Innlent

Íslensku pari sleppt í Kaupmannahöfn

Íslendingunum tveimur sem handteknir voru í Kaupmannahöfn í tengslum við smyglskútumálið á Fáskrúðsfirði hefur verið sleppt úr haldi. Fréttamaður Stöðvar 2 í Danmörku, Sighvatur Jónsson, segir að mál þeirra sé höndlað sem staðbundið fíkniefnamál í Kaupmannahöfn og tengist ekki smyglmálinu. Heimildir Vísis herma að um sé að ræða karl og konu á þrítugsaldri.

Um 200 grömm af fíkniefnum fundust í fórum parsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×