Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fjórir árekstrar á stuttum tíma Fjórir harðir árekstrar urðu á tveggja og hálfs klukkustundar löngu tímabili í Reykjavík í gær. 5.8.2009 03:30
Óskiljanlegt að verja lögbrot Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir ljóst að fara þurfi yfir þær reglur sem gilda um aðgang að upplýsingum sem tengjast bankahruninu, í ljósi frétta síðustu daga af lánamálum Kaupþings. Í þeim efnum hafi stjórnvöld brugðist algjörlega. 5.8.2009 03:15
Eyðsla ferðamanna hefur tvöfaldast í ár Ferðamenn eyddu um 90 prósentum meira að meðal-tali á Íslandi frá janúar til júlí, en á sama tímabili í fyrra. Mest er aukningin hjá Dönum, um 150 prósent, og skipa þeir sér nú í efsta sæti listans sem Bandaríkjamenn hafa lengst af verið í. 5.8.2009 03:00
Töldu að lögbannið yrði ekki staðfest Skilanefnd Kaupþings mat það sem svo að lögbann á fréttaflutning Ríkissjónvarpsins fengist ekki staðfest þar sem aðrir fjölmiðlar höfðu fjallað ítarlega um málið. Því var ákveðið að falla frá lögbannskröfu á fréttaflutninginn í gær. Þetta kemur fram í upplýsingum frá skilanefnd Kaupþings. 5.8.2009 03:00
Bankaleynd á ekki að veraskjól markaðsmisnotkunar efnahagsmál Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að það hafi komið sér gjörsamlega í opna skjöldu hve miklar fjárhæðir voru lánaðar til fárra aðila og hugsanlega án nægilegra veða. Það sé hins vegar ánægjulegt að Kaupþing skuli hafa fallið frá fráleitu lögbanni á fréttaflutning Ríkissjónvarpsins um lánabók Kaupþings sem lekið var á vefsíðuna Wikileaks.org í síðustu viku. Hún segir að ekki sé hægt að nota bankaleynd til að fela markaðsmisnotkun í samfélagi þar sem krafist er gegnsæis. Þetta kom fram á blaðamannafundi í Stjórnarráðinu í gær. 5.8.2009 02:30
Bóluefni kostar 380 milljónir Íslenska ríkið mun greiða rúmar 380 milljónir króna fyrir 300 þúsund skammta af bóluefni gegn svínaflensunni H1N1, þar sem hver skammtur kostar 7 evrur. Bóluefnið mun duga til að bólusetja um helming þjóðarinnar. 5.8.2009 02:30
Minni umferð en aðrar helgar Umferð úr höfuðborginni var minni um verslunarmannahelgina en flestar aðrar helgar í sumar, samkvæmt tölum frá Vegagerðinni. Vegagerðin hefur tekið saman tölur um umferð frá höfuðborgarsvæðinu frá því síðustu helgina í júní, og var umferð um verslunarmannahelgina minni en um meðalhelgi. Umferðin var mest síðustu helgina í júní, en minnst síðustu helgina í júlí. 5.8.2009 02:15
Á fimmta tug innbrota kærð Á fimmta tug innbrota og þjófnaða voru kærð til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Er það talsvert meira en undanfarnar verslunarmannahelgar. Meðal annars var brotist inn í fyrirtæki, íbúðarhúsnæði, sumarhús og bíla. 5.8.2009 02:00
Þriðjungur aldrei notað internetið Einn af hverjum þremur hefur aldrei notað internetið, samkvæmt könnun sem gerð var á vegum Evrópusambandsins. Frá þessu er greint á fréttavef BBC. 5.8.2009 02:00
Handrit Árna Magnússonar með merkustu minjum heims Handrit Árna Magnússonar hafa verið skráð á heimslista UNESCO yfir verðmætustu menningarminjar heims. Forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar segir þetta staðfesta mikilvægi safnsins og vekja á því athygli um allan heim. 5.8.2009 01:45
Talibanar skjóta á Kabúl Flugskeytaárás var gerð á Kabúl Höfuðborg Afganistans í gærmorgun. Talibanar eru taldir standa á bakvið árásirnar en að minnsta kosti níu flugskeytum var skotið á höfuðborgina rétt fyrir dögun að sögn lögreglu í Kabúl. 5.8.2009 01:15
