Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Býflugnabændur kynna afurðir í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum Uppskeruhátíð býflugnabænda verður haldin í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal í Reykjavík milli klukkan tvö og fjögur í dag. Þar munu býflugnabændur kynna býflugnarækt og gefa gestum kost á að bragða á íslensku hunangi. Lifandi býflugur verða til sýnis. Einnig verður íslenskt hunang boðið til sölu. 23.9.2007 10:57
Ætla að auka hlutverk sitt í Írak Sameinuðu þjóðirnar ætla að auka hlutverk sitt í Írak og aðstoða við að ná sáttum milli andstæðra fylkinga. 23.9.2007 10:50
Yasuo Fukuda verður forsætisráðherra Japans Stjórnarflokkurinn í Japan kaus í dag Yasuo Fukuda sem formann flokksins, sem þýðir að hann verður forsætisráðherra Japans. 23.9.2007 10:45
Þekktasti látbragðsleikari heims látinn Þekktasti látbragðsleikari heims, Marcel Marceau, er látinn. Skrifstofa forsætisráðherra Frakklands skýrði frá þessu í dag. Marceau var 84 ára. Hann var heimsþekktur fyrir list sína og gat galdrað fram bæði hlátur og grát hjá áhorfendum. 23.9.2007 10:34
Vatnflóð ógna Afríkuríkjum Hjálparstofnanir segja að mikillar aðstoðar sé þörf á flóðasvæðum í Afríku, þar sem ein og hálf milljón manna í átján löndum hafa orðið fyrir búsifjum. 23.9.2007 10:25
Enn spáð óveðri Engar fréttir hafa borist af tjóni vegna hvassviðris á landinu en stormviðvörun er enn í gildi hjá Veðurstofu Íslands. 23.9.2007 10:21
Tveir gistu fangageymslur á Suðurnesjum í nótt Erill hefur verið hjá lögreglu á Suðurnesjum um helgina. Tveir gistu fangageymslur lögreglunnar þar í bæ í nótt, annar vegna ölvunar og óláta á skemmtistað og hinn er grunaður um líkamsárás. Er það mál í rannsókn. 23.9.2007 10:14
Erilsöm nótt hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu Nóttin var erilsöm hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Tuttugu og sex voru handteknir vegna brota á lögreglusamþykkt og voru fangageymslur fullsetnar. Talsvert var um minniháttar slagsmál en enginn slasaðist alvarlega í þeim. Nokkrir voru teknir grunaðir um neyslu eða vörslu fíkniefna. 23.9.2007 10:08
Pólska skútan fundin Pólska skútan sem hvarf á hafsvæðinu milli Íslands og Skotlands kom í leitirnar í nótt. Var hún þá stödd við Orkneyjar. 23.9.2007 09:57
Pólska skútan komin í leitirnar Pólska skútan sem hvarf á hafsvæðinu milli Íslands og Skotlands kom í leitirnar í nótt. Var hún þá stödd við Orkneyjar. Sjö voru um borð í skútinni og sakaði engan samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni. Björgunarbátur frá Orkneyjum er nú að færa skútuna til hafnar. 23.9.2007 09:46
Samgönguvika við Tjörnina Fjölmargir tóku þátt í lokadegi Samgönguvikunnar við Tjörnina í miðborg Reykjavíkur í dag. Boðið var upp á hóphjólreið og spennandi hjólreiðakeppni. 22.9.2007 19:00
Tíu þúsund munkar mótmæla í Myanmar Nærri tíu þúsund Búddamunkar mótmæltu herstjórninni í Myanmar í dag. Þetta eru umfangsmestu mótmælaaðgerðir í landinu í tæp tuttugu ár. 22.9.2007 18:58
Rannsaka hvort aukning á vatnsmagni hafi átt þátt í slysi í Soginu Lögreglan á Selfossi rannsakar nú hvort breyting á vatnsrennsli í Soginu þegar meira vatni var hleypt í gegnum Írafossvirkjun hafi haft áhrif á það að mennirnir sem voru þar á veiðum á miðvikudag féllu í ána. Annar mannanna komst við illan leik til lands en hinn er látinn. 22.9.2007 18:45
