Fleiri fréttir

Eldur í Húsaskóla

Eldur kviknaði í Húsaskóla á tíunda tímanum í kvöld. Litlar upplýsingar hafa fengist um málið aðrar en þær að verið er að rífa klæðningu utan af húsinu, en ekki er talið að eldurinn hafi komist inn í húsið. Engar vísbendingar eru um eldsupptök á þessu stigi málsins.

Framtíð nýju bankanna teflt í tvísýnu

Athuganir sem gerðar hafa verið á ársreikningum fyrirtækja í sjávarútvegi hafa leitt til þeirrar niðurstöðu að 5% upptaka heimilda hefði það alvarleg áhrif á fjölda fyrirtækja að þau myndu ekki geta staðið í skilum með skuldir sínar. Þetta fullyrða forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins í nýjum pistli sem birtist á vefsíðu þeirra.

Fá 647 milljónir í lottóvinning

Þrír Danir duttu í lukkupottin og skiptu 1. vinningi og ofurpotti Víkingarlottósins á milli sín, þar sem ofurtalan var ein af aðaltölunum. Fær hver þeirra 647 milljónir íslenskra króna í sinn hlut.

Hefur þegið hálfa milljón á mánuði

Dóttir bæjarstjórans í Kópavogi hefur þegið tæpa hálfa milljón í laun á mánuði fyrir ýmis verkefni hjá Kópavogsbæ undanfarin níu ár og setið nær ein að verkefnavinnu fyrir bæinn. Oddviti Framsóknarmanna í bænum segir málið óheppilegt og sjálfstæðismenn eru undrandi yfir upphæðunum.

Minnka má búðarhnupl um helming

Ef karlmaður stendur lengi frammi fyrir snyrtivörurekka - er hann annaðhvort þjófur eða þarf aðstoð, segir Eyþór Víðisson, öryggissérfræðingur, sem segir að draga megi úr búðahnupli um helming með einföldum aðgerðum. Búðahnupl hefur aukist um 90% eftir bankahrun.

Mesta aflahrota síðari ára

Ótrúleg aflahrota, einhver sú mesta sem komið hefur í áratugi, er nú við vestan- og norðanvert landið, og fiskarnir eru stærri og vænni en menn hafa lengi séð.

Fimm mánaða skilorð fyrir árás á dyravörð og lögregluþjón

Hæstiréttur dæmdi í dag Teit Guðmundsson í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa slegið dyravörð á veitingastaðnum Drífanda í Vestmannaeyjum í andltið með þeim afleiðingum að hann missti framtönn. Þá er maðurinn jafnframt dæmdur fyrir að hafa veist með ofbeldi og hótunum að lögreglumanni og hótað honum lífláti.

Síbrotakona dæmd í 12 mánaða fangelsi

Hæstiréttur dæmdi í dag Emilíu Rós Hallsteinsdóttur í 12 mánaða fangelsi fyrir rán í Litlu Kaffistofunni og að hafa ógnað starfsmanni með hnífi. Þá var Emilía jafnframt dæmd fyrir nytjastund og að hafa tvisvar sinnum ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna.

Steingrímur og Svein ræða lánakjör í Svíþjóð

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra flaug út til Svíþjóðar í morgun ásamt Svein Harald Øygard seðlabankastjóra til þess að ræða lánasamninga sem Norðurlöndin hafa heitið okkur.

Þingmenn Samfylkingarinnar deildu um Tónlistarhúsið

Þingmenn Samfylkingarinnar deildu á Alþingi í dag um hvort að hætta eigi við byggingu Tónlistar- og ráðstefnuhússins í núverandi mynd. Steinunn Valdís Óskarsdóttir sagði að það væri algjört glapræði að slá framkvæmdunum á frest. Sigmundur Ernir Rúnarsson sagði aftur á móti að huga verði að fólki frekar en fasteignum.

Hollendingar mála bæinn appelsínugulan í júní

Mikill áhugi er í Hollandi á landsleik Íslands og Hollands í undankeppni heimsmeistarakeppninnar í fótbolta sem leikinn verður á Laugardalsvellinum laugardaginn 6. júní. Í tilkynningu frá Icelandair segir að vegna áhugans ytra hafi flugfélagið bætt þremur flugum við daglega áætlun sína til Amsterdam og eru þau fullbókuð.

