og Hollandi.

Góð þátttaka í skoðanakönnun um sameiningu

Góð þátttaka var í skoðanakönnun bæjarstjórnar Álftanes á hug íbúa til sameiningar sem haldin var samhliða þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave um helgina. Fram kemur á vef sveitarfélagsins að þátttakan var í samræmi þátttökuna í atkvæðagreiðslunni en endanlegur fjöldi verður kynntur samhliða niðurstöðum skoðanakönnunarinnar á morgun.

Leit afturkölluð

Þyrla Landhelgisgæslunnar var fyrir stundu kölluð út til að leita að netabát frá Ólafsvík sem hafði hætt að láta vita af sér í gegnum sjálfvirka tilkynningakerfið. Skömmu síðar hafði skipstjórinn samband við Gæsluna og lét vita af sér. Ekkert amaði að um borð og var leitin því afturkölluð.

Litlar líkur á þverpólitískri sátt

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, telur að líkurnar á þverpólitískri samstöðu um Icesave séu ekki miklar. Erfitt verði fyrir stjórnarþingmenn að bera ábyrgð efnahagsmálum þjóðarinnar ef lausn Icesave málsins dregst enn lengur.

Danir á hálum ís

Lögreglan á Jótlandi hefur gefist upp við að telja umferðaróhöppin á þjóðvegi E20 til Esbjerg sem orðið hafa í dag.

Þrír flóttamenn stukku framaf húsi

Þrír flóttamenn frá Kosovo létu lífið í Glasgow í gær eftir fall af svölum fimmtán hæða íbúðarhúss. Þetta voru tveir karlmenn og ein kona.

Vitað um eitt tilvik á Íslandi

Landlæknisembættið hefur að undanförnu fengið fjölmargar fyrirspurnir vegna arfgengs efnaskiptasjúkdóms í Færeyjum. Talið er að um það bil einn af hverjum 1000 Færeyingum fái sjúkdóminn CTD (e. Carnitine Transporter Defect). Annars staðar er hann mun sjaldgæfari og aðeins er vitað um eitt tilvik á Íslandi, að fram kemur á vef Landlæknis. Frá árinu 2008 eru nýfædd börn hér á landi skimuð fyrir sjúkdómnum.

Líf fékk eldsneyti á flugi yfir Ægi

Þyrlueldsneyti var í fyrst sinn dælt á Líf, þyrlu Landhelgisgæslunnar, á meðan hún var á lofti yfir varðskipinu Ægi fyrir helgi. Slíkt er afar mikilvægt að geta gert þegar Gæslan er í aðgerðum á hafi úti og langt fyrir þyrlu að fara til eldsneytistöku, að fram kemur á vef Landhelgisgæslunnar. Þar segir að æfingin hafi gengið vel.Við áfyllinguna var notaður sérstakur búnaðar um borð í varðskipinu en þar geta verið allt að 2500 lítrar af eldsneyti.

Átta gefa kost á sér á Akranesi

Um helgina rann út framboðsfrestur til prófkjörs Samfylkingarinnar á Akranesi. Það er því orðið ljóst hverjir það verða sem sækjast eftir fyrstu þremur sætum á listanum fyrir kosningarnar í vor. Kosið verður um fyrstu þrjú sætin í prófkjöri laugardaginn 20. mars, en sæti um 4.-9. sæti á sérstökum kjörfundi að því loknu.

Harður jarðskjálfti í Tyrklandi

Á sjötta tug eru látnir og fjölmargir slasaðir eftir að jarðskjálfti að stærðinni sex á Richter reið yfir í Tyrklandi í nótt. Búist er við að tala látinna fari hækkandi. Fram kemur í tilkynningu frá skrifstofu forsætisráðherrans Recep Tayyip Erdoga að skjálftinn átti upptök sín í Elazig héraði sem er í austurhluta landsins. Öflugir eftirskjálftar hafa orðið undanfarnar klukkustundir.

Morðingi James litla var með barnaklám

Ástæðan fyrir því að Jon Venables, annar þeirra sem myrti James litla Bulger, árið 1993 var handtekinn í lok febrúar þegar hann braut skilorð voru ásakanir um vörslu barnakláms. Breskir fjölmiðlar greindu frá þessu í gær en yfirvöld hafa ekki viljað staðfesta af hverju Venables var handtekinn.

