Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tugir manna létu lífið nærri Kongó Að minnsta kosti 42 létu lífið þegar að bátur þeirra sökk í ánni Oubangui River sem rennur nærri Kongó, að sögn yfirvalda þar. 25.7.2008 15:21
Vill opinbera rannsókn á störfum fjármálafyrirtækja Bjarni Harðarson, þingmaður Framsóknarflokksins, vill að fram fari opinber rannsókn á starfsemi fjármálafyrirtækja undanfarin ár. Þingflokkur Framsóknarflokksins hefur að sögn Bjarna rætt málið. 25.7.2008 14:45
Sérstakri fartölvu stolið frá Opnum kerfum Síðastliðna nótt, aðfaranótt 25. júlí, var brotist inn í Verslun Opinna kerfa að Höfðabakka 9. Höfðu innbrotsþjófarnir á brott með sér nokkrar HP fartölvur, þar á meðal tölvur úr nýrri línu sem kynnt hefur verið fyrir skólavertíðina sem hefst á næstu vikum. 25.7.2008 14:41
Síbrotamaður fékk 18 mánaða fangelsisdóm Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Ragnar Davíð Bjarnason í 18 mánaða fangelsi fyrir vörslu fíkniefna og fyrir að aka bifreið án réttinda. 25.7.2008 14:33
Þingkona VG dáist að Saving Iceland „Ég bara dáist að þessu unga fólki sem sýnir afstöðu sína með þessum hætti og vill með því vekja aðra til umhugsunar, um það sem er að gerast í umhverfismálum ekki bara hér á íslandi heldur heiminum öllum," segir Álfheiður Ingadóttir þingmaður Vinstri-Grænna. Hún er ánægð með framgöngu samtakanna Saving Iceland, sem undanfarin sumur hafa mótmælt virkjanaframkvæmdum og stóriðjustefnu á Íslandi. 25.7.2008 13:00
Tók skóflustungu að álveri sem hann hefur ekki tekið afstöðu til Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra var einn þeirra Samfylkingarmanna sem fór í gær að Þjórsárbökkum að kynna sér fyrirhuguð virkjunaráform á svæðinu. Í fréttatilkynningu frá Samfylkingunni segir að fundurinn hafi gengið glimrandi vel. 25.7.2008 12:44
Tekur undir með VG og vill að þing komi saman Bjarni Harðarson, þingmaður Framsóknarflokksins, tekur undir beiðni þingflokks Vinstri grænna að Alþingi komi saman eftir verslunarmannahelgi til að fjalla um stöðu og horfur í efnahags- og atvinnumálum. 25.7.2008 12:15
Friðrik var vaknaður Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, segist hafa verið vaknaður og búinn að fara í sturtu þegar 10 til 15 einstaklingar frá Saving Iceland heimsóttu hann klukkan rúmlega 7 í morgun. 25.7.2008 11:52
Krabbameinslæknir varar við farsímanotkun barna Umræðan um heilsuvernd og farsímanotkun hefur verið rifin upp með hvelli eftir að dr. Ronald B. Herberman við krabbameinsrannsóknarstöðina í Pittsburgh sendi samstarfsfólki sínu pistil um að börn skyldu eingöngu nota farsíma í ýtrustu neyðartilfellum. 25.7.2008 11:41
Árásin á áfangaheimilinu ekki einsdæmi „Það er ljóst að atvik af því tagi sem hér er vitnað til hafa og munu koma upp hvort sem um er að ræða á heimilum fatlaðra eða annars staðar," segir Þór Þórarinsson skrifstofustjóri í Félagsmálaráðuneytinu. Eins og fram kom í fjölmiðlum í vikunni réðst vistmaður á áfangaheimili svæðisskrifstofu fatlaðra í Reykjavík á forstöðumann heimilisins og stakk hann þrisvar með hnífi. Forstöðumaðurinn slasaðist ekki alvarlega. 25.7.2008 11:19
