Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fyrsti áreksturinn í geimnum Fyrsti áreksturinn í geimnum varð á miðvikudaginn þegar bandarískur og rússneskur gervihnöttur rákust saman á ógnarhraða og splundruðust. Áreksturinn varð í um 800 kílómetra hæð yfir freðmýrum Síberíu. 12.2.2009 18:41
Segir ORA vísvitandi blekkja Fyrrverandi framleiðslustjóri hjá ORA segir fyrirtækið vísvitandi blekkja neytendur um uppruna vöru sinnar. ORA fiskibollur séu fjarri því að vera íslenskar, fiskurinn sé færeyskur. 12.2.2009 18:36
Dofri vill á þing Dofri Hermannsson, varaborgarfulltrúi, býður sig fram í 5. til 6. sæti í Reykjavík fyrir Samfylkinguna í komandi Alþingiskosningum. 12.2.2009 18:23
Tekin í tvígang fyrir ölvunarakstur á sólarhring Kona var tekin í tvígang fyrir ölvunarakstur á einum sólarhring í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Fyrst var hún stöðvuð í ónefndu sveitarfélagi á þriðjudagskvöld en þar lenti konan í umferðaróhappi. Bíllinn hennar var skilinn eftir við vettvanginn en konan var handtekin og kveikjuláslyklarnir settir í vörslu lögreglu. 12.2.2009 17:43
Segja brottvikningu forstjóra Tals ólögmæta Fram kemur í greinargerð sem þeir Þórhallur Örn Guðlaugsson og Hilmar Ragnarsson, sendu frá sér um leið og þeir sögðu sig úr stjórn IP fjarskipta, eða Tals, að brottvikning Hermanns Jónssonar úr starfi framkvæmdastjóra í desember hafi verið ólögmæt. 12.2.2009 17:38
AGS: Efnahagsáætlun stjórnvalda gengur vel Efnahagsáætlun stjórnvalda sem unnin er í samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn gengur almennt vel samkvæmt skýrslu starfsmanna sjóðsins. Skýrslan byggir á vinnu sendinefndar sjóðsins sem hér var í desember. „Megin niðurstaða hennar er sú að áætlunin gangi almennt vel, heildarmarkmið áætlunar íslenskra stjórnvalda og sjóðsins séu enn raunhæf, en nauðsynlegt er að vinna af einurð til þess að árangur náist," segir í tilkynningu. 12.2.2009 17:15
Saka Teymi um viðskiptasóðaskap Í greinargerð sem þeir Þórhallur Örn Guðlaugsson og Hilmar Ragnarsson, sendu frá sér um leið og þeir sögðu sig úr stjórn IP fjarskipta eða Tals, kemur fram að þeir hafi aldrei kynnst öðrum eins viðskiptasóðaskap og þeir hafi orðið vitni að í þá fáu daga sem þeir störfuðu í stjórn Tals. Tvímenningarnir voru tilnefndir af Samkeppniseftirlitinu og sagði Páll Gunnar Pálsson, forstjóri þess við fréttastofu í dag að ástæður úrsagnar þeirra veki grun um áframhaldandi brot Teymis gagnvart Tali. 12.2.2009 16:38
Hæstiréttur þyngdi dóm fyrir manndráp af gáleysi Karlmaður hlaut 9 mánaða fangelsisdóm í Hæstarétti í dag en sex mánuðir af þeim eru skilorðsbundnir. Maðurinn var dæmdur fyrir að hafa ekið bifreið langt yfir leyfðum hámarkshraða og án aðgæslu yfir á rangan vegarhelming miðað við hámarkshraða og án aðgæslu yfir á rangan vegarhelming miðað við akstursstefnu. Afleiðingin varð sú að bifreiðin lenti í árekstri við bifreið sem kom úr gagnstæðri átt með þeim afleiðingum að ökumaðru og farþegi þeirrar bifreiðar létust. 12.2.2009 16:33
ÖSE boðið að hafa eftirlit með kosningum hér Fastanefnd Íslands hjá Öryggis- og samvinnustofun Evrópu, ÖSE, í Vín, bauð stofnuninni í dag að hafa eftirlit með kosningunum sem áætlaðar eru hér á landi í vor. 12.2.2009 16:15
Segir stórveldistíma bankagjafaþega liðinn Á fundi borgarráðs í morgun var rætt öðru sinni um fyrirætlanir varðandi framhald framkvæmda við Tónlistar- og ráðstefnuhús við gömlu höfnina og um forgangsröðun og fjármögnun framkvæmda í miðborginni. 12.2.2009 15:45
