Fleiri fréttir

Meisaður eftir sjómannadagsball - myndband

Lögreglumaður á Patreksfirði beitti varnarúða eða meis til þess að yfirbuga mann fyrir utan félagsheimili staðarins þegar lokadansleikur sjómannadagsins fór fram í síðustu viku.

Sprengdu hluta af stíflu í Kína

Kínverskir hermenn sprengdu í gær hluta af stíflu úr grjóti og jarðvegi sem myndaðist í fljóti eftir jarðskjálftann þar í maí.

Rannsaka stórt fíkniefnamál á Jótlandi

Lögregla á Austur-Jótlandi í Danmörku er að ljúka rannsókn á stóru fíkniefnamáli. Snýst það meðal annars um 40 kílógrömm af amfetamíni sem 26 ára gamall maður var tekinn með.

Vill að FARC hætti vopnuðum átökum

Skæruliðasamtökin FARC í Kólumbíu eiga að hætta vopnuðum átökum og veita föngum sínum frelsi. Þetta segir Hugo Chavez, forseti Venesúela.

Stal 150 tonnum af brautarteinum

Um 150 tonnum af járnbrautarteinum var stolið nálægt Enköping í Svíþjóð. Sá sem var þar að verki er talinn hafa verið allt að viku dunda sér á staðnum.

Sveitt í tölvuleikjakeppni

Um þrjú hundruð ungmenni hafa setið sveitt frá því á föstudag og keppt í tölvuleikjum í Egilshöll.

Hestamenn óttast þriðjungs hækkun á heyi

Hestamenn óttast að hey muni hækka um allt að þriðjung eftir tæplega tuttugu prósenta hækkun síðasta vetur. Þá bendir ýmislegt til að skortur geti orðið á heyi.

Dæmi um "tveir fyrir einn" tilboð í laxveiðiár

Dæmi eru um að tveir fyrir einn tilboð bjóðist nú í laxveiðiár. Þetta er nokkuð sem menn muna vart að gerst hafi áður. Talið er að verð á laxveiðileyfum muni fara lækkandi á næstu árum.

Magnús Þór vill auka þorskveiðar en friða loðnuna á móti

Magnús Þór Hafsteinsson varaformaður Frjálslyndra vill að Íslendingar auki sóknina í þorskinn en friði loðnuna á móti. Magnús ræddi málið á fundi Landsráðs flokksins um helgina og benti á reynsluna frá Barentshafi máli sínu til stuðnings.

Stór jarðskjálfti skók suðurhluta Grikklands

Jarðskjálfti af stærðargráðunni 6,5 á richter skók suðurhluta Grikklands í dag. Vitað er að einn fórst og nokkrir eru slasaðir. Eitthvað er um að byggingar hafi hrunið.

Vísbendingar um tíma fyrir "Stórahvell"

Hópur eðlisfræðinga segir að hann hafi fundið vísbendingar um tíma fyrir svokallaðan "Stórahvell" en þá er talið að alheimurinn hafi myndast í gríðarlegri sprengingu.

Samþykkt að nokkur elstu húsin á Bíldudal verði rifin

Húsafriðunarnefnd hefur samþykkt að nokkur elstu húsin á Bíldudal verði rifin vegna gerðar snjóflóðavarnargarðs. Velunnarar húsanna telja að plássið missi þorpsmyndina og verði ekki svipur hjá sjón, ef húsin verða rifin.

Fylgi breska Verkamannaflokksins hefur aldrei mælst minna

Samkvæmt nýrri skoðanakönnun hefur fylgi breska Verkamannaflokksins aldrei mælst minna í sögunni. Þetta er enn eitt áfallið fyrir Gordon Brown forsætisráðherra sem horfir fram á mikil pólitísk átök innan þingflokksins á miðvikudag.

Obama hrósaði Hillary í hástert

Barak Obama forsetaframbjóðandi í Bandaríkjunum hrósaði Hillary Clinton í hástert í gærkvöldi eftir að hún lýsti yfir stuðningi við hann í ræðu, sem markaði endann á framboði hennar sjálfrar.

Hanna Birna sátt og þakklát með niðurstöðuna

Hanna Birna Kristjánsdóttir nýr oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn segir að hún sé sátt og þakklát fyrir þá niðurstöðu sem náðist á fundi borgarstjórnarflokksins í dag.

Útilokar ekki að byggingu hátæknisjúkrahúss verði frestað

Varaformaður fjárlaganefndar Alþingis segir að búast megi við verulegum niðurskurði í útgjöldum ríkisins á næsta ári bæði til rekstrar og framkvæmda. Hann útilokar ekki að hætt verði við stór verkefni eða þeim frestað, eins og byggingu hátæknisjúkrahúss og lagning Sundabrautar.

Stærsta verkefni á sviði náttúruverndar á Íslandi

Vatnajökulsþjóðgarður var stofnaður við formlega athöfn í dag. Efnt var til opnunarhátíðar í Gljúfrastofu í Jökulsárgljúfrum, á Skriðuklaustri í Fljótsdal, í Skaftafellsstofu í Skaftafelli og í Kirkjuhvoli á Kirkjubæjarklaustri.

Þrennt slasaðist við mótorkross-keppni

Þrennt slasaðist við mótorkross-keppni í Sólbrekkubraut, við Reykjanesbraut í dag. Öll voru þau flutt á sjúkrahús með sjúkrabifreiðum til aðhlynningar.

Yfirlýsing frá Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hefur sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu: "Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins féllst í dag á tillögu mína um að Hanna Birna Kristjánsdóttir taki við af mér sem oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.

Hillary Clinton lýsir yfir stuðningi við Obama

Hillary Clinton hefyr lýst yfir stuðningi við Barak Obama í komandi forsetakosningum í Bandaríkjunum næsta vetur. Hún heldur nú síðustu ræðu sína í forkosningunum sem er nú formlega lokið.

Auglýst eftir íslenskum klámmyndaleikurum á netinu

Fyrirtæki sem nefnir sig Blackwood-Production auglýsir nú eftir íslenskum klámmyndaleikurum á netinu. Tökur munu hefjast hér á landi eftir um mánuð. Er auglýsingin inn á einkamál.is undir heitinu Adult-jobs.

Jón Magnússon vill kanna hug Frjálslyndra til ESB aðildar

Jón Magnússon þingmaður Frjálslynda flokksins sagði á landsráðsfundi flokksins að hann væri hlynntur því að félögum í Frjálslynda flokknum væri gefinn kostur á því að segja skoðun sína um það hvort rétt sé að farið sé í viðræður við ESB til þess að fá úr því skorið hvaða samningum við næðum.

Hanna Birna verður oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík

Hanna Birna Kristjánsdóttir verður oddviti borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins það sem eftir lifir af kjörtímabilinu. Þetta var ákveðið á fundi borgarfulltrúa flokksins í dag. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fráfarandi oddviti, lagði þessa tillögu fram. Ekki hefur náðst í neinn af borgarfulltrúunum.

Sjá næstu 50 fréttir