Þingmenn vilja Þríhjúkahelli aðgengilegan almenningi 3. apríl 2008 13:49 Árni B. Stefánsson augnlæknir seig fyrstur manna niður á botn gígsins. MYND/GVA
Hópur alþingismanna hefur lagt fram þingsályktunartillögu þar sem skorað er á menntamálaráðherra að hefja strax vinnu til þess að fylgja eftir hugmyndum um að gera Þríhnjúkahelli í Bláfjöllum, stærsta hraunhelli í heimi, aðgengilegan fyrir ferðamenn. Í greingargerð með frumvarpinu er bent á að Árni B. Stefánsson augnlæknir og hellakönnuður hafi fyrstur manna sigið niður á botn gígsins árið 1974. „Hellirinn er einstakur að gerð, tröllaukið gímald, um 175 m á dýpt og á við fótboltavöll að flatarmáli í botni, stærsta þekkta hraunhvelfing í heimi og eitt merkasta náttúruundur á Íslandi, falinn neðanjarðar við bæjardyr höfuðborgarinnar í landi Kópavogs. Þríhnjúkahellir er einstakt náttúruundur á heimsmælikvarða en víða um heim er gert út á heimsóknir í sérstæða hella og þeir skipta miklu máli í ferðaþjónustu og landkynningu," segir enn fremur í greinargerð með tillögunni. Bent er á að stóru íbúðablokkirnar þrjár efst á Laugarásnum, sem eru tólf hæðir, myndu rúmast hlið við hlið í gígnum og og ef Hallgrímskirkja væri síðan sett ofan á tólf hæða blokkirnar mundi vanta 15 metra upp á að krossinn á kirkjunni stæði upp úr gígopinu. Verkefni upp á milljarð króna Bent er á að félag undir forystu Árna B. Stefánssonar, Þríhnjúkar ehf., hafi hafið undirbúning að því að gera Þríhnjúkahelli aðgengilegan. Upplýsinga um næstu skref sé að vænta á komandi hausti, en þær hugmyndir sem nú er unnið að byggjast á því að gera 200 metra löng göng inn í Þríhnjúkahellinn sem mundu opnast inn í hellishvelfinguna á 64 metra dýpi að stórum svölum og síðan yrði jafnvel hringstigi niður á botn hellisins. Þríhnjúkar ehf. hafa gert samning við Kópavogsbæ um framgang verkefnisins þar sem hellirinn er í landi bæjarins. Verkefnið er firnamikið og reikna má með að það kosti um milljarð króna að gera göng, svalir, hringstiga, lýsingu og annað sem þarf til þess að fulls metnaðar sé gætt. „Aðgengi að Þríhnjúkahelli er einn af mörgum möguleikum í markaðssetningu Íslands á alþjóðavettvangi, enn ein fjólan í íslenska náttúruvöndinn," segir í greinargerðinni. Bent er á að á Íslandi sé enginn aðgengilegur sýningarhellir með göngustígum og raflýsingu. Tveir fegurstu hellar landsins, Jörundur og Árnahellir, hafi verið friðlýstir sérstaklega og lokaðir fyrir nánast allri umferð.
Mest lesið Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Bein útsending: Almyrkvi á sólu Innlent Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Innlent Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Innlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Fleiri fréttir Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Sjá meira