Fleiri fréttir

Barðist við Talibana í bleikum nærbuxum og inniskóm

Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, fór lofsamlegum orðum um bandarískan hermann í Afganistan sem kom hlaupandi beint úr rúminu fyrr í mánuðinum og réðst til atlögu við Talibana sem gerðu árás á herstöðina.

Unglingar skutu mann í Hundige

Þrír unglingar eru í haldi lögreglu í Hundige, rétt utan við Kaupmannahöfn, grunaðir um að hafa skotið 22 ára gamlan mann í hnakka og handlegg þar sem hann ók bifreið sinni í nótt.

Kínverjar banna reykingar á sjúkrahúsum

Kínverjar hyggjast banna reykingar á öllum sjúkrahúsum og öðrum heilbrigðistengdum mannvirkjum árið 2011. Þetta kemur fram í tilkynningu heilbrigðisráðuneytisins þar í landi í dag.

Fékk nýra úr látnum aðdáanda

Söngkonan Natalie Cole, sem verið hefur á biðlista fyrir nýrnaígræðslu, fékk nýra úr látnum aðdáanda sínum sem grætt var í hana á þriðjudaginn.

Sá eldsneytið streyma úr flugvélinni

Farþegi um borð í flugi United Airlines frá Chicago til Tókýó kom hugsanlega í veg fyrir stórslys þegar hann tók eftir því að eldsneyti vélarinnar lak af henni í stórum stíl eftir flugtak.

Á stolnum bíl í annarlegu ástandi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði karl og konu á stolnum bíl undir morgun og reyndust þau bæði í annarlegu ástandi.

Fyrstu síldarfarmarnir væntanlegir til lands

Fjölveiðiskipin Ásgrímur Halldórsson og Jóna Eðvalds eru væntanleg til Hafnar í Hornafirði klukkan tvö í dag með fyrstu síldarfarmana í ár, úr norsk-íslenska síldarstofninum.

Kviknaði í gróðri í Heiðmörk

Eldur kviknaði í gróðri í Heiðmörk undir kvöld í gær og sviðnuðu þar 500 til 600 fermetrar lands. Eldurinn var við svonefnda Maríuhella og var að breiða úr sér þegar slökkviliðið kom á vettvang, en því tókst að hefta útbreiðsluna og slökkva í sverðinum.

Eldur í sumarbústað við Meðalfellsvatn

Tvö börn og tveir fullorðnir forðuðu sér út þegar eldur kom upp í sumarbústað við Meðalfellsvatn í Kjós laust fyrir klukkan eitt í nótt. Fólkið hringdi á slökkviliðið en tókst að halda eldinum í skefjum með vatni úr garðslöngu á meðan beðið var eftir slökkviliðinu.

Segir málatilbúnaðinn „árás“

„Þetta er náttúrlega eins og flest sem þaðan kemur; uppdikterað og margfaldað með pí,“ segir Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, um frétt Ríkisútvarpsins í gær um að hann hygðist á fundi Sjálfstæðisfélags Kópavogs á morgun ræða greiðslur bæjarins til fyrirtækis dóttur hans.

Dæmdar 19 milljónir

„Þessi niðurstaða kemur okkur mjög á óvart. Við bjuggumst við því að málinu yrði vísað frá, þar sem við teljum manninn hafa orðið uppvísan að mjög vafasömum starfsháttum og gerst brotlegur við lög í starfi sínu fyrir félagið,“ segir Sigurður Grétar Ólafsson, formaður stjórnar Byggingafélags námsmanna. Félagið var á miðvikudag dæmt í Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða fyrrverandi framkvæmdastjóra laun í eitt ár. Sú upphæð, með orlofi, bílahlunnindum og mótframlagi í lífeyrissjóð, er rúmar nítján milljónir króna. Við það bætast dráttarvextir.

Mikil gróska í rannsóknum

AVS-sjóðurinn, sem styður verkefni til að auka virði sjávarfangs, veitti í ár 76 styrki að upphæð 325 milljónir króna. Alls bárust sjóðnum 160 umsóknir að upphæð 800 milljónir króna, sem gefur til kynna hversu mikil gróska er hér á landi í rannsóknum og þróun sem tengjast sjávarútvegi hér á landi.

Röng skilaboð að fara ekki utan

„Með fullri virðingu fyrir mikilvægi þess að rækta vinabæjartengsl þá hef ég lýst þeirri skoðun minni á fundum bæjarráðs að mér finnist það sérkennileg forgangsröðun að ætla að fara í ferð sem þessa í því efnahagsástandi sem nú er,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir um ferð á vegum Hafnarfjarðarbæjar á vinabæjarmót í Uppsala í Svíþjóð.

