Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Snarpir skjálftar á Reykjanesi í nótt Mikil jarðskjálftahrina gekk yfir vestur af Reykjanesi í nótt. Flestir jarðskjálftanna urðu við Geirfugladrang og Eldeyjarboða vestur af Reykjanesi. Stærstu skjálftarnir voru um 4 stig á Richter. 1.11.2009 09:39
Passið ykkur á hálkunni Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að á Suður- og Vesturlandi sé víða hálka eða hálkublettir, vegir í öðrum landshlutum séu víðast auðir en þó megi búast við hálku eða hálkublettum á heiðum. Það er því betra að hafa varann á þegar maður fer af stað í morgunsárið. Einn ökumaður í Reykjanesbæ fór heldur ógætilega og hafnaði á ljósastaur í morgun. 1.11.2009 09:36
Minna atvinnuleysi hjá rafiðnaðarmönnum Atvinnuleysi meðal rafiðnaðarmanna er töluvert minna en almennt gerist á vinnumarkaðnum eða 4,3 prósent samkvæmt könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Rafiðnaðarsambandið í september. En almennt atvinnuleysi í landinu er hins vegar um 9 prósent. 1.11.2009 09:23
Strokupiltur fannst á Akureyri Lögreglan lýsti í gær eftir tveimur piltum sem struku af meðferðarheimilinu Árborg rétt fyrir utan Húsavík í fyrrakvöld. Annar pilturinn fannst á Akureyri í gærkvöldi og er hann nú á lögreglustöðinni þar í bæ. 1.11.2009 09:17
Lögreglumaður fékk glas í höfuðið Lögreglumaður sem var við störf fyrir utan 800 Bar á Selfossi fékk glas í höfuðið um klukkan þrjú í nótt. Að sögn lögreglu var árásin með öllu tilefnislaus en það var stúlka sem henti glasinu í lögreglumanninn. Hlaut hann kúlu á höfði og mar en stúlkan sefur nú úr sér í fangageymslum. Þá var einn ökumaður tekinn grunaður um ölvunarakstur og ein bílvelta varð í bænum. 1.11.2009 09:10
Lögreglan hafði afskipti af slagsmálum í Keiluhöllinni Lögreglan var kölluð að Keiluhöllinni í Öskjuhlíð um klukkan hálf eitt í nótt vegna slagsmála innan dyra. Að sögn varðstjóra var lítið bókað um atvikið en faðir stúlku sem varð fyrir árás segist undrandi á viðbrögðum starfsfólks Keiluhallarinnar. Dóttir hans hlaut áverka eftir að hópur fólks réðst að henni og félögum hennar. 31.10.2009 21:00
Pólitískar stöðuveitingar í æðstu störf ríkisins Næstum því helmingur af öllum stöðuveitingum í æðstu störf ríkisins síðustu ár eru pólitískar. Þetta kemur fram í tveimur rannsóknum sem Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í fjölmiðlafræði kynnti í gær. 31.10.2009 18:39
100 þúsund Íslendingar á McDonalds í vikunni Tæplega 100 þúsund Íslendingar hafa farið á McDonalds í vikunni til að kveðja hamborgarastaðinn sem lokar nú á miðnætti. Eigandi staðarins hefur farið í viðtöl hjá öllum helstu fjölmiðlum heims en brotthvarf veitingakeðjunnar er orðið eitt stærsta fréttamál sem komið hefur frá Íslandi á þessu ári. 31.10.2009 18:30
Fjörutíu á Landspítalanum vegna svínaflensu Fjörutíu manns liggja á Landspítalanum vegna svínaflensunnar þar af tíu á gjörgæslu. Flestir sem eru á gjörgæslu eru um fimmtugt, yngsti sjúklingurinn er tveggja ára og sá elsti um áttrætt. 31.10.2009 18:29
Furða sig á misrétti í Háskóla Íslands Stjórn Ungra vinstri grænna lýsir furðu sinni á því misrétti sem viðhefst milli trúarhópa í Háskóla Íslands. Í umfjöllun fjölmiðla undanfarna daga hefur komið fram að í skólanum sé aðstaða til trúariðkunar, en aðeins í formi kapellu fyrir þá sem játa kristna trú. Múslimar hafa að vísu fengið aðgang að kapellu þessari um tíma en nú hefur verið tekið fyrir að aðrir trúarhópar en kristnir fái að nýta hana. 31.10.2009 17:26
