Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stærsta farþegaflugvél heims í jómfrúarferð Stærsta farþegaflugvél heimsins Airbus A380, lenti nú fyrir stundu á flugvellinum í Sidney í Ástralíu eftir sjö tíma flug frá Singapore. Þetta var fyrsta áætlunarflug vélarinnar. Það er flugfélagið Singapore Airlines sem fyrst félaga tekur vélina í sína þjónustu. 25.10.2007 08:29
Móðirin fannst látin Breska móðirinn sem hvarf í kjölfar þess að dóttir hennar féll fram af svölum á hóteli í Mæjorka á mánudag er líklegast látin. Búist er við því að spænsk lögregluyfirvöld staðfesti í dag að kona sem fannst látin í helli í gærkvöld sé í raun móðirin. 25.10.2007 08:23
Notuðu Voodoo til að ná valdi á börnum Lögreglan í Hollandi hefur upprætt glæpahring sem grunaður er um að hafa staðið að smygli á börnum frá Nígeríu til Evrópu þar sem þau voru seld í kynlífsþrælkun. 25.10.2007 08:19
Santa Ana vindurinn í rénun Santa Ana vindurinn sem haldið hefur lífi í skógareldunum í Kalíforníu og náði á tímablili styrk fellibyls, er í rénun. Þetta hafa slökkviliðsmenn nýtt sér og hafa í nótt hamast við að skvetta vatni úr flugvélum á stærstu eldana í San Bernardino fjöllunum með góðum árangri. 25.10.2007 08:06
Féll á milli skips og bryggju Maður féll á milli skips og bryggju í höfninni á Reyðarfirði í nótt. Félagi hans kallaði í talstöð skipsins eftir aðstoð, en hafði sjálfur náð að bjarga manninum upp áður en hjálp barst. 25.10.2007 08:03
Dópistum í Mosó sleppt eftir yfirheyrslur Fimm manneskjum, sem handteknar voru í heimahúsi í Mosfellsbæ snemma í gærmorgun, í annarlegu ástandi vegna fíkniefnaneyslu, var sleppt að yfirheyrslum loknum í gærkvöldi og var ekki krafist gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir neinum. 25.10.2007 07:55
Tíu létu lífið eftir að brotsjór gekk yfir olíuborpall Tíu létu lífið eftir að mikill brotsjór gekk yfir olíuborpall á Mexíkóflóa í dag. Allir starfsmenn borpallsins, 81 að tölu, neyddust til að flýja pallinn og fara í björgunarbáta. Björgunarsveitir hafa náð að bjarga 58 mönnum en yfir tuttugu er enn saknað. 24.10.2007 20:32
Fjórir létu lífið þegar fjölbýlishús sprakk í loft upp Að minnsta kosti fjórir létu lífið þegar fjölbýlishús í borginni Samara í Rússlandi sprakk í loft upp í dag. Önnur hlið hússins gjöreyðilagðist í sprengingunni. 24.10.2007 20:05
Tyrkir gera loftárás á fjallaþorp í Írak Tyrkneskar herþotur vörpuðu í dag sprengjum á kúrdískt fjallaþorp í norðurhluta Íraks. Nokkur mannvirki skemmdust í árásinni en engan sakaði að sögn yfirvalda í Írak. 24.10.2007 19:45
Rasmussen boðar til þingkosninga í Danmörku Þingkosningar verða í Danmörku eftir þrjár vikur - um einu og hálfu ári á undan áætlun. Sitjandi stórn óskar umboðs til að hrinda í framkvæmd breytingum á velferðar- og skattkerfi landsins 24.10.2007 19:22
Bush vill auka lýðræðisþróun á Kúbu Bush Bandaríkjaforseti lagði í dag fram fjölmargar tillögur sem snúa að því að auka lýðræði á Kúbu. Vill forsetinn meðal annars auka stuðning við lýðræðisleg öfl á Kúbu og opna fyrir hvers konar góðgerðarstarfsemi þar í landi. 24.10.2007 19:16
Vilja auka umhverfisvitund Frakka Frestun vegaframkvæmda og lagningu nýrra flugvalla er meðal þess sem lagt er til í skýrslu starfshóps um stefnumótun í frönskum umhverfismálum sem Nicolas Sarkozy, forset Frakklands, skipaði. Þá er ennfremur lagt til að settur verður skattur á þungabifreiðar og að óumhverfisvænir bílar verði merktir sérstaklega. 24.10.2007 18:36
