Fleiri fréttir Erlendar skuldir jukust um 500 milljarða í fyrra Erlendar skuldir þjóðarbúsins umfram eignir námu 1350 milljörðum króna í lok síðasta árs og höfðu aukist um tæpa fimm hundruð milljarða á árinu. Þetta kemur fram í bráðabirgðatölum Seðlabanka Íslands. 6.3.2007 16:33 Fróaði sér yfir farþega Tvítugur starfsmaður bandaríska flugfélagsins Northwest Airlines hefur verið handtekinn fyrir að fróa sér yfir farþega. Kona sem var farþegi í flugi frá Seattle til Minneapolis var að reyna að sofa og í svefnrofunum fann hún sessunaut sinn snúa sér að henni, þar sem hún hafði snúið sér út á hlið. 6.3.2007 16:27 FL Group selur Kynnisferðir FL Group hefur selt fyrirtækið Kynnisferðir til hóps fjárfesta undir forystu SBA-Norðurleiðar og Hópbíla/Hagavagna. Fram kemur í tilkynningu frá FL Group að áætlaður söluhagnaður félagsins séu um 450 milljónir króna en kaupverðið er sagt trúnaðarmál. 6.3.2007 16:20 Haraldur endurkjörinn formaður Bændasamtakanna Haraldur Benediktsson var endurkjörinn formaður Bændasamtaka Íslands til næstu þriggja ára á Búnaðarþingi í dag. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Bændasamtökunum hlaut Haraldur mjög afgerandi kosningu eða 46 af 49 greiddum atkvæðum en tveir seðlar voru ógildir, þar af annar með nafni Guðna Ágústssonar landbúnaðarráðherra, og einn auður. 6.3.2007 15:59 Veður og færð að versna á Vestfjörðum Vegagerðin segir vonskuveður á Steingrímsfjarðarheiði og er búist við að hún verið ófær fljótlega eftir að þjónustu Vegagerðarinnar lýkur klukkan 20. Varað er við stormi og töluverðri ofankomu nú seinni partinn, í kvöld og í nótt en búast má við að það lægi með morgninum. 6.3.2007 15:52 Flaug á hús tengdamóður Bandarískur maður varð sjálfum sér og átta ára gamalli dóttur sinni að bana í Indíanafylki í gær, þegar hann flaug einshreyfils Cessna flugvél sinni á hús fyrrverandi tengdamóður sinnar. Tengdamóðurina sakaði ekki. 6.3.2007 15:41 Hátt í sjö hundruð handteknir í Kaupmannahöfn Lögreglan í Kaupmannahöfn hefur nú handtekið 675 manns í tengslum við óeirðirnar vegna niðurrifs Æskulýðshússins á Norðurbrú í borginni. Jótlandspósturinn hefur eftir lögreglu að nítján manns hafi verið handteknir í gærkvöld og nótt og þá voru sex handteknir í morgun fyrir að kveikja í bíl. 6.3.2007 15:38 Fjöldamorð á pílagrímum 6.3.2007 15:26 Elgur stangaði þyrlu til jarðar Þegar líffræðingurinn Dough Larsen skaut deyfingarpílu í stóran elgtarf í Juneau í Alaska, um helgina, átti hann von á því að dýrið hnigi niður. Larsen skaut tarfinn úr þyrlu, sem sveimaði rétt yfir jörðu og beið þess að hann félli. Þess í stað trylltist tarfurinn, réðst á þyrluna og stangaði hana. 6.3.2007 15:16 Segir eiganda hass velkominn á lögreglustöðina Eitt fíkniefnamál kom upp um helgina hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum en íbúi í fjölbýlishúsi í bænum hass liggjandi á gólfi í stigagangi hússins. Hann kom efninu til lögreglu sem segir í dagbók sinn að hafi verið níu grömm af hassi. 6.3.2007 15:11 Geðsvið LSH hafi sinnt þeim sem leitað hafi til sviðsins Geðsvið Landspítalans hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar fjölmiða um þjónustu við fyrrverandi vistmenn Breiðavíkur og Byrgisins en Geðhjálp hefur gagnrýnt ríkisstjórnina fyrir það hvernig staðið hafi verið að því að koma fólkinu til aðstoðar. 