Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Maður handtekinn í tengslum við þrefalt morð í Manchester Lögreglan í Manchester á Englandi hefur handtekið 32 ára karlmann í tengslum við morð á þriggja manna fjölskyldu. Pierre Williams er atvinnulaus og verður yfirheyrður af lögreglunni á næstunni. Hann er grunaður um að hafa myrt Kesha Wizzart, 18 ára, móður hennar Beverley Samuels, 36 ára, og bróður hennar Fred, 13 ára. 14.7.2007 15:30
24 létu lífið og 29 særðust í árás í Pakistan 24 hermenn létu lífið og 29 særðust í sjálfsmorðsárás í norðvesturhluta Pakistan í morgun. Árásarmaðurinn keyrði bíl hlöðnum sprengiefnum inn í bílalest hermanna. Önnur árás var gerð á hermenn í Pakistan í dag og í henni særðust tveir. 14.7.2007 15:12
Öryggisgæsla hert í Mogadishu Gríðarlega öryggisráðstafanir hafa verið gerðar í Mogadishu, höfuðborg Sómalíu, þar sem á að halda sátta- og friðarfund á milli fleiri en eitt þúsund fyrrum stríðsherra, öldunga og stjórnmálamanna. Fleiri hundruð hermenn hafa verið kallaðir til borgarinnar til þess að sinna gæslu. 14.7.2007 14:32
Vilt þú gista í IKEA? IKEA í Noregi hefur ákveðið að leyfa fólki að gista í búðinni. Frá 23. júlí til 27. júlí fær almenningur tækifæri til þess að gista í öllum sýningarherbergjum í búðinni. Fólk getur valið úr brúðarsvítum eða lúxussvítu en henni fylgir morgunverður í rúmið. Svo geta aðrir gist í kojum nú eða fjölskylduherbergjunum. 14.7.2007 14:12
Sjö rænt í Nígeríu Vígamenn rændu í morgun sjö starfsmönnum dýpkunarfyrirtækis í suðausturhluta Nígeríu. Fólkinu var rænt í borginni Onitsha, sem er á bökkum Níger. Mannræningjarnir hafa sett fram beiðni um lausnargjald. 14.7.2007 13:50
Baldvin Halldórsson látinn Baldvin Halldórsson, leikari og leikstjóri er látinn, 85 að aldri. Hann var einn af vinsælustu leikurum þjóðarinnar í rúma fjóra áratugi og lék nær tvö hundruð hlutverk á sviði Þjóðleikhússins. Þá var hann leikstjóri þar í rúm tuttugu ár. Eftirlifandi eiginkona hans er Vigdís Pálsdóttir og lætur hann eftir sig þrjú uppkomin börn. 14.7.2007 13:36
Enginn slasaðist í fjögurra bíla árekstri Enginn slasaðist alvarlega þegar fjórir bílar lentu í hörðum árekstri við Esjurætur, skammt frá Mógilsá á níunda tímanum í morgun. 14.7.2007 12:30
Iðnaðarráðherra ekki hrifinn af olíuhreinsistöð Iðnaðarráðherra er ekki hrifinn af þeim hugmyndum sem fram hafa komið um að setja niður olíuhreinsistöð á Vestfjörðum. Bæjarstjórinn á Ísafirði vill að kannað verði til þrautar hvort þessi iðnaður sé heppilegur. 14.7.2007 12:21
Óvenjulegt símtal til Neyðarlínunnar í Kanada Nokkrum kanadískum ungmennum brá heldur betur í brún þegar tveir fílar gerðu sig heimakomna í garðinum við hús þeirra síðastliðinn fimmtudag. Fílarnir Bunny og Suzy búa í sirkus skammt frá heimili ungmennanna í Newmarket í Ontario í Kanada. 14.7.2007 12:14
Slapp ómeiddur úr brennandi íbúð Maður slapp ómeiddur út um glugga á bakhlið á brennandi íbúð við Miklubraut, á móts við Miklatún, laust fyrir klukkan átta í morgun. Allt húsið var rýmt til öryggis. 14.7.2007 12:12
Ákærður fyrir þátttöku í sprengjutilræðum í Bretlandi Ástralska lögreglan hefur ákært Muhammad Haneef, indverskan lækni, fyrir þátttöku sína í sprengjutilræðunum í Bretlandi í lok júní. Í ákærunni sem gefin var út á hendur honum kemur fram að hann sé ákærður fyrir stuðning við hryðjuverkasamtök. 14.7.2007 12:09
Mikil aukning á akstri undir áhrifum fíkniefna Lögreglan á Selfossi tók fjóra ökumenn úr umferð í nótt grunaða um akstur undir áhrifum fíkniefna eða lyfja, en aðeins einn vegna ölvunar. Þetta eru fleiri svona atvik á einni nóttu á Suðurlandi en nokkru sinni fyrr og til samanburðar var aðeins einn tekinn grunaður um ölvunarakstur á svæði lögreglunnar í Árnessýslu í nótt. 14.7.2007 12:00
