Erlent

Útsendingum RCTV haldið áfram á YouTube

MYND/AFP

Radio Caracas Television, sjónvarpsstöðin sem ríkisstjórn Venezuela synjaði um útsendingarleyfi á dögunum hefur fundið aðferð til að koma efni sínu á framfæri. Fréttamenn stöðvarinnar hafa haldið áfram vinnu sinni og er afraksturinn settur á Netið á vefsíðunni vinsælu YouTube.

Að auki hefur stöðin náð samningum við sjónvarpsstöð í Kólombíu um að sýna fréttaþátt stöðvarinnar „El Observador". Talið er að um 800 þúsund manns í Venezúela hafi aðgang að kólimbísku stöðinni.

RCTV var í loftinu í Venezuela í rúmlega hálfa öld og var einn fárra sjónvarpsstöðva í landinu sem gagnrýndi störf forseta landsins Hugos Chavez.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×