6.3.2007 15:00 Kennarar og launanefnd funda hjá ríkissáttasemjara Fulltrúar Félags grunnskólakennara og launanefndar sveitarfélaga hafa frá því klukkan eitt setið á fundi hjá ríkissáttasemjara þar sem farið hefur verið yfir kjaradeilu sem staðið hefur frá því í fyrrasumar. Kennarar vilja að laun þeirra verði leiðrétt í samræmi við verðbólgu og launabreytingar hjá fjölmörgum öðrum launastéttum. 6.3.2007 14:48 Segja Putin reka morðsveitir Vestrænir fjölmiðlar velta fyrir sér hvort einhver tengsl séu á milli þess að vinur rússneska njósnarans Alexanders Litvinenko var særður í skotárás og að rússneskur blaðamaður lést eftir að hafa dottið út um glugga á fjórðu hæð í íbúðarblokk í Moskvu. Íbúð blaðamannsins var á annarri hæð í húsinu. 6.3.2007 14:37 Fimm kynningarfundir vegna stækkunar álvers Alcan Hafnarfjarðarbær stendur á fimmtudaginn fyrir fyrsta kynningarfundinum af fimm í tengslum við atkvæðagreiðslu um stækkun álvers Alcan í Straumsvík. 6.3.2007 14:17 Jóakim sá brúðkaupið í sjónvarpi Jóakim Danaprins viðurkenndi fyrir fréttamönnum að hann hefði séð brúðkaup Alexöndru, fyrrverandi eiginkonu sinnar, í sjónvarpi. Prinsinn var staddur í Álaborg þar sem hann var að veita ungum vísindamönnum verðlaun fyrir uppgötvanir. Blaðamenn vildu hins vegar ekkert um verðlaunin vita en spurðu prinsinn látlaust um brúðkaupið. 6.3.2007 14:14 150 þúsund króna sekt fyrir ofsaakstur í tvígang Það léttist væntanlega pyngjan hjá sautján ára pilti sem tekinn var fyrir ofsaakstur á Hafnarfjarðarvegi í gær. Þetta var í annað sinn á tíu dögum sem hann var tekinn fyrir slíkt háttalag og þarf hann að reiða fram 150 þúsund krónur í sekt. 6.3.2007 14:10 Vill stuðla að notkun vistvænna ökutækja Ríkisstjórnin ræddi í morgun og samþykkti frumvarp sem miðar að því að hvetja fólk til þess að nota vistvæn ökutæki. Í minnisblaði sem forsætisráðherra lagði fram á fundinum er kemur fram að vörugjöld á bifreiðar sem eru með metangas- eða rafnmagsvélar séu 240 þúsund króum lægri en ella og að ökutæki sem nýti rafmagn eða vetni séu undanþegin gjaldskyldu til ársins 2008. 6.3.2007 13:57 Áttundi hver Íraki á flótta Áttundi hver Íraki er orðinn flóttamaður að sögn yfirmanns Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Hann segir að 40-50 þúsund manns flosni upp af heimilum sínum í hverjum mánuði. Antonio Guterres upplýsti þetta á fundi Arababandalagsins í Kaíró. 6.3.2007 13:54 Forsætisráðherra brýtur umferðarreglur Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, hefur daglega brotið umferðarreglur undanfarna mánuði með því að aka alltof hratt. Berlingske Tidende upplýsti þetta í dag. Það verður að segja ráðherranum til afsökunar að hann vissi ekki að hann væri að brjóta lög. 6.3.2007 13:51 Atorka og Straumborg kaupa 3X Technology Atorka Group og Straumborg hafa keypt meirihluta hlutafjár í félaginu 3X Technology ehf. á Ísafirði sem áður hét 3X Stál. 6.3.2007 13:33 Ykkar öskutunnur 6.3.2007 13:15 Fjölmargir skólar bjóða upp á ókeypis hafragraut Fjöldi grunnskóla er farinn að bjóða nemendum upp á ókeypis hafragraut í morgunmat. Eftir að fréttastofa Stöðvar 2 flutti frétt í gærkvöldi af Brekkuskóla á Akureyri komu ábendingar víða að um fleiri skóla sem hefðu tekið upp þennan sið. 6.3.2007 13:15 Mótmælin breiðast út Niðurrifi á Ungdomshuset á Norðurbrú í Kaupmannahöfn miðar hratt áfram og er búist við að verkinu ljúki síðar í dag. Í gær kom hins vegar til mótmæla fyrir framan danska sendiráðið í Ósló þegar um 150 manns köstuðu grjóti, flöskum og öðru lauslegu í átt að húsinu. Þá hertóku 80 ítalskir róttæklingar dönsku ræðisskrifstofuna í Feneyjum í morgun til að sýna dönskum félögum sínum samstöðu. 