Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tveir ökuþórar teknir í Reykjavík Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í gærkvöldi karlmann á fertugsaldri fyrir að aka bifhjóli á 166 kílómetra hraða á Miklubraut. Maðurinn var sviptur ökuleyfi til bráðabirgða en hámarkshraði á þeim kafla þar sem hann var tekinn er 60 kílómetrar á klukkustund. 2.8.2007 14:47
Mótmælaskilti rifin niður í skjóli nætur Andstæðingar virkjana í neðri hluta Þjórsár eru í öngum sínum eftir að skilti sem þeir settu upp til þess að mótmæla virkjunaráformunum voru rifin niður í nótt. Skiltin voru tvö, og var öðru þeirra komið fyrir á hlaði bóndans sem setti það upp. Hitt skiltið er enn ekki komið í leitirnar. Málið hefur verið tilkynnt til lögreglu en formleg kæra hefur ekki borist. 2.8.2007 14:27
Reyna að setja heimsmet í fisflugi Orustuflugmenn í indverska flughernum freista þess að setja heimsmet í hnattflugi á vélknúnum fisflugvélum. Ágúst Guðmundsson, tengiliður mannanna á Íslandi, segir að vélin sé nú stödd í Kulusuk á Grænlandi. 2.8.2007 14:18
Fjórir sóttu um stöðu hæstaréttardómara Fjórir sóttu um embætti hæstaréttadómara sem skipað verður í frá og með 1. september 2007. Umsóknarfresturinn rann út þriðjudaginn 31. júlí síðastliðinn. 2.8.2007 14:09
Össur ekki hrifinn af hugmyndum um olíuhreinsistöð Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra segist ekki vera hrifinn af hugmyndum um olíuhreinsistöð á Vestfjörðum. Hann segir að ráðuneytið ætli ekki að leggjast í neinar athugunar vegna málsins. Þetta kemur fram í viðtali við ráðherrann á vef Bæjarins besta. 2.8.2007 13:44
Dánartalan hækkar Fleiri lík hafa fundist í kjölfar þess að brú hrundi í Minneapolis í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Staðfest hefur verið að fjóri séu látnir en Reuters fréttastofan hefur eftir lögreglustjóranum í borginni að fleiri hafi fundist látnir á slysstaðnum. Hann vildi þó ekki segja hve mörg lík hefðu fundist til viðbótar. 2.8.2007 13:22
Lögreglan boðar viðamikið eftirlit um verslunarmannahelgi Fylgst verður grannt með íbúarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu um næstu helgi til að koma í veg fyrir innbrot. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni sem boðar viðamikið eftirlit um næstu helgi. Fólk er hvatt til að láta vita um grunsamlegar mannaferðir. 2.8.2007 13:16
Borgarráð fundar með lögreglustjóra vegna ofbeldis í miðbænum Fulltrúar Samfylkingarinnar í borgarráði hafa óskað eftir að skilyrði rekstrarleyfa veitingastaða varðandi umgengni og öryggi verði tekið til endurskoðunar. Tilefnið er fólskuleg árás þriggja stúlkna á konu í miðbæ Reykjavíkur um síðustu helgi. Borgarráð hefur ákveðið að kalla lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins á sinn fund til að ræða aukna löggæslu í miðborginni. 2.8.2007 13:12
Vilja nýjan Herjólf Vinstri grænir á Suðurlandi vilja að fenginn verði nýr Herjólfur til að leysa núverandi skip af hólmi á leiðinni Vestmannaeyjar – Þorlákshöfn. Skipið skuli fullnægja flutningsþörfinni og fara 3 ferðir á sólarhring. 2.8.2007 12:45