Mikill eldur var í húsi við Hilmisgötu Vel gekk að slökkva eld sem kviknaði í þriggja hæða húsi við Hilmisgötu í Vestmannaeyjum á fimmta tímanum. 24.10.2007 17:46
Tékkar ævareiðir út í Bandaríkjamenn Ráðamenn í Tékklandi eru ævareiðir út í bandarísk stjórnvöld eftir að þau veltu upp þeim möguleika að rússneskir hermenn gætu fengið aðstöðu á tékkneskri grund. Málið kom upp í tengslum við umræðuna um uppsetningu ratsjárstöðvar í Tékklandi vegna eldflaugavarnakerfis Bandaríkjamanna. 24.10.2007 17:31
Tveir féllu í átökum í Palestínu Tveir Palestínumenn féllu þegar til átaka kom milli þeirra og ísraelskra hermanna á Gaza svæðinu í morgun. Talsmenn ísraelska hersins segja að mennirnir hafi verið skotnir eftir að þeir skutu þremur flugskeytum í átt að Ísrael. 24.10.2007 17:07
MK hlýtur viðurkenningu Jafnréttisráðs Menntaskólinn í Kópavogi hlaut í dag jafnréttisviðurkenninguna fyrir árið 2007. Hún var afhent við hátíðlega athöfn á Nordica-hóteli í dag. 24.10.2007 17:05
Segja skógeyðingu blasa við á Hólmsheiði Stjórn Skógræktarfélags Reykjavíkur leggst alfarið gegn fyrirhuguðum byggingarframkvæmdum á Hólmsheiði og skorar á borgarstjórn Reykjavíkur að endurskoða aðalskipulag borgarinnar með það fyrir augum að finna aðrar lausnir en að ganga á verðmæt útivistarsvæði. Þetta kemur fram í umsögn félagsins um tillögu að nýju deiliskipulagi á Hólmsheiði. 24.10.2007 16:43
Stöð 2 fær átta tilnefningar til Eddunnar Átta tilnefningar til Edduverðlaunanna 2007 tengjast Stöð 2. Fréttaskýringarþátturinn Kompás er tilnefndur í flokknum Frétta- og/eða viðtalsþáttur ársins. Kompás hlaut verðlaunin í fyrra. Gamanþáttaröðin Næturvaktin fær tilnefningu fyrir leikið sjónvarpsefni og handrit. Pétur Jóhann Sigfússon fær einnig tilnefningu fyrir hlutverk sitt í þáttunum. 24.10.2007 16:32
Velferðarráð varar við áfengisfrumvarpi Velferðarráð Reykjavíkurborgar ályktaði í dag um áfengisfrumvarpið sem nú er til meðferðar á Alþingi. Ráðið varar við frumvarpinu segir rannsóknir sýni að þegar aðgegni að áfengi er aukið aukist neysla. 24.10.2007 16:31
Iceland Express býður flugfar á tæpar 6.000 kr. Frá og með hádegi á morgun og fram á mánudag getur fólk bókað flug utan með Iceland Express á 5.890 kr. og eru skattar og gjöld innifalin í þessu verði. Um takmarkaðann sætafjölda verður að ræða. 24.10.2007 16:27
Kínversku könnunargeimfari skotið á loft Kínverjar skutu í morgun á loft geimkönnunarfarinu Change'e 1 en því er ætlað að rannsaka landslag og þykkt jarðefna á tunglinu. Farinu var skotið á loft frá Xichang geimferðarmiðstöðinni í suðvesturhluta Kína. 24.10.2007 16:22
Ferja sigli átta sinnum á sólarhring milli Eyja og lands á sumrin Bæjarráð Vestmannaeyja gerir kröfu um að ferja sem sigla á milli Eyja og Bakkafjöru sigli sex sinnum á sólarhring á veturna og átta sinnum á sumrin og að far- og farmgjöld taki mið að því að um þjóðveg sé að ræða. Bæjarráðið fundaði í dag þar sem rætt var útboð á slíkri ferju. 24.10.2007 16:11
Opna aftur flotastöð við Suðurskautslandið Yfirvöld í Chile í Suður Ameríku hafa ákveðið að taka aftur í notkun flotastöð við Suðurskautslandið en stöðinni var lokað fyrir fimm árum. Vilja Chilebúar með þessu tryggja hagsmuni sína á svæðinu. 24.10.2007 16:06