6.3.2007 13:00 Krefst betri þjónstu fyrir Byrgis- og Breiðavíkurfólk Geðhjálp krefst þess að stjórnvöld veiti því fólki sem dvaldi í Byrginu og í Breiðuvík aukna þjónustu og gagnrýnir harðlega hvernig staðið hefur verið að því að koma þeim til aðstoðar. 6.3.2007 12:56 Fundu 250 grömm af hassi við húsleit Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók karlmann á þrítugsaldri í gær en í vistaverum hans fundust ætluð fíkniefni. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að talið sé að þetta séu 250 grömm af hassi og neyslumagn af kókaíni. 6.3.2007 12:54 Kringlusvæði eflist og stækkar með stokkum Kringlusvæðið mun stækka og eflast til muna þegar kaflar Kringlumýrar- og Miklubrautar hafa verið lagðar í stokka neðanjarðar, eins og borgaryfirvöld stefna nú að. 6.3.2007 12:45 Lýst eftir tveimur erlendum ríkisborgurum vegna ofbeldisbrota Íslenska lögreglan hefur lýst eftir tveimur erlendum ríkisborgurum hjá Interpol og eru nöfn og myndir af þeim birtar á vef samtakanna. Þeir eru eftirlýstir vegna kynferðis- og ofbeldisbrota. 6.3.2007 12:32 Markaðir að rétta sig við Hlutabréfamarkaðir í Asíu og Evrópu hafa tekið kipp upp á við í dag eftir talsverðar lækkanir síðustu daga. Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands steig um fimmtíu stig strax við opnun klukkan tíu í morgun og hefur gengi á bréfum í stærstu fyrirtækjum landsins hækkað í samræmi við það. 6.3.2007 12:30 Hart barist í Mogadishu Harðir bardagar hafa brotist út í Mogadishu höfuðborg Sómalíu í dag. Um 100 uppreisnarhermenn réðust á hersveitir ríkisstjórnarinnar og eþjópíska bandamenn þeirra í höfuðstöðvum þeirra í borginni. Það er barist með sprengjuvörpum og stórum hríðskotabyssum. Ekki hafa borist áreiðanlegar fregnir af mannfalli. 6.3.2007 12:22 Sjötíu látnir í skjálftanum Óttast er að í það minnsta sjötíu manns hafi týnt lífi þegar tveir jarðskjálftar riðu yfir Súmötru í Indónesíu í morgun. Hús hrundu víða til grunna en engra flóðbylgna hefur þó orðið vart. 6.3.2007 12:00 Geir útilokar ekki auðlindaákvæði í stjórnarskrá Geir H. Haarde forsætisráðherra útilokar ekki að auðlindaákvæði verði sett í stjórnarskrá svo lengi sem það raski ekki núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi. 6.3.2007 11:34 Þingið í Ekvador gegn forsetanum Þingið í Ekvador lagði fram tillögu hjá stjórnarskrárdómstólum landsins til þess að reyna að koma í veg fyrir að Rafael Correa, hinn vinstri sinnaði forseti landsins, geti haldið þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort hann megi halda stjórnarskrárþing og breyta stjórnarskrá landsins. Talið er líklegt að þetta eigi eftir að auka á spennu í landinu en stuðningsmenn Correa hafa verið duglegir við að mótmæla tilburðum þingsins til þess að setja sig upp á móti Correa. 5.3.2007 23:34 Bandaríkin og Norður-Kórea í sögulegum viðræðum Viðræður eru hafnar á milli erindreka Bandaríkjanna og Norður-Kóreu um að koma á eðlilegum diplómatískum samskiptum á milli ríkjanna tveggja. Fyrsti fundurinn var í dag og er hann sá fyrsti í 50 ár á milli landanna tveggja. 5.3.2007 23:19 Enn ekki samkomulag um refsiaðgerðir Sendiherrar hjá Sameinuðu þjóðunum funduðu í dag um væntanlegar refsiaðgerðir gegn Íran en samkomulag hefur enn ekki náðst. „Málið hefur verið fært til öryggisráðsins“ sagði aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, Nicholas Burns, eftir fund með Ban Ki-Moon, aðalritara Sameinuðu þjóðanna. 