Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ákæruliðum í Baugsmáli vísað aftur í hérað Hæstiréttur vísaði í dag níu ákæruliðum og hluta af tveimur öðrum í endurákæru Baugsmálsins aftur til héraðs en þeim hafði verið vísað frá héraði. Meðal ákæruliðanna sem héraðsdómur verður að taka afstöðu til er ákæra á hendur Jóni Gerald Sullenberger. Það var Sigurður Tómas Magnússon, settur saksóknari, sem áfrýjaði frávísunum til Hæstaréttar. 1.6.2007 15:13
Berklamaðurinn sér eftir flugferðunum Bandarískur berklasjúklingur sem ferðaðist smitaður með tveimur farþegaflugvélum yfir Atlantshafið hefur beðist afsökunar á að hafa mögulega stofnað öðrum farþegum í hættu. Í þættinum Good Morning America sagði Andrew Speaker, lögmaður á fertugsaldri: “Mér þykir mjög leitt að hafa valdið farþegum raun og sársauka.” 1.6.2007 14:57
Lét af störfum eftir 37 ár í lögreglunni Þröstur Brynjólfsson, yfirlögregluþjónn á Selfossi, lét af störfum í gær eftir 37 ára farsælt starf í lögreglu ríkisins. Hann hóf störf hjá lögreglunni á Húsavík árið 1970 og varð yfirlögregluþjónn þar árið 1982. Hann flutti sig svo til Selfoss árið 1996 og hefur starfað þar síðan. 1.6.2007 14:29
Lögregla handtók fíkniefnasala Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gær karlmann í austurborginn en hann er grunaður um fíkniefnasölu. Í híbýlum hans fundust um 100 grömm af ætluðu hassi. Maðurinn hefur áður komið við sögu hjá lögreglu vegna fíkniefnamála segir lögregla í tilkynningu. 1.6.2007 14:19
Flytja opnun sýningar í Nauthólsvík vegna veðurs Háskólinn í Reykjavík stendur fyrir ljós- og tölvumyndasýningu í Nauthólsvík í sumar. Áætlað hafði verið að opna sýninguna í Nauthólsvík í dag en vegna veðurs verður sýningin opnuð á lóð skólans við Ofanleiti. Hún verður síðan færð í Nauthólsvík og stendur þar í allt sumar. Myndir af framtíðarhúsnæði HR munu skreyta sýninguna sem verður staðsett við rætur Öskjuhlíðar. 1.6.2007 13:52
Venesúelska sjónvarpsstöðin sendir út á YouTube Venesúelska sjónvarpsstöðin RCTV sendir nú fréttaþátt sinn "El Observador" út á YouTube. Þannig fundu stjórnendur hennar leið til að koma efni fréttamanna til hluta áhorfenda sinna, þrátt fyrir að hafa misst útsendingarleyfið. Hugo Chavez forseti hafnaði endurnýjun leyfisins sem rann út á sunnudag. Fjöldamótmæli hafa verið haldin á götum Venesúela vegna málsins. 1.6.2007 13:35
Lucy in the Sky er fundin Bresk kona sagði í dag að hún hafi verið innblástur Johns Lennon að laginu Lucy in the Sky with Diamonds. Margir aðdáendur Bítlanna hafa talið að nafnið hafi verið lítt dulin lofgjörð um ofskynjunarlyfið LSD. Vegna þess var skífan ritskoðuð í mörgum íhaldssamari löndum og laginu um Lucy sleppt. Það var t.d. gert víða í Asíu. 1.6.2007 13:15
Iceland Express hefur flug milli Egilsstaða og Kaupmannahafnar Flugfélagið Iceland Express hóf i dag áætlunarflug milli Egilsstaða og Kaupmannahafnar. Fyrsta flugvél frá Kaupmannahöfn lenti á Egilsstaðaflugvelli á níunda tímanum í morgun. 1.6.2007 12:34
Sendiherra Portúgals í Noregi á Kárahnjúkum Sendiherra Portúgals í Noregi er nú staddur á Kárahnjúkum til að kanna aðstæður landa sinna sem þar starfa. Portúgalskur verkamaður sem bjó og starfaði á Kárahnjúkum dró í viðtali við portúgalska fjölmiðla fyrir skömmu upp dökka mynd af ástandinu þar. 1.6.2007 12:17