Skemmtistaðir Árósa fara nýjar leiðir í fíkniefnamálum Skemmtistaðir í Árósum í Danmörku hafa tekið upp nýjar verklagsreglur fyrir fíkniefnamál sem upp koma á stöðunum. Í stað þess að kalla til lögreglu þegar dyraverðir finna fíkniefni á gestum, með tilheyrandi bið og óhagræði 25.7.2008 11:02
Maðurinn fannst látinn í Esjunni Pólverjinn sem leitað hefur verið að síðan um hádegisbil í gær, fannst látinn í Gunnlaugsskarði í Esjunni fyrir stundu. Um þrjátíu manns hafa leitað hans í morgun með þyrlu og leitarhundum. 25.7.2008 10:56
Björgvin G hitti sænskan kollega sinn Málefni Norðurlandaráðs og framtíð norræns samstarfs voru efst á baugi þegar Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra fundaði með sænska samstarfsráðherranum Cristinu Husmark Pehrsson í gær. 25.7.2008 10:52
Rann í hálku og fékk fjórar milljónir frá ríkinu Kona sem var við vinnu á Heilbrigðisstofnun Selfoss árið 2003 fékk dæmdar tæpar fjórar milljónir frá íslenska ríkinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Konan fór í mál við ríkið eftir að hún hlaut áverka á fæti við vinnu. 25.7.2008 10:29
Enn leitað í Esjunni Maðurinn sem leitað hefur verið að í Esjunni frá því um hádegisbil í gær er enn ekki fundinn. Að sögn Slysavarnarfélagsins Landsbjargar eru nú um 30 manns við leit með hunda. 25.7.2008 10:27
Boeing 747-400 nauðlenti á Filippseyjum Farþegaþota frá Qantas flugfélagilnu nauðlenti á Filippseyjum í morgun eftir að stórt gat kom skyndilega á skrokk vélarinnar og loftþrýstingur féll í farþegarýminu. 25.7.2008 09:45
Saving Iceland vöktu Friðrik Sophusson Um níuleytið í morgun fóru 30 meðlimir úr Saving Iceland hópnum inn í höfuðstöðvar Landsvirkjunnar að Háaleitisbraut 68 og trufluðu þar vinnu. 25.7.2008 09:35
Veðjað á klak hænueggja á vefnum Veðmálafíklar hafa nú fundið nýstárlega leið til að svala þörfum sínum. Þeir veðja nú á hvaða egg muni klekjast fyrst út. 25.7.2008 08:13
Lífslíkur HIV-smitaðra hafa aukist um 13 ár Lífslíkur þeirra sem smitaðir eru af HIV-veirunni hafa aukist um 13 ár frá því á miðjum síðasta áratug. Þetta er einkum nýjum lyfjum gegn sjúkdóminum að þakka. 25.7.2008 08:06
Libýa stöðvar olíuútflutning til Sviss Stjórnvöld í Líbýu hafa stöðvað allan olíuútflutning til Sviss til að mótmæla handtöku svissnesku lögreglunnar á Hannibal Gaddafi yngsta syni Muammar Gaddafi leiðtoga Líbýu. 25.7.2008 08:01
Ölvaður ökumaður reyndist án bílprófs Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði ölvaðan ökumann í Keflavík í gærkvöldi og reyndist hann aldrei hafa tekið bílpróf. 25.7.2008 07:56
Enn eitt áfallið fyrir Gordon Brown í aukakosningum Gordon Brown forsætisráðherra Bretlands varð fyrir enn einu áfallinu í morgun þegar eitt af öruggustu þingsætum Verkamannaflokksins á Bretlandi féll í hendur Skoska þjóðernisflokksins í aukakosningum. 25.7.2008 07:51
