Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Á hlut í banka og er rammskyggn Ríkasta kona Ísraels, Shari Arison, sem meðal annars á ráðandi hlut í næststærsta banka landsins, sagðist í sjónvarpsviðtali við ísraelska sjónvarpsstöð á laugardaginn fá skilaboð frá almættinu og auk þess sjá óorðna atburði fyrir. 22.6.2009 08:28
Mousavi hvetur mótmælendur í Íran Mir Hossein Mousavi, forsetaframbjóðandi og leiðtogi írönsku stjórnarandstöðunnar, hvetur fylgismenn sína til að halda áfram mótmælum gegn endurkjöri Mahmoud Ahmadinejad forseta. 22.6.2009 08:15
Fundur Alþjóðahvalveiðiráðsins hefst í dag Alþjóðahvalveiðiráðið fundar í Portúgal í dag og fram á föstudag. Samkvæmt breska ríkisútvarpinu BBC mega Íslendingar búast við harðri gagnrýni vegna hvalveiða sinna en einnig kemur þar fram að Japanar muni sækjast eftir leyfi til að veiða allt að 150 hrefnur á vissum svæðum þar sem hvalveiðar eigi sér áralanga hefð. 22.6.2009 08:12
Rússar njósna um þýsk orkufyrirtæki Rússneskir njósnarar beina nú augum sínum að þýskum orkufyrirtækjum í leit að aðferðum til að auka afkastagetu sinna eigin fyrirtækja. 22.6.2009 07:35
Bandaríkjaher í viðbragðsstöðu vegna Norður-Kóreu Bandaríkjaher er í viðbragðsstöðu og reiðubúinn til aðgerða skjóti Norður-Kóreumenn eldflaug í átt að Hawaii. 22.6.2009 07:33
Slapp naumlega undan skotárás Rúmlega tvítugur maður í danska bænum Brøndby slapp naumlega í gær þegar hópur manna skaut fjórum eða fimm skotum að honum úr skammbyssu. 22.6.2009 07:32
Tölvuglæpir kosta rúma 100 milljarða dollara Hvers kyns tölvuglæpir kosta fyrirtæki og tölvunotendur rúmlega 100 milljarða dollara á ársgrundvelli. Þetta er mat fyrirtækisins Panda Security sem sérhæfir sig í vírusvörnum og tölvuöryggismálum. 22.6.2009 07:29
Skemmdarverk á olíuleiðslum í Nígeríu Þrjár tilraunir voru gerðar til að vinna skemmdarverk á olíuleiðslum Royal Dutch Shell í austurhluta Nígeríu í gær. Ráðist var á leiðslurnar fjarri næstu mannabústöðum sem torveldaði rannsókn málsins nokkuð og er enn ekki vitað hve mikið tjón var unnið. 22.6.2009 07:26
Þyrlan kölluð út vegna slyss um borð í togara Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í gærkvöldi eftir að togarinn Gnúpur GK frá Grindavík hafði samband við stjórnstöð eftir slys um borð í togaranum. 22.6.2009 07:24
Innbrot í MH og bíla Brotist var inn í Menntaskólann við Hamrahlíð í nótt en óljóst er á þessari stundu hvort einhverju hafi verið stolið. 22.6.2009 07:22
Lýst eftir 17 ára stúlku Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir 17 ára gamalli stúlku Aleksöndru Rós Jankovic. Ekki er vitað hvar hún heldur sig en talið er að hún sé á höfuðborgarsvæðinu. 22.6.2009 07:11
Ökuníðingur yfirheyrður í dag - myndband Maður á stórum jeppa gekk berserksgang á götum Reykjavíkur í gærkvöldi og ók hann meðal annars á dyr slökkvistöðvarinnar í Skógarhlíð. 22.6.2009 07:03
Hálfur milljarður í Hallgrímskirkjuturn Viðgerðir á turni Hallgrímskirkju stefna nú í að kosta nær tvöfalt meira en upphaflega var talið. Reykjavíkurborg og ríkið eru beðin að auka framlag sitt til endurbótanna. 22.6.2009 06:00