Hefur mætt á 50% funda í Skipulagsráði Framsóknarmaðurinn Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur mætt á 18 af þeim 36 fundum sem hann hefur átt að sitja í Skipulagsráði Reykjavíkurborgar. Alls hafa verið haldnir 43 fundir síðan Sigmundur var kosinn í ráðið þann 21.ágúst 2008 en hann var í leyfi á 7 af þeim fundum. Fulltrúar Vinstri grænna og Samfylkingarinnar í ráðinu kölluðu eftir yfirliti um fundarsetu Sigmundar á síðasta fundi. 31.10.2009 16:15
Rjúpnaskytta varð fyrir slysaskoti Rjúpnaskytta varð fyrir slysaskoti við veiðar á Bjarnarfelli í Laxárdal í Dölum fyrr í dag. Veiðifélagar mannsins höfðu samband við Neyðarlínuna og létu vita. 31.10.2009 15:27
Flutt á slysadeild eftir árekstur Stúlka var flutt með sjúkrabíl á slysadeild eftir árekstur tveggja bíla á Bíldshöfða í hádeginu í dag. Keyrt var inn í hlið á bíl og þurfti að hreinsa upp töluvert af olíu á vettvangi að sögn slökkviliðsins. 31.10.2009 15:01
Verðlaunaður fyrir framlag sitt til læknavísindanna Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar og prófessor við Háskóla Íslands tók í gær við Anders Jahre verðlaununum sem veitt eru árlega í viðurkenningarskyni fyrir framúrskarandi árangur við rannsóknir í læknavísindum á Norðurlöndum. 31.10.2009 13:53
Sígarettuþjófar aftur á ferð á Selfossi Í nótt var brotist inn í Vínbúðina við Vallholt á Selfossi og þaðan stolið 300 lengjum af vindlingum. Þjófarnir komust inn í húsið með því að brjóta rúðu á bakhlið þess og skríða þar inn. Engar upplýsingar liggja fyrir um hvenær í nótt innbrotið átti sér stað né hverjir voru þar að verki. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Selfossi. 31.10.2009 13:07
Óeining meðal sómalskra sjóræningja - bresk hjón í haldi Sómalskir sjóræningjar sem halda breskum hjónum föngnum sögðu í dag að þau hefðu verið færð á nýjan stað en óeining er á meðal sjóræningjanna samkvæmt Reuters fréttaveitunni. 31.10.2009 13:00
Davíð Oddsson fær ókeypis hamborgara Í dag er síðasta tækifærið til þess að fá sér McDonalds á Íslandi en eins og kunnugt er mun nýr hamborgarastaður koma í stað þess fornfræga og opna formlega á morgun. Sá mun bera nafnið Metro og opna á þremur stöðum á höfuðborgarsvæðinu. 31.10.2009 09:52
Einum í hópnauðgunarmálinu sleppt Einn af þeim sex ungu mönnum sem setið hafa í gæsluvarðhaldi undanfarna daga vegna aðildar að hrottafengnu hópnauðgunarmáli í Bandaríkjunum var sleppt úr haldi í morgun. 31.10.2009 09:43
Piltarnir fundnir Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu lýsti í morgun eftir tveimur piltum sem struku af meðferðarheimilinu Árborg við Húsavík um kvöldmatarleytið í gærkvöldi. Þeir eru nú komnir í leitirnar að sögn lögreglu. 31.10.2009 09:34
Rólegt hjá lögreglunni um allt land Nóttin virðist hafa verið nokkuð róleg hjá helstu lögregluembættum landsins í nótt. Á Akranesi var þó töluvert um ölvun í bænum og mikið af fólki. Í gærkvöldi opnaði nýr skemmtistaður í bænum auk þess sem fjölbrautarskólinn var með ball. Engin teljandi vandræði þar að sögn lögreglu. 31.10.2009 09:25
Um 1.100 uppvís að því að svíkja út bætur Um ellefu hundruð manns hafa orðið uppvísir að því að svíkja út atvinnuleysisbætur síðustu tvo mánuði. Vinnumálastofnun hóf nýverið sérstakt eftirlit með slíkum svikum. Þetta kom fram í máli Gissurar Péturssonar, forstjóra Vinnumálastofnunar, á ársfundi stofnunarinnar í gær. 31.10.2009 07:30
Vilja að dómarinn víki sæti Lögmenn Árna M. Mathiesen og íslenska ríkisins kröfðust þess fyrir dómi í gær að Sigríður Ingvarsdóttir héraðsdómari viki sæti í skaðabótamáli sem Guðmundur Kristjánsson hæstaréttarlögmaður hefur höfðað vegna skipunar Þorsteins Davíðssonar í embætti héraðsdómara. 31.10.2009 07:00