5.3.2007 23:02 Ætla að rannsaka möttul jarðarinnar Vísindamenn frá háskólanum í Cardiff í Bretlandi lögðu í dag af stað í leiðangur til þess að kanna hafsbotninn á Atlantshafinu en á staðnum sem þeir ætla að skoða vantar jarðskorpuna. Möttull jarðarinnar er þar óvarður en svæðið, sem er mörg þúsund ferkílómetrar að stærð, uppgötvaðist nýlega. 5.3.2007 22:40 Umferðaróhapp á Sæbraut í kvöld Umferðaróhapp varð á Sæbraut til móts við Aktu Taktu skyndibitastaðinn í kvöld. Slysið var ekki alvarlegt en farþegi í aftursæti í öðrum bílnum slasaðist lítillega. Ökumenn beggja bílanna sluppu ómeiddir. Lögreglan vísar sem stendur umferð af Sæbrautinni inn á Skúlagötuna á meðan hún sinnir störfum sínum. Bílarnir skemmdust eitthvað en ekki er vitað hvort að þeir séu ökufærir. 5.3.2007 22:23 Veður fer versnandi á Holtavörðuheiði Veður og færð fer versnandi á Holtavörðuheiði og eru ökumenn lítilla bíla beðnir að leggja ekki á heiðina fyrir nóttina. Veginum milli Ísafjarðar og Súðavíkur er lokaður og einnig er varað við snjóflóðahættu á veginum um Óshlíð. Björgunarsveitir voru kallaðar út til þess að aðstoða mann sem hafði fest sig á Steingrímsfjarðarheiði en Vegagerðin hafði varað fólk við að ferðast þar um þar sem þjónustu var hætt klukkan átta í kvöld. 5.3.2007 22:09 Reyndu að eyðileggja sönnunargögn Bandarískir hermenn reyndu að uppræta og eyðileggja allar myndir og myndbönd af skotárásinni sem átti sér stað í gær. Í henni létust að minnsta kosti tíu manns. Þetta kom fram á vefsíðu fréttastöðvarinnar Al Jazeera í dag. 5.3.2007 21:00 Cheney með blóðtappa Læknar í Bandaríkjunum fundu í dag blóðtappa í vinstri fótlegg Dick Cheneys varaforseta Bandaríkjanna. Hann fær lyf til þess að þynna blóðið en verður ekki lagður inn á spítala samkvæmt fregnum frá talsmönnum hans. 5.3.2007 20:45 Ókeypis hafragrautur handa svöngum nemendum Grunnskóli á Akureyri hefur brotið blað í sögu skóla þar í bæ með því að bjóða öllum nemendum sínum upp á ókeypis hafragraut. Börnin taka árbítnum fagnandi og rennur grauturinn ofan í maga nemenda í stríðum straumum. 5.3.2007 20:00 Akureyrarbær boðar kennara á sérfund Ríkissáttasemjari hefur ákveðið að funda með kennurum vegna kjaradeilunnar. Akureyrarbær hefur einnig boðað sína kennara á sérfund og er fyrsta sveitarfélagið sem tekur það það skref. 5.3.2007 19:45 Aftur í pápískuna Baldur Kristjánsson, sóknarprestur og fyrrverandi biskupsritari vill að Þjóðkirkjan sameinist Kaþólsku kirkjunni undir forsæti páfa. Telur hann sýnt að fækka muni áfram í Þjóðkirkjunni en nú þegar er fimmti hver Íslendingur utan hennar eða yfir fimmtíu þúsund manns. 5.3.2007 19:24 Íslenskur munkur í íslensku klaustri Munkaklaustur reglu kapúsína verður stofnað að Kollaleiru í Reyðarfirði í sumar. Verður þá hafið að nýju klausturlíf munka hér á landi eftir hlé frá siðaskiptum fyrir 450 árum. Íslenskur munkur er við nám á Ítalíu við reglu kapúsína og verður hann fyrsti íslenski munkurinn í íslensku munkaklaustri frá tímum siðaskipta. 5.3.2007 19:19 Gera lítið úr ágreiningi Formenn og varaformenn stjórnarflokkanna gerðu lítið úr ágreiningi sínum eftir að hafa verið á fundi í forsætisráðuneytinu í morgun. Engin niðurstaða er enn komin í málið. 5.3.2007 19:14 Árni vill sömu ríkisstjórn áfram Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra, segir að Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur eigi að halda áfram stjórnarsamstarfi sínu, haldi þeir meirihluta sínum í komandi kosningum. 5.3.2007 19:07 Sjá næstu 50 fréttir