Skipulagði morð á tveimur börnum

Þrjátíu og tveggja ára gamall bandarískur karlmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa skipulagt morð á tveimur börnum sem er hann talinn hafa misnotað kynferðislega. Maðurinn sem hefur að undanförnu setið í varðhaldi í Chicago bauð öðrum manni tæplega 15 þúsund dollara, eða tæpar tvær milljónir króna, fyrir að drepa börnin og foreldra þeirra.

Ræningjarnir ófundnir

Þýska lögreglan hefur enn ekki haft hendur í hári fjögurra manna sem réðust inn á hótel í Berlín á laugardag og rændu vinningsfé á pókermóti sem haldið var á hótelinu. Talið er að ræningjarnir hafi ekki komist á brott með allt vinningsféð en skipuleggjendur mótsins fullyrða að mennirnir hafi stolið 250 þúsund evrum eða tæplega 44 milljónum króna.

Varð fyrir jeppa á hraðbraut

Sex ára gömul stúlka lést þegar hún varð fyrir jeppa á miðri hraðbraut nálægt borginni Minneapolis í Bandaríkjunum í gær. Hún hafði verið týnd í rúma klukkustund en ekki er vitað hvernig hún komst inn á hraðbrautina en meðfram henni er öryggisgirðing sem á að varna fólki frá því að komast inn á brautina. Lögregla fer með rannsókn málsins og kannar meðal annars hvernig stúlkan komst af leikvelli í grennd við hraðbrautina.

Fjörutíu létu lífið í Írak

Að minnsta kosti 40 létu lífið í árásum í Írak í tengslum við þingkosningarnar þar í landi í gær. Hryðjuverkasamtökin al-Kaída hótuðu árásum í aðdraganda kosninganna og lýstu yfir útgöngubanni í gær þegar þau vöruðu alla þá sem ætluðu fara út til að kjósa að þeir yrðu berskjaldaðir gagnvart reiði Allah. Þrátt fyrir það segja yfirvöld að kjörsókn hafi verið yfir 50% en 19 milljónir Íraka voru á kjörskrá.

Bigelow besti leikstjórinn fyrst kvenna

Spennumyndin The Hurt Locker kom, sá og sigraði þegar Óskarsverðlaunin voru afhend í 82. sinn í Hollywood, í nótt. Myndin vann til sex verðlauna, þar á meðal sem besta myndin og fyrir bestu leikstjórn.

Óvíst um framhald viðræðna

Formenn stjórnarflokkanna telja að samningaviðræður við Breta og Hollendinga um lausn Icesave-málsins eigi að halda áfram þar sem frá var horfið fyrir helgi. Forystumenn stjórnarandstöðunnar segja hins vegar að leggjast þurfi yfir samningsmarkmiðin að nýju í ljósi niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar áður en viðræðurnar geta haldið áfram.

Þjóðaratkvæði um sjávarútveg

„Ég tel að næsta skref sé að hugleiða hvort ekki sé rétt að setja fiskveiðistjórnunarmálið næst í þjóðaratkvæðagreiðslu," segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.

Bæjaryfirvöld styðji álver í íbúakosningu

Rannveig Rist, forstjóri Alcan á Íslandi, vill að bæjar­yfirvöld í Hafnarfirði styðji við áform fyrirtækisins ef aftur verður efnt til íbúakosningar um stækkun álversins í Straumsvík.

Beðið eftir áliti lögmanns

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, formaður leikskólaráðs, segir ekki alls kostar rétt að leikskólaráð ætli að endurskoða ákvörðun sína um að afnema systkinaforgang eins og fram kom í máli Oddnýjar Sturludóttur, borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, í Fréttablaðinu á laugardag.

Knútur Hallsson látinn

Knútur Hallsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri í menntamálaráðuneytinu, andaðist föstudaginn 5. mars, 86 ára að aldri.

Tvenn verðlaun til Fréttablaðsins

Anton Brink Hansen og Valgarður Gíslason, ljósmyndarar Fréttablaðsins, hlutu á laugardaginn verðlaun fyrir bestu ljósmyndir ársins í flokki íþróttamynda og daglegs lífs í blaðaljósmyndarakeppninni Myndir ársins. Myndirnar voru báðar birtar í helgarblaði Fréttablaðsins. Rakel Ósk Sigurðardóttir, ljósmyndari DV, hlaut verðlaun fyrir mynd ársins.