Sádi-Arabía takmarkar völd trúarbragðalögreglu Innanríkisráðuneytið í Sádi-Arabíu hefur bannað trúarbragðalögreglu landsins að taka fólk í gæsluvarðhald þar sem undanfarið hefur fólk látið lífið í haldi þeirra. Einnig hefur þeim verið bannað að reyna ná fram játningum og framvegis verður trúarbragðalögreglan að afhenda borgaralegri lögreglu landsins fólk sem það telur hafa gerst brotlegt við lögin. 14.7.2007 11:42
Átta hermenn láta lífið í sjálfsmorðsárás Átta hermenn létu lífið og 15 slösuðust í sjálfsmorðsárás í norðvesturhluta Pakistan í morgun. Þúsundir hermanna hafa verið fluttir á svæðið undanfarna daga til þess að koma í veg fyrir hugsanlegar aðgerðir herskárra múslima gegn stjórnvöldum í landinu. 14.7.2007 11:28
Starbucks lokar útibúi sínu í Forboðnu borginni Bandaríska kaffihúsakeðjan Starbucks hefur lokað kaffihúsi sínu í Forboðnu borginni í Peking. Staðurinn opnaði árið 2000 og varð strax umdeildur. Safnverðir í Forboðnu borginni buðu Starbucks á að vera áfram en aðeins ef að þeir myndu fjarlægja öll merki og seldu einnig aðrar vörur. Því var hafnað og því lokaði kaffihúsið. 14.7.2007 11:20
Verkfræði, hreyfilist og tækni Hollendingurinn Theo Jansen er hreyfiaflsskúlptúristi. Hann er listamaður sem nýtir sér tækni og verkfræði til að búa til stórkostlegar furðuverur með ótal fætur sem knúnar eru áfram af veðri og vindum. 14.7.2007 10:00
Þrír milljarðar til höfuðs Osama bin Laden Öldungadeild Bandaríkjaþings ákvað í gær að tvöfalda þá upphæð sem sett hefur verið til höfuðs Osama bin Laden, leiðtoga Al-Kaída samtakanna, og er hún nú rúmir þrír milljarðar íslenskra króna. Þingmenn Demókrataflokksins sögðu Íraksstríðið draga úr getu Bandaríkjamanna til að berjast við Al-Kaída. Mistök Bush væru fyrst og fremst að ná ekki að fanga Osama bin Laden og rétta yfir honum. 14.7.2007 09:54
Skagfirðingar leggja til mótvægisaðgerðir Skagfirðingar hafa þungar áhyggjur af þeim búsifjum sem sveitarfélagið verður fyrir við niðurskurð þorskkvóta. Byggðaráð sveitarfélagsins hefur því lagt fram lista yfir mótvægisaðgerðir sem það vill að ríkisvaldið grípi til og eru þær í 26 liðum. Lagt er til að háskólanám verði eflt í Skagafirði, að þar verði komið upp aðstöðu til kvikmyndagerðar og athugað verði hvort sveitarfélagið geti hýst netþjónabú. 14.7.2007 09:52
Fjórir teknir fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna Lögreglan á Selfossi tók fjóra ökumenn úr umferð í nótt grunaða um akstur undir áhrifum fíkniefna eða lyfja. Þetta er óvenju mikill fjöldi slíkra atvika á einni nóttu á Suðurlandi og til samanburðar var aðeins einn tekinn grunaður um ölvunarakstur á svæði lögreglunnar í Árnessýslu í nótt. 14.7.2007 09:51
Slapp ómeiddur úr brennandi íbúð Maður slapp ómeiddur út um glugga á bakhlið á brennandi íbúð við Miklubraut, á móts við Miklatún, laust fyrir klukkan átta í morgun. Reykur meinaði honum útgöngu um dyrnar. Óttast var að tveir til viðbótar væru í íbúiðnni og voru sjö reykkafarar sendir inn en fundu engan. 14.7.2007 09:50
Unglingapartý í Hafnarfirði leyst upp Lögreglumenn handtóku tvær fimmtán ára stúlkur eftir að þær réðust á lögregluþjóna við skyldustörf í Hafnarfirði í nótt. Lögreglan hafði verið kölluð að húsi þar sem mikið fjölmenni var í unglingapartíi, sem olli nágrönnum ónæði. Húsráðandi reyndist vera 15 ára stúlka, sem umsvifalaust sló lögreglumann. 14.7.2007 09:48
Fimm líkamsárásir í nótt Fimm líkamsárásir komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt, þar af fjórar í miðborginni. Í einni þeirra var maður barinn með öflugu barefli, og var hann fluttur á Slysadeild, meðal annars með áverka á höfði. Árásarmaðurinn var handtekinn og gistir fangageymslur. Í hinum tilvikunum komust árásarmennirnir undan og fórnarlömbin meiddust minna. 14.7.2007 09:47