Erlendar skuldir jukust um 500 milljarða í fyrra Erlendar skuldir þjóðarbúsins umfram eignir námu 1350 milljörðum króna í lok síðasta árs og höfðu aukist um tæpa fimm hundruð milljarða á árinu. Þetta kemur fram í bráðabirgðatölum Seðlabanka Íslands. 6.3.2007 16:33
Fróaði sér yfir farþega Tvítugur starfsmaður bandaríska flugfélagsins Northwest Airlines hefur verið handtekinn fyrir að fróa sér yfir farþega. Kona sem var farþegi í flugi frá Seattle til Minneapolis var að reyna að sofa og í svefnrofunum fann hún sessunaut sinn snúa sér að henni, þar sem hún hafði snúið sér út á hlið. 6.3.2007 16:27
FL Group selur Kynnisferðir FL Group hefur selt fyrirtækið Kynnisferðir til hóps fjárfesta undir forystu SBA-Norðurleiðar og Hópbíla/Hagavagna. Fram kemur í tilkynningu frá FL Group að áætlaður söluhagnaður félagsins séu um 450 milljónir króna en kaupverðið er sagt trúnaðarmál. 6.3.2007 16:20
Haraldur endurkjörinn formaður Bændasamtakanna Haraldur Benediktsson var endurkjörinn formaður Bændasamtaka Íslands til næstu þriggja ára á Búnaðarþingi í dag. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Bændasamtökunum hlaut Haraldur mjög afgerandi kosningu eða 46 af 49 greiddum atkvæðum en tveir seðlar voru ógildir, þar af annar með nafni Guðna Ágústssonar landbúnaðarráðherra, og einn auður. 6.3.2007 15:59
Veður og færð að versna á Vestfjörðum Vegagerðin segir vonskuveður á Steingrímsfjarðarheiði og er búist við að hún verið ófær fljótlega eftir að þjónustu Vegagerðarinnar lýkur klukkan 20. Varað er við stormi og töluverðri ofankomu nú seinni partinn, í kvöld og í nótt en búast má við að það lægi með morgninum. 6.3.2007 15:52
Flaug á hús tengdamóður Bandarískur maður varð sjálfum sér og átta ára gamalli dóttur sinni að bana í Indíanafylki í gær, þegar hann flaug einshreyfils Cessna flugvél sinni á hús fyrrverandi tengdamóður sinnar. Tengdamóðurina sakaði ekki. 6.3.2007 15:41
Hátt í sjö hundruð handteknir í Kaupmannahöfn Lögreglan í Kaupmannahöfn hefur nú handtekið 675 manns í tengslum við óeirðirnar vegna niðurrifs Æskulýðshússins á Norðurbrú í borginni. Jótlandspósturinn hefur eftir lögreglu að nítján manns hafi verið handteknir í gærkvöld og nótt og þá voru sex handteknir í morgun fyrir að kveikja í bíl. 6.3.2007 15:38
Elgur stangaði þyrlu til jarðar Þegar líffræðingurinn Dough Larsen skaut deyfingarpílu í stóran elgtarf í Juneau í Alaska, um helgina, átti hann von á því að dýrið hnigi niður. Larsen skaut tarfinn úr þyrlu, sem sveimaði rétt yfir jörðu og beið þess að hann félli. Þess í stað trylltist tarfurinn, réðst á þyrluna og stangaði hana. 6.3.2007 15:16
Segir eiganda hass velkominn á lögreglustöðina Eitt fíkniefnamál kom upp um helgina hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum en íbúi í fjölbýlishúsi í bænum hass liggjandi á gólfi í stigagangi hússins. Hann kom efninu til lögreglu sem segir í dagbók sinn að hafi verið níu grömm af hassi. 6.3.2007 15:11
Geðsvið LSH hafi sinnt þeim sem leitað hafi til sviðsins Geðsvið Landspítalans hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar fjölmiða um þjónustu við fyrrverandi vistmenn Breiðavíkur og Byrgisins en Geðhjálp hefur gagnrýnt ríkisstjórnina fyrir það hvernig staðið hafi verið að því að koma fólkinu til aðstoðar. 6.3.2007 15:00