Kristín Ástgeirsdóttir skipuð framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, hefur skipað Kristínu Ástgeirsdóttur í embætti framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu. Hún er skipuð til fimm ára frá og með 1. september næstkomandi. 2.8.2007 12:25
Sláturhús sögð hindra innflutning á kjöti Sláturhús eru sökuð um að beita bellibrögðum til þess að hindra innflutning á kjöti á svokölluðum núllkvóta. Og landbúnaðarráðuneytið er sakað um að líta á þetta með velþóknun. Formaður neytendasamtakanna segir að útboðsaðferðin sé gersamlega misheppnuð. Fjölmargir fagaðilar hafa tjáð sig um þennan kjötinnflutning í fjölmiðlum undanfarið. Þarna er verið að fjalla um 550 tonn af kjöti sem boðin voru út í mars á núll krónur í toll. 2.8.2007 12:12
Ósamræmi milli tekjublaða Mikill munur er oft á uppgefnum tekjum einstaklinga í tekjublöðum Frjálsrar verslunar og Mannlífs. Á tekjulistum blaðanna má einnig sjá að sumir þekktir einstaklingar eiga varla til hnífs og skeiðar. 2.8.2007 12:07
Ráðherra vill einkavæða RÚV Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, vill selja RÚV ef marka má bloggfærslu hans á heimasíðu sinni í gær. Hver getur skilið færsluna eins og hann vill, segir dómsmálaráðherra. 2.8.2007 12:05
Ekið á tvö börn með stuttu millibili Ekið var á barn á hjóli við Holtsbúð í Garðabæ rétt fyrir klukkan 11 í morgun. Sjúkraflutningamenn voru kvaddir á staðinn en ekki er ljóst hvort barnið hafi slasast alvarlega. Ekið var á annað barn í Staðarhverfinu í Grafarvogi eftir hádegi í gær og var barnið flutt á bráðamótttöku Landspítala - Háskólasjúkrahúss. 2.8.2007 11:52
Lögreglustjóri Lundúna hreinsaður af ásökunum Lögreglustjóri Lundúna hefur verið hreinsaður af ásökunum um að hafa logið að almenningi í tengslum við dauða Jean Charles de Menezes. De Menezes var skotinn til bana af lögreglumönnum. Skýrslan kemst hins vegar að þeirri niðurstöðu að aðstoðarlögreglustjórinn Andy Hayman hafi villt um fyrir almenningi. 2.8.2007 11:49
Steingrímur A. Arason formaður samninganefndar heilbrigðisráðuneytisins Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðis-og tryggingamálaráðherra, hefur skipað Steingrím Ara Arason hagfræðing formann samninganefndar heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra. 2.8.2007 11:24
Bush bannar aðstoðarmanni sínum að bera vitni George Bush Bandaríkjaforseti hefur fyrirskipað fyrrum aðstoðarmanni sínum, Karl Rove, að bera ekki vitni fyrir öldungadeild Bandaríkjaþings um uppsagnir átta saksóknara. Nefnd á vegum öldungadeildarinnar rannsakar nú hvort þeim hafi verið sagt upp af pólitískum ástæðum. Stjórn Bush heldur því fram að brottreksturinn hafi verið réttlætanlegur. 2.8.2007 10:32
Nýsir kaupir allar fasteignir Háskólans á Bifröst Háskólinn á Bifröst og fasteignafélagið Nýsir hf. hafa gert með sér samkomulag um kaup fyrirtækisins á öllum húseignum skólans. Nýsir mun síðan leigja háskólanum til baka allar fasteignirnar. 2.8.2007 10:08
