Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Smyglaði sveppum og eiturlyfjum á Litla Hraun Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands fyrir að reyna að smygla sveppum og fíkniefnum til fanga á Litla Hrauni. Fíkniefnahundur „merkti“ ákærða í fangelsinu og kom þá í ljós að maðurinn hafði ólöglega sveppi og fíkniefni í úlpuvasa sínum. Maðurinn játaði brot sitt fyrir dómi. 8.5.2007 15:31
Hálslón eins og hálft annað Blöndulón Hálsón við Kárahnjúka hækkaði um heila þrjá metra í síðustu viku og er nú orðið á við eitt og hálft Blöndulón. 8.5.2007 15:28
Grafhvelfing Heródesar fundin Eftir að hafa leitað í yfir 30 ár telur ísraelski fornleifafræðingurinn, Ehud Netzer, sig hafa fundið gröf Heródesar konungs. Heródes réð yfir Júdeu þegar Jesú Kristur fæddist. 8.5.2007 15:09
Ekki ákveðið hvenær skipað verður í embætti ríkissaksóknara Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hefur ekki ákveðið hvenær skipað verður í embætti ríkissaksóknara og segist eiga eftir að fara betur yfir umsóknir um embættið. Einn umsækjenda hefur dregið umsókn sína til baka. 8.5.2007 15:01
Áformuðu að drepa bandaríska hermenn Sex íslamskir öfgamenn voru handteknir í gærkvöldi fyrir samsæri um að myrða bandaríska hermenn. Áform voru uppi meðal sexmenningana að drepa hermennina í Fort Dix í New Jersey, en þar eru þjálfunarbúðir fyrir hermenn. Fréttastofa CNN hefur þetta eftir dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna. 8.5.2007 14:43
Áhyggjur af próflausum ökumönnum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu telur það umhugsunarefni að ökumenn skuli halda áfram akstri þrátt fyrir að hafa verið sviptir ökuleyfi. Um síðustu helgi var 19 ára piltur stöðvarður fyrir hraðakstur. Hann virti ekki stöðvunarmerki lögreglumanna og reyndi auk þess að komast undan. Að sögn lögreglu er það nánast á hverjum degi sem afskipti eru höfð af slíkum ökumönnum. 8.5.2007 14:24
Hefur þú heyrt þennan? Það er sjaldan létt yfir fundum milli herforingja Norður- og Suður-Kóreu. Oftast er þar skipst á ásökunum og svívirðingum. Fulltrúar Suður-Kóreu vissu því varla hvernig þeir áttu að bregðast við þegar yfirsamningamaður norðanmanna byrjaði fund í dag á því að segja brandara. Brandarinn fjallaði náttúrlega um George Bush. 8.5.2007 14:21
Samið um kaup og þjálfun fimm blindrahunda Skrifað var undir samkomulag milli ríkisins og Blindrafélagsins í morgun um kaup á fimm leiðsöguhundum fyrir blinda og sjónskerta. Það voru Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra og Halldór Sævar Guðbergsson, formaður Blindrafélagsins, sem undirrituðu samkomulagið í húsi Blindrafélagsins. 8.5.2007 14:04
Eins og 150 sólir spryngju - jörðin væri horfin Stjörnufræðingar hafa náð myndum af stærstu og skærustu sprengistjörnu sem þeir hafa nokkrusinnum séð. Stjarnan sem sprakk er 150 sinnum stærri en sólin. Kraftinn er hreinlega ekki hægt að ímynda sér. Sem betur fer er stjarnan 240 milljón ljósár frá jörðinni, og hún því ekki í neinni hættu. 8.5.2007 13:28
Enn slegist á taívanska þinginu Það var handagangur í öskjunni á taívanska þinginu í morgun þegar stjórnarþingmenn reyndu að koma í veg fyrir að þingforsetinn kæmist í sæti sitt. Það embætti skipar einn þekktasti þingmaður stjórnarandstöðunnar í Taívan, sem hefur nauman meirihluta á þingi og minnihlutastjórn við völd. 8.5.2007 13:15
Ríkisstjórnin naumlega fallin samkvæmt könnun Capacent Ríkisstjórnin er naumlega fallin samkvæmt nýrri könnun sem Capacent Gallup hefur gert fyrir Morgunblaðið og Ríkisútvarpið. Eftir því sem fram kemur á vef Morgunblaðsins eykst fylgi Framsóknar og Samfylkingarinnar frá könnun sem birt var í gær en fylgi Sjálfstæðisflokksins, Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs og Frjálslynda flokksins minnkar. 8.5.2007 13:02