Kennarar og launanefnd funda hjá ríkissáttasemjara Fulltrúar Félags grunnskólakennara og launanefndar sveitarfélaga hafa frá því klukkan eitt setið á fundi hjá ríkissáttasemjara þar sem farið hefur verið yfir kjaradeilu sem staðið hefur frá því í fyrrasumar. Kennarar vilja að laun þeirra verði leiðrétt í samræmi við verðbólgu og launabreytingar hjá fjölmörgum öðrum launastéttum. 6.3.2007 14:48
Segja Putin reka morðsveitir Vestrænir fjölmiðlar velta fyrir sér hvort einhver tengsl séu á milli þess að vinur rússneska njósnarans Alexanders Litvinenko var særður í skotárás og að rússneskur blaðamaður lést eftir að hafa dottið út um glugga á fjórðu hæð í íbúðarblokk í Moskvu. Íbúð blaðamannsins var á annarri hæð í húsinu. 6.3.2007 14:37
Fimm kynningarfundir vegna stækkunar álvers Alcan Hafnarfjarðarbær stendur á fimmtudaginn fyrir fyrsta kynningarfundinum af fimm í tengslum við atkvæðagreiðslu um stækkun álvers Alcan í Straumsvík. 6.3.2007 14:17
Jóakim sá brúðkaupið í sjónvarpi Jóakim Danaprins viðurkenndi fyrir fréttamönnum að hann hefði séð brúðkaup Alexöndru, fyrrverandi eiginkonu sinnar, í sjónvarpi. Prinsinn var staddur í Álaborg þar sem hann var að veita ungum vísindamönnum verðlaun fyrir uppgötvanir. Blaðamenn vildu hins vegar ekkert um verðlaunin vita en spurðu prinsinn látlaust um brúðkaupið. 6.3.2007 14:14
150 þúsund króna sekt fyrir ofsaakstur í tvígang Það léttist væntanlega pyngjan hjá sautján ára pilti sem tekinn var fyrir ofsaakstur á Hafnarfjarðarvegi í gær. Þetta var í annað sinn á tíu dögum sem hann var tekinn fyrir slíkt háttalag og þarf hann að reiða fram 150 þúsund krónur í sekt. 6.3.2007 14:10
Vill stuðla að notkun vistvænna ökutækja Ríkisstjórnin ræddi í morgun og samþykkti frumvarp sem miðar að því að hvetja fólk til þess að nota vistvæn ökutæki. Í minnisblaði sem forsætisráðherra lagði fram á fundinum er kemur fram að vörugjöld á bifreiðar sem eru með metangas- eða rafnmagsvélar séu 240 þúsund króum lægri en ella og að ökutæki sem nýti rafmagn eða vetni séu undanþegin gjaldskyldu til ársins 2008. 6.3.2007 13:57
Áttundi hver Íraki á flótta Áttundi hver Íraki er orðinn flóttamaður að sögn yfirmanns Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Hann segir að 40-50 þúsund manns flosni upp af heimilum sínum í hverjum mánuði. Antonio Guterres upplýsti þetta á fundi Arababandalagsins í Kaíró. 6.3.2007 13:54
Forsætisráðherra brýtur umferðarreglur Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, hefur daglega brotið umferðarreglur undanfarna mánuði með því að aka alltof hratt. Berlingske Tidende upplýsti þetta í dag. Það verður að segja ráðherranum til afsökunar að hann vissi ekki að hann væri að brjóta lög. 6.3.2007 13:51
Atorka og Straumborg kaupa 3X Technology Atorka Group og Straumborg hafa keypt meirihluta hlutafjár í félaginu 3X Technology ehf. á Ísafirði sem áður hét 3X Stál. 6.3.2007 13:33
Fjölmargir skólar bjóða upp á ókeypis hafragraut Fjöldi grunnskóla er farinn að bjóða nemendum upp á ókeypis hafragraut í morgunmat. Eftir að fréttastofa Stöðvar 2 flutti frétt í gærkvöldi af Brekkuskóla á Akureyri komu ábendingar víða að um fleiri skóla sem hefðu tekið upp þennan sið. 6.3.2007 13:15
Mótmælin breiðast út Niðurrifi á Ungdomshuset á Norðurbrú í Kaupmannahöfn miðar hratt áfram og er búist við að verkinu ljúki síðar í dag. Í gær kom hins vegar til mótmæla fyrir framan danska sendiráðið í Ósló þegar um 150 manns köstuðu grjóti, flöskum og öðru lauslegu í átt að húsinu. Þá hertóku 80 ítalskir róttæklingar dönsku ræðisskrifstofuna í Feneyjum í morgun til að sýna dönskum félögum sínum samstöðu. 6.3.2007 13:00
