Fleiri fréttir

Enn varað við skemmdum á Þingvallavegi

Enn er varað við skemmdum á klæðningu á 1,5 km kafla á Þingvallavegi, við Grafningsvegamót. Bifhjólamenn eru sérstaklega varaðir við skemmdunum og er hraði takmarkaður við 50 km. Einnig eru vegfarendur beðnir um að sýna varúð við akstur um hálendið, sérstaklega við óbrúaðar ár.

Mótmæla sölu lúxusíbúða á kostnað aldraðra

Meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur hefur snúið frá yfirlýstri stefnu sinni að auka þjónustuíbúðir fyrir aldraða að mati fulltrúa Samfylkingarinnar og Vinstri grænna í borgarstjórn. Þeir mótmæla því harðlega að selja megi íbúðir í Mörkinni til annarra en aldraðra.

Fyrsta BMW kraftmílan háð á morgun

Farið verður í fyrstu BMW kraftmíluna á kvartmílubrautinni í Kaplahrauni, laugardaginn 14 júlí næstkomandi. Slík kraftmíla hefur ekki verið háð hér á landi áður, og þarna er markmiðið að mynda öruggan og löglegan vettvang fyrir unga ökuþóra.

Matvæli dýrust á Íslandi samkvæmt evrópskri könnun

Verð á matvælum, áfengi og tóbaki er 61 prósent hærra á Íslandi en að meðaltali í ríkjum Evrópusambandsins. Þetta kemur fram í niðurstöðum evrópskrar könnunar. Verð var næst hæst í Noregi þar sem það mældist 56 prósent yfir meðaltali. Sé skattalækkunin í mars tekin inn í dæmið er verð engu að síður hæst á Íslandi samkvæmt Hagstofunni.

Vilja stöðva morð á stúlkubörnum

Indversk stjórnvöld hafa ákveðið að skrá allar þunganir þar í landi til að koma í veg fyrir að foreldrar myrði stúlkubörn. Hjá fátækum fjölskyldum þykir ekki eftirsóknarvert að eignast stúlku þar sem þær þykja byrði á fjölskyldunni og ekki eins góðar fyrirvinnur og strákar. Talið er að allt 10 milljónir stúlkubarna hafi verið myrt á Indlandi á síðastliðnum áratug.

Þarf að efla öryggi á Kastrup flugvelli

Öryggisnefnd flugmála í Danmörku segja að það þurfi að yfirfara og efla allt öryggi á Kastrup flugvelli í Kaupmannahöfn til þess að koma í veg fyrir slys eða hættuástand.

Draga til baka beiðni um framlengt gæsluvarðhald

Lögregluyfirvöld í Ástralíu og Bretlandi hafa dregið til baka beiðni um framlengt gæsluvarðhald yfir indverska lækninum Mohamed Haneef. Hann hefur nú setið í gæsluvarðhaldi í ellefu daga en Mohamed er grunaður um að aðild að sprengjuárásunum í London og Glasgow í lok síðasta mánaðar.

Fulltrúadeild Bandaríkjaþings vill herinn heim fyrir apríl

Fulltrúadeild Bandaríkjaþings hefur samþykkt lög þess efnis að herlið Bandaríkjanna hverfi frá Írak fyrir apríl á næsta ári. Lögin gera ráð fyrir því að varnarmálaráðuneytið byrji að kalla herliðið til baka eftir fjóra mánuði.

Segjast hafa verið narraðar til verksins

Bresku stúlkurnar sem voru ákærðar í Ghana fyrir tilraun til að smygla kokaíni að verðmæti 37 milljónir íslenskra króna til Englands segja að þær hafi verið narraðar til verknaðarins.

Eyþing hefur áhyggjur af atvinnulífi á svæðinu

Stjórn Eyþings, Sambands sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum, hefur áhyggjur af þróun atvinnulífs á svæðinu eftir að tilkynnt var um niðurskurð í aflaheimildum á þorski. Stjórnin vill að gripið verði strax til raunhæfra mótvægisaðgerða af hálfu stjórnvalda.

Sláttuvélar menga

Nýjasta tískuorðið á Íslandi er kolefnisjöfnun og er enginn maður með mönnum nema hann hafi kolefnisjafnað bílinn sinn, sumarfríið sitt og jafnvel sjálfan sig. En það er fleira en bílar og flugferðir sem menga því ein sláttuvél getur mengað á við 40-70 bíla.