Vinna hafin við nýtt varðskip Smíði nýs varðskips hófst, í ASMAR skipasmíðastöðinni í Talcahuano í Chile, þann 16. október síðastliðinn. Byrjað var að skera til stál í fyrsta hluta skipsins sem hafist verður handa við að smíða á næstu dögum. 24.10.2007 16:01
Danska ríkisstjórnin heldur velli samkvæmt skoðanakönnunum Ríkisstjórn Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmekur, heldur velli samkvæmt tveimur skoðanakönnunum sem fjallað er um á vef Berlingske Tidende. 24.10.2007 15:52
Ekkert óeðlilegt við gjaldtöku bankanna Samkeppni milli banka og fjármálastofnana hér á landi hefur aldrei verið meiri en einmitt nú að sögn framkvæmdastjóra Sambands banka og sparisjóða. Hann segir ekkert óeðlilegt við gjaldtöku bankanna og segist fullviss um að starfshópur sem nú er starfandi á vegum viðskiptaráðherra komist að sömu niðurstöðu. 24.10.2007 15:47
Össur fann brunalykt í Kalíforníu „Þetta var rétt fyrir lok vinnudags og fólk hvort sem er á leiðinni heim,“ segir Karl Guðmundsson starfsmaður Össurar í Foothill Ranch í Kalíforníu. Skrifstofa stoðtækjafyrirtækisins var rýmd í fyrradag vegna skógareldanna en engin hætta var á ferðum að sögn Karls. 24.10.2007 15:40
Lítið barn í dópgreni í Breiðholti Lögreglan handtók tvo karla og konu eftir að töluvert magn fíkniefna fannst við húsleit í Breiðholti í nótt. Kom til átaka á milli lögreglu og annars mannanna við handtöku. 24.10.2007 15:36
Fimm handteknir í annarlegu ástandi í Mosfellsbæ Lögreglan á höfuðborgarsvæðin handtók fimm manns og lagði hald á nokkurt magn af lyfjum og haglabyssu í heimahúsi í Mosfellsbæ í nótt. 24.10.2007 15:25
Skákborðsraðmorðinginn fundinn sekur Rússneski raðmorðinginn Alexander Pichushkin var fyrir dómi í Moskvu í morgun fundinn sekur um að hafa myrt 48 manns og fyrir þrjár morðtilraunir. Pischushkin ætlaði sér að merkja alla 64 reiitna á skákborði með nöfnum fórnarlamba sinna og hefur hann því fengið viðurnefnið "skákborðs morðinginn" í rússneskum fjölmiðlum. 24.10.2007 15:13
Ísland of lítið fyrir gjafasæðisbanka Þórður Óskarsson, læknir og sérfræðingur hjá Art Medica, segir íslenskt samfélag of lítið til þess að það borgi sig að koma á fót gjafasæðisbanka líkt og tíðkast í útlöndum. Auk þess yrði með slíku hætta á of miklum skyldleika milli gjafa og þega. Hann segir hins vegar að ekkert standi í vegi fyrir því að íslenskir karlar gefi sæði til tæknifrjóvgana hér á landi. 24.10.2007 15:03
Tilnefningar til Edduverðlauna 2007 Tilnefningar til Edduverðlaunanna 2007 voru kynntar fyrir stundu. Verðlaunin verða afhent í níunda sinn við hátíðlega athöfn á Hótel Nordica 11. nóvember næstkomandi. Það eru meðlimir Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar sem kjósa úr hópi tilnefndra, en þeir telja um 700 manns. 24.10.2007 15:00
Skilar sér í lækkun til neytenda Formaður Neytendasamtakanna fagnar yfirlýsingu viðskiptaráðherra um afnám stimpil- og vörugjalda á næstu mánuðum og styrkingu neytendamála. Hann segist fullviss um að þetta skili sér í lækkun til neytenda. 24.10.2007 14:24
Gaf Landspítalanum fimm milljónir til tækjakaupa Forsvarsmenn Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélags Íslands afhentu í morgun forstjóra Landspítalans fimm milljónir króna að gjöf til þess að kaupa tæki sem tengjast meðferð alvarlegra brunaáverka á börnum. 24.10.2007 13:57