Mikið grjóthrun undir Eyjafjöllum Mikið grjóthrun varð úr fjallshlíð undir Eyjafjöllum í gærkvöldi og olli það meðal annars skemmdum á Suðurlandsvegi, þar sem umferð tepptist þar til grjót hafði verið rutt af honum. 25.7.2008 07:41
Farc-skæruliðar sleppa átta gíslum Farc-skæruliðasamtökin í Kólombíu hafa leyst úr haldi 8 af 10 gíslum sem þeir rændu í síðustu viku. Reiknað er með að Farc muni krefjast lausnargjald fyrir þá tvo sem eftir eru. 25.7.2008 07:38
Sakar Karzai um að hindra aðgerðir fíkniefnalögreglu Fyrrum yfirmaður í bandarísku fikniefnalögreglunni segir að Hamid Karzai forseti Afganistan hindri aðgerðir lögreglunnar til að draga úr eiturlyfjavandamálum landsins. 25.7.2008 07:36
Yfir 20 á slysadeild eftir hópslagsmál í flóttamannamiðstöð Flytja þurfti 21 á slysadeild eftir hópslagsmál á flóttamannamiðstöð í bænum Valer sem er um það bil 100 kílómetra norðaustur af Osló í Noregi. 25.7.2008 07:24
Árangurslaus leit að nakta manninum í Esjunni í nótt Fimmtíu til sextíu björgunarsveitarmenn leituðu án árangurs í alla nótt á Esjunni að nakta manninum, sem sást í hlíðum fjallsins í gær. 25.7.2008 06:59
50 til 60 leita í nótt – Aðgerðir aftur af stað á fullum þunga er birtir Enn hefur ekkert sést til mannsins sem sást labba nakinn upp hlíðar Esjunnar fyrr í dag. Leit hefur staðið yfir frá hádegi og hafa nokkuð hundruð manns tekið þátt í leitinni auk þyrlna. 24.7.2008 23:34
Texti við nýtt Baggalútslag þykir senda undarleg skilaboð Nýtt lag Baggalúts, Þjóðhátíð ’93, hefur vakið sterk viðbrögð fyrir nokkuð opinskáan texta um fyllirí og kynlífsfarir. Segir meðal annars í textanum: „Kengdrukknar kellingar kaffæra Herjólfsdal – þrjá daga á ári. Slíkt ber að nýta sér. Því skaltu flýta þér og reyna að góma eitt grey meðan þær geta ekki synt á brott úr Heimaey.“ 24.7.2008 21:54
Karzai sagður hliðhollur eiturlyfjabarónum Forseti Afganistan, Hamid Karzai, er sakaður um að taka ekki nógu fast á eiturlyfjavandamálum landsins af Thomasi Schweich, fyrrverandi sérfræðingi bandaríska utanríkisráðuneytisins. 24.7.2008 21:07
Fólk hafi varan á vegna grjóthruns Grjóthrun hefur verið rétt undir Eyjaföllum, við bæinn Steina, og samkvæmt lögreglunni á Hvolsvelli hafa stórir grjóthnullungar náð vel á annað hundrað metra yfir veginn. 24.7.2008 22:57
Ríkið dæmt til að greiða bætur vegna hálkuslyss Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag íslenska ríkið til þess að dæma sjúkraliða á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi tæpar fjórar milljónir króna vegna vinnuslyss 24.7.2008 22:41
Tvö alvarleg bílslys í dag Tvö nokkuð alvarleg bílslys urðu síðdegis í dag og voru allavega fjórir fluttir á sjúkrahús í kjölfarið samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum. 24.7.2008 21:21
Íslenskir athafnarmenn í vandræðum vegna spillingarmála Byggingaframkvæmdum á tveggja ferkílómetra landi á Spáni, sem athafnamennirnir Björgólfur Thor Björgólfsson og Róbert Wessmann keyptu fyrir 10 milljarða árið 2005, hefur verið frestað þar sem ekki hefur fengist byggingaleyfi vegna spillingarmála sem komu upp þar í landi. 24.7.2008 20:20