Laugavegshlaupið á laugardag

Laugavegshlaupið verður haldið á laugardaginn kemur og hefst kl. 9. Tæplega 140 keppendur frá 14 löndum eru skráðir þátttakendur þar af 94 Íslendingar. Þetta er næst fjölmennasta hlaupið frá upphafi. Hlaupaleiðin frá Landmannalaugum í Þórsmörk er um 55 km. Stígur er alla leiðina þar sem undirlag er sandur, möl, gras, snjór, ís eða ýmis vöð á vatnsföllum.

Ekkert óeðlilegt við ástandið í Austurstræti

Vilhjálmur Þórmundur Vilhjálmsson, borgarstjóri í Reykjavík, segir ekkert óeðlilegt við að enn séu spýtnabrak og hálffullar áfengisflöskur í húsunum sem brunnu við Austurstræti fyrir heilum þremur mánuðum.

Óttast að rækjuvinnsla leggist af

Aðeins fjórar til fimm rækjuverksmiðjur verða starfandi í landinu eftir að Rammi á Siglufirði hættir starfsemi í haust. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins óttast að rækjuvinnsla á Íslandi leggist af á næstu árum. Fólkið sem missti vinnuna í gær er í miklu áfalli að sögn formanns verkalýðsfélagsins Vöku.

Geysir Green eignast þriðjung í Hitaveitu Suðurnesja

Búið er að semja um eignaskiptingu Hitaveitu Suðurnesja og mun Geysir Green Energy eignast þriðjung. Minnihlutinn í Reykjanesbæ fordæmir að Suðurnesjamenn séu gerðir að tilraunadýrum í einkavæðingu orkufyrirtækja og telur að bæjarfélagið sé að verða ofurselt Glitni, kjölfestueiganda Geysis Green.

Afbragðsveður það sem af er sumri

Veðrið leikur svo sannarlega við landsmenn, sunnan og vestanlands, þessa dagana og ekkert lát virðist vera á sólskinsstundum í bráð. Íslendingar grilluðu, átu, drukku og gerðu sér glaðan dag sem aldrei fyrr í síðasta mánuði. Þessi mikla neyslugleði er meðal annars rakin til góðviðris.

Umhverfismat vegna virkjana í neðri Þjórsá, hneyksli að mati jarðfræðings

Ingibjörg Elsa Björnsdóttir jarð- og umhverfisfræðingur segir umhverfismat vegna virkjana í neðrihluta Þjórsár hneyksli og skammarlega illa gert. Stefán Thors skipulagsstjóri segir að umhverfismatsferlið vegna virkjananna hafi verið opið og lýðræðislegt og ítarlega fjallað um allar kærur sem bárust.

Ríó eignast Straumsvík

Stjórn Alcan hefur samþykkt yfirtöku Rio Tinto á félaginu. Álverið í Straumsvík verður þá hluti af stærsta álfyrirtæki heims.Talið er að Alcoa sem reyndi að eignast Alcan muni beina yfirtökukló sinni að Century Aluminium sem á álverið á Grundartanga.

Á 115 kílómetra hraða á Sæbraut

Lögreglan í Reykjavík tók tuttugu og sjö ökumenn fyrir hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu í gær. Grófasta brotið var framið á Sæbraut en þar mældist bíll á 115 km hraða.

Tilraunadýr í einkavæðingu

Búið er að semja um eignaskiptingu Hitaveitu Suðurnesja og mun Geysir Green Energy eignast þriðjung. Minnihlutinn í Reykjanesbæ fordæmir að Suðurnesjamenn séu gerðir að tilraunadýrum í einkavæðingu orkufyrirtækja og telur að bæjarfélagið sé að verða ofurselt Glitni, kjölfestueiganda Geysis Green.

Ekki talið að Íslendingar tengist málinu

Rússnesk kona sem kom til Íslands í vikunni játað í yfirheyrslu að hafa komið til Íslands gagngert til að stunda vændi. Rannsókn lögreglu hefur ekki leitt í ljós að Íslendingar tengist málinu.

Ber vott um ofstjórnarsamfélag

Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra segir viðbrögð hins opinbera við útiborðum kaffihúsa í höfuðborginni óskiljanleg. Þau beri vott um ofstjórnarsamfélag. Fyrr í vikunni var veitingamanni á Laugavegi gert að fjarlægja aukaborð sem hann setti út í sól og blíðu. Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir að bregðast verði við kvörtunum.

