Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Umhverfisvænn bíll á Bessastaði Forstjóri Toyota í Evrópu afhenti forseta Íslands í dag nýja Lexus bifreið sem gengur bæði fyrir rafmagni og bensíni. Forsetinn verður fyrsti þjóðhöfðinginn í heiminum sem tekur slíka bifreið í notkun. 6.7.2007 19:34
Ljóst að störfum fækkar í sjávarútvegi Erfitt er fyrir sjávarútveginn að svo mikil kvótaskerðing sé tilkynnt aðeins degi eftir að Seðlabankinn ákveður að halda stýrivöxtum óbreyttum og krónan heldur áfram að styrkjast. Þetta segir formaður Sjómannasambands Íslands sem segir ljóst að störfum í sjávarútvegi muni fækka. 6.7.2007 19:14
Fengu viðurkenningu fyrir að bjarga tveggja ára telpu af botni sundlaugar Slysavarnarfélagið Landsbjörg veitti í dag tveimur stúlkum átta og sjö ára, viðurkenningu fyrir að hafa bjargað tveggja ára meðvitundarlausri stúlku af botni sundlaugar. Atvikið átti sér stað í Lágafelli í Mosfellsbæ í maí síðastliðnum. 6.7.2007 19:14
Vörugjöld verði lögð niður á þessu kjörtímabili Viðskiptaráðherra segir ríkisstjórnina stefna að því að leggja niður vörugjöld á þessu kjörtímabili. Hann sé sammála Samtökum atvinnulífsins og segir vörugjöldin úreldan og handahófskenndan skatt sem heyri brátt sögunni til. 6.7.2007 19:09
Sýknudómur Héraðsdóms skelfilegt afturhvarf til fortíðar Atli Gíslason lögmaður segir sýknudóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir manni sem ákærður var fyrir nauðgun á Hótel Sögu,skelfilegt afturhvarf til fortíðar. Dómurinn noti viðbrögð stúlkunnar við meintri nauðgun gegn henni. Ekki hefur verið ákveðið hvort málinu verði áfrýjað til Hæstaréttar. 6.7.2007 19:05
Ökumaður sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu Borgarneslögreglan veitti ökumanni eftirför um Hvalfjörð á sjötta tímanum í kvöld. Maðurinn var mældur á 116 á 90 kafla í Hafnarskógi. Hann sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu og reyndi að keyra á lögreglubifreið og í veg fyrir hana. 6.7.2007 19:03
Gjaldþrota kvótakerfi og auknar líkur á brotkasti Kvótakerfið er gjaldþrota og ákvörðun sjávarútvegsráðherra um skertan þorskkvóta kallar á aukið brottkast. Þetta segja þingmenn stjórnarandstöðunnar í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd Alþingis. 6.7.2007 18:59
Forsætisráðherra segir sjávarútvegsráðherra hafa sýnt hugrekki Geir H. Haarde forsætisráðherra segir sjávarútvegsráðherra hafa sýnt hughrekki með því að fara að ráðleggingum fiskifræðinga og lækka veiðiheimildir þorsks á næsta ári um þriðjung. 6.7.2007 18:46
Óbreyttir stýrivextir ættu að draga úr neyslugleði Sérfræðingar greiningadeilda bankanna telja verðbólguhorfur hafa versnað. Það hafi leitt til þess að vaxtalækkunarferli Seðlabankans hafi tafist. Háir stýrivextir hafi ekki náð að slá á þenslu í þjóðfélaginu en ákvörðun Seðlabankans um óbreytta vexti ætti þó að draga úr neyslugleði heimilanna. 6.7.2007 18:30