Slökkviliðsstjórinn í Skagafirði: Búnir að ná tökum á eldinum

Vernharð Guðnason slökkviliðsstjóri hjá Brunavörnum Skagafjarðar segir að menn séu farnir að sjá fyrir endann á slökkvistarfi við fiskeldisstöðina á Lambanesreykjum í Fljótum. Eldur kom þar upp í hádeginu í dag en slökkvilið var komið á vettvang rétt fyrir klukkan 13:00. Töluverð hætta var á ferðum þar sem mikið er af eiturefnum í húsinu sem er yfir tvö þúsund fermetrar.

Innbrotið í Frostaskjóli: Bíllinn fundinn

Vísir sagði frá innbroti í tvö íbúðarhús við Frostaskjól í vesturbæ Reykjavíkur í gær. Tveimur fartölvum, þremur farsímum og bíllyklum var stolið. Í kjölfarið var bifreið sem stóð við annað húsið tekin og óku ræningjarnir á brott. Lögregla hafði fljótlega upp á innbrotsþjófunum og þýfinu en bíllinn komst ekki í leitirnar fyrr en í morgun.

Yfir 10 þúsund staðfest tilfelli af inflúensu A

Samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar ESB voru staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) alls 10.215 í morgun í 42 ríkjum í heiminum. Í tilkynningu frá Sóttvarnalækni og Almannavörnum segir að langflest flensutilfellanna séu í Bandaríkjunum eða 5.469 en í þeirri tölu eru einnig líkleg flensutilfelli þar í landi.

Helmingi verri staða en í byrjun árs

Framsóknarmenn gagnrýndu harðlega dagskrá Alþingis og áherslur ríkisstjórnarinnar á þingfundi í dag. Varaformaður flokksins fullyrti að staða heimila og fyrirtækja í landinu væri helmingi verri í dag en hún hafi verið við í byrjun árs. Ótækt væri að þingmenn ræddu um meðhöndlun úrgangs og erfðabreyttar lífverur.

Stjórnarþingmaður vill lægri vexti á AGS-lánið

Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, telur brýnt að stjórnvöld ræði við sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um lægri vexti á láni sjóðsins til íslenska ríkisins. Hún sagði í umræðum Alþingi í dag að að vextirnir væru breytilegir og í dag væru þeir hærri en gengur og gerist á fjármálamörkuðum.

Lögguníðingarnir ákærðir fyrir árásina í Árbænum

Ákæra hefur verið gefin út á hendur átta mönnum sem réðust á tvo lögreglumenn við skyldustörf í Hraunbæ í Árbæ í október á síðasta ári. Alls voru tólf handteknir vegna málsins á sínum tíma en árásin var með öllu tilefnislaus.

Búist við að met falli í Sparaksturskeppni

Talið er að gömul met falli í árlegri Sparaksturskeppni Félagi íslenskra bifreiðaeigenda og Atlantsolíu sem hófst í hádeginu í dag. 22 bílar voru skráðir til leiks en keppt er í sjö flokkum. Keppninni er ætlað vekja athygli á því að hægt sé að draga verulega úr eldsneytisnotkun með réttu aksturslagi.

Á annað hundrað flugvirkjar boða verkfall

Flugvirkjar hafa boðað tímabundið þriggja daga verkfall sem hefst 8. júní og allsherjarverkfall 22. júní. Um er að ræða flugvirkja hjá Icelandair og Flugfélagi Íslands, en þeir eru 150 til 200 talsins. Þetta kemur fram á vefsíðu Flugvirkjafélags Íslands.

Íranir skutu háþróaðri eldflaug á loft

Íranar skutu í morgun á loft nýrri háþróaðri eldflaug sem dregur um 2000 kílómetra eða allt til Ísraels og bandarískra herstöðva við Persaflóa. Líklegt er að tilraunaskotið veki áhyggjur Vesturveldanna um hernaðarlegan metnað ráðamanna í Teheran.

Uppreisnarmenn í Darfur dæmdir til dauða

Súdanskur dómstóll dæmdi í morgun níu uppreisnarmenn í Darfúr-héraði til dauða fyrir þátttöku í árásum á Kartúm, höfuðborg Súdans, í fyrra. Þá hafa 91 uppreisnarmaður hlotið dauðadóm og samkvæmt lögum í Súdan verða mennirnir allir hengdir.

Undrandi sjálfstæðismenn í Kópavoginum

Sjálfstæðismenn í Kópavogi eru undrandi yfir háum greiðslum bæjarins til handa fyrirtækis í eigu dóttur Gunnars I. Birgissonar bæjarstjóra. Sjálfur segist bæjarstjóri ekki óttast meirihlutaslit við framsóknarmenn, hann hafi ekkert til saka unnið.