Time segir Davíð á meðal helstu sökudólga fjármálakreppunnar Davíð Oddson seðlabankastjóri er á meðal þeirra 25 einstaklinga sem bandaríska tímaritið Time tiltekur sem helstu sökudólga fjármálakrísunnar sem riðið hefur yfir heimsbyggðina undanfarið. Lesendum gefst kostur á að greiða atkvæði á skalanum 1 og upp í 10 um hve sök viðkomandi sé stór í málinu. 12.2.2009 15:44
Geir ósáttur við brotthvarf bankaráðsformanna Það er óskiljanlegt að ríkisstjórnin skyldi stugga við formönnum bankaráða Kaupþings og Glitnis, að mati Geirs H. Haarde, formanns Sjálfstæðisflokksins. Geir gerði brotthvarf þeirra að umtalsefni í utandagskrárumræðu um efnahagsmál á þingi nú á fjórða tímanum. 12.2.2009 15:24
Hátt í þúsund fengu íslenskt ríkisfang í fyrra Alls fengu 979 einstaklingar íslenskan ríkisborgararétt á árinu 2008. Flestir þeirra sem fengu íslenskt ríkisfang voru pólskir ríkisborgarar, eða 166 talsins, 125 komu frá Filippseyjum og 106 frá Serbíu. Frá 12.2.2009 14:23
Sophia Hansen þarf að greiða tæpar 20 milljónir Fyrir stundu féll dómur í máli Sigurðar Péturs Harðarson gegn Sophiu Hansen í Héraðsdómi Reykjavíkur en Sigurður höfðaði mál á hendur Sophiu vegna peningaláns sem hann lánaði henni árið 1990. Sigurður segist ánægður með að þessu máli sé loksins lokið og nú geti hann farið að hugsa um aðra hluti. 12.2.2009 13:47
Ólíklegt að framsóknarmenn styðji óbreytt seðlabankafrumvarp „Okkur líst almennt vel á frumvarp forsætisráðherra um breytingar á Seðlabankanum," segir Siv Friðleifsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins. Hún bendir á að frumvarpið svipi að talsverðu leyti til frumvarps um breytingar á bankanum sem Höskuldur Þórhallsson er fyrsti flutningsmaður að. „Það er hins vegar ólíklegt framsóknarmenn muni samþykkja frumvarp forsætisráðherra óbreytt," segir Siv. 12.2.2009 13:18
Búddahof rís við Hádegismóa Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun að úthluta lóð til tælenska félagsins, Thai Temple in Iceland Foundation, undir Búddahof. 12.2.2009 13:17
Hafa áhyggjur af löggæslumálum í Reykjavík Samfylkingin lýsir miklum áhyggjum af hugmyndum um að lagðar verði niður hverfislöggæslustöðvar í Breiðholti og Grafarvogi. Þessar hugmyndir eru komnar fram af hálfu lögreglunnar og hafa verið kynntar borgarstjóra. 12.2.2009 12:54
Sjálfstæðisflokkurinn þríklofinn í Evrópumálum Utanríkis- og iðnaðarráðherra segir að Sjálfstæðisflokkurinn sé óstjórntækur vegna hringlandaháttar í Evrópumálum. Flokkurinn sé að minnsta kosti þríklofinn í málinu og á stöðugu undanhaldi frá ákvörðunartöku. 12.2.2009 12:13
Ekki hjálpa þeim sem geta staðið undir lánum sínum Það á að lækka höfuðstóla íbúðalána og skipta áhættu af gengisþróun og verðbólgu á milli þeirra sem taka lán og veita þau. Þetta kemur fram í ákalli fjögurra hagsmunasamtaka og talsmanns neytenda til stjórnvalda. Það á ekki að hjálpa þeim sem geta staðið undir lánum sínum, að mati forseta ASÍ, sem segir inngöngu í Evrópusambandið einu leiðina til að losa lántakendur undan gengisóvissu og verðtryggingu. 12.2.2009 12:09
Helmingur fyrirtækja ætlar að halda óbreyttum starfsmannafjölda Ríflega helmingur aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins hyggst halda óbreyttum starfsmannafjölda á næstu mánuðum. Þetta kemur fram í nýrri könnun Samtaka atvinnulífsins á atvinnuhorfum meðal fyrirtækjanna. 12.2.2009 11:48
Sex vilja stöðu rektors á Akureyri Sex umsóknir bárust um stöðu rektors við Háskólann á Akureyri en umsóknarfrestur rann út þann 10. febrúar síðastliðinn. Í tilkynningu frá skólanum segir að menntamálaráðherra skipar rektor til fimm ára samkvæmt tilnefningu háskólaráðs. 12.2.2009 11:24
Vill leiða Frjálslynda í Reykjavík Viðar Guðjohnsen, formaður Landssambands ungra frjálslyndra, sækist eftir að leiða lista Frjálslynda flokksins í Reykjavík suður. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Viðari. 12.2.2009 11:11