SSR greiðir launin Talsmenn Íslandspósts segja að Svæðisskrifstofa fatlaðra í Reykjavík greiði laun þess fólks sem taki þátt í tilraunaverkefni á vegum Svæðisskrifstofu fatlaðra, Hins hússins og Íþrótta- og tómstundaráðs. 6.7.2007 18:00
Bílvelta á Reykjanesbraut í dag Bílvelta varð við Vogaveg á Reykjanesbraut um eittleytið í dag. Að sögn lögreglunnar urðu engin alvarleg slys á fólki, en einn var fluttur með sjúkrabíl til Reykjavíkur með minniháttar meiðsl. Þá var bíl ekið inn í garð í Keflavík um fjögurleytið í dag. Engan sakaði í því óhappi. 6.7.2007 17:21
Árekstur í Hrútafirði Árekstur varð á Síkárbrú í Hrútafirði á fimmta tímanum í dag. Engin slys urðu á fólki. Brúnni var lokuð um stund en nú er búið að opna hana aftur. Mikil umferð er í umdæmi lögreglunnar á Blönduósi þessa stundina. 6.7.2007 17:14
Morgundagurinn er vinsælasti brúðkaupsdagur ársins Á morgun er 7. dagur júlímánaðar eða 07.07.07. Búist er við að mörg brúðhjón verði gefin saman á þessum degi en nokkrir hafa þurft að hverfa frá vegna þess að skortur er á veislusölum. 6.7.2007 16:51
Bráðabirgðalög um húsnæði á varnarliðssvæðinu Forseti Íslands undirritaði í dag lög þess efnis að heimilt sé að nota raflagnir og rafföng í núverandi ástandi á íbúðar- og skólasvæði fyrrum varnarsvæðis á Keflavíkurflugvelli til 1. október 2010. Raflagnir og rafföng á svæðinu eru í samræmi við bandaríska staðla og því verður að skipta um að þeim tíma liðnum 6.7.2007 16:18
Skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjaness í dag dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa gengið í skrokk á öðrum manni. Þá var honum gert að greiða fórnarlambinu 23 þúsund krónu vegna læknisvottorðs. 6.7.2007 16:16
Tóku ekkert mark á skoðunum reyndra manna Stjórnvöld tóku ekkert mark á skoðunum reyndra manna þegar þau ákváðu að skera niður þorskkvóta fyrir næsta fiskveiðiár. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá forseta Farmanna- og fiskimannasambands Íslands. Hann lýsir yfir miklum vonbrigðum með ákvörðun stjórnvalda. 6.7.2007 16:08
SPRON hækkar vexti á íbúðalánum SPRON hefur ákveðið að hækka vexti íbúðalána í íslenskum krónum úr 5.0% í 5.2%. Hækkunin tekur aðeins til nýrra lánveitinga og gildir frá og með næsta mánudegi. Áður höfðu Kaupþing og Glitnir einnig ákveðið að hækka vexti á húsnæðislánum í 5,2 prósent. 6.7.2007 15:54
Fimmtíu og fimm ára gömul íslensk kona ól barn í gærkvöld Sigríður Ásdís Snævarr sendiherra ól son rétt fyrir klukkan átta í gærkvöld. Móður og barni heilsast vel. Sigríður er 55 ára og elst íslenskra kvenna til að ala barn, svo vitað sé. Sigríður er eiginkona Kjartans Gunnarssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins. 6.7.2007 15:37
Kallar á aukið brottkast og svindl Kvótakerfið er gjaldþrota og taka verður upp gjörbreytt fiskveiðistjórnunarkerfi að mati Atla Gíslasonar, þingmanns Vinstri grænna. Hann segir ákvörðun ríkisstjórnarinnar um verulegan samdrátt í þorskkvóta kalla á aukið brottkast og svindl. 6.7.2007 15:35
