Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Háskólinn á Hólum verður ekki sjálfseignastofnun Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, hefur snúið við ákvörðun Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttir, fyrrum menntamálaráðherra um að gera Háskólann á Hólum að sjálfseignastofnun samkvæmt fréttavefnum Feykir.is. Þar kemur einnig fram að ekki hafi verið greint frá þessu opinberlega. Skólinn hefur verið rekinn með þó nokkrum halla og var tilsjónarmaður skipaður yfir skólann. 13.2.2009 14:35
Þrír náðaðir á tveimur árum Samkvæmt upplýsingum úr dóms- og kirkjumálaráðuneytinu þá hafa þrír menn fengið náðun undanfarin tvö ár en það er mjög sjaldgæft að því úrræði sé beitt. Ritari náðunarnefndar, lögfræðingurinn Skúli Þór Gunnsteinsson, segir að í slíkum tilvikum sé nær alltaf um alvarlega veika einstaklinga að ræða sem hafa hlotið vægar refsingar. 13.2.2009 14:01
Grófst upp að höndum í Dagmálalág Snjóflóð féll í Dagmálalág í Húsavíkurfjalli, rétt ofan við skíðasvæðið rétt eftir hádegi í dag. Tveir piltar lentu í flóðinu en þeir voru á göngu upp fjallið þegar flóðið féll. Annar þeirra grófst upp að höndum í flóðinu en að sögn lögreglu varð þeim ekki meint af. 13.2.2009 13:46
Þak fauk af bílskúr í Grindavík Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík var kölluð út um klukkan 9:30 í morgun þegar þak fauk af bílskúr við Þórkötlustaði í Grindavík. Þegar björgunarsveitin kom á staðinn hafði hálft þakið fokið af í einu lagi og brakið dreifst um nærliggjandi tún. Farið var í að festa það sem eftir var af þakinu til að fyrirbyggja frekara fok og tína saman brakið. 13.2.2009 13:15
Ákærður fyrir íkveikju í Ástralíu Ástralska lögreglan hefur ákært þrjátíu og níu ára mann fyrir að hafa kveikt viljandi elda í kjarrlendi í austurhluta Viktoríufylkis í Ástralíu. Sá eldur varð minnst tuttugu og einum að bana. 13.2.2009 12:26
Beresovskí segir Rússa hafa þvegið peninga á Íslandi Rússneskir auðmenn hliðhollir Pútín forsætisráðherra Rússlands hafa stundað peningaþvætti á Íslandi og í reynd keypt landið með illa fengnu fé sínu. Þetta fullyrðir Boris Beresovskí, landflótta rússneskur auðmaður og svarinn óvinur Pútíns forsætisráðherra Rússlands. Íslensk stjórnvöld vísa þessu á bug. 13.2.2009 12:14
Fjölskylda berst í bökkum „Við erum með tvö börn á leikskóla, þetta gæti orðið til þess að við þurfum að taka þau af skólanum," segir fjölskyldumaðurinn og smiðurinn Matthías Arnberg Matthíasson, en hann hefur verið atvinnulaus síðan í desember síðastliðnum. Matthías, sem er fjörtíu og fjögurra ára gamall faglærður smiður, gagnrýnir ríkisstjórnina harðlega fyrir karp á þingi og rifrildi um Davíð Oddssons - á meðan standa fjölskyldur varnalausar í þeim efnahagslegu hörmungum sem dunið hafa á landanum. Nú er raunveruleg hætta á því að Matthías missi húsið. 13.2.2009 11:39
Einar vill efsta sætið hjá Framsókn Einar Skúlason skrifstofustjóri þingflokks Framsóknarflokksins ætlar að bjóða sig fram í fyrsta sæti í Reykjavík suður á lista flokksins í komandi kosningum til Alþingis. 13.2.2009 10:11
Semja þarf nýtt seðlabankafrumvarp Birgir Ármannsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi í viðskiptanefnd segir augljóst að fyrirhugað frumvarp um Seðlabankann sé meingallað og að það þarfnist gagnerrar endurskoðunnar. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn birti í gær umsögn um frumvarpið og segir Birgir að sú gagnrýni sem þar birtist sé í takt við það sem sjálfstæðismenn hafi bent á í síðustu viku. 13.2.2009 10:07
