Fleiri fréttir Nýjungar í kosningasjónvarpi Stöðvar 2 Kosningasjónvar Stöðvar tvö verður með glæsilegasta móti að þessu sinni. Boðið verður upp á nýjungar í framsetningu talna og annarra upplýsinga sem aldrei hafa sést í íslensku sjónvarpi áður. 7.5.2007 18:30 19 Rúmenum vísað úr landi í dag Nítján Rúmenum var vísað úr landi í dag eftir að hafa dvalið í landinu án tilskilinna leyfa í þó nokkurn tíma. Að sögn lögreglu framfleyttu þeir sér með betli í miðbæ Reykjavíkur og sváfu á bekkjum í Hljómskála og Fógetagarðinum. 7.5.2007 18:25 Breska drottningin í Hvíta húsinu Breska drottningin fór í heimsókn í Hvíta húsið í Bandaríkjunum í dag. Í ræðu sem hún hélt fyrir utan bústað forsetans sagði hún að vinátta Bretlands og Bandaríkjanna væri „náin og traust.“ George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, sagði við sama tækifæri að drottningin væri „góð persóna, sterkur leiðtogi og frábær bandamaður.“ 7.5.2007 18:03 Aðstoðarmaður Wolfowitz segir af sér Háttsettur aðstoðarmaður Paul Wolfowitz tilkynnti í dag að hann hefði sagt af sér. Kevin Kellems sagði að hneykslið sem Wolfowitz væri flæktur í gerði honum erfitt að sinna starfi sínu hjá Alþjóðabankanum. Kellems, sem vann einnig með Wolfowitz í varnamálaráðuneyti Bandaríkjanna, mun hætta störfum í næstu viku. 7.5.2007 17:50 Eurovision and Live Earth 7.5.2007 16:49
Sjá næstu 50 fréttir
Nýjungar í kosningasjónvarpi Stöðvar 2 Kosningasjónvar Stöðvar tvö verður með glæsilegasta móti að þessu sinni. Boðið verður upp á nýjungar í framsetningu talna og annarra upplýsinga sem aldrei hafa sést í íslensku sjónvarpi áður. 7.5.2007 18:30
19 Rúmenum vísað úr landi í dag Nítján Rúmenum var vísað úr landi í dag eftir að hafa dvalið í landinu án tilskilinna leyfa í þó nokkurn tíma. Að sögn lögreglu framfleyttu þeir sér með betli í miðbæ Reykjavíkur og sváfu á bekkjum í Hljómskála og Fógetagarðinum. 7.5.2007 18:25
Breska drottningin í Hvíta húsinu Breska drottningin fór í heimsókn í Hvíta húsið í Bandaríkjunum í dag. Í ræðu sem hún hélt fyrir utan bústað forsetans sagði hún að vinátta Bretlands og Bandaríkjanna væri „náin og traust.“ George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, sagði við sama tækifæri að drottningin væri „góð persóna, sterkur leiðtogi og frábær bandamaður.“ 7.5.2007 18:03
Aðstoðarmaður Wolfowitz segir af sér Háttsettur aðstoðarmaður Paul Wolfowitz tilkynnti í dag að hann hefði sagt af sér. Kevin Kellems sagði að hneykslið sem Wolfowitz væri flæktur í gerði honum erfitt að sinna starfi sínu hjá Alþjóðabankanum. Kellems, sem vann einnig með Wolfowitz í varnamálaráðuneyti Bandaríkjanna, mun hætta störfum í næstu viku. 7.5.2007 17:50
WHO harkalega gagnrýnd Alþjóða heilbrigðisstofnunin WHO er harkalega gagnrýnd í breska tímaritinu The Lancet. The Lancet er málgagn bresku læknasamtakanna og eitt virtasta tímarit sinnar tegundar í heiminum. Í grein tímaritsins segir að WHO byggi ráðleggingar sínar oft á tíðum á litlum sem engum sönnunargögnumgögnum. 7.5.2007 16:29
Ólafur Ragnar útskrifaður af sjúkrahúsi Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands hefur verið útskrifaður eftir að hafa gengist undir fjölda rannsókna á Landsspítala - háskólasjúkrahúsi. Hann er nú kominn heim á Bessastaði og mun hvíla sig næstu daga samkvæmt læknisráði. Ekkert athugavert kom í ljós við rannsóknir að sögn Örnólfs Thorssonar forsetaritara. 7.5.2007 16:12
