Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fagnar 70 ára starfsafmæli á tónleikum við Djúpið Erling Blöndal Bengtsson sellóleikari fagnar 70 ára starfsafmæli sínu á tónleikum við Djúpið á Ísafirði í kvöld. Tónleikarnir eru hápunktur tónlistarhátíðar sem staðið hefur í bænum í vikunni. 23.6.2007 13:54
Riðið til messu Á sunnudagskvöld, 25. júní, verður riðið til messu úr frá bæjum Kálfholtssóknar í Rangárvallaprófastsdæmi. Messan hefst kl. 21.00 og er liður í vísitasíu biskups Íslands í prófastsdæmið. 23.6.2007 13:30
Opin umræða á stjórnarheimilinu Skoðanir Össurar Skarpéðinssonar, iðnaðarráðherra um Hafrannsóknarstofnun og fiskifræðina er jákvætt innlegg í umræðuna segir Karl V. Matthíasson, varaformaður Sjávarútvegsnefndar. Því fari fjarri að alvarlegur ágreiningur sé á stjórnarheimilinu og menn verða að venjast nýbreytni opinnar umræðu. 23.6.2007 12:21
Bandaríkjamenn íhuga að loka Guantanamo Bandaríkjamenn vinna nú að byggingu fangelsis í Afghanistan í samvinnu við yfirvöld þar. Fangelsið mun taka við föngum frá Guantanamo en Bandaríkjamenn segja fangelsið ekki koma í stað fangabúðanna á Kúbu. Hvíta húsið hefur hug á að loka Guantanamo og flytja grunaða hryðjuverkamenn annað. 23.6.2007 12:14
Segir ferðaskrifstofur lengur að lækka verð en hækka Formaður Neytendasamtakanna gagnrýnir hversu illa og seint hækkun á gengi íslensku krónunnar skilar sér í lægra verði ferðaskrifstofa. Þrátt fyrir töluverða hækkun á gengi krónunnar undanfarið hafa ferðaskrifstofur ekki lækkað verð. 23.6.2007 12:13
Íslenska landsliðið í skylmingum á leið á Norðurlandamót Íslenska landsliðið í skylmingum hélt sína síðustu æfingu í gærkvöldi áður en það heldur á Norðurlandamótið . Æfingin fór fram í íþróttahúsi í Víðistaðaskóla. 23.6.2007 12:09
Enn á gjörgæslu Tvö ungmennanna sem lentu í bílslysi við Geirsgötu í fyrrakvöld eru enn alvarlega slösuð. Þau hafa bæði gengist undir aðgerð og liggja nú á gjörgæsludeild Landsspítala - Háskólasjúkrahúsi, að sögn vakthafandi læknis. Annað þeirra var sett í öndunarvél strax eftir slysið en er nú laus úr henni. Sá þriðji úr hópnum hefur verið færður af gjörgæslu á almenna deild. 23.6.2007 11:29
Breytt bílnúmerakerfi Bílnúmerakerfið er að taka breytingum um þessar mundir og munu breytingarnar taka gildi í næstu viku. Með breyttu fyrirkomulagi sé hægt að gefa út fastanúmer næstu 50 árin. 23.6.2007 11:03
Fimmtán ára piltur dæmdur fyrir innbrot Fimmtán ára piltur var í gær dæmdur í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Suðurlands fyrir innbrot, þjófnað og vörslur fíkniefna. 23.6.2007 10:35
Vilja loka Guantanamo Bandarísk stjórnvöld leita nú leiða til að loka Guantanamo-fangelsinu. Mikill þrýstingur er á stjórnvöld í Washington að loka því en það þykir vera ljótur blettur á mannréttindamálum í Bandaríkjunum. 22.6.2007 23:25
Þung umferð á þjóðveginum Mjög þung umferð var á Vesturlandsvegi upp úr miðjum degi en fór að draga úr henni um tíu. Umferðin gekk vel fyrir sig og var án óhappa að sögn Lögreglunnar í Borgarnesi. 22.6.2007 23:10
Pressa sett á Pólverja Angela Merkel, kanslari Þýskalands, hefur hótað því að sniðganga Pólland í viðræðum um nýjan ESB-sáttmála. Pólverjar hafa lýst andstöðu sinni við þau drög sem liggja að sáttmálanum en hann á að koma í staðinn fyrir stjórnarskrá sambandsins. 22.6.2007 21:21
