Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Húsnæðisverð hækkar enn Hækkun á húsnæðisverði var meiri í síðasta mánuði en áætlað var, og mest á landsbyggðinni en þar hækkaði húsnæðisverð um rúm þrjú prósent. Á höfuðborgarsvæðinu hækkaði einbýli um 1,6 prósent en um eitt prósent í fjölbýli. Þetta kemur fram í morgunkorni Greiningar Glitnis en þar segir að vísitala neysluverðs í febrúar hafi hækkað meira en spá bankans gerði ráð fyrir, eða um 0,4 prósent. 12.2.2007 12:58
Írak: Sprengjuárásir kostuðu minnst 80 manns lífið Talið er að minnst 80 hafi týnt lífi og 150 særst í þremur sprengingum á markaði í miðborg Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Ár er liðið í dag frá sprengjuárás á guðshús sjía-múslima í borginni Samarra. 12.2.2007 12:45
400 flóttamenn handteknir Nær 400 flóttamenn voru í morgun handteknir í Máritaníu en þeir voru á leið með fragtskipi til Kanaríeyja. Flóttamennirnir eru nú í haldi spænsku lögreglunnar. Fólkið er ýmist frá Afríku eða Asíu. Lögregla í Máritaníu og á Spáni samræmdu aðgerðir og stöðvuðu skipið á leið þess norður eftir vesturströnd Afríku. 12.2.2007 12:45
Varaforseti Saddam verður hengdur Hæstiréttur í Írak dæmdi í dag Taha Yassin Ramadan, fyrrum varaforseta Saddam Hussein, til dauða. Hann verður að líkindum hengdur fyrir lok mánaðarins. Ramadan var í nóvember dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morðin í Dujail sem Saddam var dæmdur til dauða fyrir en eftir áfrýjun var ákveðið að hann skildi líka hengdur. 12.2.2007 12:43
Íslensk-indversk lyfjasamvinna Íslenska lyfjafyrirtækið Invent Farma ehf. hefur í samvinnu við indverska lyfjaframleiðandann Strides Arcolab Ltd. stofnað tvö ný samstarfsfyrirtæki. Annars vegar Domac Laboratories sem mun leggja áherslu á að þróa og selja lyf til sjúkrastofnana á Spáni og í Portúgal, og hins vegar eignarhaldsfélagið Plus Farma á Íslandi sem nýlega festi kaup á lyfjafyrirtækinu Farma Plus í Osló í Noregi. Farma Plus er vaxandi aðili í sölu á lyfjum til sjúkrahúsa á Norðurlöndum. 12.2.2007 12:37
Jón Ásgeir yfirheyrður í þrjá daga Hádegishlé er í aðalmeðferð í Baugsmálinu en hún hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun með vitnisburði Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, forstjóra Baugs. Sérstakur ríkissaksóknari reiknar með að yfirheyra Jón Ásgeir í þrjá daga en tekist var á um tilteknar lánveitingar Baugs til Gaums. 12.2.2007 12:32
Fóstureyðingarlöggjöf verður breytt í Portúgal Fóstureyðingarlöggjöf í Portúgal verður breytt þrátt fyrir að þjóðaratkvæðagreiðsla í gær um breytingar á henni hafi ekki verið bindandi. Núgildandi löggjöf hefur verið sú strangasta í Evrópu. 12.2.2007 12:30
Demókratar vara Bush við Demókratar á Bandaríkjaþingi hvetja Bush-stjórnina til að sýna aðgát þegar Íranar eru sakaðir um að ýta undir ofbeldi í Írak með vopnasmygli og fjármögnun uppreisnarhópa. Öruggar sannanir vanti og ekki sé góð reynsla af því að taka ákvarðanir sem byggi á vafasömum sönnunargögnum. 12.2.2007 12:15