Englandsdrottning í Hvíta húsinu Það voru prúðbúnir gestir sem settust til borðs þegar stórveisla var haldin í Hvíta húsinu í Washington í gær. Heiðursgesturinn var Elísabet Englandsdrottning. Slegist hafði verið um hvert sæti við veisluborðin enda vildu margir mætir Bandaríkjamenn blanda geði við drottninguna. 8.5.2007 13:00
Arna fer á Viðskiptablaðið Arna Schram, formaður Blaðamannafélags Íslands og fyrrum aðstoðar ritstjóri Krónikunnar, hefur ráðið sig til starfa á Viðskiptablaðinu. Arna segir á bloggsíðu sinni á Vísi að hún muni aðallega skrifa í helgarútgáfu blaðsins. 8.5.2007 12:56
Bíða eftir sandsílinu við suðvesturströndina Náttúrufræðingar, fuglaáhugamenn, sjófuglar og veiðimenn bíða þess nú í ofvæni hvort sandsílið ætlar að koma upp að suðvesturströndinni í vor eftir tveggja ára fjarveru. 8.5.2007 12:45
Novator greiðir 1,8 milljarða til búlgarska ríkisins Novator, fjárfestingafélag Björgólfs Thors Björgólfssonar, þarf að greiða búlgarska ríkinu 1,8 milljarða króna vegna sölu Novator á búlgarska símafélaginu BTC. 8.5.2007 12:30
Símaskráin 2007 komin út í umhverfisvænni útgáfu Símaskráin 2007 er komin út og nú í fyrsta sinn með norræna umhverfismerkinu Svaninum. Ritstjóri símaskrárinnar segir að hún sé það umhverfisvæn að hægt sé að borða hana, þó hún mæli ekki beinlínis með því. 8.5.2007 12:22
Sjávarútvegsnefnd kölluð saman vegna umfjöllunar Kompáss Magnús Þór Hafsteinsson hefur farið fram á að sjávarútvegsnefnd verði kölluð saman til þess að ræða kvótasvindl í sjávarútvegi sem fjallað var um í Kompási á Stöð 2 á sunnudag. 8.5.2007 12:17
Svarnir andstæðingar sóru embættiseiða Heimastjórn tók til starfa á ný á Norður-Írlandi í morgun þegar svarnir andstæðingar sóru eiða í Stormont kastala. Tæp fimm ár eru frá því að heimastjórnin var aflögð vegna njósnahneykslis og málefni Norður-Íra færð í hendur ráðherra í Lundúnum. 8.5.2007 12:15
Stjórnarþingmenn fari með hálfsannleik í málefnum aldraðra Formaður Landsambands eldri borgarara segir stjórnarþingmenn fara með hálfsannleik í málefnum aldraðra, rétt fyrir kosningar. Skattbyrði láglaunafólks hafi ekki minnkað og kaupmáttur ráðstöfunartekna hafi ekki aukist um 60-75 % hjá eldri borgurum, eins og stjórnarþingmenn haldi fram. 8.5.2007 12:14
Götumyndin verður aldrei eins, segir borgarstjóri Götumyndin verður aldrei eins í Austurstræti eftir brunann í miðborginni, segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri í blaðagrein í dag. Áður hafði hann lagt áherslu á að halda í þá sögufrægu götumynd sem varð eldi að bráð um miðjan apríl. 8.5.2007 12:11
Vinnuálag foreldra orsök eyrnavandamála Að meðaltali eru tvö til fimm börn lögð inn á spítala í hverjum mánuði til að fá sýklalyf í æð, þar sem venjuleg sýklalyf virka ekki lengur á þau. Doktor í læknisfræði segir mikla notkun hjá börnum aðallega tilkomna vegna miðeyrnabólgu, en við henni er sýklalyfjameðferð óþörf. Hins vegar geti sýklalyfjanotkunin skapað endurtekin eyrnavandamál. 8.5.2007 12:10
900 milljóna króna gjöf Lóðin sem Listaháskóli Íslands fékk að gjöf frá Reykjavíkurborg í gær er varlega áætlað níu hundruð milljóna króna virði, að mati Sverris Kristinssonar fasteignasala hjá Eignamiðlun. 8.5.2007 12:06
Kannað hvort Ómar hafi valdið umhverfisspjöllum Verið er að kanna hvort Ómar Ragnarsson hafi valdið umhverfisspjöllum með flugvallargerð í grennd við Kárahnjúka samkvæmt ábendingu um að svo sé. 8.5.2007 12:01
Lögreglan á Akureyri yfirheyrir Rúmena Lögreglan á Akureyri er nú að yfirheyra 6-9 útlendinga sem grunur leikur á að kunni að vera hluti af hópi Rúmena sem komið hafi hingað til að betla. Kvartanir hafa borist vegna útlendinganna. 8.5.2007 12:00