Nemendur í Suðvesturkjördæmi komu best út úr samræmdum prófum Grunnskólanemendur í Suðvesturkjördæmi stóðu sig að meðaltali best í samræmdu prófunum í vor samkvæmt tölum Námsmatsstofnunar. Fengu þeir að meðaltali 0,1 hærra í meðaleinkunn en nemendur í Reykjavík sem stóðu sig næst best. Lægstu meðaleinkunn fengu nemendur í Suðurkjördæmi. 1.6.2007 12:12
Frístundakortin bylting fyrir börnin Frístundakortin verða bylting fyrir börnin í borginni, segir formaður Björn Ingi Hrafnsson, formaður Íþrótta- og tómstundaráðs. Fyrstu kortin verða send út í haust. 1.6.2007 12:08
Markvissar aðgerðir í þágu barna og kröftugt efnahagslíf Eitt mikilvægasta verkefni ríkisstjórnarinnar snýr að markvissum aðgerðum í þágu barna, aldraðra og kröftugs efnahagslífs sagði forsætisráðherra í stefnuræðu sinni á Alþingi í gær. Utanríkisráðherra sagði vandasama siglingu framundan, ekki síst í efnahagsmálum. Formenn stjórnarandstöðuflokkanna gagnrýndu stefnu ríkisstjórnarinnar í umhverfis og efnahagsmálum. 1.6.2007 11:48
Nemendum á öllum skólastigum fjölgar Rúmlega 16 þúsund fleiri nemendur stunduðu nám á öllum skólastigum landsins í vetur en fyrir tíu árum samkvæmt samantekt Hagstofunnar. Fleiri konur stunda nám á framhalds- og háskólastigi en karlar og þá dregur úr skólasókn 16 ára ungmenna í framhaldsskólum milli ára. 1.6.2007 11:39
Kínverjar fjalla um sæti Íslands í Öryggisráðinu Kínverskir fjölmiðlar fjalla í dag um kosningabaráttu Íslendinga fyrir sæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna árin 2009 og 2010. Í vefútgáfu dagblaðsins People Daily segir að Íslendingar þurfi stuðning 28 þjóða til viðbótar þeim 100 sem þegar hafa heitið stuðningi, til að fá öruggt sæti í ráðinu. Aðildarlöndin eru 192 og Ísland þarf stuðning 66 prósenta þeirra. 1.6.2007 11:37
Vilja draga úr sókn í þorskstofninn Náttúruverndarsamtök Íslands skora á sjávarútvegsráðherra að draga úr sókn í þorskstofninn með það fyrir augum að vernda stofninn. Þetta kemur fram ályktun aðalfundar samtakanna sem haldinn var í vikunni. Vísa samtökin meðal annars í ástandsskýrslu Hafrannsóknarstofnunar frá því í fyrra þar sem lagt er til aflamark fyrir þorsk verði endurskoðað og jafnframt lækkað. 1.6.2007 11:05
Átökin í Líbanon: Hræðilegt ástand í flóttamannabúðum Mannúðarsamtök segja ástandið í palestínsku flóttamannabúðunum Nahr al-Bared í Líbanon vera hræðilegt. Ekkert lát er á átökum meðlima hryðjuverkasamtakanna Fatah al-Islam og líbanskra hermanna sem staðið hafa í 13 daga. Sameinuðu þjóðirnar segja 31 þúsund manns vera innilokaða í búðunum, en 25 þúsund hafi flúið. Mannúðarsamtök segja ástandið hræðilegt. Um 80 manns hafa látið lífið í átökunum. 1.6.2007 10:57
Stærsta rannsóknarsvæði Orkuveitunnar í Djíbútí Orkuveita Reykjavíkur hefur fengið einkaleyfi til jarðhitarannsókna og forgang á hugsanlegri nýtingu um 750 ferkílómetra lands í afríkuríkinu Djíbútí. Það er stærsta rannsóknarsvæði OR til þessa. Staða Djíbútíbúa í raforkumálum er svipuð og hjá Íslendingum fram til ársins 1960. Þeir fá rafmagn með brennslu innflutts jarðefnaeldsneytis. 1.6.2007 10:35