Vetrarhátíð hefst í Reykjavík í dag Vetrarhátíð hefst í Reykjavík í dag en boðið er upp á afar fjölbreytta dagskrá þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Hátíðin hófst reyndar í morgun með pottaspjalli í Breiðholtslaug á Menningarhátíð eldri borgara. 13.2.2009 09:57
HR fær 300 milljóna króna rannsóknarstyrk frá ESB Tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík hefur hlotið tveggja milljóna evra styrk frá Evrópusambandinu til gervigreindarrannsókna. 13.2.2009 08:08
Starbucks tekur upp skyndikaffi Starbucks-kaffihúsakeðjan mun frá og með næsta þriðjudegi selja skyndikaffi í bréfum til að mæta kröfum neytenda um ódýrari kaffidrykki. 13.2.2009 07:28
Bretar fresta fjárlagafrumvarpi fram á vor Afgreiðslu fjárlagafrumvarps bresku stjórnarinnar hefur verið frestað til aprílloka og hefur það ekki verið svo seint á ferð síðan árið 1945 að sögn Telegraph. 13.2.2009 07:24
Kókaín og heróín aldrei ódýrara í Bretlandi Kókaín og heróín hafa hríðfallið í verði í Bretlandi og eru efnin nú ódýrari en nokkru sinni fyrr. Þetta kemur fram í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins um stöðu fíkniefnamála og greinir skýrslan frá því að síðasta áratug hafi verð efnanna lækkað um nær helming. 13.2.2009 07:22
Sprenging í fiskimjölsverksmiðju í Eyjum Engan sakaði og lítið sem ekkert tjón hlaust af þegar mikil spennging varð í fiskimjölsverksmiðju Ísfélagsins í Vestmannaeyjum í gærkvöldi. Eldhnöttur steig upp úr reykháfnum og bárust lögreglu margar tilkynningar frá bæjarbúum. 13.2.2009 07:12
Ófærð í þrengslum og á Hellisheiði í nótt Töluvert snjóaði á Hellisheiði og í þrengslum í nótt og lentu nokkrir vegfarendur í vandræðum undir morgun. Snjóruðningstæki voru kölluð á vettvang og er verið að hreinsa vegina. 13.2.2009 07:10
Braust inn í félagsmiðstöð Brotist var inn í félagsmiðstöð við Hólmasel í Breiðholti í nótt og þaðan stolið sjónvarpstæki og skjávarpa. Þjófurinn braut upp þrjár hurðir til að komast að ránsfengnum og komst hann undan. 13.2.2009 07:09
Fjórir meiddust í árekstri nálægt Hvammstanga Fjórir meiddust, enginn þó alvarlega, þegar tveir bílar lentu í árekstri austan við Hvammstanga í gærkvöldi. Fólkið var flutt á heilsugæslustöðina á Blönduósi en bílarnir eru ónýtir. 13.2.2009 07:07
Tæplega 50 fórust í flugslysi í New York Tæplega 50 manns sem voru um borð í farþegaflugi Continental-flugfélagsins eru látnir eftir að vél félagsins skall niður á íbúðarhús og sprakk í loft upp í úthverfi borgarinnar Buffalo í New York-ríki í nótt. 13.2.2009 07:03
Víðast eru hagfræðingar í forsvari Af 38 seðlabankastjórum í 36 löndum sem Íslendingar gætu miðað sig við eru tveir sem ekki eru með framhaldsmenntun á sviði hagfræði. Einföld samantekt af vefjum bankanna leiðir þetta í ljós. 13.2.2009 06:30
Myndirnar skipta hundruðum Ljósmyndirnar sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur keypt af Júlíusi Sigurjónssyni, ljósmyndara Morgunblaðsins, skipta hundruðum, að sögn Stefáns Eiríkssonar lögreglustjóra. Stefáni er hins vegar ekki kunnugt um að lögreglan hafi nokkru sinni keypt mynd af öðrum ljósmyndara til afnota í ársskýrslum, á vefnum eða við önnur tækifæri. 13.2.2009 06:15
Sagður einn aðalsökudólga hrunsins Bandaríska fréttatímaritið Time um Davíð Oddsson seðlabankastjóra. 13.2.2009 06:00
Kostnaðurinn þykir of mikill Frumvarp þingflokks framsóknarmanna um stjórnlagaþing nýtur ekki stuðnings þingflokka ríkisstjórnarflokkanna. Ríkisstjórnin mun leggja fram eigið frumvarp um málið og hefur skipað starfshóp til undirbúnings. Skipan stjórnlagaþings var ein af meginforsendum þess að Framsóknarflokkurinn veitti ríkisstjórninni stuðning sinn. Segir í verkefnaskrá hennar að lög verði sett um skipan og verkefni slíks þings. 13.2.2009 06:00