Fyrstu myndirnar af nýrri prinsessu birtar í Danmörku Danska konungsfjölskyldan birti í morgun fyrstu opinberu myndirnar af nýfæddri prinsessu þeirra Friðriks krónprins og Maríu Elísabetar krónprinsessu. Þær sýna meðal annars að stúlkan, sem fæddist þann 21. apríl, er hárprúð og virðist þegar hafa lært að brosa til ljósmyndara. 8.5.2007 11:48
Össur segir Íslandshreyfinguna vera „egóflipp“ Össur Skarphéðinsson, Samfylkingunni, gagnrýndi Íslandshreyfinguna harðlega í morgunþætti Jóhanns Hauksonar á Útvarpi Sögu í morgun. Hann sagði framboðið byggjast á "egóflippi" eða reiði út í Frjálslynda flokkinn. 8.5.2007 11:44
Kjósendur flýja Framsókn til Sjálfstæðisflokks Lítil hreyfing er á kjósendum milli stjórnarflokkanna annars vegar og stjórnarandstöðuflokkanna hins vegar. Sjálfstæðisflokkurinn hirðir mest fylgi af Framsóknarflokknum og Vinstri grænir taka fylgi af Samfylkingunni, samkvæmt könnun Capasent Gallups. 8.5.2007 11:35
Reykur frá þakpappabræðslu setti eldvarnarkerfi Alþingis í gang Slökkvilið af tveimur stöðvum á höfuðborgarsvæðinu var kvatt að Alþingishúsinu rétt fyrir klukkan tíu í morgun vegna gruns um að eldur hefði komið upp í húsinu. 8.5.2007 11:06
Fjórtán stútar gripnir um helgina Fjórtán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um síðustu helgi. Fjórir voru stöðvaðir á föstudag, tveir á laugardag og átta á sunnudag. 8.5.2007 10:54
Sautján ára stúlka grýtt í hel Sautján ára kúrdisk stúlka var grýtt í hel í Írak í síðasta mánuði fyrir að verða ástfangin af jafnaldra sínum af öðrum trúflokki. Mikill fjöldi karlmanna tók þátt í ódæðinu, sem ættingjar hennar áttu frumkvæði að. Lögreglumenn fylgdust með, en aðhöfðust ekkert. Myndir af morðinu hafa nú verið settar út á netið. 8.5.2007 10:39
Velferð barna og kvenna einna mest hér á landi Ísland er í öðru sæti á lista Barnaheilla, Save the Children, yfir þau lönd þar sem velferð kvenna og barna er mest í heiminum. Í árlegri skýrslu samtakanna er birtur listi yfir þau lönd þar sem konur og börn hafa það best og skipa Svíar, Íslendingar og Norðmenn efstu þrjú sætin. 8.5.2007 10:23
Einstaklingsherbergi efst á óskalista sjúklinga Einstaklingsherbergi með baði eru efst á óskalista sjúklinga, lækna og annarra heilbrigðisstarfsmanna við hönnun nýs háskólasjúkrahúss. Góður og fjölbreyttur matur þykir einnig mikilvægur. Þetta eru meðal annars niðurstöður bandaríska ráðgjafafyrirtækisins Planetree sem kynntar voru framkvæmdanefnd Landsspítala - háskólasjúkrahúss í gær. 8.5.2007 10:10
Halldór Ásgrímsson sækir Eista heim Halldór Ásgrímsson, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, er nú staddur í Eistlandi. Heimsóknin er liður í því að leggja áherslu á mikilvægi áframhaldandi samstarfs milli Eystrasaltsríkjanna og Norðurlanda. 8.5.2007 10:01
Stærsta sprengistjarna sem sést hefur Risastór sprengistjarna, sem er sú bjartasta sem vísindamenn hafa nokkru sinni séð, hefur leitt til þess að vísindamenn velta nú fyrir sér hvort að möguleiki sé á því að slík stjarna eigi eftir að sjást mun nær jörðu á næstunni. Vísindamenn hjá NASA skýrðu frá því í dag að þeir hefðu séð sprengistjörnuna. Fyrst var tekið eftir henni síðastliðið haust og hafa þeir fylgst með henni síðan. 7.5.2007 23:15
Yfir 20 létu lífið í Ramadi í Írak í dag Tvær sjálfsmorðssprengingar urðu að minnsta kosti 20 manns að bana og særðu yfir 40 nálægt borginni Ramadi í Írak í dag. Fyrri árásin átti sér stað á markaði og sú seinni í nánd við varðstöð lögreglu. 7.5.2007 22:54