Metaðsókn hjá Leikfélagi Akureyrar Tæplega 27 þúsund manns sáu sýningar Leikfélags Akureyrar í vetur og hafa leikhúsgestir aldrei verið fleiri. Þá sáu um 11 þúsund manns sýningar leikfélagsins í höfuðborginni. Leikhússtjóri segir árangurinn byggjast fyrst og fremst á frábæru starfsfólki og velheppnuðu verkefnavali leikhússins. 1.6.2007 10:32
Ráðist á Ómar um hábjart sumarkvöld „Ég varð að hægja mjög á bílnum svo að hann stöðvaðist næstum því en ég þorði ekki að stoppa alveg því að þegar maðurinn kom nær með hnefana á lofti sá ég að andlit hans var afmyndað af heift og hatursbræði og ekki leyndi sér að hann ætlaði að stöðva mig og brjótast inn í bílinn til að ganga frá mér,“ skrifar Ómar Ragnarsson á bloggsíðu sína. 1.6.2007 10:15
Belja í fjöldagröf Bosnískur bóndi á í málaferlum við yfirvöld vegna belju sinnar. Hann segir að hún hafi drukknað í fjöldagröf sem yfirvöldum hafði láðst að fylla uppí eftir að líkin höfðu verið fjarlægð. Í gröfinni voru lík 50 múslima sem Serbar myrtu í Bosníustríðinu. Bóndinn segir að uxakleggi hafi stungið beljuna sem hafi brugðið svo að hún stökk út í vatnsfyllta fjöldagröfina. Uxakleggi er flugnategund sem leggst á nautgripi. 1.6.2007 10:11
Síðasta opnunarhelgi skiðasvæðisins á Siglufirði Á morgun verður skíðasvæði Siglfirðinga opið frá klukkan tíu til fjögur. Opið er í Skarðinu og hefur verið útbúin þar Skicross braut. Þá er braut á Súlur og nægur snjór á bungusvæðinu. Þetta er síðasta opnunarhelgi skíðatímabilsins, en stefnt verður að því að opna aftur snemma í haust. 1.6.2007 10:00
Tengdafaðir berklasmitaðs manns vinnur við berklarannsóknir Bandaríkjamaðurinn sem smitaður er af illvígum berklum er tengdasonur vísindamanns sem rannsakar berkla hjá smitvarnastöð Bandaríkjanna í Atlanta í Georgíu. Tengdafaðirinn segir óhugsandi að tengdasonurinn hafi smitast í gegnum hann eða á rannsóknarstofu sinni. 31.5.2007 23:54
Óvenju mikið af fólki í miðbænum Töluverður fjöldi fólks mun vera í miðbænum nú í kvöld miðað við venjulegt fimmtudagskvöld. Lögreglumaður á vakt sagði í samtali við Vísi að ástæða þessa sé líklegast sú að í kvöld verður í síðasta sinn leyft að reykja innandyra á börum og kaffihúsum landsins. 31.5.2007 23:29
Útsendingum RCTV haldið áfram á YouTube Radio Caracas Television, sjónvarpsstöðin sem ríkisstjórn Venezuela synjaði um útsendingarleyfi á dögunum hefur fundið aðferð til að koma efni sínu á framfæri. Fréttamenn stöðvarinnar hafa haldið áfram vinnu sinni og er afraksturinn settur á Netið á vefsíðunni vinsælu YouTube. 31.5.2007 23:06
Jafnrétti á líka við um fólkið í sjávarplássunum Formaður Frjálslynda flokksins, Guðjón Arnar Kristjánsson, hóf sína ræðu á Alþingi í kvöld með því að óska nýrri ríkisstjórn velfarnaðar í starfi. Hann sagðist ánægður með að jafnrétti yrði haft að leiðarljósi á komandi kjörtímabili og hann sagði að flokkur hans myndi styðja öll góð mál sem fram komi á þinginu, hvaðan sem þau séu ættuð. 31.5.2007 22:46
Bragðdauf stefnuræða að mati Guðna Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði í sinni ræðu á Alþingi í kvöld að ný ríkisstjórn tæki við góðu búi sem framsóknarmenn ættu þátt í að hafa skapað. Hann sagði að viðsjárverðir tímar væru þó framundan og að hann óttaðist að nýjir stjórnarherrar áttuðu sig ekki á því. 31.5.2007 22:33