Haarde í HardTalk: Hefur ekki talað við Brown Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur ekki rætt við Gordon Brown eftir að hryðjuverkalögin gegn Íslendingum voru sett á í október. Hann telur hins vegar að hann hefði ef til vill átt að ræða við hann eftir atburðina. Geir ræddi við Stephen Sackur, stjórnanda sjónvarpsþáttarins HardTalk, í gegnum gervihnött á BBC WORLD NEWS núna í morgun. 12.2.2009 09:55
Hvetja vegfarendur til að flauta á Davíð Nú er mótmælt við Seðlabankann fjórða morguninn í röð. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu eru á bilinu 20-30 manns við bankann og fara mótmælin vel fram. Fólk lætur þó í sér heyra en mótmælendur hafa sett upp skilti þar sem vegfarendur eru hvattir til þess að flauta Davíð Oddsson út úr bankanum. 12.2.2009 09:38
Sprengingar við Seðlabankann í nótt Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu frá Seðlabanka Íslands við Kalkofnsveg klukkan 02:26 í nótt. Öryggisverðir bankans tilkynntu um sprengingar við bankann og mætti lögregla á staðinn. 12.2.2009 09:27
Segir ferðamannastraum ógna Galapagos Fjöldi ferðamanna er farinn að ógna lífríki og náttúru Galapagos-eyja að sögn Andrew Marr, sjónvarpsmanns hjá BBC. 12.2.2009 08:17
Yfir helmingur Bandaríkjamanna veldi annað starf Meirihluti vinnandi fólks í Bandaríkjunum segist myndu velja sér annað starf en það gegnir nú, væri það að velja sér starfsvettvang. 12.2.2009 08:11
Tveir menn grunaðir um að kveikja elda í Ástralíu Tveir menn eru í haldi lögreglu í Ástralíu, grunaðir um að hafa kveikt hluta þeirra ótalmörgu kjarrelda sem valdið hafa mikilli eyðileggingu á suðausturströnd landsins síðustu daga og orðið meira en 180 manns að bana. Slökkvilið berst enn harðvítuglega við eldana en veður er nú heldur svalara en áður. Hitinn komst upp í allt að 45 gráður dagana áður en kviknaði í. 12.2.2009 08:09
Ók um með öxi í bílnum Nítján ára gamall ökumaður í Esbjerg í Danmörku var í nótt stöðvaður og sektaður fyrir brot á vopnalögum. Kom þetta til af því að í bíl mannsins var öxi sem hann gat ómögulega gert grein fyrir hvað hann ætlaði að gera við. Því síður gat maðurinn skýrt út fyrir lögreglu hvert för hans væri heitið svo hann var færður á lögreglustöð til öryggis, vopnið gert upptækt og hann sektaður fyrir tiltækið. 12.2.2009 07:35
Gervihnettir lenda í árekstri í fyrsta sinn Töluvert magn af nýju geimrusli varð til þegar tveir mörg hundruð kílógramma gervihnettir, annar rússneskur en hinn bandarískur, rákust saman á ógnarhraða í tæplega 800 kílómetra hæð yfir freðmýrum Síberíu í gær. 12.2.2009 07:28
Myndband af geimfari yfir Somerset vekur athygli Myndband af meintu geimfari yfir Somerset á Englandi hefur vakið töluverða athygli. Hópur fólks sem var á ferðalagi með hjólhýsi í júlí í fyrra kom auga á svartan sívalningslaga hlut á himninum og gaf yfirbragð hans til kynna að hann væri gerður úr einhvers konar málmi. 12.2.2009 07:22
Verið að landa fyrstu loðnu vertíðarinnar Verið er að landa fyrstu loðnunni á þessari vertíð, sem skipin veiddu úr 15 þúsund tonna rannsóknarkvóta, sem gefinn var út í gær. 12.2.2009 07:17
Bændur óttast hærra áburðarverð Bændur óttast að áburðarverð muni enn hækka í ár, jafnvel um 20 til 30 prósent. Í fyrra hækkaði áburðarverð um hátt í 80 prósent frá árinu áður. 12.2.2009 07:13
Fer fram á allsherjarkosningu um formann VR Kristinn Örn Jóhannesson ætlar í dag að fara fram á allsherjarkosningu um formann VR fyrir kjörtímabilið 2009 til 2011. Í tilkynningu frá Kristni segir að Gunnar Páll Pálsson, núverandi formaður VR, hafi virt að vettugi þá beiðni félagsmanna í VR, að hann stígi til hliðar á meðan á rannsókn á málefnum gamla Kaupþings fer fram. 12.2.2009 07:11