Yfirstjórn RÚV við talningu Enn er á huldu hversu margir starfsmenn Ríkisútvarpsins hafa ákveðið hvort þeir muni hætta störfum þegar stofnunin breytist í opinbert hlutafélag. 12.2.2007 11:59
Þjóðarsátt um auðlindanýtingu og náttúruvernd Þjóðarsátt á að nást um auðlindanýtingu og náttúruvernd segja Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra og Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra en þau kynntu nú fyrir hádegi frumvarp um rannsóknir og nýtingu auðlinda í jörðu. Ráðherrarnir kynntu tvö frumvörp á blaðamannafundi í morgun sem þau munu mæla fyrir á þingi á morgun. 12.2.2007 11:58
Virkjanaáform í Þjórsá óásættanleg Náttúruverndarfélagið Sól á Suðurlandi mótmæla harðlega virkjanaáformum Landsvirkjunar í neðri hluta Þjórsár. Í fréttatilkynningu skorar félagið á stjórnvöld að fórna ekki íslenskri náttúru til framkvæmda sem nýtast eiga til mengangi starfsemi. Í tilkynningunni segir að í framhaldi af umræðu um hlýnun jarðar af mannavöldum sé óásættanlegt að fara í slíkar framkvæmdir. 12.2.2007 11:22
Ekkert lát á óöld Minnst 59 fórust í tveimur bílsprengjuárásum á Shorja-markaðinn í Bagdad í morgun. Lögregla segir 150 til viðbótar hafa særst. Annars staðar í borginni fórust minnst fimm í annari bílsprengjuárás í morgun. Í gær fórust 30 í sjálfsmorðsárás á lögreglustöð í Tikrit, þar af 21 lögreglumaður. 12.2.2007 11:07
Liðsmaður Baader-Meinhof látinn laus Þýskur dómstóll hefur úrskurðað að sleppa skuli Birgitte Monhaupt, einum forsprakka Rauðu herdeilda Baader-Meinhof, en hún hefur setið í fangelsi í nær aldarfjórðung. Hún var árið 1982 dæmd í fimmfalt lífstíðarfangelsi fyrir mannrán, morð og hermdarverk. 12.2.2007 10:56
Obama svarar fyrir sig Barack Obama sem sækist eftir útnefningu demókrata fyrir forsetakosningar í Bandaríkjunum svarar John Howard forsætisráðherra fullum hálsi, en Howard sagði í gær að Obama væri draumaforseti Al Kaída og að loforð hans um að draga herlið Bandaríkjanna frá Írak væri loforð um að færa hryðjuverkamönnum sigur í stríðinu á silfurfati. 12.2.2007 10:41
Neysla áfengis dregst saman Svo virðist sem landsmenn hafi verið heldur hógværari í neyslu áfengis í upphafi þorra í ár, en á síðasta ári. Sala á áfengi dróst saman um tæp 11 prósent á föstu verðlagi á milli janúarmánuða árið 2006 og 2007. Þetta kemur fram í nýjum niðurstöðum rannsóknarseturs verslunarinnar á smásöluvísitölu fyrir janúar 2007. Sé miðað við breytilegt verðlag hefur sala áfengis dregist saman um tæp 6 prósent. 12.2.2007 10:33
Segir flensuna ekki komna frá Ungverjalandi Fuglaflensusmitið sem upp kom á kalkúnabúi Bernard Matthews í Suffolk á Englandi í síðustu viku er ekki komið frá Ungverjalandi. Þetta fullyrðir Andreas Dekany talsmaður landbúnaðarráðuneytisins í Ungverjalandi. 12.2.2007 10:32
Algjör hasshaus Belgiskur maður var handtekinn fyrir hassmygl frá Hollandi til heimalandsins, vegna þess að það var svo megn hasslykt af honum að aðrir farþegar í lestinni þoldu ekki við. Hollenskir lestarverðir létu belgisku lögregluna vita af manninum, og hans var beðið þegar lestin kom til Antwerpen. 12.2.2007 10:30