Jafnrétti í reynd er leiðarljós nýrrar ríkisstjórnar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, sagði í ræðu sinni á Alþingi í kvöld að jafnrétti í reynd væri leiðarljós í allri stefnumótun nýrrar ríkisstjórnar. Hún sagði löngu tímabært að láta endurmeta kjör kvenna hjá hin opinbera líkt og gert var hjá Reykjavíkurborg á sínum tíma. 31.5.2007 21:50
Vinstri grænir gerðir að blóraböggli Formaður stærsta stjórnarandstöðuflokksinns á þingi, Steingrímur J. Sigfússonn var ekki eins bjartsýnn í ræðu sinni á Alþingi í kvöld og andstæðingar hans sem sitja í ríkisstjórn. Sérstaklega fór hann hörðum orðum um Samfylkinguna sem hann sagði varpa sökinni á því að ekki skuli hafa tekist að mynda ríkisstjórn yfir á hans flokk, Vinstihreyfinguna - Grænt framboð. 31.5.2007 21:28
Ríkisstjórnin stefnir á vit nýrra tíma á traustum grunni Geir H. Haarde flutti í kvöld stefnuræðu sína á Alþingi. Hann fór yfir stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar og greindi frá helstu áherslumálum næstu ára. Ríkisstjórnarflokkarnir hafi einsett sér að mynda frjálslynda umbótastjórn um kraftmikið efnahagslíf, öfluga velferðarþjónustu, bættan hag heimilanna og aukna samkeppnishæfni atvinnulífsins. 31.5.2007 21:22
Ókeypis auglýsingaherferð Nú stendur til að gefa heila auglýsingaherferð, einhverju félagi eða málefni sem á erindi við þjóðina. Sverrir Björnsson frá Hvíta húsinu, skýrði frá því í Íslandi í dag hverjir gefa þessa herferð og af hverju. 31.5.2007 20:39
Íslandsmet í Esjugöngu 5 tinda menn ætla eftir eina viku að ganga á 5 hæstu tinda landsins. Þeir eru í svo miklu stuði að þeir ætla að draga sem flesta landsmenn með sér upp á Esjuna á laugardaginn og setja Íslandsmet í Esjugöngu. 31.5.2007 20:33
Deilumál á sumarþingi Sumarþing var sett í dag. Hið nýsamsetta Alþingi næstu fjögurra ára tók til starfa í dag og kaus sér þingforseta og formenn þingnefnda, en hvers lags þing verður þetta? Hver verða deilumálin? Þingmennirnir Árni Páll Árnason og Bjarni Harðarson ræddu þessi mál í Íslandi í dag í kvöld. 31.5.2007 20:29
Leðurblaka flögrar um í vörugeymslu Byko Lifandi leðurblöku er nú leitað logandi ljósi í vörugeymslu Byko í Kjalarvogi í Reykjavík. Starfsmenn fyrirtækisins urðu varir við hana á gólfi vörugeymslunnar fyrir tveimur dögum. 31.5.2007 19:46
Reykingabann tekur gildi á miðnætti Reykingabann á öllum veitinga-og skemmtistöðum landsins tekur gildi á miðnætti. Ekki verður heimilt að innandyra en leyfilegt verður setja upp reykskýli utandyra. Ölstofa Kormáks og Skjaldar hyggst höfða mál gegn ríkinu ef ekki fæst undanþága frá lögum til að setja upp sérstakt reykrými á staðnum. 31.5.2007 19:43
Leikskólar og slökkvilið í samstarf Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hóf í dag samstarf við leikskóla um eldvarnareftirlit og fræðslu til starfsfólks og elstu barna á leikskólum. Fleiri slökkvilið munu taka þátt í samstarfinu en fyrsti samningur þessa efnis var undirritaður við leikskólann Norðurberg í Hafnarfirði í dag. 31.5.2007 19:30
Verður að ríkja sátt um Byggðastofnun Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, segir að skapa þurfi ró og starfsfrið um Byggðastofnun Hann segir ríkisstjórnina ekki geta horft framhjá vanda landsbyggðarinnar og því verði hún að geta gripið inn í aðstæður sem þar kunna skapast. 31.5.2007 19:26