Höftum létt af innstreymi gjaldeyris Búist er við að Seðlabankinn kynni í dag ákvörðun um að stigið verði fyrsta skrefið í áætlun bankans um afnám gjaldeyrishafta. Með því yrðu afnumin höft af innstreymi erlends gjaldeyris sem ætlað er í nýjar fjárfestingar. 31.10.2009 06:30
Dæla vatni í jörðina til að lengja líftíma orkusvæðis HS Orka dælir nú niður vatni í jörðina til að vinna á móti þrýstilækkun, lægra vatnsborði undir jörð, í Svartsengi og í Reykjanesvirkjun. 31.10.2009 06:00
Lögreglumenn vilja Ísland úr Schengen Félagsmenn í Lögreglufélagi Vestfjarða vilja að Ísland hætti þátttöku í Schengen-samstarfinu og taki í staðinn upp vegabréfaeftirlit eins og tíðkaðist áður en til Schengen-aðildar kom 2001. 31.10.2009 06:00
Eiginfjárstöðu og gengishruni að kenna Sigurður Magnússon, fyrrverandi bæjarstjóri á Álftanesi, segir að vegna veikrar eiginfjárstöðu sveitarfélagsins hafi hrunið á gengi krónunnar valdið meiri skaða á efnahag Álftaness en flestra annarra sveitarfélaga. Álftanes hefur nú óskað eftir aðstoð Eftirlitsnefndar um fjármál sveitarfélaga við að greiða úr miklum fjárhagsvanda. 31.10.2009 05:30
Skipuleggja íþróttaveislur í skugga óaldar Í fátækrahverfum Rio de Janeiro í Brasilíu ráða stórtækir eiturlyfjabarónar lögum og lofum. Þeir kalla sig nöfnum á borð við ‚Scooby' og ‚Big Baby', eru búnir bestu vopnum sem völ er á, sæta ásökunum um að pynta lögreglumenn og tókst fyrir viku að skjóta niður lögregluþyrlu. 31.10.2009 05:15
Meirihlutann skortir kjark „Þessi áætlun tekur ekkert á breyttri og verri stöðu bæjarsjóðs og virðist meirihlutinn ekki hafa kjark til taka á brýnum málum hvað varðar fjárhag bæjarins,“ segir í bókun sem bæjarfulltrúar minnihluta Neslistans lögðu fram á síðasta bæjarstjórnarfundi á Seltjarnarnesi. Þar var kynnt fjárhagsáætlun bæjarins fyrir árin 2010 til 2012. 31.10.2009 05:15
Aldrei fleiri flensusjúklingar á spítala Aldrei hafa fleiri legið inni á Landspítala af völdum svínaflensu en í gær. Þá höfðu átta nýir lagst inn en enginn verið útskrifaður. Samtals voru 43 inniliggjandi, þar af ellefu á gjörgæslu. Yngsti gjörgæslusjúklingurinn var tveggja ára en sá elsti rúmlega áttræður. 31.10.2009 05:00
Rekinn fyrir að tala um eiturlyf David Nutt, yfirmaður fíkniefnamála hjá breska innanríkisráðuneytinu, var rekinn í gær. Ástæðan var sú að hann sagði í fjölmiðlum að maríjúana, e-töflur og LSD væru hættuminni en áfengi. 31.10.2009 05:00
Úrræði vegna skuldavanda Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra skrifar í dag undir samkomulag við fjármálafyrirtæki, lífeyrissjóði og Íbúðalánasjóð um úrræði vegna skuldavanda heimilis og einstaklinga. Þau taka strax gildi. 31.10.2009 04:45
Þurfa 100 milljarða evra í sjóð Evrópusambandið telur að 100 milljarða evra þurfi í sjóð til hjálpar fátækum ríkjum vegna loftslagsbreytinga. Allt að helmingur þeirrar upphæðar eigi að koma frá ríkjum víða um heim. 31.10.2009 04:45
Keyrt fyrir bíl gegn rauðu ljósi Ökumenn tveggja bíla sluppu án alvarlegra meiðsla þegar bílar þeirra skullu saman á Sæbraut í gær. 31.10.2009 04:30
Íraki keyrði á dóttur sína Írakskur maður hefur verið handtekinn í Arizona í Bandaríkjunum fyrir að hafa vísvitandi ekið bíl á dóttur sína. 31.10.2009 04:30
Bildt gagnrýnir Íransstjórn Íran Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, gagnrýnir stjórnvöld í Teheran og segir þau beita sömu gömlu brögðunum til að knýja kjarnorkuáætlun sína í gegn. Svíþjóð gegnir nú formennsku í Evrópusambandinu, en evrópskir leiðtogar eru sagðir undirbúa harðorða ályktun vegna málsins. 31.10.2009 04:00
