Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ástþór býðst til að borga fyrir lýðræðið Ástþór Magnússon býður íslenska ríkinu að greiða kostnað við forsetakosningar síðar á þessu ári svo þær geti farið fram með hætti sem er við hæfi í vestrænu lýðræðisríki. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem hann efndi til í Háskólabíó í dag. 24.1.2008 14:21
Vilhjálmur: Ráðist að persónu Ólafs Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna í Reykjavík, segir að ráðist hafi verið að persónu Ólafs F. Magnússonar í tengslum við myndun nýs meirihluta borgarstjórnar. 24.1.2008 14:15
Margrét segir stöðuna erfiða Margrét Sverrisdóttir varaborgarfulltrúi segir að sú staða sem upp sé komin í borgarstjórn Reykjavíkur sé erfið. 24.1.2008 13:55
Í fangelsi fyrir fíkniefnaakstur 26 ára Akureyringur var í Héraðsdómi Norðurlands Eystri í gær dæmdur í tveggja mánaða fangelsi fyrir að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna. Hann var þá með rúmt gramm af tóbaksblönduðu hassi í fórum sínum.Maðurinn játaði sök við þingfestingu málsins. 24.1.2008 13:45
Bíl stolið og ekið á sjálfsala á bensínstöð Bifreið var stolið Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði í nótt og var henni svo ekið á sjálfsala á bensínstöð Orkunnar við Kænuna við Óseyrarbraut. 24.1.2008 13:35
Svandís: „Endurtekið efni, sami höfundur“ Svandís Svavarsdóttir borgarfulltrúi Vinstri Grænna sagði í ræðu sinni á fundi borgarstjórnar nú í hádeginu að leynimakkið, leyndin, umboðsleysið og samráðsleysið væri allt kunnugleg stef. Það vær endurtekið efni með sama höfundi. Hún rakti sína aðkomu að REI málinu og Orkuveitu Reykjavíkur þar sem hún sagði að tekist hefði verið að koma í veg fyrir að borgin missti Orkuveituna til einkaaðila og gerðir yrðu milljóna forréttindasamningar. 24.1.2008 13:28
Ekki góð útfærsla á lýðræðinu Ólafur F. Magnússon sagði í samtali við Sjónvarpið fyrir stundu að það væri ekki góð útfærsla á lýðræðinu hvernig mótmælt væri á pöllum Ráðhússins með háreysti. 24.1.2008 13:27
Hlé gert á fundi vegna mótmæla - Ólafur kjörinn borgarstjóri Ólafur F Magnússon var rétt í þessu kjörinn borgarstjóri Reykjavíkur við mikil mótmæli frá fólki á áhorfendapöllum. Fólkið hrópaði "hættið við" "okkar reykjavík" og fleiri slagyrði við kjörið og gera þurfti hlé á fundi vegna óláta. Átta borgarfulltrúar kusu Ólaf borgarstjóra en sjö voru á móti. 24.1.2008 13:05
Dagur: Í dag ætti að kjósa í Reykjavík Dagur B. Eggertsson, fráfarandi borgarstjóri, segir borgarbúa hafa orðið vitni að afbökun á lýðræði og stjórnmálum með myndun nýs meirihluta sjálfstæðismenna og Ólafs F. Magnússonar. 24.1.2008 13:03
Hanna Birna kjörin forseti borgarstjórnar Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, var kjörin forseti borgarstjórnar með átta atkvæðum nýs meirihluta gegn sjö auðum seðlum fráfarandi meirihluta. 24.1.2008 12:29
Troðfullir pallar í Ráðhúsinu og púað á nýjan meirihluta Mikill fjöldi fólks er nú kominn saman niðri í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem borgarstjórnarfundur er að hefjast og meirihlutaskipti verða í borginni. Komast færri að en vilja á pöllum borgarstjórnarsalarins. 24.1.2008 12:09