Þriggja ára fangelsi fyrir manndráp Hæstiréttur þyngdi dóm Hérðasdóms yfir Lofti Jens Magnússyni fyrir að vera valdur að dauða Ragnars Björnssonar á veitingastaðnum Áslaki í Mosfellsbæ. Loftur sló Ragnar hnefahögg í hálsinn með þeim afleiðingum að slagæð við hálshrygg rofnaði og Ragnar lést. Héraðsdómur hafði dæmt Loft Jens í tveggja ára fangelsi en Hæstiréttur koms að þeirri niðurstöðu að hæfileg refsins væri þriggja ára fangelsi. Þá var hann dæmdur til að greiða ekkju Ragnars og börnum, tólf milljónir króna í skaðabætur. 31.5.2007 19:24
Alþingi sett Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, rifjaði upp í þinsetningarræðu sinni í dag að herstöðvarmálið hefði gufað upp á liðnum vetri en þar hefði verið átakamál sem klofið hefði þjóðina í áratugi. Ennfremur sagði hann að það sýndi styrk lýðræðisins hvernig fjölmiðlaflóran hefði gefið stjórnmálamönnum fjölþætt tækifæri til að koma boðskap sínum til skila í kosningabaráttunni. Þetta væri framför frá tímum flokksmálgagna. 31.5.2007 19:19
Kristín hélt velli í formannskjöri hjá sjúkraliðum Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags Íslands náði endurkjöri þrátt fyrir mótframboð. Hún hlaut 64 prósent greiddra atkvæða. Frá þessu var greint á 16. fulltrúaþingi félagsins sem haldið var í dag. 31.5.2007 19:11
Reyklaus sígaretta Reyklausa sígarettan er orðin að veruleika. Hún er dönsk að uppruna, inniheldur nikótín og á að hafa hið fínasta tóbaksbragð. 31.5.2007 18:30
Þrú ár í fangelsi og milljón í miskabætur fyrir nauðgun 22 ára karlmaður, Edward Apeadu Koranteng, var í dag dæmdur í Hæstarétti til þriggja ára fangelsi fyrir að hafa með ofbeldi þröngvað ólögráða stúlku til samræðis við sig. Auk fangelsisvistarinnar var hann dæmdur til að greiða fórnarlambinu eina milljón króna i miskabætur. 31.5.2007 17:36
Tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot Hæstiréttur dæmdi í dag karlmann í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot með því að hafa tvisvar sinnum haft samræði við þroskahefta konu sem var starfsmaður á hæfingarstöð fyrir fatlaða einstaklinga, en þar starfaði maðurinn sem stuðningsfulltrúi. 31.5.2007 16:57
Bush hvetur til langtímamarkmiða gegn hlýnun jarðar Bandaríkjamenn hvetja þjóðir heims að samþykkja langtímaáætlun gegn losun gróðurhúsalofttegunda. George Bush Bandaríkjaforseti sagðist í dag stefna á fund með 14 öðrum þjóðum sem losa hvað mest af gróðurhúsalofttegundum. Þeirra á meðal eru nokkur þróunarlönd. Með fundinum vill Bush setja markmið sem hamla hlýnun jarðar. 31.5.2007 16:53
Þriggja ára fangelsi fyrir manndráp á Ásláki Hæstiréttur dæmdi í dag Loft Jens Magnússon í þriggja ára fangelsi fyrir að vera valdur að dauða Ragnars Björnssonar á veitingastaðnum Áslálki í Mosfellsbæ í desember 2004. Með þessu þyngdi Hæstiréttur dóm héraðsdóms sem dæmt hafði Loft Jens í tveggja ára fangelsi. Enn fremur var hann dæmdur til að greiða ekkju og börnum Ragnar um tólf milljónir króna í miskabætur. 31.5.2007 16:40
Tyrkneska þingið samþykkir umbætur á stjórnarskrá Tyrkneska þingið samþykkti í dag umdeildar umbætur á stjórnarskrá landsins. Með því sniðgekk þingið neitun forsetans Ahmec Necdet Sezer. Hann hafði beitt neitunarvaldi gegn umbótunum sem meðal annars fela í sér að forsetinn verði kosinn beint af kjósendum, en ekki þinginu. Umbæturnar eru ætlaðar til að binda enda á pólitíska krísu í landinu. 31.5.2007 16:35