Íslendingur aðstoðaði við björgunarstörf Íslendingur var sjónarvottur að því þegar átta akreina brú í Minneapolis hrundi á háannatíma. Að minnsta kosti sjö létust í slysinu. Einar Guðjónsson, segir á athugasemdakerfi Vísis að hann hafi nánast séð brúna hrynja í baksýnisspeglinum örfáum mínútum eftir að hann hafði sjálfur keyrt eftir henni. 2.8.2007 09:54
Ökumenn sýni varkárni um verslunarmannahelgina Slysavarnafélagið Landsbjörg brýnir fyrir mönnum að sýna varkárni í umferðinni um verslunarmannahelgina og ítrekar nauðsyn þess að forðast framúrakstur og keyra ekki þreytt eða undir áhrifum áfengis. 2.8.2007 09:51
Mannræningjarnir höfðu leitað að fórnarlömbum um nokkurt skeið Talibanahópurinn, sem hefur tuttugu og einn suður-kóreskan gísl á valdi sínu, hafði verið að leita að fórnarlömbum um nokkurt skeið, eða frá því að æðsti maður hópsins, Daro Kahn, var handtekinn af bandarískum hermönnum í Qarabagh-héraðinu í júní. Þetta kemur fram í viðtali við einn af æðstu mönnum hópsins sem tímaritið Newsweek birtir í dag. 1.8.2007 23:23
Afrit af samskiptum brasilísku flugmannanna birt Afrit af síðustu sekúndum samskipta flugmannanna tveggja sem voru við stjórnvölinn þegar versta flugslys í brasilískri sögu átti sér stað var í dag lesið upp fyrir rannsóknarnefnd brasilíska þingsins. Samkvæmt upptökum úr flugvélinni kallaði annar flugmanna að hægja þyrfti ferðina en hinn svaraði því til að hann gæti það ekki. 1.8.2007 21:59
Bílvelta í Hvalfirði Einn maður var fluttur í skyndi með sjúkrabíl á Slysadeild í Fossvogi eftir bílveltu á Eyrarfjallsvegi við bæinn Mýrdal í Kjós. Að sögn lögrelgunnar á höfuðborgarsvæðinu átti slysið sér stað rétt eftir klukkan sjö í kvöld. Ekki liggja fyrir frekari upplýsingar að svo stöddu. 1.8.2007 21:31
Flugóhapp við Múlakot í Fljótshlíð Engan sakaði þegar nefhjólið gaf sig á tveggja hreyfla flugvél á flugvellinum við Múlakot í Fljótshlíð í kvöld. Er nefhjólið gekk upp lagðist flugvélin, sem tveir voru í, á nefið. Lögreglan á Hvolsvelli er á staðnum en frekari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu. 1.8.2007 20:48
Unglingsstúlka flutt með þyrlu á slysadeild eftir bílveltu í Gnúpverjahreppi Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti sautján ára stúlku á slysadeild í Reykjavík eftir að bíll sem hún var farþegi í valt í Gnúpverjahreppi rétt fyrir ofan Geldingaholt í kvöld. Grunur leikur á að stúlkan hafi hlotið háls- og hryggáverka. Fimm manns voru í bílnum og var stúlkan farþegi í aftursæti hans. Annar farþegi var færður til skoðunar á Heilsugæslustöðina í Laugarási en aðrir sem í bílnum voru sluppu ómeiddir að sögn lögreglunnar á Selfossi. 1.8.2007 20:39
Obama segist reiðubúinn að fyrirskipa árás á al-Kaída í Pakistan Barack Obama, frambjóðandi í forvali Demókrata til bandarísku forsetakosninganna, sagði í dag að hann væri reiðubúinn til að fyrirskipa hernaðaraðgerðir gegn al-Kaída í Pakistan án samráðs við stjórnvöld þar í landi ef hann kæmist til valda. 1.8.2007 20:03
Lindarvatn úr Eyjafjöllum uppistaðan í vestmannaeyskum bjór Lindarvatn úr Eyjafjöllunum verður uppistaðan í nýjum íslenskum bjór, framleiddum í Vestmannaeyjum, ef hugmyndir um bjórverksmiðju í Eyjum verða að veruleika. Með tilkomu Bakkafjöru lækkar flutningskostnaður bjórsins uppá fastalandið til muna. 1.8.2007 19:35