Brimborg mun flytja inn bíla með etanolvélum

Brimborg hyggst hefja innflutning etanolbíla. Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar, segir að um tilraunarstarfsemi sé að ræða. Búið sé að panta tvo bíla af gerðinni Volvo og Ford sem væntanlegir séu til landsins í ágúst.

Biðja drottninguna afsökunar

BBC hefur beðið Elísabetu Englandsdrottningu afsökunar á því að hafa gefið ranglega í skyn að hún hafi strunsað út úr myndatöku hjá Annie Leibovitz, einum frægasta ljósmyndara Bandaríkjanna.

Ók ölvaður á Laugarvegi

Lögreglan í Reykjavík stöðvaði ölvaðan karlmann á þrítugsaldri við akstur á Laugavegi eftir hádegi í gær. Hann var færður á lögreglustöð og vistaður í fangaklefa. Við eftirgrennslan kom jafnframt í ljós að maðurinn hafði ekki ökuréttindi.

Að minnsta kosti 12 létust þegar ferja sökk

Að minnsta kosti 12 létust þegar ferja sökk rétt hjá Manila í dag, höfuðborg Filippseyja. Herinn sagði að minnsta kosti 129 manns hafi verið bjargað sem voru um borð í ferjunni „MV Blue Water Princess," en þó séu það ekki staðfestar tölur. Þegar hermenn komu á vettvang lá ferjan á hlið í grunnu vatninu.

Þyrla sækir tvo brunasjúklinga til Neskaupstaðar

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF Gná, lenti fyrir skömmu í Reykjavík með tvo brunasjúklinga. Annar þeirra brenndist illa í morgun þegar kviknaði í bíl hans í Fljótsdal. Hinn, sem er útlendingur, brenndist í gærkvöldi þegar hann steig út í hver við Mývatn.

Þriggja ára dreng rænt í Nígeríu

Þriggja ára nígerískum dreng hefur verið rænt við borgina Port Harcourt sem stendur við ósa Níger-ánnar í Nígeríu. Aðeins eru fjórir dagar síðan að mannræningjar slepptu þriggja ára breskri stúlku úr haldi sem þeir höfðu rænt í sömu borg. Samkvæmt lögreglu á svæðinu er drengurinn sonur höfðingja á svæðinu í kringum borgina. Ekkert hefur heyrst af kröfum mannræningja.

Sjö farast eftir sjálfsmorðsárás í brúðkaupi

Sjö gestir í brúðkaupi lögreglumanns í Írak létust þegar maður sem gerðist boðflenna í brúðkaupinu sprengdi sjálfan sig í loft upp. Fjórir í viðbót slösuðust alvarlega. Ekki kemur fram hvort að brúðarhjónin hafi verið á meðal fórnarlamba sprengjunnar.

Rice og Gates til Mið-Austurlanda í ágúst

George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, sagði á fréttamannafundi sínum í dag að hann ætlaði sér að senda varnarmálaráðherrann Robert Gates og utanríkismálaráðherrann Condoleezzu Rice í ferðalag um Mið-Austurlönd.

Bráðabirgðarlög um rafkerfi á Keflavíkurflugvelli ekki nauðsynleg

Gera mátti nauðsynlegar breytingar á rafkerfi gamla varnarsvæðisins á Keflavíkurflugvelli án umdeildrar lagasetningar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samtökum atvinnurekenda í raf-og tölvuiðnaði. Ríkisstjórnin afgreiddi í síðustu viku sérstök bráðabirgðarlög til að heimila notkun bandarísks rafkerfis. Vinna á endurbótum á rafkerfinu er nú hafin en hún felur meðal annars í sér breytingar á rafmagnsöryggi í samræmi við íslenskar reglur og fyrirmæli Neytendastofu.

Magnús Þór ráðinn skrifstofustjóri borgarstjóra og starfandi borgarritari

Magnús Þór Gylfason, viðskiptafræðingur, hefur verið ráðinn skrifstofustjóri borgarstjóra til eins árs. Borgarráð Reykjavíkur samþykkti í dag tillögu borgarstjóra þess efnis. Magnús Þór gegnir starfinu í leyfi Kristínar A. Árnadóttur sem utanríkisráðuneytið hefur ráðið til að leiða framboð Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.