Segir Gunnar Birgisson hafa blekkt FME „Eftir að stjórnin var kærð fyrir villandi upplýsingagjöf, á föstudaginn var, fór ég ítarlega yfir öll gögn í málinu. Þá kom í ljós að út- og afborgunum á lánum til Kópavogsbæjar hefur með vísvitandi hætti verið hagað þannig að gögn um þær komu ekki fram í skýrslum til Fjármálaeftirlitsins,“ segir Flosi Eiríksson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar og stjórnar-maður í Lífeyrissjóði starfsmanna Kópavogs (LSK). Í yfirlýsingu sem Flosi sendi frá sér í gær sakar hann Gunnar I. Birgisson, stjórnarformann sjóðsins, um að hafa reynt að villa um fyrir Fjármálaeftirlitinu (FME) án vitneskju annarra stjórnarmanna í sjóðnum. 22.6.2009 05:00
Íslendingar koma um helgar Stöðugur straumur erlendra ferðamanna er á helstu ferðamannastaðina og eru þeir fleiri nú en í fyrra. Búist er við að enn fleiri leggi land undir fót síðar í sumar. 22.6.2009 04:00
Barði pilt í höfuðið með grjóti Tæplega tvítugur piltur hefur verið dæmdur í fangelsi í einn mánuð, skilorðsbundið, fyrir að berja annan pilt í höfuðið með steinhnullungi. Atvikið átti sér stað í Fjölbrautaskóla Suðurlands í febrúar. 22.6.2009 03:00
Útiveran víkkar sjóndeildarhringinn „Nú sem aldrei fyrr er nauðsynlegt að hlúa að heilbrigði og virkni allra barna og fjölskyldna og með stofnun þessa nýja félags leggur Ferðafélag Íslands sitt lóð á vogarskálarnar,“ segir í tilkynningu frá Ferðafélagi Íslands sem stofnar Ferðafélag barnanna við rætur Esju í dag. 22.6.2009 02:00
Hættulegur mafíósi handtekinn Ítalski mafíósinn Salvatore Miceli var handtekinn í Venesúela eftir að hafa verið á flótta frá réttvísinni síðan 2001. Miceli var á lista ítölsku lögreglunnar yfir þrjátíu hættulegustu menn landsins. 21.6.2009 20:26
Kræklingarækt verði græn stóriðja Kræklingarækt á eftir að verða græn stóriðja við Ísland og gæti skapað mörghundruð störf. Þetta staðhæfir einn þeirra sem eru byrjaðir og segir aðstæður hérlendis afar góðar. 21.6.2009 19:22
Prjónum úti dagurinn haldinn hátíðlegur Prjónandi fólk hélt í litla skrúðgöngu í dag frá Nálinni á Laugavegi í tilefni af Prjónum úti deginum sem ku haldinn hátíðlegur víða á byggðu bóli. Heldur bættist í hópinn við Norræna húsið þar sem hópur kvenna og karls sat við prjónaskap, hló og fagnaði lífsstíl prjónara. 21.6.2009 19:14
David Lynch gaf íhugunarfélaginu 13 milljónir Bandaríski kvikmyndaleikstjórinn og framleiðandinn David Lynch hefur gefið Íslenska íhugunarfélaginu 13 milljónir íslenskra króna. Um 600 manns hafa skráð sig hjá félaginu á rúmum mánuði og nýjar höfuðstöðvar hafa verið teknar í notkun. 21.6.2009 19:10
Getum grætt á lifandi humri Niðurstöður rannsókna Háskóla Íslands og Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum benda til að hægt sé að stórauka verðmætasköpun í humarvinnslu með því að flytja meira út af lifandi humri. 21.6.2009 19:01
Fluttu í leit að betra lífi Ung fjögurra manna fjölskylda flutti úr landi í morgun í von um betra líf í Noregi eftir að hafa gefist upp á samskiptum við banka sinn. Fjölskyldan réði ekki við greiðslubyrði sína og segir bankann hafa hafnað eina kaupandanum sem vildi taka yfir lánin. 21.6.2009 18:52
Rólegra í Teheran Ró færðist yfir götur Teheran í Íran í dag eftir að ríkissjónvarpsstöðin þar í landi greindi frá því að tíu til viðbótar hafi látist í átökum mótmælenda og óeirðalögreglu í gær. Sjónvarpsstöðin greindi líka frá því lögregla hafi handtekið dóttur og fjóra aðra ættinga fyrrverandi forseta landsins, Hashemi Rafsanjani, í gær. Rafsanjani er einn valdamesti maður landsins. 21.6.2009 18:42