Átján ára aldurstakmark inn á tjaldsvæði á Siglufirði Aðstandendur Síldarævintýris á Siglufirði vilja í ljósi umræðu um aldurstakmörk á tjaldsvæðum um verslunarmannahelgina taka það fram að börnum yngri en 18 ára er bannaður aðgangur að tjaldsvæðum á Siglufirði nema þau séu í fylgd foreldra eða forráðamanna. 1.8.2007 19:23
Skátar fagna afmæli hreyfingarinnar Skátahreyfingin fagnar í dag eitt hundrað ára afmæli. Íslenskir skátar sem staddir eru á alheimsmóti skáta í Englandi buðu upp á kjötsúpu í tilefni dagsins. 1.8.2007 19:19
1200 milljóna króna skuld Byggðastofnunnar aflétt Iðnaðar- og fjármálaráðherra hafa ákveðið að aflétta 1200 milljóna króna skuld Byggðastofnunnar, til að koma til móts við vanda útgerðanna í kjölfar kvótaskerðingar. Þetta var tilkynnt við opnun Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands á Ísafirði í dag. 1.8.2007 19:18
Gengur á 100 hæstu tinda landsins Þorvaldur Víðir Þórisson er líklega ókrýndur háfjallakóngur Íslands. Hann hefur á þessu ári klifið sjötíu og tvo af hundrað hæstu tindum landsins og stefnir á að ljúka við að klífa þá alla fyrir fimmtugsafmælið sitt í október. 1.8.2007 19:18
Olíuverð náði sögulegu hámarki Verð á olíu náði sögulegu hámarki í dag þegar verð á olíutunnunni komst í tæpa sjötíu og níu bandaríkjadali. Talið er að hækkunina megi rekja til áhyggna af því hvort olíuframboð geti mætt eftirspurn eftir olíu á heimsvísu. 1.8.2007 19:17
Óásættanleg hegðun á Akureyri síðustu ár, ástæðan Ekki var lengur hægt að sætta sig við að öllum viðmiðum siðmenningar væri sleppt um verlsunarmannahelgi segir talsmaður tjaldsvæðanna á Akureyri um þá ákvörðun bæjaryfirvalda að setja aldurstakmark á tjaldssvæði bæjarins. Síðast liðin ár hefur gefist illa að blanda saman ungu fólki og fjölskyldufólki og því var gripið til þessa örþrifaráðs. 1.8.2007 19:01
Árni Johnsen ítrekað misst stjórn á sér og sýnt dómgreindarskort segir Þjóðhátíðarnefnd Þjóðhátíðarnefnd í Vestmannaeyjum treysti sér ekki til að bera ábyrgð á Árna Johnsen sem kynni á hátíðinni. Nefndin segir það vera vegna þess að hann hafi ítrekað misst stjórn á sér og sýnt dómgreindarskort í þeim störfum. 1.8.2007 19:00
Bankagróði 6 mánaða dygði grunnskólum í 2 ár Þrír stærstu bankar landsins högnuðust um tæpa níutíu milljarða á fyrri hluta ársins. Hagnaðurinn myndi duga til að reka alla grunnskóla á landinu í meira en tvö ár. Landsbankinn kynnti afkomu á fyrri hluta ársins í dag og er hagnaðurinn röskir 26 milljarðar. 1.8.2007 18:45
Kerfisskýring á fæð skattadrottninga Af þeim níutíu sem raðast á topp tíu lista skattaumdæmanna eru sex konur. Skattadrottning landsins er Ingunn Gyða Wernersdóttir sem greiðir þriðju hæstu skatta landsins. Margrét Kristmannsdóttir, formaður Félags kvenna í atvinnurekstri, segir fæð kvenna meðal hæstu skattgreiðenda skýrast meðal annars af því að fjármagnstekjur reiknist á þann makann sem hefur hærri launatekjur. 1.8.2007 18:45