Lögreglan í Rússlandi vill að flækingar séu fangelsaðir

Lögreglan í Rússlandi vill endurlífga lög frá tímum Sovétríkjanna og fangelsa flækingja og betlara. Gagnrýnendur fordæma hugmyndina og segja hana færa Rússland aftur til alræðistíma fortíðarinnar. Flakkarar og betlarar eru algengir í Rússlandi og margir láta lífið af völdum kulda á veturnar.

Gáfu Krabbameinsfélaginu 1,2 milljónir króna

Konur úr Lionsklúbbnum Engey í Reykjavík afhentu Krabbameinsfélaginu í morgun 1,2 milljónir króna til kaupa á brjóstaómsjá. Tækinu er ætlað til noktunar við leit að brjóstakrabbameini í leitarstöð Krabbameinsfélagsins við Skógarhlíði í Reykjavík. Um er ræða peninga sem söfnuðust í styrktartónleikum sem fram fóru í Salnum í Kópavogi í síðastliðnum marsmánuði.

Sjóður til styrktar augnlækningum

Stofnaður hefur verið sjóður til styrktar augnlækningadeild Landspítala-háskólasjúkrahúss en tilkynnt var um stofnun sjóðsins í dag. Það er Eignarhaldsfélag Samvinnutrygginga sem stendur á bak við sjóðinn og lagði félagið fram 25 milljónir króna í stofnfé.

Bush ætlar að bíða eftir skýrslu Petraeus

George W. Bush ætlar sér að bíða eftir skýrslu frá yfirhershöfðingja Bandaríkjanna í Írak áður en hann tekur ákvörðun um hvort að breytt verði um stefnu í Íraksstríðinu. Þá sagði hann að al-Kaída væri ekki jafn burðugt og það var fyrir árásirnar í Bandaríkjunum. Smellið á „Spila“ til þess að sjá myndbrot frá fréttamannafundi Bush í dag.

Notuðu íbúa sem tilraunadýr við einkavæðingu orkufyrirtækjanna

Minnihluti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar gagnrýnir meirihluta sjálfstæðismanna harðlega í yfirlýsingu í tilefni samkomulags um Hitaveitu Suðurnesja. Að sögn minnihlutans var ekkert samráð haft við þá í sölu- og samningaferlinu og telja þeir sjálfstæðismenn hafa notað íbúa sveitarfélagsins sem tilraunadýr við einkavæðingu orkufyrirtækjanna.

Sjö alvarlega slasaðir eftir nautahlaup dagsins

Sjö manns slösuðust alvarlega í nautahlaupi í Pamplona í morgun og nokkrir til viðbótar urðu sárir. Hlaupið entist í rúmar sex mínútur í stað rúmlega tveggja eins og vaninn er þar sem nautin skildust að, sneru við og gerðu í raun allt sem þau eiga ekki að gera. Smellið á „Spila“ hnappinn til þess að sjá myndir frá hlaupinu í morgun.

Svört bráðabirgðaskýrsla um Írak

Íröskum stjórnvöldum hefur aðeins tekist að ná innan við helmingi þeirra markmiða sem Bandaríkjaþing setti um leið og fé var veitt til að fjölga í herliði Bandaríkjamanna í Írak. Þetta er niðurstaða bráðabirgðaskýrslu sem kynnt verður á Bandaríkjaþingi í dag. Enn fjölgar í hópi flokksfélaga Bush Bandaríkjaforseta sem vill að bandarískt herlið verði kallað heim.

Vændiskona játaði

Rannsókn lögreglu hefur ekki leitt í ljós að Íslendingar hafi átt þátt í að flytja rússneks konu hingað til lands í þeim tilgangi að stunda vændi. Konan hefur játað að hafa komið hingað til lands til að selja blíðu sína. Henni verður ekki vísað úr landi og ólíklegt er talið að hún verði kærð.

Afkoma íslenskra fyrirtækja batnaði á árunum 2004 til 2005

Afkoma íslenskra fyrirtækja batnaði á milli áranna 2004 til 2005 samkvæmt samantekt Hagstofunnar á ársreikningum fyrirtækja. Árið 2005 nam rekstrarhagnaður fyrirtækjanna 14,7 prósentum af tekjum en árið áður var hann 10,7 prósent.

Sjá næstu 50 fréttir