Innlent

Skútan hafði ekki viðdvöl í Danmörku

Þórir Guðmundsson skrifar
Færeyska lögreglan segir að smyglskútan hafa beðið í nokkra daga í Færeyjum áður en hún hélt af stað til Íslands. Skútan kom frá Noregi en hafði ekki viðdvöl í Danmörku, eins og haldið hefur verið fram.

Í Stafangri er nú einn Íslendingur í haldi lögreglu. Lögregla hefur ekki óskað eftir að hann verði settur í gæsluvarðhald en hefur fram á sunnudagsmorgun til að gera það. Samkvæmt heimildum Stöðvar tvö er allt eins líklegt að maðurinn verði sendur til Íslands í yfirheyrslu hér.

Skútan kom frá Noregi, hugsanlega Stafangri, og fór þaðan til Færeyja. Yfirmaður hjá færeysku lögreglunni segir hugsanlegt að skútan hafi komið við á Hjaltlandseyjum en hún fór ekki til Danmerkur, eins og haldið hefur verið fram. Skútan var í nokkra daga í nágrenni Þórshafnar, en þar var slæmt í sjóinn.

Fyrir síðustu helgi var vindhraði rúmlega fimmtán metrar á sekúndu við Þórshöfn. En þegar rofaði til eftir helgina lögðu Íslendingarnir tveir út á haf. Skútan var tvo daga á leiðinni til Íslands, og þegar hún fór að nálgast austurströndina á miðvikudagskvöld hefur hún væntanlega siglt framhjá Norrænu, sem þá lagði af stað frá Seyðisfirði til Noregs.

Skömmu síðar, um miðnætti á miðvikudag, tóku menn eftir því á Austurlandi að þyrla landhelgisgæslunnar var á leið til lendingar á Egilsstöðum.

Á fimmtudagsmorgun, sama tíma og lögregla lét til skarar skríða á Fáskrúðsfirði, handtók svo færeyska lögreglan tvo menn, Færeying og Íslending. Íslendingurinn var nú fyrir stundu dæmdur í gæsluvarðhald í fjórar vikur. Hinn bíður ákvörðunar dómara en lögregla bað um jafn langt gæsluvarðhald fyrir hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×