Úrskurðaðir í gæsluvarðhald grunaðir um kókaínsmygl Um 1800 millítrar af kókaíni í fljótandi formi fundust við húsleit í Laugarneshverfi síðdegis í gær. Tveir menn hafa verið úrskurðaðir í fjögurra daga gæsluvarðhald vegna málsins 22.9.2007 18:32
Rannsóknin teygir anga sína til Tékklands Fáskrúðsfjarðarmálið teygir anga sína alla leið til Tékklands þar sem einn hinna grunuðu var eftirlýstur. Þá rannsakar lögreglan nú meðal annars hvort skútan hafi verið notið til fíkniefnaflutnings fyrir tveimur árum þegar hún kom til Fáskrúðsfjarðarhafnar. 22.9.2007 18:28
Búið að úrskurða meinta kókaínsmyglara í gæsluvarðhald Tveir karlar, annar á fertugsaldri og hinn um fertugt, hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til miðvikudagsins 26. september. Þeir eru grunaðir um innflutning á ætluðum fíkniefnum frá Suður-Ameríku 22.9.2007 17:18
Segir baráttu fyrir sameign á náttúruauðlindum tvísýna Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, sagði á fundi flokkstjórnar Samfylkingarinnar á Selfossi í dag að stjórnlaust kapphlaup um náttúruauðlindir, sem með réttu væru þjóðarinnar allrar, kallaði á tvísýna varnarbaráttu þeirra sem vildu tryggja skilgreinda sameign þjóðarinnar á sínum auðlindum. 22.9.2007 16:55
Velti bíl undir áhrifum fíkniefna Einn var fluttur á slysadeild eftir umferðarslys i Þrengslunum um eittleytið í dag. Slysið varð með þeim hætti að ökumaðurinn ók bíl sínum aftan á annan bíl sem stefndi í sömu átt. Við áreksturinn missti hann stjórn á bílnum og keyrði út af veginum með þeim afleiðingum að bíllin velti. Ökumaðurinn hlaut minniháttar meiðsl. Hann er grunaður um að aka undir áhrifum fíkniefna. 22.9.2007 16:14
Segir mannræningjann hafa falið sig inni á herberginu Gerry McCann, faðir Madeleine litlu, er sannfærður um að sá sem rændi dóttur hans hafi falið sig inni á hótelherbergi fjölskyldunnar þegar hann leit inn til barnanna sinna þann örlagaríka dag þegar dóttir hans hvarf. 22.9.2007 15:15
Átján hundruð millilítrar af kókaíni í fljótandi formi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun fara fram á gæsluvarðhald yfir tveimur körlum sem eru grunaðir um innflutning á ætluðum fíkniefnum frá Suður-Ameríku. Talið er að um sé að ræða 1800 ml af kókaíni í fljótandi formi. Mennirnir, annar á fertugsaldri en hinn um fertugt, voru handteknir í Laugarneshverfi í Reykjavík síðdegis í gær. 22.9.2007 14:07
Vilja aflétta trúnaði af upplýsingum um Gagnaveitu Reykjavíkur Fulltrúar Samfylkingarinnar í stjórn og varastjórn Orkuveitu Reykjavíkur, þau Sigrún Elsa Smáradóttir og Dagur B Eggertsson, hafa farið fram á við forstjóra og stjórnarformann að leynd verði aflétt af niðurstöðu verðmats á Gagnaveitu Reykjavíkur 22.9.2007 13:53
Ingibjörg Sólrún gagnrýnir hagstjórn síðustu ríkisstjórnar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, sagði við upphaf flokkstjórnarfundar á Selfossi í hádeginu að lausatök í hagstjórninni og fjáraustur úr ríkissjóði í aðdraganda kosninga setji nýrri ríkisstjórn miklar skorður við gerð fjárlaga fyrir næsta ár. 22.9.2007 13:46