Aðgerðasinnar ekki í ofbeldi Beinar mótmælaaðgerðir eru sagðar komnar til að vera og að þær megi rekja til Kárahnjúkavirkjunar. Félagar í Saving Iceland kasti ekki grjóti í lögreglu. 13.2.2009 05:45
Skyrsölu í Bretlandi frestað eftir hrunið Mjólkursamsalan seldi 153 tonn af skyri til Bandaríkjanna í fyrra í gegnum fyrirtæki fyrrverandi forstjóra. Hann segir mikilli söluherferð í Bretlandi hafa verið frestað vegna slæmrar ímyndar Íslands eftir bankahrunið og Icesavemálið. 13.2.2009 05:30
Tónlistarhúsið enn í biðstöðu Ekki fékkst niðurstaða í borgarráði í gær um hvort og þá hvenær framkvæmdir við Tónlistarhúsið hefjast að nýju. Búist hafði verið við að málið yrði útkljáð á fundinum. Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir líklega boðað til aukafundar í næstu viku. 13.2.2009 05:30
Milljón krónur í fyrsta túr „Þjóðarskútan er komin af Smáramiðum með fullfermi, eða rúma milljón, sem fer beint til Mæðrastyrksnefndar,“ segir Jóhannes V. Reynisson hjá Víkurvögnum en þeir Víkurvagnsmenn voru að opna Þjóðarskútuna, svokölluðu, í fyrradag en þá hafði hún verið í Smáralind í 58 daga. 13.2.2009 05:15
Ráðuneytið má leita til Bolla Bolli Þór Bollason, ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytisins, sem er í leyfi frá störfum til 30. apríl, gegnir ekki tilgreindum verkefnum í leyfinu. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra óskaði eftir að Bolli færi í leyfi enda vildi hún starfa með ráðuneytisstjóra sem hún þekkir vel og hefur unnið með. Sagði hún Bolla sinna sérverkefnum í leyfinu. 13.2.2009 05:00
Vilja skýr ákvæði um brottrekstur Forsætisráðuneytið birti í gær umsögn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um frumvarp um breytt skipulag Seðlabanka Íslands. Umsögnin var send fjölmiðlum, með þeim orðum úr ráðuneytinu að hún yrði birt í íslenskri þýðingu svo fljótt sem kostur væri. 13.2.2009 05:00
Nær þúsund fengu ríkisfang Á árinu 2008 fengu 979 íslenskt ríkisfang, þar af veitti Alþingi 31 ríkisborgararétt. Flestir koma frá Póllandi, eða 166 talsins, 125 komu frá Filippseyjum og 106 frá Serbíu. Frá Taílandi kom 61 og 55 frá Víetnam og 37 Rússar. 13.2.2009 04:45
Tsvangirai forsætisráðherra Robert Mugabe Simbabveforseti skipaði á miðvikudag erkikeppinaut sinn, Morgan Tsvangirai, forsætisráðherra nýrrar þjóðstjórnar. Þykja þetta mikil tímamót eftir nær þrjátíu ára óslitna valdatíð Mugabe, sem einkum og sér í lagi hin síðari ár hefur einkennst af algeru geðþótta-einræði með tilheyrandi kúgun og misbeitingu valds. 13.2.2009 04:30
Stórkaupmenn borgi milljón Samkeppniseftirlitið (SE) hefur lagt einnar milljónar króna stjórnvaldssekt á Félag íslenskra stórkaupmanna (FÍS) fyrir að hvetja til verðsamráðs. FÍS gekkst við brotinu og gerði sátt í málinu. 13.2.2009 04:30
Búddahof reist við Rauðavatn „Þetta er gullfallegur staður,“ segir Vífill Magnússon arktitekt sem teiknað hefur búddahof sem byggja á við Rauðavatn. Búddistar á Íslandi hafa um árabil leitað að lóð fyrir hof sitt. Nú er lóðin loksins fundin fyrir hofið sem reisa á með atbeina auðkýfingsins Dr. Prasert Prasathong Osoth, eiganda Bangkok Airways, sem álítur hofið sem verður nyrsta búddahof heims geta dregið að sér marga erlenda ferðamenn. 13.2.2009 04:15
Penninn semur við lánardrottna Penninn á í viðræðum við nýja Kaupþing og fleiri banka um endurskipulagningu á fjármögnun hans og félaga undir fyrirtækinu.Viðræðurnar hafa staðið yfir síðan í lok síðasta árs. Pennanum tengjast meðal annars bóka- og ritfangaverslanirnar Mál og menning, Eymundsson og Griffill. Einnig Te og kaffi, Habitat, Saltfélagið og fyrirtæki erlendis. 13.2.2009 04:15
