Innlent

Slasaður maður í Esjunni

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru kallaðar út klukkan 16:30 vegna manns sem hrasaði á Svínaskarðsvegi í Esju og meiddist á fæti.

Talið er að maðurinn sé fótbrotinn. Hann var á ferð við annan mann og er í símasambandi við Neyðarlínuna. Björgunarsveitir eru á leið á fjallið að sækja manninn en veður er gott á svæðinu og engin hætta er talin vera á ferðum.

Svínaskarðsvegur er slóði er liggur milli Móskarðshnúka og Skálafells.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×