Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hafa opnað neyðarlínu fyrir verðandi mæður Tveggja sólarhringa verkfall ljósmæðra hófst á miðnætti og er nú neyðaráætlun í gildi. Ljósmærðafélag Íslands hefur opnað símanúmer, og kallar það rauðu línuna. 4.9.2008 07:53
Lést um borð í fiskibáti Karlmaður á sjötugsaldri lést um borð í litlum fiskibáti í gærkvöldi og rak bátinn upp í fjöru á Geldinganesi við Grafarvog í Reykjavík. 4.9.2008 07:13
Lögguhrotti fékk of vægan dóm Dómurinn yfir manninum, sem réðst á lögregluþjón við Kirkjusand í apríl, er of mildur að mati Geirs Jóns Þórissonar, yfirlögregluþjóns í Reykjavík. Ágúst Fylkisson var í morgun dæmdur í sex mánaða fangelsi, þar af fjóra skilorðsbundna, fyrir alvarlega líkamsárás á lögregluþjón eftir mótmæli vörubílstjóra í vor. 3.9.2008 22:06
Breiðavíkurdrengir hafna tilboði ríkisstjórnarinnar „Við höfnum þessu tilboði ríkisstjórnarinnar. Okkur finnst þetta svívirðileg skömm að þeir skuli gera okkur þetta tilboð,“ segir Georg Viðar Björnsson, varaformaður í Breiðavíkursamtökunum. 3.9.2008 21:05
Trillusjómaður missti meðvitund við Geldingarnes Maður á litlum báti var hætt kominn í sjónum nálægt Geldingarnesi nú um áttaleytið. Talið er að maðurinn hafi fengið misst meðvitund og báturinn siglt í strand. Lögregla og sjúkralið var kvatt á staðinn og hófu endurlífgun um leið og þau náðu að manninum. 3.9.2008 20:00
Georgíumenn fá 85 milljarða króna frá BNA Bandaríkin ætla að veita einum milljarði Bandaríkjadala, sem jafngildir um 85 milljörðum íslenskra króna, til að hjálpa Georgíumönnum við að fást við uppbyggingu eftir stríðið við Rússa. 3.9.2008 23:21
Bætur til Breiðavíkurdrengja minni en vænst var Bætur til þeirra sem vistaðir voru á Breiðavíkurheimilinu sem drengir, á árunum 1959-1972, verða frá 375 þúsund krónum, upp í rúmar 2 milljónir, eftir því sem fram kom í fréttum Ríkissjónvarpins. 3.9.2008 19:19
Læknar lýsa yfir stuðningi við kjarabaráttu ljósmæðra Fæðinga- og kvensjúkdómalæknar á kvennadeild Landspítalans og á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins lýsa yfir stuðningi við kjarabaráttu ljósmæðra og mælast til að samið verði við þær sem fyrst. 3.9.2008 18:28
Ákærð 10-11 lögga enn við störf Lögreglumaðurinn sem réðst á pilt í apríl síðastliðnum er enn við störf hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, að sögn Geirs Jóns Þórissonar yfirlögregluþjóns. 3.9.2008 18:22
Lést af völdum höfuðáverka við Skúlagötu Bráðabirgðaniðurstöður krufningar hafa staðfest að maðurinn sem fannst látinn í íbúð sinni við Skúlagötu í fyrrakvöld lést af völdum höfuðáverka. Þetta staðfestir Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 3.9.2008 17:18
Íslenskur augnlæknir slær í gegn Einar Stefánsson, prófessor við læknadeild Háskóla Íslands og yfirlæknir við augndeild Landspítalans, fær svokölluð Jules Gonin verðlaun á þessu ári. 3.9.2008 17:12
10-11 lögga ákærð fyrir brot í starfi Ríkissaksóknari hefur ákveðið að gefa út ákæru á hendur lögreglumanni sem á myndbandi á vefnum YouTube sést taka ungan pilt kverkataki í verslun 10-11 í Grímsbæ. 3.9.2008 16:50
Neyðarástand gæti skapast strax í nótt Formaður kjaranefndar Ljósmæðrafélags Íslands segir að neyðarástand geti skapast strax í nótt komi til verkfalls ljósmæðra eins og allt stefnir í. 3.9.2008 16:37
Þorsteinn Kragh laus úr haldi Þorsteinn Kragh, athafnamaðurinn sem setið hefur í gæsluvarðhaldi grunaður um aðild að stóra hassmálinu svokallaða, er laus úr haldi. Hann hafði verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til dagsins í dag en Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði kröfu lögreglu um að framlengja gæsluvarðhaldið. Þorsteinn var hins vegar úrskurðaður í farbann til 9. október. Lögregla hefur áfrýjað úrskurðinum til Hæstaréttar. 3.9.2008 16:32