Hefðu mátt seljast fleiri miðar „Þetta er í fyrsta skipti sem íslenskt landslið kemst í lokakeppni stórmóts og því hefðu nú fleiri miðar mátt seljast. En svona er þetta bara, það er auðvitað kreppa og margir sem halda að sér höndum. Leikirnir verða líka sýndir í sjónvarpinu hér heima,“ segir Ragnheiður Elíasdóttir, ritari hjá Knattspyrnusambandi Íslands (KSÍ). 5.8.2009 01:15
100 útlendingar læra íslensku Rúmlega 100 manns eru nú á Vestfjörðum til að taka þátt í íslenskunámskeiði á vegum Háskólaseturs Vestfjarða. Nemendurnir á námskeiðinu eru flestir á leið í skiptinám hér á landi, en þó eru um þrjátíu þeirra einfaldlega áhugafólk um íslensku. Íslenskunámskeiðið hófst á mánudag og stendur í þrjár vikur. 5.8.2009 01:00
Brown sinnir góðgerðarstarfi í fríinu Forsætisráðherra Bretlands, Gordon Brown, mun sinna sjálfboðastarfi í eina viku á meðan hann er í sumarfríi. Treglega tókst að fá fréttina staðfest aí Bretlandi en Brown mun ekki vilja draga athyglina að því góðgerðarstarfi sem hann mun sinna samkvæmt fréttavef BBC. Ástæðan er samkomulag við góðgerðarfélagið sjálft. 5.8.2009 00:00
Clinton frelsaði bandarískar blaðakonur Leiðtogi Norður - Kóreu, Kim Jong Il, hefur náðað tvær bandarískar blaðakonur sem þar eru í haldi, aðeins nokkrum klukkustundum eftir að Bill Clinton, fyrrum forseti Bandaríkjanna, kom í óopinbera heimsókn þangað. 4.8.2009 23:30
Eldur í efnalauginni rakinn til elds í þurrkara Mikil eyðilegging varð á efnalauginni við Háaleitisbraut vegna elds sem þar kviknaði. Orsök eldsvoðans er rakin til þurrkara. Inn í honum var þvottur frá veitingahúsi. 4.8.2009 20:48
Frönsk umræða: Stökkvið í sjóinn - Neyðum Ísland til að borga Viðtalið við Evu Joly sem birtist um helgina í nokkrum blöðum í nokkrum löndum á sama tíma hefur vakið athygli. Á vefsíðu Le Monde má finna viðtalið við Evu en þar má einnig finna sex blaðsíður af athugasemdum Frakka vegna greinarinnar og stöðu Íslands í alþjóðlegu tilliti. 4.8.2009 20:25
Indefence lýsa eftir tvítyngdum sjálfboðaliðum „Nú þurfum við virkilega að sýna samstöðu og nýta öll okkar tengsl við útlenda kunningja og samstarfsaðila til þess að vekja athygli á málstað íslendinga,“ segir Ólafur Elíasson, einn forsprakka Indefence hópsins en þeir leita nú logandi ljósi að tungukunnáttumönnum til þess að leggja hreyfingunni lið. 4.8.2009 20:54
Ölvaður ökufantur og lyfjaður bílstjóri stöðvaðir Einn ökumaður var tekinn grunaður um ölvun við akstur í morgun á Reykjanesinu. Þá stöðvaði lögreglan á Suðurnesjum annan ökumann seinni partinn. Hann var grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. 4.8.2009 20:40
Hagfræðistofnun: Íslendingar munu flýja Ljóst er að með Icesave samningunum skerðast lífskjör vegna aukinna skulda. Þetta segir í mati Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands. Formaður fjárlaganefndar segir að nefndin verði að meta hvort nauðsynlegt sé að ganga frá Icesave samningunum eða hvort eigi að hafna þeim. 4.8.2009 19:06
Vegfarendur við Þingvallavatn handtóku ölvaðan ökumann Fjórtán ökumenn voru teknir í umdæmi lögreglunnar á Selfossi í liðinni viku vegna gruns um fíkniefna- og ölvunarakstur. Einn þeirra ók bifreið sinni út af vegi við Hestvík við Þingvallavatn og var handtekinn af vegfarendum sem höfðu forðað sér naumlega undan því að verða fyrir bifreið þess ölvaða. Annar velti bíl sínum aðfaranótt annars ágúst út fyrir veg við Villingavatn í Grafningi en slapp við meiðsli líkt og sá er lenti út af vegi við Hestvík. 4.8.2009 14:07