Rússar rifta samkomulagi við NATO um takmörkun á herafla í Evrópu Rússar hafa tímabundið sagt sig úr samkomulagi sem takmarkar fjölda herdeilda og þungavopna á ýmsum stöðum í Evrópu. Vladimir Putin, forseti Rússlands, skrifaði undir lög þess efnis nú í morgun. 14.7.2007 09:43
Karlmaður grunaður um morðið i Manchester í gær Lögreglan í Manchester leitar 32 ára gamals manns í tengslum við morðið á konu og tveimur börnum hennar í Manchester í gær. Beverley Samuels var hjúkrunurfræðingur en best þekkt fyrir þátttöku í hæfileikakeppni á ITV sjónvarpsstöðinni. 13.7.2007 23:38
Tveir virtir repúblikanar vilja hermenn heim Tveir öldungadeildarþingmenn repúblikanaflokksins krefjast þess að Bush Bandaríkjaforseti setji fram áætlun um að draga úr herliði í Írak fyrir árslok. 13.7.2007 22:40
Mikil umferð á þjóðveginum Ljóst er að margir hafa ákveðið að nýta góða veðrið til að ferðast. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hefur umferð verið mjög mikil það sem af er degi. Bæði um Suðurlandsveg og Vesturlandsveg. Lögreglan segir að umferðin hafi gengið mjög vel en töluvert sé um hraðakstur. Í dag hafa hátt í þrjátíu ökumenn verið stöðvaðir fyrir að kitla pinnan í umdæmi lögreglunnar á Hvolsvelli. 13.7.2007 22:08
Rio Tinto er verst í heimi Andri Snær Magnason rithöfundur segir að Rio Tinto, nýr eigandi álversins í Straumsvík, sé versta fyrirtæki í heimi. Hann segir að það sé vel hugsanlegt að það komi á daginn að Íslendingar hafi fórnað miklum náttúruverðmætum fyrir þessa vondu menn. Oddur Ástráðsson ræddi við Andra Snæ í Íslandi í dag. 13.7.2007 21:23
Ætluðu að sprengja upp menntaskóla Lögreglan á Long Island ákærði í dag tvo unglinga, 15 og 17 ára gamla, grunaða um að hafa lagt á ráðin um árásir á starfsfólk og nemendur í menntaskóla í Bohemia, New York. Fyrirætlunum drengjanna var lýst í blaði sem fannst á bílastæði við McDonalds skyndibitastað. Drengirnir unnu á skyndibitastaðnum. Blaðið var afhent skólayfirvöldunum þann 6. júlí. 13.7.2007 21:11
Lögreglan stöðvaði skapstóran ökumann Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði tvítugan ökumann á Hafnarfjarðarvegi í gær. Á bíl hans vantaði skráningarnúmer að framan. Hann hafði einnig trassað að færa ökutækið til skoðunar. 13.7.2007 20:34
Matarveisla hjá fuglunum Á meðan mávarnir sækja inn í land og ergja gesti við Reykjavíkurtjörn, var kríum og múkkum boðið til mikillar veislu í höfninni í Bolungarvík. Ufsastorfa barðist við kríur og múkka um sandsíli sem gengið hafði inn í höfnina. Sílastofninn virðist hruninn á við sunnan og suð-vestanvert landið. 13.7.2007 19:22
Nauðsynlegt að draga úr brauðgjöfum á tjörninni Ófrjósemislyf leysa ekki vandann af ágangi máva á Reykjavíkurtjörn að mati fuglafræðings. Eina leiðin er að draga úr brauðgjöfum yfir sumartímann. Borgaryfirvöld hafa ekki viljað banna brauðgjafir við tjörnina. 13.7.2007 19:18
Fornleifarannsóknir á svæði álversins í Reyðafirði Fornleifarannsóknir standa nú yfir á lóð álversins í Reyðarfirði, nánar tiltekið á hafnarsvæðinu. Fornleifarnar komu í ljós þegar framkvæmdir hófust á svæðinu, og hefur þeim því verið frestað á meðan rannsókn stendur yfir. 13.7.2007 19:07
Þarf að halda sig inni vikum saman Um tuttugu prósent ungmenna hér á landi þjást af mis alvarlegu grasfrjókornaofnæmi. Sumartíminn getur verið þeim afar erfiður. Í sumum tilfellum þarf fólk að halda sig inni svo vikum skiptir. 13.7.2007 19:02
Hæsti maður heims hittir minnsta mann heims Hæsti maður heims, Bao Sjísjún, hitti í dag minnsta mann í heimi, He Pingping. Hæðarmunurinn á þeim er einn meter og sextíu og þrír sentimetrar. Pingping hefur sótt um að komast í heimsmetabókina sem minnsti maður í heimi. 13.7.2007 19:00
