Innlent

Rannsóknin teygir anga sína til Tékklands

Fáskrúðsfjarðarmálið teygir anga sína alla leið til Tékklands þar sem einn hinna grunuðu var eftirlýstur. Þá rannsakar lögreglan nú meðal annars hvort skútan hafi verið notið til fíkniefnaflutnings fyrir tveimur árum þegar hún kom til Fáskrúðsfjarðarhafnar.

Lögeglan í Tékklandi lýsti fyrr á þessu ári eftir Einari Jökli Einarssyni sem nú situr í gæsluvarðhaldi vegna Fáskrúðsfjarðarmálsins. Hún lýsti meðal annars eftir honum á heimasíðu sinni.

Nú er einnig verið að rannsaka hvort fjársterkur maður sem fyrir nokkrum árum fékk fimm ára fangelsi fyrir fíkniefnasmygl sé tengdur smyglinu nú og hafi hugsanlega fjármagnað fíkniefnakaupin. Hann mun hafa sést í Prag fyrr á þessu ári.

Skömmu eftir aðgerðir lögreglu á Fáskrúðsfirði á fimmtudag var búið að taka allar upplýsingar um Einar Jökul af heimasíðu tékknesku lögreglunnar. Í samtali við fréttastofu vildi talsmaður hennar ekkert segja um ástæðu þess að Einar Logi var eftirlýstur þar í landi en vísaði til lögregluyfirvalda á Íslandi.

Lögreglan hér á landi sagði ekki tímabært að segja til um það hvort rannsóknin hafi teygt sig til Tékklands en sagði hana fara fram víða í Evrópu.

Lögreglan rannsakar nú einnig hvort skútan Lucky Day, sem siglt var til Fáskrúðsfjarðar fyrir tveimur árum, hafi verið notuð til fíkniefnainnflutnings þá. Eins og fram hefur komið í fréttum sigldi Einar Jökull ásamt öðrum manni skútunni Lucky Day til Fáskrúðsfjarðar árið 2005. Þá tók hann allt hafurtask úr henni og skildi skútuna eftir í höfninni. Síðar kom í ljós að bróðir Einars Jökuls, Logi Freyr Einarsson, greiddi af henni hafnargjöld. Logi Freyr er nú í haldi norsku lögreglunnar.

 

Skútan sem kom til Fáskrúðsfjarðar á fimmtudag er nú komin til Reykjavíkur. Að sögn lögreglu er verið að gera ítarrannsókn á henni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×