Fyrrverandi starfsfólk Eiffel turnsins sektað Fimmtán fyrrverandi starfsmenn Eiffel turnsins í París hafa verið sektaðir eftir að hafa dregið að sér fé af miðasölu. Tólf konur og þrír karlar drógu að sér hundruð þúsundir evra á árunum 1996 til 2002 eftir að þeir komust að veikleika í tölvukerfi miðasölunnar. Þeim er gert að greiða allt frá 2,000 og upp í 10.000 evrur í sektir. 22.6.2007 21:10
Atlantis lent í Kaliforníu Geimferjan Atlantis er nú lent heilu á höldnu á Edwards Air Force Base í Kaleforníu. Hún lenti klukkan 15:49 að staðartíma. Hætt var við lendingu í Flórída í dag vegna slæmra veðurskilyrða. Geimferjan hefur verið á ferð um sporbaug jarðar síðan áttunda júní og var með nægar eldsneytisbirgðar fram á sunnudag. 22.6.2007 20:19
Bílvelta í Þrengslunum Bílvelta varð í Þrengslunum um klukkan sex í kvöld þar sem jeppi fór útaf og valt nokkrar veltur. Tveir menn voru í bílnum en komust af með skrámur. Mikilar tafir eru við hringtorgið inn í Hveragerði og hringtorgið inn á Selfoss og er umferð nær samfelld þar á milli. 22.6.2007 20:07
Tutti Frutti í uppáhaldi hjá kvennalandsliðinu Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta vann glæstan sigur á Serbíu í gærkvöldi þegar stelpurnar okkar sögðust í fyrsta sinn hafa fundið íslensku þjóðina á bakvið sig. Íslenska liðið er í tuttugasta og fyrsta sæti á heimslista, en í gær var lagið Tutti frutti ein aðal vítamínsprauta stelpnanna fyrir leikinn. 22.6.2007 19:17
Mikil umferð út úr bænum Mikil umferð er nú út úr bænum. Frá frá Sandskeiði og langleiðina á Selfoss er bíll við bíl. 22.6.2007 19:07
Hæpin aðferðafræði Óútskýrður launamunur kynjanna er tíu til tólf prósent samkvæmt einhverri viðamestu launakönnun sem gerð hefur verið hér landi. Það er um þriðjungi minni launamunur en síðasta stóra könnun sýndi. Dósent í kynjafræði dregur aðferðafræðina í efa. 22.6.2007 19:03
50 dagar frá hvarfi Madeleine Það eru fimmtíu dagar frá því Madeleine McCann var rænt úr íbúð í Praia da Luz í Portúgal. Í tilefni af því var grænum og gulum blöðrum sleppt í fimmtíu löndum til að vekja athygli á leitinni að stúlkunni. Og Íslendingar létu ekki sitt eftir liggja. 22.6.2007 18:53
Rekstur Akureyrarbæjar á flugvellinum verður skoðaður Samgönguráðherra segir að flugbrautin á Akureyrarflugvelli verði lengd við fyrsta tækifæri og skoðað verði hvort Akureyrarbær taki yfir rekstur flugvallarins óski bærinn eftir því. Kostnaður Flugstoða við reksturinn er áætlaður um tvö hundruð milljónir króna á þessu ári. 22.6.2007 18:46
Stjórnarþingmenn ósammála um Hafró Ágreiningur er innan stjórnarliðsins um Hafrannsóknarstofnun. Össur Skarphéðinsson, iðnaðaráðherra, vill færa stofnunina undan sjávarútvegsráðuneyti en Arnbjörg Sveinsdóttir, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokks er algerlega ósammála. Samflokksmaður hennar, Einar Oddur Kristjánsson er svipaðra skoðana og Össur og segir Hafró hafa beitt fasískum vinnubrögðum. 22.6.2007 18:36
Icelandair ósammála niðurstöðu áfrýjunarnefndar samkeppnismála Icelandair er ósammála niðurstöðu áfrýjunarnefndar samkeppnismála í dag en telur áfangasigur að sekt Samkeppniseftirlitsins frá 30. mars var lækkuð um 30%, í 130 milljónir króna. Úrskurður áfrýjunarnefndar byggir á öðrum forsendum en Samkeppniseftirlitið notaði, sem Icelandair telur alvarlegan áfellisdóm um ákvörðun Samkeppniseftirlitsins, segir í tilkynningu frá félaginu. 22.6.2007 18:17
Icelandair misnotaði markaðsráðandi stöðu sína Icelandair þarf að greiða 130 milljónir króna í stjórnvaldssekt til ríkissjóðs, fyrir að hafa misnotað markaðsráðandi stöðu sína árið 2004 og brotið gegn samkeppnislögum. 22.6.2007 17:29
