Fleiri fréttir

Bush vill tryggja frið í Kósóvó

Bush Bandaríkjaforseti segir að allt verði gert til að tryggja að ekki komi til átaka í Kosovo-héraði þegar að ráðamenn þar lýsa yfir sjálfstæði frá Serbíu. Fastlega er búist við að það gerist í dag.

Áttatíu féllu í sjálfsvígsárás í Kandahar

Minnst áttatíu féllu og fjölmargir særðust í sjálfsvígssprengjuárás á vinsælum útivistarstað í Kandahar-héraði í Suður-Afganistan í morgun. Árásin er sú mannskæðasta í landinu í marga mánuði. Héraðsstjórinn í Kandahar segir Talíbana hafa verið að verki en þeir hafa ekki lýst árásinni á hendur sér.

Rafmagnslaust í Kópavogi og Garðabæ í nótt

Rafmagnslaust varð í vesturhluta Kópavogs og hluta af Garðabæ á öðrum tímanum í nótt vegna bilunar í háspennuleiðslu og tókst ekki að komas rafmagni á fyrr en rétt fyrir klukkan fimm. Orsök bilunarinnar er ekki kunn.

Líklegt að ríkisstjórnin og aðilar vinnumarkaðarins fundi

Búist er við að ríkisstjórnin spili út sínum tillögum í tengslum við kjarasamninga í dag og boði aðila vinnumarkaðarins til fundar. Hugnist þeim tillögurnar gæti farið svo að það takist að skrifa undir kjarasamninga áður en þessi dagur verður allur.

Fjörutíu sjúkraflutningar í nótt

Það var mikið að gera hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í gærkvöldi og nótt. Sjúkraflutningamenn fóru í um 40 sjúkraflutninga, sem að sögn slökkviliðsmanna er allt að því tvöfalt meira en venjulega.

Stunginn með hnífi á Gauki á Stöng

Karlmaður um tvítugt var stunginn í bakið á veitingastaðnum Gauki á Stöng í borginni á sjötta tímanum í nótt. Hann var færður á sjúkrahús en ekki er talið að hann sé alvarlega slasaður. Rúmlega þrítugur karlmaður er í haldi lögreglu, grunaður um árásina. Mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt sökum ölvunar og voru fangageymslur fullar.

Kveiktu í barnaheimili í Árósum

Kveikt var í barnaheimili í Tilst, úthverfi Árósa, á sjöunda tímanum í kvöld að íslenskum tíma. Lögreglan segir að hættan sé yfirstaðin og tveir piltar á aldrinum 15 og 16 ára hafi verið handteknir. Slökkvistarf er lokið og talið er að einungis lítill hluti af barnaheimilinu hafi eyðilagst.

Sækir um pólitískt hæli

Einn kosningastjóra stjórnarandstöðunnar í Kenýa hefur sótt um hæli sem pólitískur flóttamaður á Íslandi. Vegabréfsáritun hans rennur út á mikvikudaginn, en hann segist vera á aftökulista yfirvalda í Kenýa.

Sjö létust í ólöglegum kappakstri

Sjö manns létust þegar bíll keyrði inn í mannþröng í ólöglegum kappakstri í Maryland í Bandaríkjunum. Slysið varð klukkan tuttugu mínútur í níu í morgun að íslenskum tíma, um 32 kílómetrum frá Washington DC, höfuðborg Bandaríkjanna. Auk þeirra sjö sem létust slösuðust fjórir, að sögn lögreglunnar. Ekki er vitað nánar um ástand hinna slösuðu.

Tveir menn rændu veitingastað

Tveir karlmenn um tvítugt ruddust inn á veitingastað við Ingólfstorg á sjötta tímanum í kvöld og börðu afgreiðslumann með barefli. Þeir rændu síðan peningum úr sjóðsvél. Ræningjarnir komust undan og leitar lögreglan þeirra nú. Afgreiðslumaðurinn slapp með minniháttar meiðsl, samkvæmt upplýsingum lögreglu.

Ölvaður maður tekinn í Leifsstöð

Ölvaður maður var handtekinn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í dag en sá hafði látið ófriðlega í komusal flugstöðvarinnar. Hann gistir fangaklefa þar til áfengisvíman rennur af honum.

Lögreglan fann bruggverksmiðju

Lögreglan á Suðurnesjum haldlagði bruggtæki og nokkurt magn af ætluðu sterku heimagerðu áfengi í dag. Kona nokkur hafði hringt í lögreglu og taldi að reynt hefði verið að brjótast inn á heimili hennar. Lögreglumenn fóru á staðinn en sáu ekki ummerki innbrotstilraunar. Þeir fundu hins vegar áfengið og bruggtækin sem fyrr segir frá. Konan sem tilkynnti um innbrotið verður kærð fyrir ólöglegan tilbúning áfengis.

Eistar bjóða samstarf

Utanríkisráðherra segir Eistlendinga fremsta þjóða í vörnum gegn tölvuglæpum. Margt sé hægt að læra af þeim í vörnum gegn þessari einni helstu öryggisógn tuttugust og fyrstu aldarinnar.