Ný samgönguáætlun kynnt á morgun Sturla Böðvarsson samgönguráðherra ætlar að kynna samgönguáætlun fyrir árin 2007 til 2018 á Ísafirði á morgun. Stefnt er að því að henni verði dreift á Alþingi síðdegis á morgun. Fundur samgönguráðherra verður í húsnæði Vegagerðarinnar á Ísafirði 11.2.2007 19:45
Innihald í íslenskum kjötvörum oft á tíðum óljóst Eftirlit með notkun bindiefna í kjötvörur er lítið hér á landi. Umhverfisstofnun veit ekki hvað helsta bindiefnið í kjötvörum, svokallað tendin, inniheldur. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í fréttaskýringaþættinum Kompási í kvöld. 11.2.2007 19:15
Vígslubiskup harmar atburðina í Breiðuvík Sigurður Sigurðarson, vígslubiskup í Skálholti, kveðst harma þá atburði sem gerðust í Breiðuvík, en hann starfaði þar um tíma á sjöunda áratugnum. Hann kveðst þó aldrei hafa séð líkamlegu ofbeldi beitt þar en eftir að hann heyrði orðróm um slíkt frá drengjunum hafi hann gengið á fund yfirvalda og hvatt til að heimilinu yrði breytt. 11.2.2007 19:11
Slagsmál vegna gleraugnasvika Gleraugnasali í Toronto í Kanada hefur verið ákærður fyrir að ganga í skrokk á hálfáttræðum fréttamanni sem hugðist fletta ofan af vörusvikum hans. Barsmíðarnar náðust á myndband og verða notaðar í málaferlunum gegn honum. 11.2.2007 19:00
Vill að einhver axli ábyrgð Það er til skammar fyrir íslensk stjórnmál hvernig allir hlaupa frá Byrgismálinu. Þetta sagði Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, í Silfri Egils í dag. Forsætisráðherra sagði mikinn þrýsting hafa verið á stjórnvöld að láta fé í Byrgið og stjórnarandstaðan hefði verið framarlega í flokki. 11.2.2007 18:55
Verðlaunaður fyrir að bjarga lífi móður sinnar Átta ára drengur, sem bjargaði lífi móður sinnar síðasta sumar, var í dag valinn skyndihjálparmaður ársins af Rauða krossinum. "Hundrað og tólf" dagurinn er í dag og í ár var hann tileinkaður sjálfboðaliðum. 11.2.2007 18:52
Segja Írana kynda undir ófriðnum Talsmenn Bandaríkjahers sökuðu í dag Írana um að kynda undir ófriðareldinum í Írak með því að smygla vopnum til uppreisnarmanna í landinu. Þetta er í fyrsta sinn sem Bandaríkjamenn saka íranska embættismenn með beinum hætti um að láta uppreisnarmönnum vopn í té. 11.2.2007 18:45
Engin lausn fékkst á kjarnorkudeilunni. Íranar ætla að halda kjarnorkuáætlun sinni til streitu enda segja þeir hana ekki brjóta í bága við alþjóðalög. Leitað var leiða til lausnar kjarnorkudeilunni á ráðstefnu í Þýskalandi í dag en án árangurs. 11.2.2007 18:30
Ráðuneytið kannar hvort lög hafi verið brotin Verið er að kanna í fjármálaráðuneytinu hvor farið hafi verið að lögum þegar fjárfestingarbankinn, Straumur-Burðarás, fékk heimild til að skrá bókhald sitt í evrum. 11.2.2007 17:42
Royal kynnir stefnuskránna Segolene Royal, forsetaefni franskra sósílista, kynnti í dag stefnuskrá sína fyrir kosningarnar í vor. Tillögur hennar eru í hundrað liðum og þær miða allar að því að gera Frakkland að sterkara og sanngjarnara þjóðfélagi. 11.2.2007 17:31