Kannar hvort biðin hafi lengst

Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra ætlar að kanna hvort bið fólks sem sjúkratryggt er hér á landi eftir frjósemismeðferð hafi lengst vegna aukinnar ásóknar útlendinga í þjónustuna hér á landi.

Karl fékk Tékkneska ljónið

Karl Óskarsson var útnefndur kvikmyndatökumaður ársins á kvikmyndahátíðinni Tékkneska ljóninu sem var haldin í Prag á laugardag. Verðlaunin hlaut hann fyrir töku á myndinni 3 sezony v pekle (Þrjár árstíðir í helvíti), sem var frumsýnd í Tékklandi fyrir jól. „Þetta er frekar stór mynd á tékkneskan mælikvarða. Hún var tilnefnd til ellefu ljóna og fékk verðlaun fyrir aðalleik, kvikmyndatöku og hljóð,“ segir Karl.

Nemendur HÍ bestir á lögmannsprófum

Lögfræðingar frá lagadeild Háskóla Íslands skara fram úr lögfræðingum frá öðrum lagadeildum í prófum til að öðlast réttindi sem héraðsdómslögmaður.

Tilkynning frá landskjörstjórn

Landskjörstjórn hefur sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu: Samkvæmt skýrslum yfirkjörstjórna voru 229.977 kjósendur á kjörskrá við þjóðaratkvæðagreiðslu um gildi laga nr. 1/2010, sem fram fór laugardaginn 6. mars 2010, og greiddu 144.231 manns atkvæði.

Segir sólbaðsfíkn dauðans alvöru

Hundruð fólks þjást af sólbaðsfíkn á Íslandi og leita stöðugt í ljósabekki og sólböð. Fjöldi manns hefur leitað sér aðstoðar vegna fíknarinnar að sögn formanns Tanorexíu-félags Íslands, en í því félagi reynir fólk að miðla þekkingu sinni og reynslu af sólbaðsfíkn.

Prófessor við HÍ fær Gad Rausings verðlaunin

Vésteini Ólasyni, fyrrverandi prófessor við HÍ, verða veitt svokölluð Gad Rausings verðlaun 2010 fyrir framúrskarandi rannsóknarstörf á sviði hugvísinda. Verðlaunaféð er 800 þúsund sænskar krónur. Þetta er mikill heiður fyrir Véstein, íslenskt vísindasamfélag og þær stofnanir sem hann hefur starfað fyrir. Vésteinn hefur í rannsóknum sínum fengist mest við íslenskar fornbókmenntir og þjóðfræði, en hann hefur einnig stundað rannsóknir á bókmenntum síðari alda.

Flutningaskip strandað í Hafnarfjarðarhöfn

Flutningaskipið Óskar Halldórsson strandaði í Hafnarfjarðarhöfn fyrir stundu en svo virðist sem vélarbilun hafi orsakað óhappið. Að sögn Kristjáns Skaftasonar sem er hafnarvörður, þá festist skipið í leðju og svo virðist engar skemmdir hafi orðið á bátnum þrátt fyrir strandið.

Þingkosningar í skugga hryðjuverka

Þingkosningarnar í Írak fara fram í skugga hryðjuverkaárása, en að minnsta 30 hafa látið lífið og á sjötta tug manna særst í sprengjuárásum í Írak í morgun eftir að kjörstaðir opnuðu.

Þingmenn VG vilja AGS út

Nokkrir þingmenn vinstri grænna íhuga að styðja þingsályktunartillögu Framsóknar og Hreyfingarinnar um að samstarfi við AGS verði slitið. A.m.k þrír þingmenn Vinstri grænna vilja endurskoða samstarfið. Fyrrverandi ráðherra vill slíta því.

Opið í Bláfjöllum

Opið er í Bláfjöllum í dag til kukkan fimm. Þar er hiti við frostmark og fremur hægur vindur.

Grunaður morðingi í gæsluvarðhald

Rúmlega fertugur Íslendingur sem grunaður er um að hafa stungið annan íslending til bana í Kaupmannahöfn í gær, hringdi sjálfur á neyðarlínuna eftir verknaðinn. Hinn grunaði hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 31. mars. Nágranni mannsins segir hurðinni á íbúð mannsins hafa verið sparkað upp í gærkvöldi.

Sjá næstu 50 fréttir