Fleiri fréttir

Segir Hannes hafa logið að þjóðinni

„Ef nemendur eru reknir fyrir að stela úr verkum annarra og gera þau að sínum þá hlýtur það sama að ganga yfir kennara. Er það ekki svoleiðis ef menn brjóta af sér í starfi sínu að þá missa þeir starfið?“ spyr Guðný Halldórsdóttir, leikstjóri og dóttir Halldórs Kiljan Laxness, innt álits á væntanlegum viðbrögðum Háskóla Íslands við dómi Hæstaréttar.

Ung Vinstri-græn leiðbeina ráðherrum í Rúmeníu

Ung Vinstri-græn hafa útbúið bækling sem og sent með hraðpósti til forsætis- og utanríkisráðherra á fundi þeirra í Rúmeníu. Þar er að finna leiðbeiningar um það hvernig ráðherrarnir geta komist heim frá Rúmeníu án einkaþotu.

Dómur fyrir ritstuld grafalvarlegt mál

Ágúst Einarsson rektor Háskólans á Bifröst segir að skólinn myndi taka mjög afdráttarlaust á málum ef prófessor við skólann yrði dæmdur fyrir ritstuld.

Þingmenn vilja Þríhjúkahelli aðgengilegan almenningi

Hópur alþingismanna hefur lagt fram þingsályktunartillögu þar sem skorað er á menntamálaráðherra að hefja strax vinnu til þess að fylgja eftir hugmyndum um að gera Þríhnjúkahelli í Bláfjöllum, stærsta hraunhelli í heimi, aðgengilegan fyrir ferðamenn.

Opinberun Hannesar fyrir helgi

Þær upplýsingar fengust hjá rektorsskrifstofu Háskóla Íslands í dag að ákvörðunar væri að vænta í máli prófessors Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar fyrir helgi en yfirstjórn skólans fundar nú um málið.

Fá inngöngu á endanum

Skýrt er kveðið á um það í lokaplaggi leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins í Rúmeníu að Georgía og Úkraína fái aðild að bandalaginu. Viðræðuáætlun verður þó ekki samþykkt að sinni.

BHM-félagar vilja allt að 28 prósenta launahækkun

Fólk í Bandalagi háskólamanna telur að laun þess þurfi að hækka um allt að 28 prósent samkvæmt nýrri könnun Capacent. Kynbundinn launamunur meðal félagsmanna er minni en almennt á vinnumarkaði.

Brunavörnum í MR verulega ábótavant

Gríðarlega mikil menningarverðmæti gætu glatast ef eldur kæmi upp í húsi Menntaskólans í Reykjavík. Byggingafulltrúi Reykjavíkurborgar segir brunavörnum í húsinu verulega ábótavant og að fara verði strax í aðgerðir til að bæta þar úr.

Segist hafa sent utanríkismálanefnd minnisblað um NATO-fund

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra segir að ferð hennar og forsætisráðherra með forstjóraflugvél á leiðtogafund NATO í Búkarest hafi ekki kostað nema eitt til þrjú hundruð þúsund krónum meira en ef þau og fylgdarlið hefðu farið í farþegaflugi.

Bílstjórar mótmæla við fjármálaráðuneyti

Bílstjórar mótmæla nú við fjármálaráðuneytið í Arnarhvoli við Lindargötu. Þar er nokkur fjöldi saman kominn en í fréttum Stöðvar 2 kom fram að lögregla hafi meinað þeim aðgang að ráðuneytinu. Ef tilgangurinn hefur verið að hitta fjármálaráðherra hefði það aldrei gengið, þar sem Árni mun liggja veikur heima hjá sér. Þetta kom fram á þingfundi í morgun.

Leggur fram frumvarp um staðfesta samvist samkynhneigðra

Forsætisráðherra hefur lagt fram frumvarp um að trúfélögum verði veitt heimild til þess að staðfesta samvist samkynhneigðra. Í athugasemdum þess segir að þetta sé í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.

Vilja vefmyndavélar á 150 staði til að kynna landið

Fjórtán þingmenn á Alþingi hafa lagt fram þingsályktunartillögu þar sem skorað er á menntamálaráðherra að koma á fót Vefmyndasafni Íslands með því að koma upp nettengdum myndavélum á allt að 150 stöðum á Íslandi, fegurstu og sérkennilegustu stöðum landsins.

Nato hafnar aðild Georgíu og Úkraínu

Atlantshafsbandalagið hefur neitað Georgíu og Úkraínu um aðild að bandalaginu, en samþykkt að endurskoða ákvörðunina varðandi þessi fyrrum Sovétlýðveldi í desember. Nato sagði einnig að það myndi ekki bjóða Macedóníu aðild vegna mótmæla Grikklands á nafni landsins.

Orkuveitan selur gömul líkamsræktartæki

Orkuveita Reykjavíkur auglýsir til sölu í Morgunblaðinu í dag fjöldan allan af líkamsræktartækjum. Um er að ræða gömul tæki sem fyritækið keypti notuð þegar nýja húsið var tekið í notkun.

Verður að fara varlega í vegarlagningu við Þingvelli

Þorgerður Katín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segir að stíga verði varlega til jarðar þegar verið sé að leggja veg á því viðkvæma svæði sem Þingvellir og nágrenni eru. Þetta kom fram í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag.

Í fríið sem persóna úr Sex and the City

Ferðaskrifstofa í New York býður viðskiptavinum sínum nú að lifa lífi sögupersóna þáttaraðarinnar Sex and the City fyrir 24.000 dali, jafnvirði um 1,8 milljóna króna.