Ekki sameiginlegt mat á Suðvesturlínu Skipulagsstofnun hefur, í annað sinn, úrskurðað að ekki þurfi að fara fram sameiginlegt mat umhverfisáhrifa Suðvesturlínu. Stofnunin hafði úrskurðað þess efnis í mars, en Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra felldi þann úrskurð úr gildi og bað um nýjan, sem nú er fallinn á sama veg. Hægt er að kæra ákvörðunina til umhverfisráðherra til 4. desember. 31.10.2009 03:45
Segist ekki tala á upptökum Gunnar Viðar Árnason hafnar því að símtöl sanni fíkniefnasmygl hans. 31.10.2009 00:01
Ánægður með tillögurnar Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, ber lof á þær tillögur sem Sameinuðu þjóðirnar og Alþjóða kjarnorkumálastofnunin hafa lagt fram en samkvæmt þeim er ráð fyrir að Íranar sendi úran sem þeir auðga til Rússlands og Frakklands þar sem því verði breytt í eldsneyti til kjarnorkuvinnslu. 30.10.2009 22:05
Enn er fjallað um brotthvarf McDonalds Frá því að fregnir bárust af því í byrjun vikunnar um að McDonalds hyggist loka stöðum síðum hér á landi hafa birst fjölmargar fréttir í erlendum fjölmiðlum þar sem fjallað er um brotthvarfið. Slíkar fréttir eru enn að birtast, nú síðast hjá Reuters fréttaveitunni. 30.10.2009 21:35
Ræða kosti og galla fiskveiðistjórnunarkerfa Fiskveiðistjórnunarkerfi Vestur-Norðurlanda verða tekin til skoðunar á þemaráðstefnu Vestnorræna ráðsins á Íslandi í júní á næsta ári. Það tilkynnti Ólína Þorvarðardóttir, varaformaður ráðsins, á Norðurlandaráðsþingi sem haldið var í Stokkhólmi. Hún segir að ráðstefnan muni bjóða upp á beinan samanburð á kvótakerfunum á Íslandi og Grænlandi og sóknardagakerfinu í Færeyjum, með hliðsjón af þáttum eins og verndunarsjónarmiðum og arðsemi, að fram kemur í tilkynningu frá Vestnorræna ráðinu. 30.10.2009 20:48
Embætti landlæknis auglýst laust til umsóknar Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti landlæknis. Matthías Halldórsson var skipaður tímabundið í embættið í nóvember á síðasta ári þegar að Sigurður Guðmundsson lét af störfum til að taka við sem forseti heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands. Skipun Matthíasar var síðar framlengt. 30.10.2009 20:19
Þriðjungur þeirra sem greinast með inflúensu eru börn Upp undir þriðjungur þeirra sem hafa greinst með inflúensu í mánuðinum, eru börn á aldrinum núll til níu ára. Sóttvarnaryfirvöld kunna engar skýringar á þessu. Hér er átt við þá sem hafa greinst með inflúensulík einkenni, en margir þeirra kynnu að hafa fengið svínaflensu. Fjarvistum ungmenna í grunnskólum landsins hefur samfara þessu fjölgað mjög í mánuðinum. 30.10.2009 20:11
Flóknum tölfræðiútreikningum ætlað að sanna sekt í smyglmáli Doktor í afbrotafræðum var kallaður til í Héraðsdómi Reykjaness í morgun en flóknir tölfræðiútreikningar eru á meðal þess sem eiga að sanna sekt Gunnars Viðars Árnasonar sem sagður er hafa flutt inn sex kíló af amfetamíni með hraðsendingu. 30.10.2009 19:19
Jón Ásgeir og fjölskylda hafa fjóra mánuði Jón Ásgeir Jóhannesson og fjölskylda hafa tæpa fjóra mánuði til að koma með sjö og hálfan milljarð króna inn í móðufélag Haga. Að öðrum kosti mun Kaupþing eignast félagið og þar með Haga sem er stærsta smásölufyrirtæki landsins. 30.10.2009 18:50
Ábatasöm útrás skurðlæknis Ábatasöm útrás íslensks skurðlæknis og sérfræðings í magahjáveituaðgerðum skilar Norðurlandi eystra milljónatugum í skatttekjur þessu ári. Fjögur þúsund sjúklingar leggjast undir hnífinn hjá fyrirtækinu í ár. 30.10.2009 18:47