Forseti Íslands kynnti málstað Íslendinga í Kýpur og í Litháen „Á undanförnum vikum og mánuðum hefur forseti Íslands hitt að máli þjóðhöfðingja og forystumenn allmargra ríkja, m.a. í heimsókn sinni til Kýpur nýverið vegna Smáþjóðaleikanna og Litháen þar sem hann tók þátt í hátíðarhöldum vegna þúsund ára þjóðarafmælis.” Þetta segir í svari forseta Íslands við fyrirspurn fréttastofu um það með hvaða hætti forseti Íslands hafi tekið þátt í að kynna málstað Íslands í Icesave deilunni. 4.8.2009 20:00
Eldur í efnalaug Eldur kom upp í efnalauginni við Háaleitisbraut fyrir stundu. Slökkviliðið er komið á vettvang og berst við eldinn. Mikill reykur leggur á frá efnalauginni. 4.8.2009 20:42
40 vandarhögg vegna buxna Súdönsk kona á yfir höfði sér 40 vandarhögg vegna ákæru fyrir ósiðlegan klæðaburð. Konan gekk í buxum opinberlega í síðasta mánuði. Hún lítur á þetta sem prófmál fyrir dómi og segir að vandarhöggin yrðu móðgun við fólk og trúarbrögð. 4.8.2009 19:30
Clinton fundaði með Kim Jong-il Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, átti í dag fund með Kim Jong-il, hinum umdeilda leiðtoga Norður-Kóreu. 4.8.2009 18:51
Klukkubúðarán upplýst Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir í tilkynningu að 11/11 rán sé upplýst að fullu. Tveir menn á þrítugsaldri voru handteknir í heimahúsi í nótt grunaðir um aðild að málinu. Í kjölfarið var þriðji maðurinn handtekinn. 4.8.2009 18:17
Árekstur á Kringlumýrabraut Árekstur varð á gatnamótum Kringlumýrabrautar og Laugavegs um klukkan rúmlega fimm í dag. 4.8.2009 17:38
Hagfræðistofnun gagnrýnir mat á Icesave skuldbindingum „Mesta hættan liggur í því ef efnahagshremmingar þær sem við glímum nú við verða til þess að fólk flytji úr landi í stórum stíl, slíkt myndi minnka framleiðslu í framtíðinni og þyngja skuldabyrðina enn frekar. Fólskflótti í stórum stíl vegna almennrar ótíðar eykur skuldabyrði þeirra sem eftir sitja“. 4.8.2009 16:36
Meta þörf á að endurskoða Bankasýsluna Viðskiptanefnd Alþingis kemur saman á morgun til að ræða eigandastefnu ríkisins og Bankasýslu ríkisins. 4.8.2009 15:29
Benedikt Stefánsson ráðinn aðstoðarmaður Gylfa Magnússonar Benedikt Stefánsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Gylfa Magnússonar viðskiptaráðherra. Hann hóf störf í dag, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Landsbankanum. 4.8.2009 14:59
Landlæknir segir aðgengi að geðdeildum vera gott „Það er engin geðdeild á sjúkrahúsinu á Akranesi, en geðdeildarmóttakan í Reykjavík er einnig ætluð öðrum landsmönnum. Hér á landi er aðgengi að geðdeild betra en gengur og gerist í nálægum löndum, að minnsta kosti fyrir þá sem búa í Reykjavík og nágrenni " segir Matthías Halldórsson landlæknir. 4.8.2009 14:27
Slökkvitæki stolið af Þingvöllum Brotist var inn í fræðslumiðstöð þjóðgarðsins á Þingvöllum í fyrrinótt. Þaðan var stolið tölvu og búnaði henni tengdum og 6 kílógramma slökkvitæki. Í dagbók lögreglunnar á Selfossi kemur fram að nokkuð tjón hafi orðið af þessu en farið var inn með því að brjóta stóra rúðu í húsinu. 4.8.2009 14:21
Fíkniefnaverksmiðjumálið tekið fyrir í Héraðsdómi Mál ríkissaksókanra gegn Jónasi Inga Ragnarssyni og Tindi Jónssyni var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Þeir eru grunaðir um að hafa staðið að framleiðslu á umtalsverðu magni af amfetamíni í húsnæði við Rauðhellu í Hafnarfirði, en lögregla stöðvaði starfsemina í húsinu í október í fyrra. 4.8.2009 13:23