Vilja laða starfsfólk að leikskólum Bæta á vinnuaðstöðu í leikskólum Kópavogs og auka greiðslur vegna kostnaðar í starfi kennarar samkvæmt nýrri aðgerðaráætlun sem kynnt var í gær. Markmiðið er að laða starfsfólk að leikskólum og auka fagþekkingu. 22.9.2007 12:26
Þrennt í haldi lögreglu Tveir karlmenn og ein kona eru í haldi lögreglu, grunuð um smygl á kókaíni frá Bandaríkjunum. Sérsveit lögreglu réðst til inngöngu í hús í Laugarneshverfi í gærkvöld og handtók fólkið. 22.9.2007 12:24
Rannsakað hvort skúta hafi áður verið notuð til smygls Lögreglan rannsakar nú hvort skútan Lucky Day sem kom til Fáskrúðsfjarðarhafnar fyrir tveimur árum hafi verið notuð til fíkniefnainnflutnings. 22.9.2007 12:22
Fujimori segist rólegur yfir framsalinu Alberto Fujimori fyrrum forseti Perú segist vera alveg rólegur þó að hann eigi yfir höfði sér að verða framseldur frá Chile til heimalands síns, þar sem hann hefur verið ákærður fyrir spillingu og morð. 22.9.2007 12:17
Munkar mótmæla í Myanmar Hundruð Búddamunka í Mýanmar, sem áður hét Burma, örkuðu um götur Mandalay í norðurhluta landsins til að mótmæla herstjórninni í landinu. Fleiri en þúsund manns fylgdust með göngunni og sýndu þannig stuðning við munkana. 22.9.2007 12:14
Öflugasta skólastjórn Íslands Í stjórn Hjallastefnunnar sem rekur átta leikskóla víðsvegar á Íslandi situr einvalalið. Flest þeirra sem skipa stjórnina hafa verið áberandi í íslensku atvinnulífi. Öll eiga þau það sameiginlegt að hafa verið áberandi í fjölmiðlum að undanförnu. 22.9.2007 12:11
Faðmlög á fimmtíu kall Æskulýðsfélag Ísafjarðarkirkju beitti nýstárlegum fjáröflunaraðferðum á Ísafirði í gær. Félagsmenn seldu faðmlög í gær fyrir utan verslunarmiðstöðina Neista á Ísafirði á aðeins 50 krónur. 22.9.2007 10:32
Kostunica vill ekki veita Kosovo sjálfstæði Kostunica forsætisráðherra Serbíu varaði við því í dag að Kosovo yrði veitt sjálfstæði. Hann sagði að sig grunaði að Bandaríkjastjórn myndi knýja fram sjálfstæði Kosovo en að slíkt myndi leiða til ofbeldisverka sem ekki hefðu sést síðan Sameinuðu þjóðirnar voru stofnaðar. Hann útskýrði orð sín ekki nánar. 22.9.2007 10:25
Castro las ævisögu Greenspan Fídel Castro forseti Kúbu kom fram í sjónvarpi í heimalandi sínu í gærkvöldi í fyrsta sinn í þrjá mánuði. Hann var veiklulegur og hás en augljóslega með fullum sönsum. 22.9.2007 10:21
Stormviðvörun Veðurstofan hefur sent frá sér stormviðvörun vegna djúprar lægðar sem er að nálgast landið. Spáð er að veðrið verði verst á sunnanverðu og suðaustanverðu landinu. 22.9.2007 09:45
Fjórtán handteknir í höfuðborginni Fjórtán voru handteknir í höfuðborginni í nótt fyrir brot á lögreglusamþykkt sem er mun minna en síðustu helgar. Segja lögreglumenn það bera vott um að herferð lögreglu í borginni sé að skila árangri. 22.9.2007 09:38
Sænskir glæpamenn á íslenskum hestum Hrafnkell Karlsson sem rekur hestaleigu með íslenska hesta í Svíþjóð fékk heldur óvenjulega viðskiptavini í gær. Þá var komið til hans með sjö hættulega fanga sem ásamt fangavörðum fóru með þeim í fimm klukkustunda útreiðatúr. 22.9.2007 09:38
Skútan hafði ekki viðdvöl í Danmörku Færeyska lögreglan segir að smyglskútan hafa beðið í nokkra daga í Færeyjum áður en hún hélt af stað til Íslands. Skútan kom frá Noregi en hafði ekki viðdvöl í Danmörku, eins og haldið hefur verið fram. 21.9.2007 20:49
