Hátt í sjö hundruð handteknir í Kaupmannahöfn 6. mars 2007 15:38
Lögreglan í Kaupmannahöfn hefur nú handtekið 675 manns í tengslum við óeirðirnar vegna niðurrifs Æskulýðshússins á Norðurbrú í borginni. Jótlandspósturinn hefur eftir lögreglu að nítján manns hafi verið handteknir í gærkvöld og nótt og þá voru sex handteknir í morgun fyrir að kveikja í bíl. Í nógu hefur verið að snúast í réttarsölum Kaupmannahafnar þar sem dómarar hafa vart haft undan að framlengja gæsluvarðhaldsúrskurði yfir fólki sem handtekið var í óeirðunum. Liðlega 30 útlendingar, sem setið hafa í gæsluvarðhaldi í þrjá daga, voru leiddir fyrir dómara í dag og var hluti hópsins úrskurðaður í þriggja daga varðhald til viðbótar en flestir í vikuvarðhald. Þann tíma ætlar lögreglan að nota til að kanna hvort ástæða sé til að ákæra fólkið eða einfaldlega senda það úr landi. Reiknað er með að niðurrifi Æskulýðshússins, sem hófst í gær, ljúki síðar í dag.
Mest lesið Andrew handtekinn á heimili sínu Erlent Tvö innbrot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón Innlent „Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Innlent „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Innlent Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot Innlent Guðmundi Inga hafnað Innlent Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Innlent Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Erlent „Við systkinin erum bara vinnandi fólk“ Innlent Árekstur á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Reyna aftur á morgun Ákærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu Yfir þúsund grunaðir barnaníðingar handteknir í hverjum mánuði Segir Trump setja ósanngjarnan þrýsting á Úkraínu Viðræður gengu ágætlega en ekkert fast í hendi Friðrik leggur land undir fót til að stappa stálinu í Grænlendinga Lindsay Graham hafi hellt sér yfir Frederiksen og sagt Trump geta tekið Grænland Bandarískir hermenn í Nígeríu Colbert bannað að birta viðtal við Demókrata Skutu eldflaugum á Hormuz-sund þegar viðræður hófust Reyna að stöðva ein átök og koma í veg fyrir önnur Mannréttindafrömuðurinn Jesse Jackson látinn Gamall sófi og múrsteinar komu upp um barnaníðing Viðræður Írana og Bandaríkjamanna að hefjast í Genf „Ég vil bara að þetta sé sanngjarnt. Að komið sé eins fram við alla“ Sjá meira