Nærri 20 kíló af hassi og tvö kíló af amfetamíni í smyglbíl Tæplega 20 kíló af hassi og nærri 1,8 kíló af amfetamíni reyndust í bílnum sem lögregla og tollayfirvöld stöðvuðu við komuna til landsins með Norrænu í gær. Efnið hefur nú verið flutt til Reykjavíkur og var í dag sýnt fjölmiðlum en athygli vekur að hluti efnanna var falinni í niðursuðudós. 3.9.2008 16:30
Margrét Frímannsdóttir: Sólskin og rólegheit á Litla Hrauni Margrét Frímannsdóttir, fangelsisstjóri á Litla Hrauni segir að menn ættu að varast að vera með oftúlkanir og lýsingar sem ekki eiga sér stoð í raunveruleikanum þegar kemur að fangelsinu. Á forsíðum Fréttablaðsins og DV er fjallað um átök á milli manna á Litla Hrauni og sagt í DV að Pólstjörnufangarnir, sem dæmdir voru fyrir stórfellt fíkniefnasmygl í febrúar svokölluðu hafi tekið völdin í fangelsinu. Margrét segir lífið ganga sinn vanagang á Hrauninu. 3.9.2008 16:24
Sprengingar hefjast í Bolungarvík Fyrsta sprengjuhleðslan í Bolungarvíkurgöngum verður sprengd seinnipartinn á morgun. Sprengt verður Bolungarvíkurmegin og mun Kristján L. Möller, samgönguráðherra, sprengja fyrstu hleðsluna. 3.9.2008 16:18
Palestínumenn geta fengið hluta af Jerúsalem Varnarmálaráðherra Ísraels sagði í útvarpsviðtali í dag að arabisk hverfi í Jerúsalem gætu orðið hluti af höfuðborg sjálfstæðs ríkis Palestínu. 3.9.2008 16:08
Hluti fíkniefna falinn í niðursuðudós Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leyfði í dag fjölmiðlum að mynda fíkniefnin sem haldlögð voru hjá öldruðum Þjóðverja sem kom til landsins með Norrænu í gær. 3.9.2008 16:00
Óheppilegt að gera róttækar breytingar á starfsumhverfi banka nú Geir H. Haarde forsætisráðherra telur það óheppilegt við þær aðstæður sem uppi eru núna að gera róttækar breytingar á starfsumhverfi bankanna. Þetta kom fram í svari hans við fyrirspurn Guðna Ágústssonar, formanns Framsóknarflokksins, á Alþingi í dag. 3.9.2008 15:31
„Þegiðu nú, Guðni“ Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, sagði samstarfsfélaga sínum úr stjórnarandstöðu, Guðna Ágústssyni, formanni Framsóknarflokksins, að þegja við umræður um orku- og stóriðjumál á Alþingi í dag. 3.9.2008 15:21
Heræfingar fram yfir ljósmæður Katrín Jakobsdóttir, varaformaður Vinstri grænna, sagði í umræðum á þingi fyrr í dag að ríkisstjórnin tæki heræfingar fram fyrir samning við ljósmæður. 3.9.2008 15:09
Orka landsins nýtt af skynsemi og náttúruperlum hlíft Ríkisstjórnin mun byggja upp íslenskt atvinnulíf með því að nýta orku landsins af skynsemi og gæta þess að ekki verði farið inn á þær náttúruperlur sem þjóðin telur að ekki mega raska. 3.9.2008 15:01
NATO mun verja Eystrasaltsríkin NATO ríkin styðja Bandaríkin í því að sýna framá að bandalagið sé reiðubúið að verja Eystrasaltsríkin þrjú gegn hverskonar árás Rússa. 3.9.2008 14:53
Enn eitt sjórán á Aden flóa Sómalskir sjóræningjar hafa enn látið til skarar skríða á Aden flóa. 3.9.2008 14:28
Hækkun sjávar Hollendingum dýrkeypt Hollendingar sjá framá að þurfa að eyða um 250 milljörðum króna árlega á næstu áratugum til þess að verja landið ágangi sjávar. 3.9.2008 14:11
Segir Samfylkinguna beita Albaníuaðferðinni Að mati Magnúsar Stefánssonar, þingmanns Framsóknarflokksins, vekur athygli hversu opinskáir þingmenn og ráðherrar Samfylkingarinnar eru í gagnrýni sinni á störf sjálfstæðismanna í fyrri ríkisstjórnum. 3.9.2008 14:03
Þrengra um vik að leiðrétta laun vegna efnahagsástands Árni Mathiesen fjármálaráðherra segir að vegna stöðunnar í efnahagsmálum sé þrengra um vik að gera leiðréttingar á launum ríkisstarfsmanna eins og ljósmæðra. Þetta kom fram við fyrirspurnartíma á Alþingi nú eftir hádegið þar sem yfirvofandi verkfall ljósmæðra var rætt. 3.9.2008 13:57