Karpað um vinnsluhraða ríkisstjórna Ráðherrar segja ákvarðanafælni, hægagang og aðgerðaleysi hafa einkennt fyrri ríkisstjórn. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins eigna sér góð verk núverandi stjórnar. 13.2.2009 04:00
Lokaafgreiðsla þingsins í dag Efnahagsráðstafanir Baracks Obama Bandaríkjaforseta eru að ljúka ferð sinni í gegnum Bandaríkjaþing. Lokaatkvæðagreiðsla verður væntanlega í dag og þá fer frumvarpið til forsetans til staðfestingar. 13.2.2009 04:00
Gefur ekki upp hug sinn strax Avigdor Lieberman, leiðtogi ísraelska hægriflokksins Yisrael Beiteinu, sagðist hafa gert upp hug sinn varðandi það, hvort hann vilji heldur sitja í stjórn með Tzipi Livni, leiðtoga Kadima, eða Benjamin Netanyahu, leiðtoga Likud. Hins vegar vill hann ekki gefa upp afstöðu sína strax. 13.2.2009 03:45
Segist engin augljós mistök hafa gert Geir Haarde var ítrekað spurður hvort hann væri reiðubúinn til að biðja íslensku þjóðina afsökunar í viðtali í bresku sjónvarpi í gærmorgun. Geir segist enn bíða niðurstöðu rannsóknarnefndar sem birt verður í nóvember. 13.2.2009 03:45
Sagði af sér sem formaður landskjörstjórnar Gísli Baldur Garðarsson, hæstaréttarlögmaður, sagði nýverið af sér sem formaður landskjörstjórnar en stjórnin sér um framkvæmd kosninga til Alþingis og gefur út kjörbréf til þingmanna. 12.2.2009 21:58
Sparisjóðirnir yfirtaki einn af ríkisbönkunum Birkir Jón Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins, vill að stjórnvöld íhugi að fela sparisjóðunum að yfirtaka einn af ríkisbönkunum þremur. Birkir greindi frá þessari afstöðu sína í utandagskrárumræðu um efnahagsmál á Alþingi fyrr í dag. 12.2.2009 20:37
Réttast að taka upp evru Upptaka evru er rökrétt framhald uppbyggingar íslensk fjármálakerfis, að mati Gylfa Magnússonar viðskiptaráðherra. Aðrir kostir kunni þó að vera til staðar og þar á meðal myntsamstarf við Norðmenn. Það er þó langsótt, að hans mati. Gylfi sagði í samtali við Reuters-fréttastofuna að aðild Íslands að Evrópusambandinu væri umdeild hér á landi, sérstaklega út af sjávarútvegsstefnu sambandsins. 12.2.2009 21:12
Níðingurinn sem misnotaði dóttur sína stóðst foreldramat Karlmaðurinn sem dæmdur var í tveggja ára fangelsi á mánudaginn fyrir að misnota dóttur sína ítrekað frá árunum 2006 til nóvember 2008 stóðst foreldrahæfnismat árið 2007. Félagsmálayfirvöld í Reykjanesbæ hættu þá við að krefjast þess að hann yrði sviptur forræði. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins. 12.2.2009 20:54
Ryksprenging í fiskimjölsverksmiðju í Eyjum Mikil ryksprenging varð í Fiskimjölsverksmiðju Einars Sigurðssonar í höfninni Vestmanneyjum fyrr í kvöld. Vitni segja bæinn hafa lýst upp en hvellurinn heyrðist víða. 12.2.2009 20:09
Eignaumsýslufélag mun festa pólitíska spillingu í sessi Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins telur að opinber eignaumsýslufélög muni festa pólitíska spillingu í sessi. Verði þessi leið farin verði niðursveiflan mun meiri, að mati Vilhjálms. Finnur Sveinbjörnsson bankastjóri Kaupþings telur ekki rétt að stofna nýtt félag um þessa hluti. Ljóst sé að bankarnir þurfa að taka yfir einhver fyrirtæki. 12.2.2009 19:46
Umsögn AGS um Seðlabankafrumvarpið birt Umsögn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um frumvarp til laga um breytingar á lögum um Seðlabanka Íslands sem barst síðdegis. Í framhaldi af óformlegri umsögn sem AGS sendi forsætisráðuneytinu í trúnaði um síðastliðna helgi óskaði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, eftir því að þeim trúnaði yrði aflétt. 12.2.2009 19:28