Smitsjúkdómadeild Landspítalans sett í sóttkví Smitsjúkdómadeild Landspítalans í Fossvogi hefur verið sett í sóttkví eftir að vart var við MÓSA bakteríu í tveim sjúklingum og einum starfsmanni. 4.8.2009 12:47
Þrjú ný tilfelli af inflúensu A greindust um helgina Alls hafa verið staðfest þrjú tilfelli af nýrri inflúensu A (H1N1)v yfir verslunarmannahelgina og er því heildarfjöldi staðfestra tilfella samtals 54. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum og ennfremur er þess getið að enginn hafi orðið fyrir alvarlegum veikindum. 4.8.2009 12:32
Álit Hagfræðistofnunar rætt á fundi fjárlaganefndar í dag Álit Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands á greiðslubyrði vegna Icesave verður tekið fyrir á fundi fjárlaganefndar klukkan tvö í dag. Mikil gagnrýni hefur komið fram um álit Seðlabankans á sama máli, en Seðlabankinn telur að þjóðarbúið sé fyllilega fært um að standa undir greiðslubyrði Icesave samninganna. 4.8.2009 12:04
Bandarískir fangar í Íran yfirheyrðir Lögregla yfirheyrir nú bandaríkjamennina þrjá sem teknir voru höndum í Íran um helgina, að því er fram kemur í íranska ríkissjónvarpinu. 4.8.2009 11:35
Ók inn í lögreglustöð eftir að hafa verið vísað frá geðdeild Karlmaður inn í lögreglustöðina á Akranesi á sunnudagskvöld síðasta. Samkvæmt lýsingu lögregluvarðstjóra á Akranesi ók maðurinn í gegnum bílskúrshurð og aftan á lögreglubifreið sem var inni í skúrnum. 4.8.2009 10:59
Vaknaði með svart eitur í andlitinu Maður leitaði ásjár lögreglunnar í Vestmannaeyjum eftir að hafa vaknað úr áfengisdái með svartleitt eitur framan í sér. 4.8.2009 10:32
Fleiri andvígir aðild að ESB en hlynntir Alls eru 48,5% landsmanna andvígir aðild Íslands að Evrópusambandinu en 34,7% eru hlynntir aðild samkvæmt skoðanakönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir útgáfufélagið Andríki, sem heldur úti Vef-Þjóðviljanum. 4.8.2009 10:00
Um 25 fíkniefnamál í Eyjum Alls komu um 25 fíkniefnamál upp á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum þessa helgina. Í flestum tilfellum var lagt hald á amfetamín í þessum málum. 4.8.2009 09:56
Einn látinn í flugslysi í Tælandi Flugstjóri lést og nokkrir farþegar slösuðust í morgun þegar farþegaflugvél frá Bangkok Airways hlekktist á í lendingu á flugvelli á tælensku eyjunni Koh Samui sem vinsæl er á meðal ferðamanna. 4.8.2009 09:40
Tveir menn handteknir vegna ráns í 11-11 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur handtekið tvo menn sem grunur leikur á að séu þeir sem réðust inn í 11-11 verslun í Skipholti í gær. Mennirnir ógnuðu starfsmönnum með hnífum og höfðu á brott með sér eitthvað þýfi. Ræningjarnir komust svo á brott á bláum fólksbíl. 4.8.2009 09:36
Þrjár hafa leitað til neyðarmóttöku nauðgana Þrjár ungar stúlkur leituðu sér aðstoðar á neyðarmóttöku nauðgana um og eftir Verslunarmannahelgina vegna nauðgunar eða tilraunar til nauðgunar. 4.8.2009 09:25
Fjórir grunaðir hryðjuverkamenn handteknir í Ástralíu Lögreglan í Ástralíu hefur handtekið fjóra menn sem grunaðir eru um að hafa lagt á ráðin um sjálfsmorðsárás á herstöð í landinu. Mennirnir sem allir hafa ástralskan ríkisborgararétt en eru af sómölskum og líbönskum uppruna voru handteknir í Melbourne. 4.8.2009 08:52