Mótvægisaðgerðir geta styrkt landsbyggðina til lengri tíma Mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar gegn niðurskurði aflaheimilda kann að styrkja samfélög á landsbyggðinni til lengri tíma ef rétt verður að þeim staðið. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Elliða Vignissyni, bæjarstjóra í Vestmannaeyjum. Hann lýsir yfir skilningi á ákvörðun sjávarútvegsráðherra en finnst eðlilegt að á móti verði rannsóknir á þorskstofninum stórauknar. 6.7.2007 15:12
Illa rökstudd ákvörðun sem vinnur gegn landsbyggðinni Ákvörðun ríkisstjórnarinnar um verulegan samdrátt í þorskkvóta er illa rökstudd og vinnur gegn smærri fyrirtækjum í sjávarútvegi að mati Kristins H. Gunnarssonar, þingmanns Frjálslynda flokksins. Hann segir að þetta muni valda miklum búsifjum á landsbyggðinni. 6.7.2007 14:36
Hús sprakk í Svíþjóð Kröftug sprenging varð í húsi í Södersvik austan við Norrtälje í Svíþjóð í nótt og er það gjörónýtt. Enginn var í húsinu sem er til útleigu en næstu leigjendur áttu að taka við á morgun. Samkvæmt lögreglu hafði enginn haft í hótunum við þá sem tengjast húsinu og urðu eigendurnir fyrir miklu áfalli. 6.7.2007 14:24
Markvisst unnið að því að útrýma mávi af tjörninni Andavarp á tjörninni hefur ekki tekist vel í ár, að sögn Guðmundar B. Friðrikssonar, skrifstofustjóra hjá Umhverfissviði Reykjavíkurborgar. Fáir ungar hafa komist á legg. Ástæðurnar eru þær að lítið er af æti við tjörnina og að mávurinn hefur étið ungana. 6.7.2007 14:23
Erfið ákvörðun en nauðsynleg Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, segir ákvörðun um að skera niður þorskkvótann um 63 þúsund tonn hafi verið erfið og honum sé fullljóst að hún skapar mikinn vanda fyrir sjávarbyggðir í landinu. Þetta kom fram í máli ráðherra í hádegisviðtalinu á Stöð 2 í dag. 6.7.2007 13:56
Hætta á að fólk geti drukknað á Hróaskeldu Rauði krossinn í Danmörku varar við því að hætta sé á að fólk geti drukknað á Hróaskelduhátíðinni. Þar hefur úrkoma verið mikil undanfarið og stór svæði eru þakin vatni. Talsmenn Rauða krossins á svæðinu segja að hætta á því að fólk geti drukknað sé raunveruleg, sérstaklega ef það er mjög ölvað og getur ekki komið sér upp úr vatninu af sjálfsdáðum. 6.7.2007 13:19
Sársaukafullt fyrir sjávarútveginn Samdráttur á aflaheimildum í þorski um 63 þúsund tonn fyrir næsta fiskveiðiár á eftir að verða mjög sársaukafullt fyrir sjávarútveginn að mati framkvæmdastjóra Landssambands íslenskra útvegsmanna. Hann undrast að ríkisstjórnin skuli einungis taka mið af tillögum Hafrannsóknarstofnunar í ákvörðun sinni. 6.7.2007 13:12
Réttargæslumaður stúlkunnar ósammála sýknudómi Héraðsdóms Reykjavíkur Réttargæslumaður stúlkunnar sem kærði nauðgun á Hótel Sögu í mars síðastliðnum segist ósammála sýknudómi Héraðsdóms Reykjavíkur. Dómurinn einblíni of mikið viðbrögð stúlkunnar frekar en verknaðinn. Lögmaður hins ákærða segir líklegt að hann eigi rétt á bótum eftir að hafa verið í gæsluvarðhaldi í fjóra mánuði. 6.7.2007 12:20