Mættu ekki til að taka á móti undirskriftum Hvorki Ólafur F. Magnússon né Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson lét sjá sig þegar aðstandendur undirskriftasöfnunar gegn myndun nýs meirihluta hugðust afhenda þeim undirskriftir nærri sex þúsund Reykvíkinga. 24.1.2008 11:39
Vill fá að kasta snöru í fangelsinu Sami sem situr í fangelsi í Þrándheimi fyrir manndráp hefur skrifað yfirvöldum kvörtunarbréf yfir að fá ekki að kasta snöru í fangelsinu. 24.1.2008 11:37
Tungumál deyr út með síðasta Eyakinum Kona sem talin er vera síðasti Eyakinn og sú eina sem talaði Eyak tungumálið í norðvesturhluta Alaska, er látin. Marie Smith Jones lést á heimili sínu í Anchorage 89 ára að aldri. Hún var ötull talsmaður þess að varðveita Eyak tungumálið og hjálpaði háskólanum í Alaska við að taka saman orðabók í tungumálinu. Þannig vonaðist hún til að komandi kynslóðir gætu endurvakið það. 24.1.2008 11:31
Ágúst formaður samstarfsnefndar um málefni aldraðra Jóhanna Sigurðardóttir félags- og tryggingamálaráðherra hefur skipað í samstarfsnefnd um málefni aldraðra í kjölfar þess að málaflokkurinn var fluttur frá heilbrigðisráðuneytinu til félags- og tryggingamálaráðuneytisins um áramótin. 24.1.2008 11:30
Fagnar endurkomu Sjálfstæðisflokksins Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, fagnar endurkomu Sjálfstæðisflokksins að stjórn Reykjavíkurborgar. 24.1.2008 11:23
Bein útsending frá Ráðhúsinu í hádeginu og Björn Ingi í hádegisviðtali Bein útsending verður í hádegisfréttatíma Stöðvar 2 frá borgarstjórnarfund þar sem nýr meirihluti sjálfstæðismanna og F-lista tekur við völdum. 24.1.2008 11:18
Er þetta Marsbúi? Vísindamenn hjá bandarísku geimferðastofnuninni NASA velta nú vöngum yfir mynd sem eitt af geimförum þeirra sendi til jarðar frá Mars. 24.1.2008 11:09
Ríkisstjórnin gagnrýnd fyrir máttlitlar mótvægisaðgerðir Varaformaður Framsóknarflokksins óttast atgervisflótta úr fiskvinnslu í kjölfar fjölmargra uppsagna á síðustu mánuðum og vill að stjórnvöld bjóði því fólki sem þar missir vinnuna tækifæri til menntunar því að kostnaðarlausu. Ríkisstjórnin var gagnrýnd fyrir aðgerðarleysi í málefnum þessa hóps. 24.1.2008 10:59
Kjörnir fulltrúar að leika sér að lýðræðinu Félagsfundur Samfylkingarfélagsins í Reykjavík lýsir yfir fullum stuðningi við borgarfulltrúa sína sem nú standa í ströngu vegna óvæntra og ófyrirséðra breytinga á stjórn Reykjavíkurborgar, og þakkar þeim fyrir glæsilegt og árangursríkt starf við stjórn borgarinnar undanfarna mánuði. 24.1.2008 10:23
Kristján þór vill meirihluta með VG eða SF Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi bæjarstjóri á Akureyri, sagði í Bítinu á Bylgjunni í morgun að farsælast væri fyrir borgarbúa að Sjálfstæðisflokkur myndaði meirihluta með Vinstri grænum og Samfylkingunni. 24.1.2008 10:05
Thompson hættir baráttu um útnefningu Repúblíkana Fred Thompson fyrrverandi öldungadeildarþingmaður hefur dregið sig úr kapphlaupinu um útnefningu forsetaefnis Repúblíkanaflokksins eftir slæmt gengi í forkosningum fram til þessa. Í yfirlýsingu sagðist hann vonast til að flokkurinn og þjóðin öll hefði notið einhvers af framboði hans. 24.1.2008 10:03