Össur vill ekki að Geysir Green Energy nái ofurtökum á Hitaveitu Suðurnesja Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra vill ekki að Geysir Green Energy nái ofurtökum í Hitaveitu suðurnesja og hann er því mótfallinn að almenningsþjónusta verði að fullu einkavædd. 13.7.2007 18:58
Hæl- og ristarbrotnaði þegar hann fór út um glugga Nítján ára íslenskur karlmaður, sem var undir áhrifum ofskynjunarsveppa, hæl- og ristarbrotnaði á báðum fótum þegar hann fór út um glugga á annarri hæð hótels í Amsterdam. Ungi maðurinn er nú á sjúkrahúsi í Hollandi en faðir hans vonast til að hægt verði að flytja hann heim til Íslands um helgina. 13.7.2007 18:56
Hemmi Gunn vill skapa 25 ný störf í Dýrafirði Hermann Gunnarsson vill starfrækja sumarbúðir fyrir krakka á Núpi í Dýrafirði þar sem komið hefur til tals að setja niður olíuhreinisstöð. Bæjarstjórarnir á Ísafirði og í Bolungarvík eru mjög hlynntir hugmyndum Hermanns og vilja hrinda þeim í framkvæmd. 13.7.2007 18:56
Rio Tinto skilur eftir sig blóði drifna slóð Hjörleifur Guttormsson, fyrrverandi iðnaðarráðherra, segir að fyrirtækið RIO Tinto hafi blóði drifna slóð að baki sér en fyrirtækið er að sameinast kanadíska álfélaginu Alcan sem stendur að rekstri álversins í Straumsvík. 13.7.2007 18:51
Árekstur á Vogavegi Einn var fluttur á slysadeild Landspítalans eftir árekstur við Vogaveg hjá Vogum á Vatnsleysuströnd um fjögurleytið í dag. Að sögn lögreglunnar rákust tveir bílar saman er þeir komu úr gagnstæðri átt. Ökumaður annars þeirra var fluttur með sjúkraflutningum til Reykjavíkur. Talið er að meiðsli hans séu minniháttar. 13.7.2007 18:43
Íranar hleypa eftirlitsmönnum inn í landið Íranar hafa samþykkt að leyfa eftirlitsmönnum Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar að fylgjast með starfsemi og byggingu kjarnakljúfsins í Arak. 13.7.2007 18:30
Borgarstjóri segir R-listann hafa ákveðið byggingu öldrunaríbúða í Mörkinni Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri segir að allar ákvarðanir um byggingu íbúða fyrir aldraða í Mörkinni hafi verið teknar af R-listanum. Hann segir að sér hafi fundist illa staðið að ákvörðunum um byggingu íbúðanna. 13.7.2007 18:24
Pia Kjærsgaard sýknuð af meiðyrðakæru Pia Kjærsgaard, formaður Danska þjóðarflokksins var í dag sýknuð af kæru um meiðyrði fyrir að hafa kallað danska múslimaklerka landráðamenn. Íslömsk trúarsamtök sem höfðuðu málið á hendur Kjærsgaard eru vonsvikin með dóminn. 13.7.2007 16:52
Conrad Black sekur Kviðdómur sakfelldi fyrrum fjölmiðlajöfurinn Conrad Black fyrir fjársvik og hindrun á framgangi réttvísinnar í dag. Kviðdómurinn hafði setið í ellefu daga þegar hann loks komst að niðurstöðu. Black var ákærður fyrir 13 brot og var fundinn sekur í fjórum þeirra. Á meðal ásakana var að hann hefði stolið nærri þremur komma sex milljörðum íslenskra króna frá hluthöfum Hollinger samsteypunnar. 13.7.2007 16:12
Naust Íslendings reist með Smithsonian í Reykjanesbæ Samningur um að reisa skála yfir víkingaskipið Íslending var undirritaður í Reykjanesbæ í dag. Samningnurinn milli Íslendings ehf og Spangar ehf tekur til smíði skálans yfir skipið og sýningar því tengdu, m.a. í samstarfi við Smithsonian safnið. Skálinn er sagður verða hinn glæsilegasti. Kostnaðaráætlun er rúmlega 240 milljónir króna. 13.7.2007 16:02
Óforskammaðir piltar fjarlægðu hraðahindrun Á vef lögreglunnar kemur fram að tveir hafi fjarlægt hraðahindrun í í Mosfellsbæ í nótt. Til þeirra sást og hafði lögreglan hendur í hári þeirra skömmu síðar. Piltarnir báru því við að vinir þeirra hefðu skemmt bílana sína á þessari hindrun og því ákváðu þeir að taka lögin í sínar hendur. 13.7.2007 14:49