Aðalmeðferð í Baugsmálinu á morgun Aðalmeðferð hefst í Baugsmálinu á morgun en alls verða tæplega eitt hundrað vitni kölluð til. Verið er að taka fyrir átján ákæruliði í endurákæru. Það eru þeir Jón Ásgeir Jóhannesson, aðaleigandi Baugs, Tryggvi Jónsson, fyrrverandi forstjóri fyrirtækisins og Jón Gerald Sullenberger, sem nú eru ákærðir. 11.2.2007 16:54
Til skammar hvernig allir hlaupa frá Byrgismálinu Það er til skammar fyrir íslensk stjórnmál hvernig allir hlaupa frá Byrgismálinu. Þetta sagði Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, í Silfri Egils í dag. 11.2.2007 16:38
Fuglar valda óþægindum á Akranesi Fuglar hafa valdið nokkrum óþægindum í Akraneshöllinni undanfarið. Framkvæmdanefnd mannvirkja Akraneskaupstaðar er nú að leita leiða til að koma í veg fyrir fuglalíf í höllinni. Á vef Skessuhorns er greint frá því að opnar ristar séu á göflum hússins og fuglar hafa átt greiða inngönguleið þar um. 11.2.2007 15:31
Fjölmenni á baráttufundi í Árnesi Félagsheimilið í Árnesi er þétt setið en þar stendur nú yfir baráttufundur andstæðinga þriggja virkjana sem áformaðar eru í neðri hluta Þjórsár. Talið er að um fjögur hundruð manns séu á fundinum en meðal fundargesta eru þingmenn, frambjóðendur í kjördæminu og úr öðrum landshlutum, heimafólk og höfuðborgarbúar. 11.2.2007 15:21
Gangsæjar pípur reistar við Hellisheiðavirkjun Listahópurinn Norðan Bál átti vinningstillöguna í samkeppni Orkuveitu Reykjavíkur um útilistaverk við Hellisheiðarvirkjun. Hugmynd þeirra felur í sér að reistar verða sverar gagnsæjar pípur framan við stöðvarhúsið. Gufa og litað ljós leika svo um þær og gefa þær jafnframt frá sér djúpa tóna. 11.2.2007 14:45
Drengur sem bjargaði lífi móður sinar skyndihjálparmaður ársins Egill Vagn, átta ára drengur sem bjargaði lífi móður sinnar síðasta sumar, var í dag valinn skyndihjálparmaður ársins af Rauða krossinum. Egill Vagn brást fljótt við þegar móðir hans missti meðvitund vegna bráðaofnæmis. Hann sótti adrenalínpenna í veski móður sinnar, sprautaði hana í handlegginn og hringdi síðan í neyðarlínuna eftir hjálp. 11.2.2007 14:13
Þyrla skotin niður í Írak Óljósar fregnir hafa borist af því að flugskeyti hafi grandað bandarískri herþyrlu af Apache-gerð norður af Bagdad í morgun. Á blaðamannafundi sem haldinn var í Bagdad fyrr í dag sögðu talsmenn Bandaríkjahers að æ fleiri vísbendingar væru um að vopn sem kæmu frá Íran væru notuð í baráttunni gegn hernámsliðinu. 11.2.2007 13:57
Baráttufundur gegn virkjunum í Þjórsá í dag Andstæðingar þriggja virkjana, sem áformaðar eru í neðri hluta Þjórsár, boða til baráttufundar gegn þeim í félagsheimilinu Árnesi í dag. Nær engin andstaða var gegn þessum virkjunum þegar þær fóru í gegnum umhverfismat fyrir þremur árum. 11.2.2007 13:20
Cameron í kannabisneyslu Breska dagblaðið Independent on Sunday fullyrðir að David Cameron leiðtogi breska Íhaldsflokksins hafi á unglingsárum sínum reykt marijúana. Cameron vildi ekki neita þessum staðhæfingum í samtölum við blaðamenn í morgun en lét nægja að segja að hann hefði gert hluti þegar hann var ungur sem hann sæi eftir í dag. 11.2.2007 13:00