Enn beðið eftir tillögum ríkisstjórnarinnar

Undirritun kjarasamninga er ekki í augsýn fyrr en í fyrsta lagi seinni partinn á morgun, segir forseti Alþýðusambands Íslands - og þá aðeins ef ríkisstjórnin kemur fram með viðunandi tillögur. Tillögur ríkisstjórnarinnar voru ekki kynntar nú síðdegis eins og vonast hafði verið eftir.

Allt logar í Danmörku

Í gærkvöldi og nótt loguðu eldar í fleiri dönskum bæjum en áður, meðal annars í Kaupmannahöfn, Árósum og Óðinsvéum. Reið ungmenni kveiktu í ruslagámum, bílum og skólum.

Reykjafoss nálgast höfn

Varðskip kom í Faxaflóahöfn með flutningaskipið Reykjarfoss í eftirdragi um fjögurleytið í dag og hefur hafsögumaður nú tekið við skipinu. Reykjafoss varð aflvana um 10 sjómílur norðvestur af Reykjanesi og barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar boð frá skipverjum á þriðja tímanum í nótt.

Hátt í 40 létust í sjálfsmorðssprengingu í Pakistan

Þrjátíu og sjö manns biðu bana og níutíu særðust í sjálfsmorðssprengingu á fundi stuðningsmanna Benazir Bhuttos heitinnar í Parachirans í Pakistan í dag. Sprengjuárásin var gerð á lokadegi kosningabaráttu fyrir þingkosningar sem fara fram í landinu á mánudaginn.

Tilnefningar til blaðamannaverðlauna tilkynntar

Kristján Már Unnarsson, fréttamaður á Stöð 2, Pétur Blöndal, blaðamaður á Morgunblaðinu, og Óli Kristján Ármansson, blaðamaður á Fréttablaðinu, eru tilnefndir til blaðamannaverðlauna ársins 2007. Tilnefningarnar voru opinberaðar í dag en verðlaunin sjálf verða afhent í næstu viku.

Háskóladagurinn settur í dag

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra setti háskóladaginn í Ráðhúsi Reykjavíkur í morgun. Prúðbúnir hestamenn tóku á móti ráðherra við Ráðhúsið í tilefni dagsins. Á háskóladeginum kynna háskólar landsins námsframboð sitt fyrir næsta skólaár. Kynningin fer fram á tveimur stöðum í borginni.

Beðið eftir viðbrögðum frá ríkisstjórninni

Forseti Alþýðusambands Íslands útilokar ekki að skrifað verði undir kjarasamninga í kvöld eða nótt - það verði þó aðeins gert komi viðunandi tillögur frá ríkisstjórninni. Alþýðusambandið og Samtök atvinnulífsins funduðu framundir miðnætti í gærkvöldi og settust aftur að samningaborðinu klukkan tíu í morgun.

Aflvana skip norðvestur af Reykjanesi

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst boð frá flutningaskipinu Reykjafossi á þriðja tímanum í nótt um að skipið hefði orðið aflvana um 10 sjómílur norðvestur af Reykjanesi.

Bíll sem nýtist sem kafbátur

Svissneski bílaframleiðandinn Rinspeed hefur búið til bíl sem hægt er að aka á þurru landi en líka hægt að nota sem kafbát.

Adrenalínferð gegn fordómum

Tuttugu og fimm manna hópur níundu og tíundu bekkinga úr Austurbæjarskóla og Laugarnesskóla lögðu af stað í ferð á vegum samtakanna Adrenalín gegn rasisma í gær. Íslensk ungmenni og ungmenni af erlendu bergi brotin eru í samtökunum og er markmið þeirra að sporna á móti fórdómum gegn útlendingum í samfélaginu.

Litháískir fangar ánægðir með launin á Litla Hrauni

„Það er mín tilfinning að þeim finnst þeir ekki hafa neinu að tapa. Ef smyglið tekst koma þeir út í gróða en ef það mistekst fá þeir vinnu í fangelsi á launum sem þykja bærileg í Litháen," segir Einar Loftur Högnason, fangavörður á Litla Hrauni, í samtali við Fréttablaðið í dag.

Mótmælir pólitískum fundi í Fríkirkjunni

Fyrrverandi stjórnarmaður úr safnaðarstjórn Fríkirkjunnar í Reykjavík mótmælir því að Samtökin Sól á Suðurlandi efni til fundar í Frkirkjunni á morgun. Tilefni fundarins er að mótmæla áformum um að virkja Þjórsá.

Evrópusambandið sendir 2000 manna lið til Kósóvó

Evrópusambandið samþykkti í gærkvöldi að senda tvö þúsund manna gæslulið til Kósóvó til að annast eftirlit með lög- og dómgæslu og borgaralegri stjórn í héraðinu eftir að Kósóvó-Albanar hafa lýst einhliða yfir sjálfstæði frá Serbíu. Fastlega er búist við að þeir geri það á morgun, í óþökk Serba og Rússa.