Íslendingar eiga Norðurlandamet í sykurneyslu

Íslendingar neyta allra Norðurlandaþjóða mest af sykri á ári. Drykkja á sykruðum gosdrykkjum vegur þyngst, tæp fjörutíu prósent af allri sykurneyslunni. Íslendingar innbyrða að meðaltali 48,3 kíló af sykri á mann, en Svíar 41,8 kíló, Danir 37,6 kíló, Finnar 33,3 og Norðmenn 32,9 kíló. Þessar tölur eru miðaðar við árið 2007 nema hjá Svíum, sú tala er frá 2006.

Fáum bráðum sænska dollara

stjórnmál „Þetta er að mestu leyti komið í höfn,“ segir Steingrímur J. Sigfússon sem í fyrradag var í Stokkhólmi að ræða skilmála láns sem Svíar hyggjast veita Íslendingum til að styrkja gjaldeyrisforða landsins. Lánið er hluti 2,5 milljarða dollara lánapakka frá Svíum, Norðmönnum, Dönum og Finnum.

Forgangsreinar verði fleiri

Þrjátíu ný græn skref voru samþykkt í umhverfis- og samgönguráði Reykjavíkur á þriðjudagskvöld. Þar er meðal annars gert ráð fyrir fleiri forgangsreinum fyrir strætó og að búnir verði til sælureitir í öllum hverfum.

Fjárlaganefnd fær yfirlit yfir útgjöld

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir tekjur ríkisins hafa verið nokkuð minni á þessu ári en ráð hafi verið fyrir gert. „Það er meiri samdráttur og heldur minni velta í samfélaginu,“ segir fjármálaráðherra.

Beita makríl þrátt fyrir bann

Veiðimenn sem virða ekki reglur virðast geta stundað iðju sína óáreittir við Þingvallavatn ef marka má fréttavefinn votnogveidi.is.

Um 2.300 fá ekki vinnu hjá borginni

„Reykjavíkurborg getur ekki ráðið alla sem eru atvinnulausir í borginni. Það segir sig sjálft. Borgin er hins vegar að reyna að gera sitt besta til að bregðast við vandanum,“ segir Hallur Páll Jónsson, mannauðsstjóri Reykjavíkurborgar.

Tjaldasala með fyrra móti

„Þetta er allt að fara af stað núna. Það er mikið spurt um verð á tjöldum og tilheyrandi og eitthvað keypt, og við sjáum fram á góða sölu í sumar,“ segir Sigurður Guðmundsson, afgreiðslumaður í ferða- og útivistarversluninni Everest. Flest bendir til að margir kjósi að ferðast innanlands í sumar.

Nokkrir bindislausir á þingi

„Ég hef tekið eftir því að flestir eru enn þá með hálstau og ég er mjög ánægð með það. Persónulega finnst mér þingmennirnir flottari með bindi, en aðalatriðið er að þeir séu vel til hafðir. Og það eru þeir allir. Þeir eru glæsilegir á að líta úr forsetastólnum,“ segir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis. Bindisskylda þingmanna var afnumin þegar þinghald hófst að loknum alþingiskosningum.

Eigendur 400 félaga á huldu

Ríkisskattstjóri vill upplýsingar frá íslenskum bönkum um eignarhald 400 félaga sem tengjast Íslendingum og eru skráð í erlendum skattavinjum. Að sögn Ríkisútvarpsins á að kanna hvort svikið hafi verið undan skatti í gegnum þessi félög.

Rangt staðið að synjun leyfis

Ákvörðun bæjarráðs sveitarfélagsins Ölfuss um að synja Lýsi hf. um leyfi fyrir uppsetningu óson- hreinsunartanka við fiskþurrkun fyrirtækisins í Þorlákshöfn hefur verið ógilt af úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála.

Skódinn eyddi 3,02 lítrum á hundraði

„Þetta gekk frábærlega vel. Veðrið lék við áhorfendur og við erum auðvitað þakklát veðurguðunum fyrir það, því það skiptir miklu máli að ekki sé hávaðarok. Fjöldi keppenda var fullkominn, ekki of margir og ekki of fáir,“ segir Hugi Hreiðarsson, einn af forsvarsmönnum hinnar árlegu Sparaksturskeppni Atlantsolíu og Félags íslenskra bifreiðaeigenda sem haldin var í fyrradag.

Reikna út verðmiða fyrir Heiðmörkina

„Yfirleitt er því fleygt fram að náttúran á Íslandi sé ómetanleg. Hún er ómetanleg en við erum að meta þjónustuna sem hún veitir okkur. Á þessu er blæbrigðamunur. Streymi þjónustunnar getum við mælt en náttúran sjálf er augljóslega ómetanleg,“ segir Brynhildur Davíðsdóttir, dósent í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands.