Pör vöruð við fimm ára kreppunni

Nýgift hjón gátu áður átt von á að hveitibrauðsdagarnir entust í allt að sjö ár áður en sambandið fór að súrna. Nýjar rannsóknir sýna hins vegar að pör nútímans halda varla út í fimm ár. Vísindamenn hafa uppgötvað að pör byrja að fá leið á hvort öðru eftir einungis fjögur ár og eru á mesta hættutíma rétt um fimm ára brúðkaupsafmælið. Ef þau komast yfir þetta tímabil þá eru allir möguleikar á að þau verði saman í ófyrirséðan tíma.

Snorri Magnússon nýr formaður LL

Snorri Magnússon rannsóknarlögreglumaður var kjörinn nýr formaður Landssambands lögreglumanna. Valið var á milli tveggja lista.

Aflimuðu mann undir lest

Bráðatæknar aflimuðu mann sem lá undir lest í Devon á Englandi til að forða því að honum blæddi út. Lestin hafði keyrt yfir báða fætur mannsins á milli hnés og ökkla og næstum skorið þá í sundur. Bráðatæknar komu á staðinn tveimur mínútum eftir neyðarkallið klukkan 19:40 í gærkvöldi.

Þriggja bíla árekstur á Sandskeiði

Lögregla þurfti að loka fyrir umferð um Suðurlandsveg um stund vegna þriggja bíla áreksturs sem þar varð á níunda tímanum. Einn bíllin valt í árekstrinum.

Frakkar verði fullgildir meðlimir NATO

Nicolas Sarkozy sagði á leiðtogafundi NATO í morgun að ákvörðun verði tekin á þessu ári um fulla aðild Frakka að bandalaginu. Frakkar hafa í áratugi verið á skjön við aðrar þjóðir í bandalaginu og ekki tekið þátt í hernaðarlegum ákvörðunum.

Ólæti í Kristjaníu

Þrír eru í haldi lögreglu í Kaupmannahöfn eftir mikil ólæti í fríríkinu Kristjaníu í nótt. Átök brutust út á milli íbúa hverfisins og lögreglu eftir að lögregla skaut einn af hinum svokölluðu Kristjaníuhundum.

Kannabis ekki skilgreint upp á nýtt

Bresk nefnd sem hefur það hlutverk að flokka eiturlyf eftir áhættunni sem þeim fylgir hefur lagst gegn því að Kannabis verði fært upp um flokk. Flokkunum er raðað í stafrófsröð og eru hættulegustu efnin í A flokki.

Brotist inn í Flúðaskóla

Brotist var inn í Flúðaskóla í nótt og þaðan stolið átta tölvum og sjö flatskjám. Lögreglumenn á leið á vettvang ákváðu að fara Laugarvatnsmegin uppeftir, en þar sáu þeir þrjá menn á bíl og stöðvuðu þá.

Afganistan rætt á NATO fundi í Búkarest

Aðalumræðuefnið á leiðtogafundi NATO ríkjanna í dag verður liðsafli bandalagsins í Afganistan. Frakkar hafa þegar lýst því yfir að þeir muni senda eina herdeild og Bush Bandaríkjaforseti hefur margítrekað mikilvægi þess að bandalagið nái árangri í landinu.

Þekktur kínverskur andófsmaður fangelsaður

Einn þekktasti andófsmaður Kínverja, Hu Jia, hefur verið dæmdur í þriggja og hálfsárs fangelsi fyrir undirróðursstarfsemi. Jia er þrjátíu og fjögurra ára gamall og hefur barist fyrir mannréttindamálum í Kína um árabil. Á meðal helstu baráttumála hafa verið umhverfismál, trúfrelsi og réttindi þeirra sem smitaðir eru af HIV veirunni.

Stjórnarandstaðan sigraði í Zimbabve

Nú eru loksins komnar lokatölur í þingkosningunum í Zimbabwe en kosningarnar fóru fram á laugardaginn var. Stjórnarandstöðuflokkur Morgans Tsvangirais fór með sigur af hólmi og hefur nú meirihluta þingsæta á bakvið sig. Enn á eftir að tilkynna um úrslitin í forsetakosningunum sem fram fóru samhliða en Tswvangirai hefur þegar lýst yfir sigri í þeim.

Mótmælum hætt í bili

Vörubílstjórar hafa nú opnað fyrir umferð á Reykjanesbraut til móts við Sprengisand og á Kringlumýrarbraut við Miklubraut. Miklar tafir sköpuðust af aðgerðunum en ekki er vitað hvar þá mun bera niður næst.

Hellisheiði lokuð

Margir ökumenn lentu í erfiðleikum á Hellsiheiði í gærkvöldi þegar óveður brast þar á með með snjókomu þannig að fyrst varð fljúgandi hálka og síðan þæfingur og ófærð.

Með fíkniefni í miðbænum

Tveir karlar, annar um þrítugt en hinn nokkru yngri, voru handteknir í miðborginni síðdegis í gær en báðir voru með ætluð fíkniefni í fórum sínum. Mennirnir tóku afskiptum lögreglu mjög illa og höfðu í hótunum. Kom til átaka og fór svo að beita þurfti varnarúða til að hemja annan þeirra en sá hafði slegið lögreglumann í höfuðið.

Ingibjörg Sólrún hittir Rice í Washington

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, mun eiga tvíhliða fund í Washington með Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna þann 11. apríl næstkomandi.

Sjá næstu 50 fréttir