Lögregla í Stuttgart eltist við strokuhumra Lögregla í Stuttgart þurfti að eltast við óvenjulegan hóp strokufanga um helgina þegar hópur humra slapp úr asískri matvöruverslun í borginni. Undandi vegfarandi hafði samband við lögreglu þegar hann sá humrana á rölti niður götuna. Humrarnir sluppu með því að troða sér gegnum glufu á búrinu sínu, og komust út á götu gegnum hálf opnar búðardyrnar. 24.10.2007 13:35
Hyggst ræða við nýjan ráðherra um kúakyn Formaður Nautgriparæktarfélags Íslands, sem vann að því fyrir nokkrum árum að fá að flytja inn erfðaefni fyrir nýtt kúakyn, býst við því að leita hófanna hjá nýjum landbúnaðarráðherra um möguleikann á innflutningi. 24.10.2007 13:18
Verðlaunahafar Eddunnar 2005 Dagur Kári var sigurvegari Edduverðlaunanna árið 2005. Mynd hans Voksne mennesker hlaut fjögur verðlaun. Verðlaunahafar hátíðarinnar fyrir tveimur árum voru: 24.10.2007 13:15
Vill banna kaup á kynlífsþjónustu Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður Vinstri Grænna, mun í næstu viku leggja fram frumvarp um siðareglur fyrir opinbera starfsmenn í vinnuferðum erlendis. Í þeim verður lagt blátt bann við því aðp opinberir starfsmenn kaupi sér kynlífsþjónustu hvers konar. 24.10.2007 13:06
Rætt um að einkavæða sundlaugarrekstur í Kópavogi Íþrótta- og tómstundaráð Kópavogsbæjar hefur nú til umfjöllunar erindi frá fyrirtækinu Rækt ehf, um að það taki að sér rekstur Sundlaugar Kópavogs. Í samtali við Vísi segir Gunnar Birgisson bæjarstjóri að sér lítist bara vel á hugmyndina við fyrstu sýn þó hann hafi ekki kynnt sér hana til hlítar. 24.10.2007 12:58
Vinsælasti sjónvarpsþátturinn 2007 Þau nýmæli verða á Edduhátíðinni í ár að almenningur velur fimm vinsælustu sjónvarpsþættina með netkosningu á Vísi. Vinnigshafinn verður síðan valinn með símakosningu á meðan beinni útsendingu verðlaunanna stendur. Kosningin hefst á Vísi næstkomandi þriðjudag. 24.10.2007 12:29
Miklir möguleikar í þorskeldi á Vestfjörðum Bæjarstjórinn á Ísafirði telur mikla möguleika í þorskeldi á Vestfjörðum enda falli sú grein vel að þeirri þekkingu sem er til staðar á svæðinu. Vestfirðingar ætla að blása til sóknar í atvinnumálum með nýsköpun að vopni. 24.10.2007 12:08
Þykja hafa sloppið ótrúlega vel í ofsahraðaslysi Það þykir ganga kraftaverki næst að karl og kona skyldu hafa sloppið lítið meidd og ekki hafa skaðað aðra þegar bíll þeirra fór bókstaflega í tætlur á ofsahraða á Kringlumýrarbrautinni seint í gærkvöldi. 24.10.2007 11:58
Verðlaunahafar Eddunnar 2006 Mýrin, Kvikmynd Baltasar Kormáks, var sigurstranglegust á Edduverðlaununum árið 2006. Myndin hlaut fimm verðlaun. Mynd Ragnars Bragasonar, Börn, var framlag Íslands til Óskarsverðlauna, en verðlaunin skiptust svona: 24.10.2007 11:51
Stimpil- og vörugjöld burt á næstu mánuðum Stimpil- vörugjöld verða lögð niður á næstu mánuðum og lagafrumvarp um greiðsluaðlögun lagt fram á yfirstandandi þingi að sögn Björgvins G. Sigurðssonar viðskiptaráðherra sem í morgun kynnti heildarstefnumótun á sviði neytendamála sem hann hyggst hrinda af stað. 24.10.2007 11:41
Föngum sleppt til að berjast við eldana Slökkviliðsmenn sem berjast við skógareldana í Suður-Kaliforníu hafa fengið hjálp úr ýmsum áttum, meðal annars hefur föngum verið sleppt úr fangelsum í Kaliforníu, hjálp hefur borist frá Mexíkó auk annarra fylkja Bandaríkjanna. 24.10.2007 11:32