Bílvelta innanbæjar á Akranesi Bíll valt innanbæjar í grennd við bensínstöð N1 á Akranesi fyrir um 30 mínútum. Að sögn lögreglu reyndi bíllinn að sveigja hjá öðrum bíl, lenti á ljósastaur og valt af þeim sökum. Ökumaðurinn reyndist ekki slasaður og er ekki grunaður um ölvun. Bíllinn er mikið skemmdur 21.6.2009 18:20
Ísland ódýrast í heimi Ísland er ódýrasta land heims fyrir Breta, að því er kemur fram í nýrri skýrslu bresku póstþjónustunnar um ódýra áfangastaði. Það er að sögn fyrirtækisins vegna þess að Ísland er eini ferðamannastaður heims, auk Jamaíka, Ungverjalands og Póllands, þar sem breska pundið hefur styrskt, en ekki veikst. 21.6.2009 18:00
Framkvæmdastjóri SI: Verktökum blæðir út Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, Jón Steindór Valdimarsson, gagnrýnir ríkisstjórnina harðlega í pistli sem birtist á heimasíðu samtakanna í dag undir yfirskriftinni Kjaftshögg. 21.6.2009 17:07
Bangsi kominn heim „Hann er kominn heim og kominn á sinn stað í veröldinni,“ segir Sigurður Guðmundsson, verslunareigandi, sem varð fyrir því að ísbjarnarlíki í hans eigu var stolið. Bangsinn er nú fundinn og kominn aftur fyrir utan verslunina The Viking á Laugarvegi. 21.6.2009 16:46
Líkin frá Írak voru breskir gíslar Bresk yfirvöld hafa nú staðfest að líkin tvö sem þau fengu afhent í gær frá Írak séu af breskum ríkisborgurum sem teknir voru í gíslingu árið 2007. 21.6.2009 15:56
Stálu silungi fyrir hundruðir þúsunda Þjófar brutust inn í veiðihúsið við Reynisvatn í nótt og stálu þaðan fimmtíu kílóum af reyktri bleikju og regnbogasilungi sem tilbúin voru til sölu, að andvirði um 200 þúsund króna. Auk þess voru teknar tólf veiðistangir í eigu veiðivarðarins á staðnum. 21.6.2009 15:16
Kalla alnæmisskimun „ástarprufur“ Alþjóðlegu góðgerðasamtökin PSI reyna nú nýjar leiðir til að vinna gegn HIV í Svasílandi í Afríku. Þau segjast vilja færa sig burt frá hræðsluáróðri, sem samtökin segja að virki ekki, og einbeita sér frekar að ástinni. 21.6.2009 14:34
Bankasýsla ríkisins stofnuð Bankasýsla ríkisins verður að veruleika samþykki alþingi nýtt frumvarp Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra. 21.6.2009 14:04
„Varpar nýju ljósi á stöðu mála" „Þetta varpar nýju ljósi á stöðu mála þar,“ segir Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi Framsóknar í Kópavogi, þegar blaðamaður ræddi við hann um áhrif yfirlýsingar Flosa Eiríkssonar á meirihlutasamstarfið í bænum. 21.6.2009 13:15
16 létust í slysi í Kína Sextán manns létust og 43 slösuðust þegar sprenging varð í verksmiðju í austurhluta Kína í morgun, samkvæmt ríkisfjölmiðlum landsins. 21.6.2009 12:15
Ölvaður ók á hús verkalýðsfélagsins Skrifstofa Verkalýðsfélags Snæfellinga að Ólafsbraut 19 í Ólafsvík varð fyrir miklum skemmdum í fyrrinótt þegar ölvaður ökumaður ók á inngang hússins. Maðurinn stakk af eftir ákeyrsluna en náðist skömmu síðar og var samstundis sviptur ökuréttindum. Skrifstofan er til húsa í gömlu sjóbúðinni þar sem á neðri hæð eru hin ýmsu fyrirtæki en á efri hæð er hluti af 21.6.2009 12:10