Zille segir flokk sinn ekki of hvítan Nýkjörinn leiðtogi Bandalags demókrata í Suður-Afríku, Helen Zille, neitaði því í dag flokkur hennar sé of hvítur og of miðstéttarsinnaður. Zille, sem er borgarstjóri í Höfðaborg, sagði að minnsta kosti helmingur þeirra sem kusu hana sem leiðtoga í gær hefðu ekki verið hvítir. Hún segir ásakanirnar vera áróður ANC flokksins, sem er við völd í Suður-Afríku. 7.5.2007 22:36
Hermann fallinn í fjórða sinn Charlton féll í kvöld úr ensku úrvalsdeildinni eftir 2-0 tap gegn Tottenham á heimavelli sínum. Hermann Hreiðarsson var í liði Charlton í kvöld og þarf nú að bíta í það súra epli að falla úr efstu deild á Englandi í fjórða sinn á ferlinum. Dimitar Berbatov kom gestunum yfir í byrjun leiks og Jermain Defoe innsiglaði sigurinn á lokamínútunum. Þessi úrslit þýða jafnframt að Fulham er öruggt með að halda sæti sínu í úrvalsdeildinni. 7.5.2007 22:02
592 handteknir vegna mótmæla í Frakklandi Franska lögreglan handtók alls 592 einstaklinga um land allt vegna mótmæla í gær. Mótmælin voru vegna sigurs Sarkozy í frönsku forsetakosningunum. Lögreglan sagði einnig að kveikt hefði verið í 730 bifreiðum og að 28 lögregluþjónar hefðu slasast í átökum við mótmælendur. Lögreglan beitt táragasi í átökunum. Barist var í París, Toulouse, Marseille og Lyon. 7.5.2007 21:55
Væntanlegar keppnisgreinar á Vetrarólympíuleikum sýndar Ein af keppnisgreinum á vetrarólympíuleikunum árið 2008 verður vængflug svokallað (e. wingsuit flying). Keppendur eru þá í sérgerðum búningi sem gerir þeim mögulegt að svífa um loftin blá og ná allt að 100 kílómetra hraða. Önnur tiltölulega ný keppnisgrein er hraðbrun (e. speed skiing) og þá bruna keppendur niður brekkurnar með aðstoð fallhlífar. Greinarnar tvær voru sýndar á laugardaginn var. 7.5.2007 21:37
Með tvær köngulær í eyranu Læknir í Bretlandi varð heldur hissa eftir að hafa skoðað níu ára dreng vegna eyrnaverks. Í ljós kom að tvær köngulær höfðu tekið sér bólfestu í öðru eyra drengsins. 7.5.2007 20:43
Fillon hugsanlega næsti forsætisráðherra Frakklands Nicolas Sarkozy mun velja Francois Fillon, náinn aðstoðarmann sinn og fyrrum menntamálaráðherra, sem forsætisráðherra sinn. Með þeirri skipan ætlar hann sér að lægja öldurnar í Frakklandi en óeirðir brutust út í París þegar ljóst varð að Sarkozy yrði næsti forseti landsins. 7.5.2007 20:25
Myrtur með sprengju Sprengja sprakk í bílastæðihúsi Luxor spilavítisins í Las Vegas í dag. Lögregluyfirvöld sögðu að starfsmaður hótelsins hefði látið lífið þegar hann tók hana ofan af bílþaki. Lögregla sagði að ekki hefði verið um hryðjuverk að ræða heldur morð með framandi vopni. 7.5.2007 19:48
Interpol rannsakar nú hvarf stúlku í Portúgal Kate McCann, móðir Madeleine litlu, þriggja ára stelpunnar, sem rænt var í Portúgal í fimmtudagskvöld, grátbað í dag ræningja hennar að meiða hana ekki eða hræða. Hún bað þá sem rændu henni að láta vita hvar hægt væri að finna hana. Á blaðamannafundi portúgölsku lögreglunnar í kvöld kom fram að Alþjóðalögreglan Interpol tæki nú þátt í rannsókn málsins og allt gert til að finna stúlkuna. 7.5.2007 19:26
Merki sögð fengin að láni Merki Íslandshreyfingarinnar er fengið að láni að mati prófessors í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands. Merkið er afar líkt vörumerki bandarísks hugbúnaðarfyrirtækis sem hefur verið starfandi síðan 1993. Einn viðskiptavina þess er álrisinn Alcoa. 7.5.2007 19:23
Umdeildur verðandi forseti Nicolas Sarkozy, nýr forseti Frakklands, er umdeildur og veit af því. Hann er þekktur fyrir harða afstöðu í innflytjendamálum og hefur viðrað þá skoðun að genasamsetning geti ráðið glæpahneigð fólks. Stjórnmálaskýrendur í Frakklandi segja áhugaverða tíma í vændum í frönskum stjórnmálum eftir úrslit forsetakosninganna í gær. 7.5.2007 19:15