Aðgerðaáætlun gegn manneklu á leikskólum Bæjarráð Kópavogs hefur samþykkt að veita tveimur leikskólum aukið fjárhagslegt og faglegt sjálfstæði í tilraunaskyni til þess að auka stöðugleika í starfsmannahaldi leikskólans og laða starfsfólk að leikskólum. 21.9.2007 16:42
Höfuðpaurarnir taldir vera tveir Bjarni Hrafnkelsson, 35 ára gamall Hafnfirðingur, og Einar Jökull Einarsson, 27 ára gamall Garðbæingur, eru samkvæmt heimildum Vísis taldir vera höfuðpaurar í Stóra smyglskútumálinu sem kom upp á Fáskrúðsfirði í gær. Þeir voru báðir handteknir á höfuðborgarsvæðinu í gærmorgun og úrskurðaðir í fjögurra vikna gæsluvarðhald í framhaldinu. 21.9.2007 16:35
Vill ekki fallast á launakröfur fyrrverandi ritstjóra Tekist var á um launakröfu Bjarna Brynjólfssonar, fyrrverandi ritstjóra Séð og heyrt, á hendur tímaritaútgáfunni Fróða í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Skiptastjóri þrotabús Fróða hefur hingað til ekki viljað fallast á allar kröfur Bjarna. 21.9.2007 16:31
Íslensku pari sleppt í Kaupmannahöfn Íslendingunum tveimur sem handteknir voru í Kaupmannahöfn í tengslum við smyglskútumálið á Fáskrúðsfirði hefur verið sleppt úr haldi. Fréttamaður Stöðvar 2 í Danmörku, Sighvatur Jónsson, segir að mál þeirra sé höndlað sem staðbundið fíkniefnamál í Kaupmannahöfn og tengist ekki smyglmálinu. Heimildir Vísis herma að um sé að ræða karl og konu á þrítugsaldri. 21.9.2007 16:24
Nýir eigendur að næstelsta hlutafélagi landsins Næstelsta hlutafélag landsins, Slippfélagið í Reykjavík, skipti um eigendur í dag þegar bræðurnir Pétur Már og Ástgeir Finnsson keyptu félagið. 21.9.2007 16:09
Saka borgaryfirvöld um yfirgang Íbúar við Ánanaust í Reykjavík segja að borgaryfirvöld hafi virt þá að vettugi með því að heimila landfyllingu í fjörunni fyrir framan hús þeirra. Um er að ræða jarðveg sem fellur til vegna framkvæmda við tónlistar- og ráðstefnuhús við Austurhöfnina. Þeir óttast verulegar raskanir á nánasta umhverfi og að jarðvegurinn sé mengaður. 21.9.2007 15:42
Slíta viðræðum við Landsvirkjun vegna Urriðafossvirkjunar Eigendur jarðar við Þjórsá hafa slitið viðræðum við Landsvirkjun í tengslum við byggingu Urriðafossvirkjunar vegna of margra óvissuþátta í framkvæmdinni. Þetta kemur fram í bréfi sem lögmaður landeigendanna hefur sent stjórn Landsvirkjun. 21.9.2007 15:35
Þrír fluttir á slysadeild eftir árekstur lögreglubíls og fólksbíls Þrír menn, þar af tveir lögreglumenn, voru fluttir á slysadeild eftir að lögreglubíll og fólksbíll rákust saman á mótum Kringlumýrarbrautar og Suðurlandsbrautar um þrjúleytið. 21.9.2007 15:19
Fallist á áætlun um kísilverksmiðju í Helguvík Skipulagsstofnun hefur fallist á tillögu Tomahawk Development að matsáætlun um kísilverksmiðju í Helguvík með skilyrðum. Félagið skilaði í síðasta mánuði inn tillögu að matsáætlun. 21.9.2007 15:01
Grunaðir bræður komu á skútu til Fáskrúðsfjarðar 2005 Tveir af mönnunum, sem nú sitja í gæsluvarðhaldi vegna smyglmálsins í skútunni á Fáskrúðsfirði, eru þeir sömu og sigldu skútu til Fáskrúðsfjarðar í september fyrir tveimur árum og báru við vélarbilun. Þá fóru þeir í land og fengu að hringja, líkt og skútumennirnir gerðu í gærmorgun. 21.9.2007 14:53