Lottómiði flækir dómsmál í Bandaríkjunum Sérkennileg lagaflækja er komin upp við dómstól í Maine í Bandaríkjunum. Lögreglan þar handtók fíkiniefnasala sem seldi metadone-töflur frá hótelherbergi sínu í bænum Ellsworth. 24.1.2008 09:57
Mikill ótti meðal Indverja vegna fuglaflensu Mikill ótti hefur gripið um sig meðal almennings á Indlandi sökum fuglaflensu sem þar hefur greinst í kjúklingum. Yfir 2.000 Indverjar telja sig vera smitaða af flensunni en yfirvöld vísa slíku á bug. 24.1.2008 09:54
Framsókn tókst það sem Sjálfstæðisflokknum tókst ekki Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra segir að Framsókn hafi tekist það sem Sjálfstæðisflokknum í borginni tókst ekki, að kasta nógu miklum skít á Björn Ingi Hrafnsson þannig að hann hverfi úr pólitík. Hann á þó von á að Björn Ingi komi aftur inn á vettvang stjórnmálanna. 24.1.2008 09:50
Tuttugu fórust í flugslysi í Póllandi Flutningavél frá pólska flughernum hrapaði til jarðar í norðvesturhluta landsins með þeim afleiðingum að 20 fórust. Meðal þeirra voru nokkrir háttsettir yfirmenn flughersins. 24.1.2008 09:45
Þrýst á Prodi að segja af sér Romano Prodi forsætisráðherra Ítalíu er nú undir þrýstingi að segja af sér embætti. Í kosningu neðri deildar þingsins í gær fékk hann stuðning meirihluta þingmanna. En búist er við að hann tapi kosningunni í efri deildinni seinna í dag. 24.1.2008 09:41
Rudy Giuliani á í miklum erfiðleikum í Flórída Staða Rudy Giuliani fyrrum borgarstjóra New York er ekki góð í Flórída nokkrum dögum fyrir forkosningar Repúblikanaflokksins í þessu mikilvæga fylki. 24.1.2008 09:09
Bensínhækkanir langt umfram eðlileg viðmið Nýjasta bensínhækkun olíufélaganna er langt umfram eðlileg viðmið, að mati Félags íslenskra bifreiðaeigenda. 24.1.2008 08:43
Geimferðir fyrir almenning hefjast í lok næsta árs Virgin Galaxy, félag í eigu breska auðkýfingsins Richard Branson, mun hefja geimferðir fyrir almenning í lok næsta árs. Branson kynnti áform sín á fundi í New York síðdegis í gær. 24.1.2008 08:40
Boðað til mótmælafundar við ráðhúsið Ungliðahreyfingar Tjarnarkvartettsins svonefnda, eða Samfylkingar, Vinstri grænna, Framsóknar og stuðningsmenn Margrétar Sverrisdóttur, hvetja til mótmæla við ráðhúsið klukkan 11.45 áður en borgarstjórnarfundur hefst. 24.1.2008 08:37
Fundu styttu af "manneskju" á Mars Fjör er hlaupið í umræðuna að nýju um hvort líf sé á Mars eða ekki. Myndir sem Spirit, geimfar bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA, sendi frá sér í gær sýna að því er virðist styttu af manneskju í miðri sandauðninni á Mars. 24.1.2008 08:35
Fyrsti karlmaðurinn í forsvari Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, var á þriðjudag valinn formaður jafnréttisnefndar Evrópuráðsþingsins. Hann er fyrsti karlmaðurinn sem gegnir stöðu formanns nefndarinnar. 24.1.2008 07:00
Björn Ingi er hættur sem borgarfulltrúi Björn Ingi Hrafnsson ætlar á borgarstjórnarfundi á morgun að víkja og láta af öllum störfum sem borgarfulltríu í Reykjavík. Óskar Bergsson varaborgarfulltrúi mun taka við sem borgarfulltrúi flokksins. 24.1.2008 00:38