Banaslys á Hringbrautinni

Ökumaður vélhjóls lést í umferðarslysi á mótum Hringbrautar og Birkimels, nálægt Þjóðarbókhlöðunni, um áttaleytið í gærkvöldi.

Biden fékk góðar móttökur í Kosovo

Joe Biden, varaforseti Bandaríkjanna, fékk höfðinglegar móttökur þegar hann heimsótti Kosovo í dag. Móttökurnar þar voru gerólíkar þeim sem hann fékk í Serbíu í gær þegar þúsundir lögregluþjóna gættu þess að mótmælendur gerðu honum ekki mein. Kosovo lýsti yfir sjálfstæði frá Serbíu í febrúar í fyrra og Joe Biden var einn af helstu talsmönnum fyrir sjálfstæði þeirra.

Tilbúinn að gefa góð ráð ef formleg ósk berst

Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra segir ósk sjávarútvegsstjóra Evrópusambandsins, um að Ísland aðstoði við endurskoðun sjávarútvegsstefnu sambandsins, sýna best hversu lítið erindi Íslendingar eiga þangað.

Virkjunin sem átti að bjarga búrekstrinum orðin skuldahelsi

Sauðfjárbóndi á Snæfellsnesi, sem ætlaði að tryggja búsetu á jörðinni með því að gerast raforkubóndi, situr uppi með himinháar skuldir vegna erlendrar lántöku. Hann segist hafa verið heimskur að láta etja sér út í þetta.

Alvarlegt umferðarslys á Hringbraut

Mjög alvarlegt umferðarslys varð á Hringbraut í Reykjavík skammt frá Þjóðarbókhlöðunni þegar bifhjól og bifreið rákust á. Lögreglan getur ekkert sagt til um málsatvik á þessu stigi, en rannsókn á slysinu er ekki lokið.

Fleiri skip til rækjuveiða

Hreyfing virðist vera komin á rækjuveiðar á ný eftir margra ára ördeyðu. Tvöfalt fleiri skip halda til veiða í ár miðað við síðasta ár og verið er að ræsa rækjuverksmiðjur á ný.

Staðfestir viðræður borgarinnar við lífeyrissjóði

Reykjavíkurborg á nú í viðræðum við lífeyrissjóði um 5 milljarða króna lán til mannaflsfrekra framkvæmda á þessu ári. Borgarstjóri segist vonast til að viðræður vegna lántöku skili árangri sem fyrst. Birgir Björn Sigurjónsson, fjármálastjóri Reykjavíkurborgar, staðfesti þetta í samtali við fréttastofu nú rétt fyrir fréttir.

Slasaðist á mótorkrosshjóli

Karlmaður um fertugt slasaðist þegar að hann féll á mótorkrosshjóli sínu í Grímsnesi, skammt frá bænum Rofabæ. Björgunarsveitir, um hálffimmleytið í dag. Lögreglan á Selfossi segir að grunur leiki á að hann sé með hryggáverka en ekki er víst hversu alvarlegir þeir eru. Sjúkrabifreið er kominn að manninum og mun flytja hann til skoðunar á slysadeild.

Lést eftir vinnuslys

Pilturinn sem slasaðist þegar hann var við byggingarvinnu við grunnskólann í Garði að morgni síðastliðins þriðjudags lést á Landspítalanum í gærdag. Hann hét Kristján Falur Hlynsson og var átján ára gamall. Kristján var til heimilis að Hlíðarvegi 70 í Ytri Njarðvík. Hann lætur eftir sig foreldra og bróður.

Óttast að forsendur fjárlaga séu brostnar

Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksins, óttast að forsendur fjárlaga fyrir árið 2009 séu brostnar. Fjárlögin voru samþykkt skömmu áður en hlé var gert

Segir Gunnar njóta víðtæks stuðnings meðal sjálfstæðismanna

Formaður Sjálfstæðisfélags Kópavogs segir Gunnar Birgsson bæjarstjóra njóta víðtæks stuðnings meðal sjálfstæðismanna í bænum og ekki var minnst orði á umdeilt viðskiptamál dóttur hans á fulltrúaráðsfundi sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi í gærkvöldi.

Styrkja Nýsköpunarsjóð námsmanna

Katrín Jakobsdóttir, ráðherra mennta- og menningarmála, og Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra, hafa styrkt Nýsköpunarsjóð námsmanna um samtals 15 milljónir króna. Um er að ræða fimm milljónir frá ráðuneyti mennta- og menningarmála og tíu milljónir frá iðnaðarráðuneyti.

Sjá næstu 50 fréttir