Umferðarstofa hvetur bílstjóra til að sýna bifhjólamönnum tillitssemi Umferðarstofa hefur sent frá sér tilkynningu vegna andúðar og tillitsleysi bílstjóra í garð bifhjólamanna.Að undanförnu hefur mikið verið rætt um hraðakstur bifhjólamanna. Lítið hefur hins vegar borið á réttmætri gagnrýni á hegðun margra bílstjóra í umgengni sinni við bifhjólamenn. 6.7.2007 12:17
Nektarhlaupið í Pamplona Hundruð dýraverndunarsinna hlupu nærri naktir á götum borgarinnar Pamplona á Spáni í gær til þess að mótmæla hinu árlega nautahlaupi í borginni. 6.7.2007 12:15
Nýr og umhverfisvænn forsetabíll Forseti Íslands tekur við nýrri Lexus tvinnbifreið frá Tadashi Arashima, forstjóra Toyota í Evrópu, seinni partinn í dag. Bifreiðin er af gerðinni Lexus LS600h og er knúinn Hybrid-kerfi sem samanstendur af rafmótor og öflugri átta strokka bensínvél. 6.7.2007 12:12
Kaupþing og Glitnir hækka vexti á íbúðarlánum Kaupþing hækkaði vexti á nýjum íbúðarlánum í dag um 0,25 prósent og eru vextirnir þá komnir í 5,2 prósent. Þetta var tilkynnt í gær eftir að ljóst var að Seðlabankinn myndi ekki lækka stýrivexti á þessu ári. Glitnir hefur einnig ákveðið að hækka vexti á nýjum verðtryggðum húsnæðislánum um 0,25 prósent, eða upp í 5,2 prósent eins og Kaupþing. 6.7.2007 12:08
Þrjú sveitarfélög greiða 7,6 milljarða fyrir Hitaveitu Suðurnesja Reykjanesbær, Hafnarfjörður og Grindavík þurfa að greiða ríkinu 7,6 milljarða fyrir hlut sinn í Hitaveitu Suðurnesja á miðvikudag í næstu viku. Reykjanesbær borgar um 4,7 milljarða króna, Hafnarfjörður tæpa tvo milljarða og Grindavík um einn milljarð króna. 6.7.2007 12:05
Málverk seldist á 2,2 milljarða Málverk eftir endurreisnarlistamanninn Raphael seldist á uppboði í gær fyrir meira en 2,2 milljarða íslenskra króna. Verkið er af ítalska greifanum Lorenzo d'Medici, forföður þess sem nú er á skjánum í Bachelor þáttunum á Skjá einum. Verkið hafði ekki sést opinberlega síðan árið 1968. 6.7.2007 12:00
Mótmæltu mannránum og ofbeldi Hundruð þúsunda manna í Kólumbíu mótmæltu í gær mannránum FARC, samtökum vinstri sinnaðra uppreisnarmanna. Talið er að um þrjú þúsund Kólumbíumenn séu nú í haldi mannræningja. 6.7.2007 12:00
Krónan hækkar við kvótalækkun Gengi krónunnnar hækkaði í morgun um 0,6%, strax og sjávarútvegsráðhera var búinn að tilkynna um niðurskurð þorskkvótans. Talið er að útflultningstekjur landsmanna dragist saman um 16 milljarða króna á ársgrundvelli vegna niðurskurðarins, og landsframleiðsla dregst saman um 0,7 prósent, þar af 0,2 á þessu ári þar sem næsta fiskveiðiár hefst frysta september. 6.7.2007 11:40
Ríkisstjórnin boðar viðamiklar aðgerðir vegna samdráttar á aflaheimildum Ríkisstjórnin kynnti í morgun viðamiklar mótvægisaðgerðir í tengslum við verulegan samdrátt á aflaheimildum í þorski. Aðgerðirnar miða fyrst og fremst að því að styðja sjávarbyggðir og draga úr því tjóni sem samdrátturinn hefur í för með sér. 6.7.2007 11:32
Fyrsta dauðsfallið í tengslum við flóðin í Suður-Svíþjóð Eldri kona fannst látin í bíl sínum rétt utan við Helsingborg í Suður-Svíþjóð í morgun. Bíllinn fannst umlukinn vatni í skurði við vegarkant og er talið að konan hafi drukknað. Mikil úrkoma og flóð hafa verið í Suður-Svíþjóð undanfarið. 6.7.2007 11:04