Óheppilegur dauði 25 óbreyttra borgara í Afghanistan „Dauði 25 óbreyttra borgara í Afghanistan var óheppilegur og bandalagið er að rannsaka málið," segir Jaap De Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri NATO. Hann kennir Talíbönum um hvernig fór, þar sem þeir hafi notað fólkið sem mannlegan skjöld. 22.6.2007 15:56
Reynt að lenda Atlantis Geimferðastofnun Bandaríkjanna ætlar að reyna til þrautar að lenda geimferjunni Atlantis í dag, þrátt fyrir slæma veðurspá. Ferjan hefur verið í tvær vikur á sporbaug um jörðu en ferð hennar tafðist vegna bilana um borð í alþjóðlegu geimstöðinni. 22.6.2007 15:45
Mannréttindasinni laminn af samföngum sínum í Kína Mannréttindasamtökin Amnesty International segja kínverskan mannréttindasinna ítrekað verið laminn af samföngum sínum að beiðni fangavarða. Chen Guangcheng er laminn fyrir að standa á réttindum sínum samkvæmt samtökunum. 22.6.2007 15:30
Barnsfaðirinn grunaður um aðild að hvarfi Davis Móðir hinnar ófrísku Jessie Davis, sem týnd hefur verið síðan 13 júní, telur að barnsfaðir Davis eigi sök á hvarfi hennar. Hún segir þó að hún vilji ekki fullyrða að barnsfaðirinn, Bobby Cutts, sé viðriðinn málið. 22.6.2007 15:05
Ummæli yfirlæknisins á Kárahnjúkum voru óheppileg og orðum aukin Ummæli yfirlæknisins á Kárahnjúkum í kjölfar veikinda starfsmanna við virkjunina í apríl voru óheppileg og orðum aukin. Þetta kemur fram í nýrri greinargerð frá Landlæknisembættinu vegna veikindanna og viðbragða heilbrigðisstarfsmanna við þeim. 22.6.2007 14:59
Vara við hryðjuverkaárásum í Þýskalandi Þýsk yfirvöld vöruðu í dag við hættu á sjálfsmorðsárásum í landinu og sögðu einnig hættu á sams konar árásum í Bandaríkjunum og 11. sepetember 2001. 22.6.2007 14:06
Segja auglýsingar Heklu um græna bíla vera villandi Neytendasamtökin hafa kvartað til Neytendastofu vegna auglýsingaherferðar bílaumboðsins Heklu á Volkswagen bifreiðum. Í auglýsingunni eru bílar frá Heklu sagðir „grænir“ eða umhverfisvænir, vegna þess að umboðið ætlar að greiða fyrir kolefnisjöfnun bílsins í eitt ár. Þetta segja samtökin vera villandi og hafa óskað eftir áliti Neytendastofu á málinu. 22.6.2007 13:58
Stefán hættir sem framkvæmdastjóri ÍSÍ Stefán Konráðssson hefur ákveðið að hætta sem framkvæmdastjóri Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands en hann hefur gengt því starfi í 12 ár. 22.6.2007 13:43
Enn á gjörgæsludeild eftir vélhjólaslys Ökumaður vélhjóls, sem slasaðist alvarlega þegar hann féll af hjóli sínu í Vestmannaeyjum á þriðjudagskvöld, er enn í öndunarvél á gjörgæslu. Þetta staðfestir vakthafandi læknir. 22.6.2007 13:15
Túristum til Sri Lanka fækkar Túristum sem ferðast til Sri Lanka hefur fækkað um 40% síðan í mái á síðasta ári. Fyrstu fimm mánuði þessa árs eru aðeins 23,4% búnir að ferðast til eyjunnar af þeim fjölda sem hafði ferðast til Sri Lanka fyrstu fimm mánuðina á síðasta ári. Hótel hafa ekki undan því að svara símtölum fólks sem eru að afpanta herbergi. 22.6.2007 13:12
Fengu réttindi á við gagnkynheigða fyrir ári Samtökin '78 minnast þess í kvöld að ár er liðið frá því að þeir öðluðust að mestu leyti sömu réttindi og gagnkynhneigðir samkvæmt lögum. Baráttu samtakanna er þó langt í frá lokið að sögn framkvæmdastjórans. 22.6.2007 13:00
Öll spil á borðið í stóriðjumálum ríkisstjórnarinnar Fulltrúar Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í iðnaðarnefnd og umhverfisnefnd Alþingis hafa óskað eftir fundum í nefndunum til að fá upplýsingar og umræðu um stóriðjuáform stjórnvalda. 22.6.2007 12:44