Krefst betri þjónstu fyrir Byrgis- og Breiðavíkurfólk Geðhjálp krefst þess að stjórnvöld veiti því fólki sem dvaldi í Byrginu og í Breiðuvík aukna þjónustu og gagnrýnir harðlega hvernig staðið hefur verið að því að koma þeim til aðstoðar. 6.3.2007 12:56
Fundu 250 grömm af hassi við húsleit Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók karlmann á þrítugsaldri í gær en í vistaverum hans fundust ætluð fíkniefni. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að talið sé að þetta séu 250 grömm af hassi og neyslumagn af kókaíni. 6.3.2007 12:54
Kringlusvæði eflist og stækkar með stokkum Kringlusvæðið mun stækka og eflast til muna þegar kaflar Kringlumýrar- og Miklubrautar hafa verið lagðar í stokka neðanjarðar, eins og borgaryfirvöld stefna nú að. 6.3.2007 12:45
Lýst eftir tveimur erlendum ríkisborgurum vegna ofbeldisbrota Íslenska lögreglan hefur lýst eftir tveimur erlendum ríkisborgurum hjá Interpol og eru nöfn og myndir af þeim birtar á vef samtakanna. Þeir eru eftirlýstir vegna kynferðis- og ofbeldisbrota. 6.3.2007 12:32
Markaðir að rétta sig við Hlutabréfamarkaðir í Asíu og Evrópu hafa tekið kipp upp á við í dag eftir talsverðar lækkanir síðustu daga. Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands steig um fimmtíu stig strax við opnun klukkan tíu í morgun og hefur gengi á bréfum í stærstu fyrirtækjum landsins hækkað í samræmi við það. 6.3.2007 12:30
Hart barist í Mogadishu Harðir bardagar hafa brotist út í Mogadishu höfuðborg Sómalíu í dag. Um 100 uppreisnarhermenn réðust á hersveitir ríkisstjórnarinnar og eþjópíska bandamenn þeirra í höfuðstöðvum þeirra í borginni. Það er barist með sprengjuvörpum og stórum hríðskotabyssum. Ekki hafa borist áreiðanlegar fregnir af mannfalli. 6.3.2007 12:22
Sjötíu látnir í skjálftanum Óttast er að í það minnsta sjötíu manns hafi týnt lífi þegar tveir jarðskjálftar riðu yfir Súmötru í Indónesíu í morgun. Hús hrundu víða til grunna en engra flóðbylgna hefur þó orðið vart. 6.3.2007 12:00
Geir útilokar ekki auðlindaákvæði í stjórnarskrá Geir H. Haarde forsætisráðherra útilokar ekki að auðlindaákvæði verði sett í stjórnarskrá svo lengi sem það raski ekki núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi. 6.3.2007 11:34
Þingið í Ekvador gegn forsetanum Þingið í Ekvador lagði fram tillögu hjá stjórnarskrárdómstólum landsins til þess að reyna að koma í veg fyrir að Rafael Correa, hinn vinstri sinnaði forseti landsins, geti haldið þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort hann megi halda stjórnarskrárþing og breyta stjórnarskrá landsins. Talið er líklegt að þetta eigi eftir að auka á spennu í landinu en stuðningsmenn Correa hafa verið duglegir við að mótmæla tilburðum þingsins til þess að setja sig upp á móti Correa. 5.3.2007 23:34
Bandaríkin og Norður-Kórea í sögulegum viðræðum Viðræður eru hafnar á milli erindreka Bandaríkjanna og Norður-Kóreu um að koma á eðlilegum diplómatískum samskiptum á milli ríkjanna tveggja. Fyrsti fundurinn var í dag og er hann sá fyrsti í 50 ár á milli landanna tveggja. 5.3.2007 23:19
Enn ekki samkomulag um refsiaðgerðir Sendiherrar hjá Sameinuðu þjóðunum funduðu í dag um væntanlegar refsiaðgerðir gegn Íran en samkomulag hefur enn ekki náðst. „Málið hefur verið fært til öryggisráðsins“ sagði aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, Nicholas Burns, eftir fund með Ban Ki-Moon, aðalritara Sameinuðu þjóðanna. 5.3.2007 23:02