Aflaheimildir í þorski 130 þúsund tonn Ríkisstjórnin kynnti í morgun tillögur sínar um aflaheimildir í þorski fyrir næsta fiskveiðiár. Samkvæmt þeim verður þorskvótinn 130 þúsund tonn. Er þetta í fullu samræmi við tillögur Hafrannsóknarstofnunar og lægsti þorskvóti frá upphafi. Mótvægisaðgerðir gera ráð fyrir aðstoð við byggðarlög. 6.7.2007 10:39
Elsti fósturvísirinn að barni Stúlkubarn fæddist nýlega í Bandaríkjunum en fósturvísirinn sem barnið þróaðist úr hafði verið geymdur í frysti í þrettán ár. Þetta er talinn lengsti tími sem fósturvísir hefur verið geymdur þannig að úr hafi orðið heilbrigt barn. 6.7.2007 10:15
Varað við umferðartöfum og vegaskemmdum á Þingvallavegi Talsverðar skemmdir eru á klæðningu á 1,5 kílómetra vegakafla á Þingvallavegi við Grafningsvegamót. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Ökumenn eru beðnir um að aka varlega og hefur hraði verði takmarkaður við 50 kílómetra á klukkustund. 6.7.2007 10:13
Beint flug til Moskvu? Vilhjálmur Vilhjálmsson, borgarstjóri í Reykjavik, átti i gær fund með Yuri Lujkova, borgarstjóra í Moskvu. Á fundinum voru ýmis mál til umræðu og gerði borgarstjóri meðal annars grein fyrir vilja Íslendingar til að gera nýjan loftferðasamning við Rússa. 6.7.2007 09:58
Gestafjöldi að söfnum slagar hátt í heildaraðsókn að kvikmyndasýningum Gestafjöldi að söfnum og skyldri starfsemi var um 1.3 milljón á árinu 2005. Til samanburðar var fjöldi gesta árið 1995, 830 þúsund. Gestakomur árið 2005 slaga hátt i heildaraðsókn að kvikmyndasýningum sem var ríflega 1.4 milljónir sama ár. Frá árinu 2000 hefur fjöldi gesta að söfnum og skyldri starfsemi aukist jafnt og þétt eftir að hafa að miklu leyti staðið í stað á seinni hluta síðasta áratugar. 6.7.2007 09:10
Tvær til þrjár milljónir HIV/AIDS smitaðir í Indlandi Á bilinu 2 til 3,1 milljón manna í Indlandi eru með HIV/AIDS samkvæmt nýrri rannsókn sem Sameinuðu þjóðirnar og stjórnvöld í Indlandi stóðu að. Áður var talið að allt að tvisvar sinnum fleiri væru smitaðir í Indlandi og hefði það því verið fjölmennasti hópur smitaðra í einu landi. 6.7.2007 08:48
Meintur hryðjuverkamaður hringdi frá Íslandi Móðir Kafeels Ahmed, sem grunaður er um að tengjast hryðjuverkaárásum á Glasgow, telur að hann hafi hringt í sig frá Íslandi síðastliðinn laugardag, að því er The Times of India greinir frá. Móðirin fullyrðir í samtali við blaðið að Ahmed hafi sagt við sig að hann væri að vinna að stóru verkefni sem tengdist hlýnun jarðar. Hann myndi þurfa að ferðast mikið í tengslum við verkefnið og myndi ekki hafa samband næstu vikuna. 5.7.2007 22:13
Þrjú hundruð ær drepast í óveðri í Danmörku Óveður og vatnavextir við Vadehaved í Danmörku kostaði 300 ær lífið í síðustu viku. dýraverndarsamtök í Danmörku telja að eigandinn hefði átt að gæta betur að öryggi dýranna. Þau vilja að dýraverndarlögum verði breytt. 5.7.2007 21:32