Í mál af því að hann dó ekki Þegar læknar sögðu John Brandrick að hann væri með krabbamein í briskirtli og ætti aðeins sex mánuði eftir ólifað, brá honum auðvitað í brún. Læknar höfðu fundið sjö sentimeetra langt æxli í þessum sextíu og tveggja ára gamla breska afa. John ákvað þó að gera það besta úr öllu saman og lifa lífinu lifandi. Það er að segja því sem eftir væri af því. 7.5.2007 15:50
Vélhjólamanni haldið sofandi Karlmaður á þrítugsaldri sem slasaðist alvarlega í vélhjólaslysi í Njarðvík í gærkvöldi er alvarlega slasaður. Að sögn vakthafandi læknis maðurinn á gjörgæsludeild þar sem honum er haldið sofandi í öndunarvél. Maðurinn undirgekkst bæklunarlækningaraðgerð í nótt þar sem gert var að beinbrotum hans. 7.5.2007 15:47
Tvöfalt morð í Svíþjóð Sænska lögreglan leitar nú manns sem talið er að hafi myrt mann og konu í smábænum Hörby sem er rétt norðaustan við Malmö. Líkin voru mjög illa útleikin og skömmu áður en þau fundust sást blóðugur maður á hlaupum í grennd við bæinn. 7.5.2007 15:22
Listaháskólinn fær lóð í Vatnsmýrinni „Dagurinn í dag er bjartasti dagur í sögu Listaháskóla Íslands og skólinn hefur sannað sig á þeim sjö árum sem liðin eru frá stofnun hans.“ Þetta sagði Hjálmar H. Ragnarsson rektor eftir undirritun viljayfirlýsingar milli skólans, Reykjavíkurborgar og Menntamálaráðuneytisins um byggingu nýs húsnæðis fyrir skólann í Vatnsmýrinni. 7.5.2007 15:16
Trimmaðu skeggið Adolf Tannbursta-yfirskegg Adolfs Hitlers er líklega best þekkta skegg sögunnar. Til þessa hefur verið talið að hann hafi bara verið að fylgja tískunni. Nú hefur hinsvegar fundist ritgerð sem rithöfundurinn Alexander Moritz Frey skrifaði. Þeir Hitler voru báðir óbreyttir hermenn í þýska hernum í fyrri heimsstyrjöldinni. 7.5.2007 14:36
Ekki meiða Maddie Kate McCann, Móðir Madeleine litlu, þriggja ára stelpunnar, sem rænt var í Portúgal í fimmtudagskvöld, grátbað í dag ræningja hennar að meiða hana ekki eða hræða. Hún bað þá sem rændu henni að láta vita hvar hægt væri að finna hana. "Setjið hana á einhvern öruggan stað og látið einhvern vita hvar," sagði hún í átakanlegu ákalli, sem var sjónvarpað. Portúgalska lögreglan hefur grun um að ræninginn sé breskur. Margir sjónarvottar hafa skýrt frá því að þeir hafi séð hálfsköllóttann mann draga litla telpu með sér að bátahöfn skammt frá hótelinu þar sem Madeleine bjó ásamt foreldrum sínum. 7.5.2007 13:51
Nordisk Mobil bauð í nýja NMT kerfið Nordisk Mobil Ísland ehf var eina fyrirtækið sem bauð í starfrækslu CDMA 450 farsímanetsins sem verður arftaki NMTsímkerfisins. Tilboðsfrestur rann út klukkan 11 hjá Póst- og fjarskiptastofnun klukkan í dag. Fjarskiptafélagið Nova gerði alvarlegar athugasemdir við drög að útboðsskilmálunum. Í þeim var einungis gert ráð fyrir að eitt fyrirtæki fengi leyfið. 7.5.2007 13:40
Washington með öndina í hálsinum Elísabet Englandsdrottning er í opinberri heimsókn í Bandaríkjunum. Drottningin kom til Washington í dag þar sem Bush forseti fór fyrir 5000 manna móttökunefnd. Í Washington bíður fræga og fína fólkið með öndina í hálsinum eftir að sjá hverjir verða á gestalistanum þegar frú Elísabet mætir í kvöldverð í Hvíta húsinu. 7.5.2007 13:30
