Innlent

Klædd lerki, kopar og torfi

Gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs við Skriðuklaustur í Fljótsdal verður klædd lerki, kopar og torfi.

Skrifað var undir verksamning Vatnajökulsþjóðgarðs ehf. og verktakafyrirtækisins VHE í gær.

Gestastofan auk útihúsa verður rúmlega 750 fermetrar að stærð. Verður hún allt í senn starfsstöð þjóðgarðsvarðar, móttöku- og fræðsluhúsnæði fyrir gesti og anddyri garðsins og kennileiti.

Nokkrar gestastofur munu rísa í Vatnajökulsþjóðgarði á næstu misserum.- bþs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×