Læknanemar dreifa 15.000 smokkum Ástráður, forvarnarstarf læknanema, hefur í samstarfi við Halldór Jónsson, innflytjanda Durex á Íslandi, og fleiri góða aðila ákveðið að hrinda af stað smokkaátaki um Verslunarmannahelgina, á Gay pride hátíðinni og á Menningarnótt. 1.8.2007 18:21
Öflugur jarðskjálfti í Vanuatu Jarðskjálfti sem mældist 7.2 á richter varð í dag 45 kílómetra suðaustur af eyjunni Santo sem tilheyrir Vanuatu eyjaklasanum. Upptök skjálftans voru á 172 kílómetra dýpi í Kyrrahafinu um 1.996 kílómetra norðaustur af Brisbane í Ástralíu. 1.8.2007 17:47
ísland yfirtekur starfsemi Ratsjárstofnunar Ísland mun yfirtaka starfsemi Ratsjárstofnunar frá og með 15. ágúst næstkomandi. Starfshópur skipaður sérfræðingum utanríkisráðuneytisins vinnur nú að undirbúningi yfirtöku íslenskra stjórnvalda á starfsemi stofnunarinnar og aðlögun að íslenskri stjórnsýslu. 1.8.2007 17:29
Hillary eykur forskot sitt Hillary Clinton, forsetaframbjóðandi í Bandaríkjunum og fyrrum forsetafrú, hefur aukið forskotið á helsta keppinaut sinn í forkosningum Demókrata ef marka má nýja skoðannakönnun sem birt var í dag. Könnunin var unnin af bandaríska dagblaðinu Wall Street Journal í samvinnu við NBC sjónvarpsstöðina. 1.8.2007 16:54
Tengsl milli tekna og offitu barna Ný rannsókn bendir til þess að börn ríkra foreldra og vinnandi mæðra séu í meiri hættu á að verða of feit. Vísindamenn hjá „The Institute of Child Health“ í London fylgdu eftir þrettán þúsund börnum frá fæðingu til þriggja ára aldurs. 1.8.2007 16:32
Rafmagn ódýrast á Íslandi Orkuveitan hefur gert samanburð á verðskrá sinni og nýrri samantekt hagstofu Evrópusambandsins. Samanburðurinn leiðir í ljós að í íslensk heimili borga lægsta raforkuverð á Norðurlöndum. Finnar koma næst Íslendingum í verði en Danir þurfa að borga tvöfalt á við viðskiptavini Orkuveitunnar. 1.8.2007 16:31
Umferðartafir á gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðarvegar Umferðarljós á gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðavegar eru óvirk sem stendur. Búast má við umferðartöfum við þessi gatnamót vegna þessa en hámarkshraði verður lækkaður tímabundið af þessum sökum. Vegfarendur eru beðnir um að velja aðrar leiðir eigi þeir þess kost. 1.8.2007 15:55
Verður boðað til kosninga í Danmörku strax í haust? Stjórnmálaskýrendur í Danmörku gera að því skóna að forsætisráðherra landsins, Anders Fogh Rasmussen, muni boða til kosninga strax í haust. Flokkur ráðherrans, Venstre, nýtur mikils fylgis í könnunum, efnahagur landsins er við góða heilsu og atvinnuleysi hefur ekki verið minna í þrjá áratugi. Kjörtímabilinu lýkur í febrúar 2009. 1.8.2007 15:53
Tekjublað Mannlífs kemur út á morgun Tekjublað Mannlífs kemur út á morgun. Í blaðinu eru birtar tekjur 2500 Íslendinga í öllum landshlutum. Í tilkynningu frá Mannlífi segir að æðstu stjórnendur fyrirtækja, bankastjórar, athafnafólk, stjórnmálafólk, lögfræðingar og dómarar séu meðal þeirra sem komIst á blað.Tekjublaðið munI einnig bregða ljósi á tekjur umönnunarstétta og fólks sem vinnI mikilvæg láglaunastörf 1.8.2007 15:09