Sigurbjörn jarðsunginn á laugardaginn Dr. Sigurbjörn Einarsson, biskup, sem andaðist 28. ágúst verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju á laugardaginn klukkan 14. Sjónvarpað og útvarpað verður frá athöfninni. 3.9.2008 13:30
Slapp lítið meiddur í bílveltu á Hafravatnsvegi Ökumaður jepplings slapp lítið meiddur þegar hann missti stjórn á bíl sínum á Hafravatnsvegi við Geitháls um hádegisbil með þeim afleiðingum að hann hafnaði utan vegar og valt. 3.9.2008 13:24
National Geogrephic velur Bláa lónið Tímaritið National Geographic hefur valið Bláa lónið eina af tíu bestu heilsulindum í Evrópu. 3.9.2008 13:03
Reynt að ráða forsætisráðherra Pakistans af dögum Forsætisráðherra Pakistans slapp ómeiddur frá morðárás í Íslamabad, höfuðborg landsins, í morgun. 3.9.2008 12:52
Óskar eftir að samningi við borgina verði rift Gunnar Smári Egilsson hefur óskað eftir því að samningi hans við Reykjavíkurborg, sem gerður var í borgarstjóratíð Ólafs F. Magnússonar, verði rift. 3.9.2008 12:45
Þrír teknir grunaðir um stórfellda þjófnaði Lögregla lagði í gær hald á mikið magn þýfis sem stóð til að senda úr landi. Upp komst um málið þegar lögregla rannsakaði þjófnað í raftækjaverslun í Holtagörðum. Sá verknaður náðist á myndband og í framhaldi af því var einn maður handtekinn. 3.9.2008 12:39
Hækka verð á fóðri um sömu upphæð Fyrirtækin Lífland og Fóðurblandan, sem annast nær allan innflutning og dreifingu á fóðri til bænda, hafa bæði hækkað flutningsgjöld á fóðri, og það um sömu upphæð, eða 9,3 prósent. 3.9.2008 12:38
Stjórnarandstæðingar sitja sem fastast í Taílandi Stjórnarandstæðingar í Taílandi neita enn að yfirgefa skrifstofur forsætisráðherra landsins sem þeir lögðu undir sig fyrir viku. 3.9.2008 12:31
Hundrað milljónir í heræfingar Kostnaður Íslendinga vegna Norður Víkings, heræfingarinnar sem nú stendur yfir, er um fimmtíu milljónir króna. Þetta kemur fram í 24 stundum í dag. 3.9.2008 12:30
Ljósmæður ganga á fund heilbrigðsnefndar Forsvarsmenn Ljósmæðrafélags Íslands ganga á nú í hádeginu á fund heilbrigðisnefnar Alþingis þar sem ræða á verkfallsaðgerðir þeirra sem hefjast á miðnætti í kvöld. 3.9.2008 12:25
Bush segir McCain þrautreyndan leiðtoga Flokksþing repúblíkana í Bandaríkjunum hófst í nótt eftir tafir vegna fellibylsins Gústafs. Bandaríkjaforseti ávarpaði gesti í gegnum myndsíma frá Hvíta húsinu. Hann sagði John McCain, forsetaefni flokksins, þrautreyndan leiðtoga sem hafi þjónað Bandaríkjamönnum vel í her og á þingi. 3.9.2008 12:17
Umferðarslys á Suðurlandsvegi Umferðarslys varð á Hafravatnsvegi við Geitháls um hádegisbil. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur verið kallað á vettvang og eru fjórir sjúkrabílar á slysstað ásamt tveimur slökkviliðsbílum. Nánari upplýsingar fengust ekki að svo stöddu. 3.9.2008 12:07
Sektaður fyrir manndrápsgabb Héraðsdómur Reykjavíkur sektaði morgun karlmann um hundrað þúsund krónur fyrir að hafa gabbað lögreglu. 3.9.2008 12:03
Kveikt í húsi á Ísafirði í tvígang Kveikt í húsi á Ísafirði í tvígang með nokkurra daga millibili og rannsakar lögregla nú hver hafi verið þar að verki. 3.9.2008 11:47
Undirskriftasöfnun um nýtingu orkuauðlinda Hafin er undirskriftasöfnun á vegum áhugafólks um nýtingu orkuauðlindir þjóðarinnar þar sem skorað er á kjörna fulltrúa á Alþingi og sveitarstjórnum að standa vörð um lífskjör landsmanna og skynsamlega nýtingu orkuauðlinda. 3.9.2008 11:38
Lögguhrotti fær hálfs árs fangelsisdóm Ágúst Fylkisson var í morgun dæmdur í sex mánaða fangelsi, þar af fjóra skilorðsbundna, fyrir alvarlega líkamsárás á lögregluþjón eftir mótmæli vörubílstjóra í vor. 3.9.2008 11:29
Utanríkisráðherra Spánar í Iðnó Miguel Angel Moratinos, utanríkisráðherra Spánar, er í opinberi heimsókn hér á landi þessa dagana og efnir Samfylkingin til opins fundar með honum í dag klukkan 15 í Iðnó. 3.9.2008 11:02