Ungir drengir handteknir vegna hatursglæpa Tveir unglingspiltar hafa verið handteknir í tengslum við óhuggulegar árásir á heimili sígauna í borginni Belfast á Norður Írlandi í síðustu viku. Drengirnir verða kærðir fyrir óspektir og ógnandi hegðun. 21.6.2009 12:07
Flosi Eiríksson: FME var blekkt Afborganir og útborganir á lánum Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar til bæjarins virðast hafa verið tímasettar sérstaklega til að villa um fyrir eða blekkja Fjármálaeftirlitið, án vitneskju almennra stjórnarmanna, að því er kemur fram í yfirlýsingu frá Flosa Eiríkssyni, bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar. 21.6.2009 11:01
Steingrímur leiðrétti Hörð Torfa Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, hringdi í Hörð Torfason, fundarstjóra mótmælanna í gær, til að leiðrétta nokkur atriði sem komu fram í máli Harðar á fundinum. Þetta kemur fram á heimasíðu Láru Hönnu Einarsdóttur sem fór ásamt Herði á fund Steingríms og Indriða H. Þorlákssonar, ráðuneytisstjóra fjármálaráðuneytisins. 21.6.2009 10:45
Skáli OR brann til kaldra kola Skáli Orkuveitu Reykjavíkur í Reykjadal á Hengilsvæðinu brann til kaldra kola í nótt en níu ungmenni sem þar voru stafaði engin hætta af eldinum. Það var upp úr klukkan ellefu í gærkvöldi sem tilkynning barst um eld í skála. Fór þá lið lögreglu, sex slökkviliðsmenn úr Hveragerði auk tveggja bíla og sexhjóla Hjálparsveitar skáta í Hveragerði til að aðstoða við að flytja ungmennin til byggða. 21.6.2009 10:16
Mótmælendur deyja í Íran Ríkissjónvarpsstöðin í Íran greindi frá því í gær að þrettán hefðu látist í átökum mótmælenda og óeirðalögreglu í gær í miðborg Teheran í Íran. Fréttastofur á borð við CNN segja þó að tala látinna sé mun hærri. 21.6.2009 10:10
Grænlendingar fá aukna sjálfsstjórn Grænlendingar fá aukna sjálfsstjórn í dag þegar Margrét Þórhildur Danadrottning afhendir þeim lög sem kveða formlega á um fullveldi landsins. Þetta þýðir að Grænlendingar fá auknar tekjur af auðlindum sínum og yfirráð yfir dóms- og lögreglumálum. Grænlenska, eða Kalaallisut, verður einnig opinbert tungumál. 21.6.2009 10:02
Lengsti dagur ársins í dag Lengsti dagur ársins er runninn upp á Íslandi. Í Reykjavík reis sólin klukkan sex mínútur í þrjú í nótt og sólarlag verður ekki fyrr en klukkan fimm mínútur yfir miðnætti. Þá tekur daginn að stytta aftur á morgun. 21.6.2009 09:58
Fangageymslur fullar aðra nótt í röð Aftur var nóg að gera hjá lögreglunni á Akureyri í nótt, en þar fara fram Bíladagar um helgina. Fangageymslur fylltust aðra nóttina í röð. Að sögn lögreglu var þó ekki um nein alvarleg atvik að ræða, heldur einkum minniháttar pústra, slagsmál og drykkjulæti. Engar kærur hafa verið lagðar fram eftir nóttina. 21.6.2009 09:46
Annasöm nótt hjá lögreglu Annasamt var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Talsvert var um pústra og óspektir. Þó voru að sögn engar alvarlegar uppákomur. 7 til 8 manns gistu fangageymslur fyrir drykkjulæti og óspektir. Þrír voru teknir fyrir ölvunarakstur. 21.6.2009 09:34
63 létust í bílasprengju Að minnsta kosti 63 létust og tvöhundruð særðust þegar bílasprengja sprakk utan við mosku Sjíta múslima í norðanverðu Írak í gær. Sprengjan er sú mannskæðasta í tæpa tvo mánuði. 21.6.2009 09:00