Kappaflingi auglýsingin á meðal þeirra bestu í heimi Auglýsing Kaupþings banka með breska gamanleikaranum John Cleese hefur verið tilnefnd sem ein af bestu fyrirtækjaauglýsingum í heimi á Cannes Lions auglýsingahátíðinni í Frakklandi. 22.6.2007 12:36
Fimmtíu dagar liðnir frá hvarfi Madeleine Í dag eru fimmtíu dagar síðan Madeleine McCann var rænt úr sumarleyfisíbúð í Portúgal. Í tilefni af því var gulum blöðrum sleppt í fimmtíu löndum klukkan tíu í morgun. 22.6.2007 12:26
Óútskýrður launamunur 10-12 prósent Óútskýrður launamunur kynjanna er tíu til tólf prósent samkvæmt einhverri viðamestu launakönnun sem gerð hefur verið hér landi. Launamunurinn er minnstur hjá ungu fólki en vex með hækkandi aldri. 22.6.2007 12:22
Þrjú á gjörgæslu eftir kappakstur Tveir piltar og stúlka liggja alvarlega slösuð á gjörgæsludeild Landspítalans eftir kappakstur tveggja bíla á Geirsgötu sem endaði með árekstri við Hamborgarabúllu Tómasar. Ungmennin voru í bíl sem ekið var vestur Geirsgötu í kapp við annan bíl um tvöleytið í nótt. 22.6.2007 12:10
Össur vill Hafrannsóknarstofnun úr sjávarútvegsráðuneytinu Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra vill færa Hafrannsóknarstofnun undan sjávarútvegsráðuneytinu og láta annað ráðuneyti fara með yfirstjórn stofnunarinnar. Hann segir að sovéskt kerfi hafi orðið til í kringum Hafró þar sem þöggun hafi verið beitt með dæmalausum hætti. 22.6.2007 12:09
Hugmynd Össurar ekki vel ígrunduð Hugmynd Össurar Skarphéðinssonar um að færa Hafrannsóknarstofnun Íslands frá sjávarútvegsráðuneytinu og yfir í annað ráðuneyti er illa ígrunduð að mati Arnbjargar Sveinsdóttur, formanns sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar. Hún segir Hafró vera á réttum stað í stjórnkerfinu en hins vegar hvetur hún til eflingar rannsókna á sjónum og lífríki hans utan stofnunarinnar. 22.6.2007 11:37
Fuglaflensa í Tógó Rannsóknarniðurstöður staðfesta að H5N1 afbrigði fuglaflensunnar hafi fundist á alifuglabúgarði í Tógó. Eftir að óeðlilega margir fuglar drápust á búgarðinum, voru send sýni á rannsóknarstofu sem staðfestu fuglaflensuna. H5N1 er hættulegasta afbrigði flensunnar. 22.6.2007 11:33
Rúmlega 9.200 lýst yfir stuðningi við Alfreð Rúmlega 9.200 manns hafa nú skráð sig á undirskriftalista á Vísi þar sem Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari í handbolta, er hvattur til þess að halda áfram með landsliðið. Vefsíðan Áfram Alfreð var sett upp klukkan 19:00 á miðvikudagskvöldið var. Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ, sagði í samtali við Vísi að þetta væri fyrst og fremst stuðningsyfirlýsing við Alfreð og starf hans með landsliðið. 22.6.2007 10:58
Hvetja breskar matvælakeðjur til þess að hætta að kaupa íslenskar sjávarafurðir Hvalaverndunarsamtökin Campaign Whale og Marine Connection hófu í dag herferð sem miðar að því að fá breskar verslunarkeðjur til að hætta að kaupa íslenskar sjávarafurðir. Þau biðla til Tesco og Sainsbury’s sem eru stærstu verslunarkeðjur bresks matvörumarkaðar til þess að mótmæla hvalveiðum Íslendinga með þessum hætti. 22.6.2007 10:54
Gates lofar bót á heilbrigðisþjónustu hersins Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, lofaði í dag að hraða uppbyggingu í heilbrigðisþjónustu bandaríska hersins. Hann sagði: "Þetta er eitthvað sem við getum, verðum og viljum laga". 21.6.2007 22:53