Ungliðahreyfingar Tjarnarkvartettsins vilja stöðva ruglið „Ungliðahreyfingar Samfylkingar, Vinstri grænna, Framsóknar og ungir stuðningsmenn Margrétar Sverrisdóttur ítreka mikilvægi samstöðu félagshyggjuaflanna í borginni og hvetja þau til þess að sameinast gegn upplausn í borgarstjórn Reykjavíkur út kjörtímabilið. Þessi samstaða er lykilatriði í því að úthýsa ruglinu úr ráðhúsinu.“ 23.1.2008 21:58
Dvergar ræna rútubíla Hópur ræningja hefur að undanförnu rænt rútubíla í Svíþjóð með því að senda dverga í farangursgeymslurnar falda í íþróttatöskum. Þegar inn er komið fara dvergarnir uppúr töskunum og grípa allt steini léttara. 23.1.2008 22:54
Sjö látnir eftir flugslys í Póllandi Pólsk herflugvél brotlenti í norður Póllandi í dag þar sem að minnsta kosti sjö af átján sem um borð voru eru látnir. 23.1.2008 21:28
Leiðrétting frá ritstjórn Vísis Við upplýsingaöflun um fatakaup framsóknarmanna í Reykjavík í kvöld hringdi fréttamaður Vísis í mann sem kynnti sig sem Ragnar Þorgeirsson. Þegar hann var spurður hvort hann væri formaður kjördæmisráðs framsóknarmanna í Reykjavík sagði hann svo vera. 23.1.2008 21:07
Kvartar til umboðsmanns Alþingis vegna ákvörðunar ráðherra Einn af fimm umsækjendum um embætti dómara við Héraðsdóm Norðurlands Eystra hefur lagt fram kvörtun til Umboðsmanns Alþingis vegna ákvörðunar setts dómsmálaráðherra að skipa Þorstein Davíðsson í embættið. 23.1.2008 19:45
Ástþór Magnússon boðar til blaðamannafundar Friðarsinninn og fyrrum forsetaframbjóðandinn Ástþór Magnússon hefur boðað til blaðamannafundar á morgun. 23.1.2008 19:30
N1 hækkar bensín og dísilolíu um 2.50 krónur á lítra N1 hækkaði í gær bensín og dísilolíu um 2.50 krónur á lítra. Sama dag hækkaði Skeljungur hjá sér og árla í morgun var Olís búið að hækka hjá sér um sömu upphæð. 23.1.2008 19:30
Flugvöllur eða íbúabyggð í Vatnsmýri? Það var líklega tvennt sem vakti mesta athygli við málefnaskrá nýja meirihlutans í borginni. Í fyrsta lagi að reynt verði að varðveita 19. aldar götumynd Laugavegarins. Í öðru lagi og efst á lista meirihlutans er hins vegar Vatnsmýrin, að ekki verði hróflað við Reykjavíkurflugvelli á kjörtímabilinu. 23.1.2008 18:38
Skiptir ekki máli í hvað kosningasjóðir fara - Svo lengi sem það sé í þágu flokksins Stjórn Félags ungra Framsóknarmanna á Akureyri sendi fjölmiðlum í kvöld ályktun þar sem félagið lýsir yfir undrun sinni yfir framgöngu fjölmiðla í hinu svokallaða fatakaupamáli. 23.1.2008 18:38
Gætu átt yfir höfði sér allt að sex til níu ára fangelsisdóm Tollverðirnir tveir sem grunaðir um að hafa stolið veski af ungri konu á skemmtistað í Reykjavík um síðustu helgi gætu átt yfir höfði sér sex til níu ára fangelsisdóm. 23.1.2008 18:36
Ógilt hjúskaparvottorð Fischers og Watai Bobby Fischer var bandarískur ríkisborgari allt þar til bandarísk yfirvöld ógiltu vegabréf hans árið 2003. Guðjón Ólafur Jónsson, lögfræðingur systursona Fischers segir að samkvæmt hjúskaparvottorði því sem Watai hefur framvísað komi fram að þau gengu í það heilaga í ágúst 2004. 23.1.2008 18:30