Leiguverð hefur lækkað um 20 prósent Húsaleiga á höfuðborgarsvæðinu hefur lækkað um 20 prósent frá því í haust, að mati Húseigendafélagsins. Þetta á við um þau boð leigusala, sem nú eru í gangi, en leiga hjá þeim, sem gerðu leigusamninga síðastliðið haust upp á ákveðna upphæð á mánuði, hefur almennt ekki lækkað. 12.2.2009 07:07
Stjórnarkreppa yfirvofandi í Ísrael Stjórnmálaskýrendur segja stjórnarkreppu yfirvofandi í Ísrael eftir þingkosningarnar í gær. Talið er líklegt að stjórnarmyndunarviðræður muni ganga afar illa. Kadimaflokkurinn og Likudbandalagið fengu svipað fylgi og þingmannafjölda. Leiðtogar flokkanna hafa báðir farið fram á fá umboð til stjórnarmyndunar. 11.2.2009 22:36
Byssu beint að Íslendingi í vopnuðu ráni í Danmörku Jóhannes Ottósson, 33 ára gamall gullsmiður, varð fyrir þeirri óskemmtilegu lífreynslu í dag að vopnað rán var framið á vinnustað hans í Kaupmannahöfn. Skammbyssu var beint að andliti hans. Tveir menn dulbúnir sem póstburðarmenn komust inn á skrifstofu fyrirtækisins og höfðu í hótunum við starfsmenn þess. 11.2.2009 20:45
Forsetinn fær að svara fyrir sig Forsetaembættinu gefst kostur á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við utanríkismálanefnd í tengslum við beiðni Björns Bjarnasonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, frá því í morgun. Á fundi nefndarinnar óskaði Björn eftir skýrslu frá utanríkisráðuneytinu um áhrif blaðaummæla vegna viðtals við Ólaf Ragnar Grímsson í þýskri útgáfu Financial Times sem birt var í gær. 11.2.2009 22:45
Hótað í kjölfar umfjöllunar um vændi Ungu konunni, sem sagði frá samskiptum sínum við Catalinu Ncoco, bárust hótanir eftir að viðtal við hana var birt á Stöð 2 í gær. 11.2.2009 19:45
Samþykkti 24 styrki til velferðarmála Velferðarráð Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í dag 24 nýja styrki til verkefna á sviði velferðarmála. Nýir styrkir og þjónustusamningar Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar nema nú 33 milljónum króna, en samtals er varið 180 milljónum króna til verkefna og þjónustusamninga á árinu. 11.2.2009 21:34
Forstjórastaða FME auglýst til umsóknar Starf forstjóra Fjármálaeftirlitsins hefur verið auglýst laust til umsóknar. Fram kemur í auglýsing að mikilvægt sé að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til 25. febrúar. 11.2.2009 21:29
Efnahagsmál rædd á Alþingi Á morgun fer fram umræða utan dagskrár um efnahagsmál og Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, málshefjandi. Til andsvara verður Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra. Umræðan hefst klukkan 15 en þingfundur hefst klukkan 10:30 á óundirbúnum fyrirspurnartíma. Fjórtán mál eru á dagskrá. 11.2.2009 21:03
Næsti pottur í Víkingalottóinu hálfur milljarður Enginn var með allar tölurnar réttar í Víkingalottóinu í kvöld og verður fyrsti vinningur því tvöfaldur að viku liðinni. Hann gæti orðið 500 milljónir ef ofurtalan verður ein af aðaltölunum. 11.2.2009 19:41
Sigurður Ingi vill á þing Sigurður Ingi Jóhannsson, dýralæknir, hefur ákveðið að gefa kost á sér til forystu á lista Framsóknarflokksins Í Suðurkjördæmi. 11.2.2009 19:32
Fékk högg á höfuðið við forsetaþyrluna Barack Obama er ennþá að venjast því að ferðamáti hans er annar síðan hann varð forseti Bandaríkjanna. Til dæmis verður hann nú að ferðast með þyrlu ef hann bregður sér af bæ. Obama er hávaxinn miðað við fyrri Bandaríkjaforseta, eða 183 sentimetrar. Dyrnar á þyrlunni hans eru ekki gerðar fyrir svo stóran mann. 11.2.2009 19:08