Ætla að rannsaka möttul jarðarinnar Vísindamenn frá háskólanum í Cardiff í Bretlandi lögðu í dag af stað í leiðangur til þess að kanna hafsbotninn á Atlantshafinu en á staðnum sem þeir ætla að skoða vantar jarðskorpuna. Möttull jarðarinnar er þar óvarður en svæðið, sem er mörg þúsund ferkílómetrar að stærð, uppgötvaðist nýlega. 5.3.2007 22:40
Umferðaróhapp á Sæbraut í kvöld Umferðaróhapp varð á Sæbraut til móts við Aktu Taktu skyndibitastaðinn í kvöld. Slysið var ekki alvarlegt en farþegi í aftursæti í öðrum bílnum slasaðist lítillega. Ökumenn beggja bílanna sluppu ómeiddir. Lögreglan vísar sem stendur umferð af Sæbrautinni inn á Skúlagötuna á meðan hún sinnir störfum sínum. Bílarnir skemmdust eitthvað en ekki er vitað hvort að þeir séu ökufærir. 5.3.2007 22:23
Veður fer versnandi á Holtavörðuheiði Veður og færð fer versnandi á Holtavörðuheiði og eru ökumenn lítilla bíla beðnir að leggja ekki á heiðina fyrir nóttina. Veginum milli Ísafjarðar og Súðavíkur er lokaður og einnig er varað við snjóflóðahættu á veginum um Óshlíð. Björgunarsveitir voru kallaðar út til þess að aðstoða mann sem hafði fest sig á Steingrímsfjarðarheiði en Vegagerðin hafði varað fólk við að ferðast þar um þar sem þjónustu var hætt klukkan átta í kvöld. 5.3.2007 22:09
Reyndu að eyðileggja sönnunargögn Bandarískir hermenn reyndu að uppræta og eyðileggja allar myndir og myndbönd af skotárásinni sem átti sér stað í gær. Í henni létust að minnsta kosti tíu manns. Þetta kom fram á vefsíðu fréttastöðvarinnar Al Jazeera í dag. 5.3.2007 21:00
Cheney með blóðtappa Læknar í Bandaríkjunum fundu í dag blóðtappa í vinstri fótlegg Dick Cheneys varaforseta Bandaríkjanna. Hann fær lyf til þess að þynna blóðið en verður ekki lagður inn á spítala samkvæmt fregnum frá talsmönnum hans. 5.3.2007 20:45
Ókeypis hafragrautur handa svöngum nemendum Grunnskóli á Akureyri hefur brotið blað í sögu skóla þar í bæ með því að bjóða öllum nemendum sínum upp á ókeypis hafragraut. Börnin taka árbítnum fagnandi og rennur grauturinn ofan í maga nemenda í stríðum straumum. 5.3.2007 20:00
Akureyrarbær boðar kennara á sérfund Ríkissáttasemjari hefur ákveðið að funda með kennurum vegna kjaradeilunnar. Akureyrarbær hefur einnig boðað sína kennara á sérfund og er fyrsta sveitarfélagið sem tekur það það skref. 5.3.2007 19:45
Aftur í pápískuna Baldur Kristjánsson, sóknarprestur og fyrrverandi biskupsritari vill að Þjóðkirkjan sameinist Kaþólsku kirkjunni undir forsæti páfa. Telur hann sýnt að fækka muni áfram í Þjóðkirkjunni en nú þegar er fimmti hver Íslendingur utan hennar eða yfir fimmtíu þúsund manns. 5.3.2007 19:24
Íslenskur munkur í íslensku klaustri Munkaklaustur reglu kapúsína verður stofnað að Kollaleiru í Reyðarfirði í sumar. Verður þá hafið að nýju klausturlíf munka hér á landi eftir hlé frá siðaskiptum fyrir 450 árum. Íslenskur munkur er við nám á Ítalíu við reglu kapúsína og verður hann fyrsti íslenski munkurinn í íslensku munkaklaustri frá tímum siðaskipta. 5.3.2007 19:19
Gera lítið úr ágreiningi Formenn og varaformenn stjórnarflokkanna gerðu lítið úr ágreiningi sínum eftir að hafa verið á fundi í forsætisráðuneytinu í morgun. Engin niðurstaða er enn komin í málið. 5.3.2007 19:14
Árni vill sömu ríkisstjórn áfram Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra, segir að Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur eigi að halda áfram stjórnarsamstarfi sínu, haldi þeir meirihluta sínum í komandi kosningum. 5.3.2007 19:07