Morðingja synjað um náðun Forseti Þýskalands hefur synjað Christian Clar um náðun. Klar var einn af morðingjum Rauðu herdeildanna svonefndu. Hann var dæmdur í sexfallt lífstíðarfangelsi árið 1983. Rauðu herdeildirnar voru hryðjuverkasamtök sem frömdu mörg ódæðisverk í Þýskalandi á sjöunda áratug síðustu aldar. Christian Klar er nú 54 ára gamall. 7.5.2007 13:29
Ekki talið að nokkur hafi komist lífs af Nær útilokað er talið að nokkur innanborðs hafi lifað það af þegar farþegaflugvél hrapaði í skóglendi í Kamerún um helgina. Flak vélarinnar fannst í mýrlendi í suðurhluta landsins. 114 manns voru um borð. 7.5.2007 13:15
Þriggja ára stúlku enn leitað Enn hefur ekkert spurst til þriggja ára gamallar breskrar stúlku, Madelein McCann, sem saknað hefur verið síðan á fimmutdagskvöldið. Portúgalska lögreglan rannsakar nú fréttir þess efnis að vitni hafi séð sköllóttan mann draga unga stúlku með sér að smábátahöfn nærri sumardvalarstaðnum í Praia da Luz sama kvöld og Madelein hvarf. 7.5.2007 12:45
Ný flugvél Gæslunnar algjör bylting Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir nýja flugvél Gæslunnar algera byltingu í flugflotanum og líkir breytingunni frá Fokker vélinni við að skipta úr ritvél yfir í tölvu. Nýja vélin kostar rúma tvo milljarða króna en skrifað var undir kaupsamninginn í morgun. 7.5.2007 12:44
Ungmenni gætu nálgast áfengi í matvöruverslunum Ungmenni undir tóbakskaupaaldri eiga auðvelt með að kaupa sér sígarettur samkvæmt könnun. Í ljósi þessa er varhugavert að leyfa sölu á áfengi í matvöruverslunum, segir prófessor í félagsfræði. 7.5.2007 12:27
Viðgerð hafin á vél Flugstoða Viðgerð er um það bil að hefjast á vél Flugmálastjórnar, sem hlekktist á í flugtaki á Reykjavíkurflugvelli í janúar. Hún tilheyrir nú Flugstoðum ohf. og segir Þorgeir Pálsson forstjóri þeirra, að hún komist væntanlega í gangið í sumar 7.5.2007 12:20
Heitir því að sameina Frakka Til átaka kom milli lögreglu og mótmælenda í nokkrum borgum Frakklands í nótt um leið og hægrimenn þar í landi fögnuðu sigri Nicolas Sarkozy í forsetakosningunum í gær. Nýr forseti heitir því að sameina Frakka eftir harðvítuga kosningabaráttu síðustu vikna. 7.5.2007 12:15
Ummæli Sivjar um ríkisstjórn D og S röng Oddviti sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi segir rangt hjá Siv Friðleifsdóttur að hann hafi sagt á fundi að Samfylking og Sjálfstæðisflokkur eigi að mynda ríkisstjórn. Um óformlegt skens hafi verið að ræða. 7.5.2007 12:03
Frímúrarar kaupa fíkniefnahund Sýslumaðurinn á Seyðisfirði hefur fengið styrk að fjárhæð einnar og hálfrar milljónar króna til kaupa á fíkniefnaleitarhundi. Embættið fékk styrk úr Frímúrarasjóðunum, menningar- og mannúðarsjóði Frímúrarareglunnar á Íslandi. Upphæðin dugir þó ekki nema fyrir helmingi kostnaðar því talið er að kostnaðurinn verði ekki undir þremur milljónum króna þegar þjálfun hundsins er tekin með í reikninginn. 7.5.2007 11:42
Reykjavíkurakademían tíu ára Í dag er tíu ára afmæli Reykjavíkurakademíunnar og verður blásið til fagnaðar í húsnæði þess í JL-húsinu við Hringbraut í dag. Akademían er samfélag sjálfstætt starfandi fræðimanna hér á landi. Opið hús verður frá klukkan 10-14 og eru gestir hvattir til að kynna sér starfsemi fræðimannanna. 7.5.2007 11:33