Gerð Helgafellsbrautar hitamál Gerð Helgafellsbrautar er orðið mikið hitamál hjá íbúum í Mosfellsbæ og sást það glöggt á opnum fundi Varmársamtakanna í gær. Samtökin telja marga þætti ekki hafa verið skoðaða nógu vel og vilja að hætt verði við framkvæmdirnar. Bærinn ætlar að halda opinn fund um málið í næstu viku. 11.2.2007 13:00
Ósáttir við lögreglumann og sprengdu upp flugeld Lögreglan telur ekki tilviljun að flugeldur hafi verið sprengdur upp við heimili lögregluþjóns á Skagaströnd í nótt. Lítið tjón var af spengingunni sem var við dyr hússins. Kristján Þorbjörnsson, yfirlögregluþjónn á Blönduósi, segir lögregluþjóninn hafa haft afskipti af vélhjólamönnum á svæðinu og telur lögreglan sprenginguna eins konar svar við því. 11.2.2007 12:40
Samfylking og Vinstri-grænir gætu myndað ríkisstjórn Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, segist ekki geta tekið mark á skoðanakönnun Fréttablaðsins um fylgi stjórnmálaflokkanna sem birt var í dag en könnunin sýnir flokkinn með 3,9% fylgi. Samkvæmt könnuninni geta Samfylkingin og Vinstri-grænir myndað ríkisstjórn ef gengið yrði til kosninga nú. 11.2.2007 12:30
112 dagurinn helgaður sjálfboðaliðum Í dag er 112 dagurinn og af því tilefni verður fjölbreytt dagskrá víða um land á vegum viðbragðsaðila í björgun og almannavörnum. Á hádegi lagði 112 lestin af stað frá Skógarhlíð en á bilinu þrjátíu til fjörtíu bílar lögreglu, slökkviliðs og björgunarsveita eru í lestinni, auk þyrlu Landhelgisgæslunnar sem flýgur með. 11.2.2007 12:17
Skipverjar á Castor Star fá launin greidd Góðar líkur eru á að uppskipun úr flutningaskipinu Castor Star sem stendur við Grundartangahöfn geti hafist á ný á morgun. Samkomulag náðist í gær við útgerðina um greiða skipverjum laun sem þeir hafa ekki fengið greidd síðan í september. 11.2.2007 12:11
Kjarnorkuáætluninni verður haldið til streitu Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, segir að Íranar ætli að halda kjarnorkuáætlun sinni til streitu en um leið muni þeir ekkert aðhafast sem brjóti í bága við alþjóðalög. Tíu dagar eru þangað til fresturinn sem Íranar fengu hjá öryggisráði Sameinuðu þjóðanna til að hætta auðgun úrans rennur út. 11.2.2007 12:00
Berdymukhamedov sigurstranglegastur Túrkmenar ganga að kjörborðinu í dag og kjósa sér nýjan forseta. Hann fær það erfiða verkefni að taka við arfleið hins nýlátna Saparmurat Niyazov, betur þekktur sem Turkmenbashi eða faðir allra Túrkmena. 11.2.2007 11:45
Ætla að halda úranauðgun áfram Íranar ætla að halda kjarnorkuáætlun sinni til streitu en vilja gera það í samræmi við alþjóðalög. Þetta sagði Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, á 28 ára afmælishátíð klerkabyltingarinnar í landinu í morgun. 11.2.2007 11:15
Kosið um fóstureyðingar Þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram í Portúgal í dag um hvort rýmka eigi rétt kvenna til fóstureyðinga. Þeir sem eru hlynntir rýmkuðum heimildum virðast vera í naumum meirihluta. Til að atkvæðagreiðslan teljist gild verður að minnsta helmingur atkvæðisbærra manna að taka þátt og því gæti reynst erfitt að fá frumvarpið samþykkt. 11.2.2007 10:45
Foreldrar Sólons óska eftir skýrslutökum yfir núverandi og fyrrverandi starfsmönnum Icelandair Innlent