Rasmussen boðar til þingkosninga í Danmörku 24. október 2007 19:22
Þingkosningar verða í Danmörku eftir þrjár vikur - um einu og hálfu ári á undan áætlun. Sitjandi stórn óskar umboðs til að hrinda í framkvæmd breytingum á velferðar- og skattkerfi landsins. Þegar forsætisráðherra tilkynnti að hann ætlaði að ávarpa danska þingið í morgun var ljóst að það myndi draga til tíðinda. Fogh Rasmussen, leiðtogi Venstre, varð forsætisráðherra í stjórn borgaraflokka í kosningum í nóvember 2001. Í janúar 2005 boðaði hann svo til kosninga með þriggja vikna fyrirvara og hélt velli. Það sama gerir hann nú með jafn löngum fyrir vara - einu og hálfu ári fyrr en hann þarf. Ástæðan nú er sú sama og 2005 - gott gengi í skoðanakönnunum. Rasmussen segist vilja endurnýjað umboð til að hrinda í framkvæmd umbótum á velferðar- og skattkerfi landsins. Þannig skapist ró um það verkefni. Efnahagsmál, skattalækkanir, innflytjendamál og nýr sáttmáli Evrópusambandsins, sem kemur í stað hugmynda um stjórnarskrá, verða án efa einhver stærstu kosningamálinu að þessu sinni. Stjórnmálaskýrendur í Danmörku segja Fogh Rasmussen vilja fara í kosningar á eigin forsendum og því blási hann til þeirra svo snemma. Hann voni það einnig að flokkur sinn nái það miklu fylgi að ríkisstjórnin þurfi ekki lengur stuðning danska þjóðarflokksins. Einnig er talið að með endurnýjuðu umboði leiti Fogh Rasmussen frekari stuðnings hjá nýjum miðjuflokki - Nýja bandalaginu. Helel Thorning-Schmidt, nýr leiðtogi danskra jafnaðarmanna, segist þess fullviss að hún og hennar flokkur hafi betur í baráttunni.
Mest lesið Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Innlent Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Innlent Segist saklaus Innlent „Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ Innlent „Allt lýðræðið þurrkað út“ Innlent „Eins og best verður á kosið í heiminum“ Innlent Óvissustig í Súðavíkurhlíð Innlent Meðalbiðtími fimmfalt lengri en viðmið landlæknis Innlent Axel segist fórnarlamb subbulegra og fullkomlega tilhæfulausra ærumeiðinga Innlent Bjargað af þakinu eftir að bíllinn fór í kaf Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Þrír handteknir í tengslum við sprengingu í Ósló Úthýsa aðalsmönnum úr lávarðadeild breska þingsins Segir nánast ekkert ósprengt í Íran og að stríðinu gæti lokið fljótt Ráðist á þrjú skip á Persaflóa í nótt Mojtaba Khamenei særður en óhultur Segir Ísland geta klárað viðræður á einu og hálfu ári Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Íhuga að fara inn í Íran til að ná í auðgað úran Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Sex látnir eftir eldsvoða í strætisvagni Talin hafa skotið tíu skotum í átt að heimili Rihönnu Bera kennsl á fleiri möguleg fórnarlömb lögreglumanns Snúa sér aftur að kjarnorku fimmtán árum eftir Fukushima Gefa ekki eftir fyrr en „óvinurinn hefur verið gersigraður“ Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Íranir enn vígreifir „Höfum ekki unnið nóg“ Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sjá meira