Ólafur Ragnar í rannsóknum fram eftir degi Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands hefur undirgengist tvær rannsóknir á Landspítala – háskólasjúkrahúsi í Fossvogi í morgun. Hann var fluttur með þyrlu frá Snæfellsnesi í gær eftir að hafa fundið fyrir sterkum þreytueinkennum. Hann er nú í þriðju rannsókninni. Örnólfur Thorsson forsetaritari segir að hann verði í rannsóknum fram eftir degi. Þá hefur forsetanum borist fjöldi kveðja og heillaóska. 7.5.2007 10:52
Gæludýrin reykja meira Breskt tryggingafélag hefur varað við því að milljónum gæludýra sé stefnt í hættu með reykingabanninu sem tekur gildi á veitingastöðum fyrsta júlí næstkomandi. Bannið leiði til þess að fólk reyki meira heima hjá sér í stað þess að fara á pöbbinn og fá sér kollu og smók. Gæludýrin þurfi því að þola miklu meiri óbeinar reykingar en hingaðtil. 7.5.2007 10:50
Kerfið felur í sér hvata til svindls Magnús Þór Hafsteinsson, þingmaður frjálslyndra, segir að kvótakerfið feli í sér hvata til svindls og að eina leiðin sé að umbylta kerfinu. Í Kompási í gærkvöld var sýnt fram á umfangsmikið kvótasvindl sem teygir anga sína allt frá bátnum sem veiðir fiskinn til fyrirtækja sem selja fiskinn úr landi. 7.5.2007 10:44
Datt niður dauður Roskinn saudar-abiskur karlmaður datt niður dauður þegar dómstóll í Mekka úrskurðaði að þrjár fullorðnar dætur hans mættu gifta sig, gegn vilja föðurins. Í undirrétti hafði dómur fallið manninum í vil. Í Saudi-Arabíu gildir sú meginregla að konur megi ekki gifta sig nema með leyfi höfuðs fjölskyldunnar. 7.5.2007 10:22
Stúlkan er ófundin Enn hefur ekkert spurst til hinnar þriggja ára gömlu Madeleine McCann, sem saknað hefur verið síðan á fimmtudagskvöld. Talið er að henni hafi verið rænt en hún var í sumarleyfi í Portúgal með foreldrum sínum og systkinum. Lögregla hefur stækkað leitarsvæði sitt leitin hefur enn sem komið er engan árangur borið. Teiknuð mynd hefur verið birt af mögulegum ræningja stúlkunnar en hún þykir ekki gefa miklar vísbendingar. 7.5.2007 10:15
Vaxtarhraða þorsks stjórnað með ljósum Vaxtarhraða þorsks í sjókvíaeldi er hægt að stjórna með notkun ljósa samkvæmt niðurstöðum Evrópuverkefnisins Codlight-Tech. Þannig er hægt að hvetja vöxt og hægja á kynþroska hjá þorski. Við kynþroska hættir fiskurinn að vaxa með tilheyrandi kostnaði fyrir eldisaðila. Með þessari aðferð er hægt að stytta eldistíma og bæta fóðurnýtingu þannig að þorskeldi geti orðið hagkvæmara. 7.5.2007 10:02
Ekkert svona Kona sem var á reiðhjóli sínu á leið á milli Næstved og Karrebæksminde í Danmörku, varð aldeilis hneyksluð þegar hún hjólaði framá allsnakið par í villtum samförum á akri við veginn. Hún hringdi samstundis í pólitíið sem sendi vaska sveit á vettvang. 7.5.2007 09:52
Megrunarlausi dagurinn í dag Megrunarlausi dagurinn er í dag en hann er alþjóðlegur baráttudagur gegn megrun, átröskun og fordómum í garð feitra. Dagurinn hefur verið haldinn víða um heim frá árinu 1992 til þess að vekja athygli á þjáningum sem hljótast af þráhyggju um grannan vöxt og almennri andúð á fitu. 6.5.2007 19:07
Borgarafundur í Bolungarvík Nú stendur yfir borgarafundur í Ráðhúsinu í Bolungarvík um atvinnuástandið í bæjarfélaginu. Fjölmenni er á fundinum en frambjóðendur frá öllum flokkum sitja fundinn. 6.5.2007 19:06
Senda út í breiðsniði Allt sjónvarpsefni 365 miðla mun innan skamms verða sent út í breiðsniði en rúmlega helmingur sjónvarpstækja á heimilum landisns eru með þessu sniði en brátt munu gömlu túbusjónvörpin heyra sögunni til. Allt innlent efni sem framleitt er fyrir 365 er nú þegar sent út með þessu sniði. 6.5.2007 19:04