Ferðaheimild til Bandaríkjanna þarf framvegis að sækja um á netinu Þeir sem ferðast til Bandaríkjanna þurfa framvegis að sækja um ferðaheimild á netinu áður en haldið er af stað. 24.7.2008 20:05
Vinna hefst brátt við niðurrif vararafstöðvarinnar í Elliðaárdal Framkvæmdir við niðurrif gömlu vararafstöðvarinnar í Elliðaárdal hefjast í haust. Kostnaður við að rífa húsið hleypur á tugum milljóna króna. 24.7.2008 19:47
Ekkert lát á byggingaleyfisumsóknum í Kópavogi Ekkert lát virðist vera á umsóknum um byggingaleyfi í Kópavogi þrátt fyrir kreppu á fasteignamarkaði. Um sextán hundruð íbúðir eru fokheldar á höfuðborgarsvæðinu þar af um þriðjungur í Kópavogi. 24.7.2008 18:33
Matsáætlun fyrir Kröfluvirkjun II kynnt Skipulagsstofnun hefur borist tillaga Landsvirkjunar að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum Kröfluvirkjun II sem verður allt að 150 megavatta jarðhitavirkjun við Kröflu í Skútustaðahreppi. 24.7.2008 17:36
,,Það er búið að slá Bitruvirkjun af" Ekkert verður af virkjun Bitru og vangaveltur um annað eru óþarfar, að sögn Ólafs F. Magnússonar borgarstjóra. ,,Það er búið slá Bitruvirkjun af og það stendur á meðan að núverandi meirihluti F-lista og Sjálfstæðisflokks fer með stjórn borgarinnar." 24.7.2008 17:30
Björgunarsveitir á hálendinu hafa fengið um 150 hjálparbeiðnir Björgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar hafa fengið hátt í 150 aðstoðarbeiðnir frá ferðafólki á hálendinu það sem af er sumri. 24.7.2008 16:39
Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald yfir innbrotsþjófi Tveir menn voru úrskurðaðir í sex daga gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur síðdegis á þriðjudag. Mennirnir voru handteknir á mánudag ásamt tveimur öðrum mönnum vegna þriggja innbrota í Hafnarfirði og Garðabæ. 24.7.2008 16:35
„Fáránlegt að taka lán fyrir bíl eða jakkafötum“ „Það er í raun og veru glæpsamlegt finnst mér að rukka 25 prósent vexti," segir Salmann Tamimi, formaður félags múslima á Íslandi. Múslimar búa við nokkuð sem mörgum öðrum þætti líklega eftirsóknarvert í miðri kreppunni. Samkvæmt trú sinni mega þeir hvorki þiggja né greiða vexti af lánsfé. 24.7.2008 16:16
„Karlmenn segja nei við nauðgunum" Á morgun hefst opinberlega átak Karlahóps Femínistfélags Íslands sem ber merkið „Karlmenn segja Nei við nauðgunum." Byrjar átakið með baráttutónleikum gegn kynbundnu ofbeldi sem eru annað kvöld á Organ. Átak Karlahópsins verður í gangi fram yfir verslunarmannahelgina. 24.7.2008 16:14
Sorgleg staða vegna Listaháskólans Stjórn Torfusamtakanna harmar þá sorglegu stöðu sem upp er komin með áformum Listaháskóla Íslands um niðurrif sögulegrar húsaraðar við Laugaveg. 24.7.2008 16:06
Samfylkingarfólk skoðar neðri Þjórsá Á fjórða tug Samfylkingarfólks sem styður verndun neðri Þjórsár heimsækir í kvöld íbúa á svæðinu og fer í skoðunarleiðangur um svæðið sem fer undir vatn ef virkjunin verður að veruleika. Virkjunaráform í neðri Þjórsá hafa mætt andstöðu heimamanna. 24.7.2008 15:37