Björn Bjarnason nýr formaður

Björn Bjarnason, fyrrum ráðherra og þingmaður, var í gær kjörinn formaður Samtaka um vestræna samvinnu og alþjóðamál. Jafnframt var kona í fyrsta sinn kjörin í stjórn samtakanna en þau voru stofnuð árið 1958. Síðan þá hafa þau verið vettvangur umræðna um öryggis-, varnar- og utanríkismál Norður-Atlantshafsríkja.

Vill leggja niður aðstoðarmannakerfi þingmanna

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, telur að leggja eigi niður aðstoðarmannakerfi landsbyggðarþingmanna. Hún hefur beint því til þingmanna að þeir ráði sér ekki aðstoðarmenn. Forsætisnefnd tekur ákvörðun um málið eftir helgi.

Sturla Jónsson: „Ég er búinn að gefast upp“

Sturla Jónsson, vörubílstjóri og einn þekktasti mótmælandi síðustu missera á Íslandi hefur ákveðið að flýja land. Hann heldur til Noregs eftir helgi, kominn með nóg að eigin sögn og segir ekkert framundan á Íslandi.

Ljóð eftir Bob Dylan 16 ára boðið upp

Handskrifað ljóð eftir Robert Zimmerman frá 1957 verður boðið upp hjá Christie‘s í New York í júní. Zimmerman þessi er vitaskuld betur þekktur undir nafninu Bob Dylan og samdi ljóðið, að því er talið er, 16 ára gamall meðan hann dvaldi í sumarbúðum gyðinga í Wisconsin.

Fyrsta skemmtiferðaskipið kemur í dag

Fyrsta skemmtiferðaskipið í ár kemur til Reykjavíkur síðdegis og leggst við Skarfabakka við Sundahöfn. Þetta er rúmlega 40 þúsund tonna skip. Alls er búist við 50 skemmtiferðaskipum í 80 heimsóknum til Reykjavíkur í sumar.

Sjóræningjar láta grípa sig til að fá hæli

Sómalskir sjóræningjar láta í sumum tilfellum handtaka sig af ásettu ráði til að notfæra sér evrópskar reglur um hælisleitendur. Þetta segir Geert-Jan Knoops, sérfræðingur í alþjóðlegum refsirétti og prófessor við Háskólann í Utrecht í Hollandi.

Kraftaverk að maður lifði af skotárás

Lögreglan í Kaupmannahöfn segir það hreint kraftaverk að 26 ára gamall maður, sem var skotinn í höfuðið, magann, hand- og fótlegg við Rødovrevej laust fyrir miðnætti í gærkvöldi, sé á lífi og auk þess úr lífshættu.

Mátti keppa á brimbretti í veikindafríi

Það er í góðu lagi að taka þátt í brimbrettakeppni þegar maður er í veikindaleyfi frá vinnu. Þetta er niðurstaða ástralsks dómstóls í máli Shanes Bevan sem er keppnismaður í íþróttinni þar syðra.

Breskir kjarnorkukafbátar mígleka

Geislavirk efni hafa lekið úr breskum kjarnorkukafbátum níu sinnum síðastliðin tólf ár. Þetta viðurkenndi varnarmálaráðuneyti landsins eftir að því barst fyrirspurn um málið frá Julian Lewis, skuggaráðherra varnarmála.

Síldveiðin hafin

Fjölveiðiskipin Ásgrímur Halldórsson og Jóna Eðvalds fengu fyrstu síldina í ár úr norsk-íslenska síldarstofninum, djúpt norðaustur af landinu í gær, nokkur hundruð tonn hvort skip.

Eldur í Herdísi SH í morgun

Tveir sjómenn sluppur heilir á húfi og var síðan bjargað yfir í annan bát, eftir að eldur gaus skyndilega upp frammi í lúkar á handfærabátnum Herdísi SH þegar báturinn var staddur um 12 sjómílur út af Blakksnesi, sunnan við Patreksfjörð, á sjötta tímanum í morgun.

Ölvaður öldungur ók gegnum bílskúrshurð

Ölvaður ökumaður á níræðisaldri slapp ómeiddur eftir að hafa ekið á bíl og hús nágranna síns á Selfossi í gærkvöldi og hafnað síðan inni á gafli í eigin bílskúr.

Siv vill ráðast í byggingu nýs Landspítala

Það er afar brýnt að ráðist verði í hönnun og byggingu nýs Landspítala á næstunni, segir Siv Friðleifsdóttir, fulltrúi Framsóknaflokksins í heilbrigðisnefnd Alþingis. Siv lagði fram spurningu til heilbrigðisráðherra á Alþingi í dag um hvort verkefninu verði haldið áfram. Hún bíður nú skriflegs svars frá ráðherra.

Sjá næstu 50 fréttir