Fossett talinn af

Vellauðugi ævintýramaðurinn Steve Fossett var í gær úrskurðaður látinn. Hans hefur verið saknað í fimm mánuði - eða allt frá því lítil flugvél með hann einan innanborðs hvart yfir eyðimörkinni í Nevada-ríki í Bandaríkjunum.

George Bush á faraldsfæti

George Bush Bandaríkjaforseti hóf ferðalag sitt um Afríku í morgun. Fyrsti viðkomustaðurinn er Benín. Forsetinn mun heimsækja fjögur önnur ríki á sex daga ferð sinni um álfuna. Hann fer til Tansaníu, Rúanda, Ghana og Líberíu. Þetta er önnur heimsókn hans til Afríku frá því hann tók við völdum eftir forsetakosningarnar 2000.

Enn átök í Danmörku

Til harðra átaka kom milli lögreglu og ungmenna víða í Danmörku í nótt. Þetta er sjötta nóttin í röð sem ungmenni á aldrinum þrettán til átján ára - flest af erlendu bergi brotin - leggja eld að bílum, ruslagámum og húsum í úthverfum Kaupmannahafnar til að tjá óánægju sína með að skopmynd af Múhameð spámanni var birt í dönskum blöðum í vikunni.

Fundir halda áfram í Karphúsinu

Fulltrúar Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands funduðu langt fram á kvöld í gær og hefjast fundarhöld að nýju í Karphúsinu nú klukkan 10.

Þorstinn var hinn sami þrátt fyrir rafmagnsleysi

Bilun í háspennustreng í Hallveigarstíg setti strik í reikninginn hjá skemmtanaglöðum borgarbúum í gærkvöldi. Rafmagn fór af hluta Laugavegarins frá Snorrabraut og á Hverfisgötu að Lækjartorgi laust upp úr klukkan ellefu, um það leyti sem næturlífið í miðbænum er venjulega að glæðast. Posar veitingastaða og kráa duttu þar með út - en þorstinn var hinn sami og venjulega hjá bargestum.

Hringdi af stöðinni og seig niður í reipi

Annþór Karlsson fékk að nota síma á lögreglustöðinni við Hverfisgötu daginn áður en hann strauk. Annþór var handtekinn undir kvöld í gær þar sem hann faldi sig í skáp í húsi í Mosfellsbæ. Hann var síðar úrskurðaður í gæsluvarðhald.

Rafmagn komið aftur á í miðbænum

Rafmagn komst aftur á í miðbænum um hálfeitt leytið eftir að það hafði farið af í klukkutíma á Laugavegi og Hverfisgötu. Um háspennubilun var að ræða.

Samtals 32 ára fangelsi í Pólstjörnumáli

Sex menn voru í gær dæmdir í samtals 32 ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í einu umfangsmesta fíkniefnasmygli sem upp hefur komið hér á landi. Sá sem þyngsta dóminn hlaut, Einar Jökull Einarsson, fékk níu og hálft ár.

Í einangrun í fjóra mánuði í Færeyjum

Íslenskur karlmaður hefur setið í einangrun í færeysku fangelsi í um fjóra mánuði. Hann var handtekinn í september í tengslum við Pólstjörnumálið. Hjá honum fundust tvö kíló af fíkniefnum. Hann verður ákærður í byrjun apríl.

Bjórdælur virka en posar ekki

Rafmagnlaust hefur verið í miðbænum undanfarin stundarfjórðung. Að sögn bilanavaktar Orkuveitunnar er um að ræða háspennubilun sem verið er að vinna í að laga.

Annþór í þriggja vikna gæsluvarðhald

Annþór Kristján Karlsson var í kvöld úrskurðaður í þriggja vikna gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness. Annþór flúði frá Lögreglustöðinni á Hverfisgötu í morgun en náðist um klukkan 18 í húsi Mosfellsbæ.

Eldar loga víða í Danmörku vegna óeirða

Eldar hafa verið kveiktir á götum úti víða í Danmörku í kvöld þar sem ungmenni halda áfram að mótmæla því að danskir miðlar hafa á ný birt myndir af Múhameð spámanni.

Illinois morðinginn var afburðanemandi

Maðurinn sem hóf skothríð í Northern Illinois háskólanum í Bandaríkjunum í gærkvöld með þeim afleiðingum að fimm féllu hét Stephen Kazmierczak. Hann var 27 ára gamall og stundaði framhaldsnám í félagsfræði við skólann. Hann var vopnaður þremur skammbyssum og haglabyssu.

Ég er elst í heimi

Svo virðist sem hin 114 ára bandaríska kona Edna Parker sé ekki lengur elst í heimi samkvæmt Heimsmetabók Guiness, jafnvel þótt hún hafi ekki gefið upp öndina. Mariam Amash í ísraelska bænum Jisr az-Zarqa heldur því nefnilega fram að hún sé 120 ára, fædd árið 1888

Sjá næstu 50 fréttir