Milljarða svindl í kvótakerfinu Svindl upp á þúsundir tonna og milljarða króna viðgengst í sjávarútvegi. Þetta leiðir rannsókn fréttaskýringaþáttarins Kompáss í ljós sem sýndur verður í kvöld. Sjávarútvegsráðherra telur að um óstaðfestar ýkjusögur sé að ræða. Fiskistofustjóri staðfestir svindlið en segir fráleitt að kenna kvótakerfinu um. 6.5.2007 19:02
Forsetinn fluttur með þyrlu á Landspítala Forseti Íslands var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann í Fossvogi vegna veikinda. Hann gengst nú undir rannsóknir en ekki er talið að veikindi hans séu alvarleg. 6.5.2007 19:00
Búið að finna flak farþegaflugvélarinnar Búið er að finna flak farþegaflugvélar sem hrapaði í skóglendi í Kamerún í gær. Ríkisútvarpsstöð í Kamerún greindi frá því fyrr í dag að vélin hefði fundist nærri bænum Mvengue. 6.5.2007 18:32
Nicolas Sarkozy verður næsti forseti Frakklands Nicolas Sarkozy er sigurvegari frönsku forsetakosninganna með 53 prósent atkvæða þegar þrír fjórðu hlutar atkvæða hafði verið taldir. Sósíalistinn Segolene Royal og stuðningsmenn hennar viðurkenndu ósigur, og þökkuðu um leið fyrir stuðning sautján milljóna frakka. 6.5.2007 18:22
Kona slasast á fæti í Botnssúlum Undanfarar björgunarsveitanna af höfuðborgarsvæðinu og af Akranesi voru kallaðir út kl 14.30 vegna konu sem slasaðist á fæti í Botnsúlum. Einnig voru kallaðir út sjúkraflutningamenn frá Akranesi svo og þyrla landhelgisgæslunnar. 6.5.2007 18:11
Sarkozy líklegur sigurvegari frönsku forsetakosninganna Nicolas Sarkozy verður nýr forseti Frakklands samkvæmt útgönguspám sem birtust í Belgískum og Svissneskum fjölmiðlum. Samkvæmt spánum hlyti Sarkozy rúm 54 prósent atkvæða, en keppinautur hans Segolene Royal 45,5 prósent. Um fimm að staðartíma, þremur tímum áður en kjörstaðir loka höfðu rúm 75 prósent kosið. 6.5.2007 17:51
Varað við ofsaroki Lögreglan varar við ofsaroki við Breiðavað rétt austan við Blönduós. Rokið virðist staðbundið en vindhraði er um 20 metrar á sekúndu. Þegar eru tveir bílar farnir útaf og mælir lögregla með því að fólk með hjólhýsi í eftirdragi bíði af sér rokið. 6.5.2007 17:26
Veikindi forsetans ekki talin alvarleg Ekki er talið að veikindi Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, séu alvarleg og að hann verði útskrifaður af spítalanum á morgun. Forsetinn var fluttur á Landspítala-háskólasjúkrahús í dag með þyrlu Landhelgisgæslunnar og lenti þar á fjórða tímanum. 6.5.2007 16:43
Tengivagn á ferð Bremsur tengivagns sem geymdur var á athafnasvæði Vörumiðlunar á Blönduósi bilaði í dag með þeim afleiðingum að vagninn rann gegnum plan bensínstöðvar N1 áður en hann staðnæmdist á bifreiðaverkstæði sem verið er að breyta í veitingahús. Þrátt fyrir að vagninn, sem var með 6 tonn af salti innanborðs hafi strokist við bíla sem verið var að dæla bensíni á, urðu engin slys á fólki. 6.5.2007 16:40
Forsetinn viðstaddur opnun Vatnasafnsins Forseti Íslands var í gær viðstaddur opnun Vatnasafnsins í Stykkishólmi, en það er sköpunarverk Roni Horn. Fjölmargir erlendir og innlendir aðilar hafa stutt stofnun Vatnasafnsins þar sem listakonan tvinnar íslenska náttúru, byggingarlist og menningu saman við listræna sýn sína. Eftir opnunina sat forsetinn kvöldverð í bopi Hreiðars Más Sigurðssonar bankastjóra Kaupþings, en hann er öflugur styrktaraðili Vatnasafnsins. 6.5.2007 16:26