Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tímaspursmál hvenær ljósabekkir verða bannaðir Tímaspursmál er talið hvenær öll notkun ljósabekkja á landinu verður bönnuð, segir læknir. Hið opinbera vinnur nú markvisst að því að útrýma ljósabekkjum í húsnæði sveitarfélaga. 10.2.2007 19:45
Obama í framboð Barack Obama, öldungadeildarþingmaður, tilkynnti formlega í dag að hann gæfi kost á sér sem forsetaefni demókrata í kosningunum 2008. Obama greindi frá ákvörðun sinni á tröppum gamla þinghússins í Springfield í Illinois en þar flutti Abraham Lincoln fræga ræðu árið 1858. 10.2.2007 19:30
Utanríkisráðherra grunaði einhvern í ráðuneyti sínu um njósnir Guðmundur Í. Guðmundsson, sem gegndi starfi utanríkisráðherra árið 1959, grunaði einhvern í ráðuneyti sínum um njósnir. Þetta kemur fram í svokallaðri Kaldastríðsskýrslu sem birt var í gær. 10.2.2007 19:15
Sea Sheperd enn við sama heygarðshornið Reyna á til þrautar að höggva á hnútinn í Alþjóða hvalveiðiráðinu á ráðstefnu sem fram fer í Japan í næstu viku en formaður íslensku sendinefndarinnar er svartsýnn á að hún skili árangri. Liðsmenn Sea Sheperd-samtakanna réðust á japanskt hvalveiðiskip í Suðurhöfum í gær. 10.2.2007 19:00
Fyrrverandi starfsmaður segir ekkert harðræði hafa verið Fyrrverandi starfsmaður á Breiðuvík segir engan hafa verið beittan harðræði, svo hann viti til, á fyrsta starfsári Þórhalls Hálfdánarsonar. Drengirnir hafi búið við góðan aðbúnað. 10.2.2007 18:57
Davíð segir að krónan verði áfram gjaldmiðill Íslendinga Krónan verður gjaldmiðill Íslendinga næsta áratuginn hið minnsta, segir Davíð Oddsson seðlabankastjóri. Hann segir tal um að taka upp evru án þess að vera í Evrópusambandinu vera æfingar sem ekki séu boðlegar til að hafa uppi á borðinu. 10.2.2007 18:45
Skaut föstum skotum að Bandaríkjamönnum. Vladimir Pútín Rússlandsforseti sakaði Bandaríkin um valdníðslu, í ræðu sinni á ráðstefnu um öryggismál í Þýskalandi í dag. Við sama tækifæri skoraði Angela Merkel, kanslari Þýskalands, á Írana að sýna samvinnu um kjarnorkumál sín. Innan Bandaríkjahers er undirbúningur að hernaðaraðgerðum gegn Íran sagður langt kominn. 10.2.2007 18:30
Kannað hvort framleiða eigi snjó í Bláfjöllum Verið er að skoða möguleika á snjóframleiðslu á skíðasvæði höfuðborgarbúa í Bláfjöllum. Borgarráð ætlar jafnframt að kanna hagkvæmni þess að hafin verði snjóframleiðsla á skíðasvæðinu í Skálafelli. Með því að setja upp snjóframleiðslukerfi væri hægt að fjölga notkunardögum skíðasvæðanna en snjóleysi hefur fækkað opnunardögum. 10.2.2007 18:09
Nafn mannsins sem lést í Stokkhólmi Maðurinn, sem lést í eldsvoða í Stokkhólmi aðfaranótt fimmtudagsins, hét Hlynur Heiðberg Konráðsson. Hann var búsettur í Reykjavík og var þrjátíu og þriggja ára að aldri. Hann lætur eftir sig sex ára gamlan son hér á landi og íslenska unnustu sem býr í Danmörku. 10.2.2007 17:59
Mosfellsbær boðar til fundar vegna Helgafellsvegar Mosfellsbær boðar til opins kynningarfundar um hönnun og útfærslu tengivegar inn í Helgafellshverfi. Fundurinn verður þriðjudaginn 13. febrúar í Listasal Mosfellsbæjar. 10.2.2007 17:41
Seglhjól á Tjörninni Fallegt veður hefur verið í höfuðborginni í dag og margir notið þess. Á Tjörninni í Reykjavík nýttu nokkrir sér svellið sem þar er til að æfa sig á svokölluðum seglhjólum. 10.2.2007 17:26
112 dagurinn á morgun Á morgun er 112 dagurinn og verður þá fjölbreytt dagskrá um allt land á vegum viðbragðsaðila í björgun og almannavörnum. Í ár er dagurinn helgaður störfum sjálfboðaliða. Á hádegi leggur 112 lestin af stað frá Skógarhlíð en á bilinu 30 til 40 bílar lögreglu, slökkviliðs og björgunarsveita verða í lestinni, auk þyrlu Landhelgisgæslunnar. 10.2.2007 17:14
Féll af hestbaki Flytja þurfti konu á slysadeild eftir að hún féll af hestbaki á Blikastaðarnesi í Mosfellsbæ fyrr í dag. Hjálmur sem konan var með kom í veg fyrir að ekki fór verr en hún fékk heilhristing og áverka á andlit. 10.2.2007 16:17
Ætla að finna plánetur sem líkjast Jörðinni Vísindamenn Evrópsku geimferðastofnunarinnar (ESA) hyggjast finna lífvænlegar plánetur sem líkjast jörðinni. Til þess ætla þeir að nota öflugasta geimsjónauka sem smíðaður hefur verið, Darwin-sjónaukann. Áætlað er að sjónaukanum verði skotið upp árið 2020. 10.2.2007 16:15
Lögreglumaður stakk af Ekið var á snjósleða íbúa eins á Seyðisfirði fyrir stuttu þar sem hann stóð fyrir utan hús hans. Á vef Austurgluggans er sagt frá því að eigandi sleðans hafi orðið vitni atvikinu. 10.2.2007 16:01
Vélarvana bátur kominn til hafnar á Skagaströnd Afi Aggi EA-399 er kominn til hafnar á Skagaströnd en báturinn varð vélarvana norður af Drangaskörðum í nótt. Tveir menn voru um borð og sakaði þá ekki. Björgunarbáturinn Húnabjörg sótti bátinn og gekk ferðin aftur í land vel. 10.2.2007 15:32
Tvö ár í að búið verði að stöðva uppreisnir Sveitir Atlantshafsbandalagsins verða búnar að stöðva uppreisnir skæruliða í Afganistan árið 2009 og stjórn Hamid Karzai, forseta landsins, verður fær um að stjórna landinu sjálf. Þetta sagði Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, í dag. 10.2.2007 15:15
Geir sigraði með miklum yfirburðum Geir Þorsteinsson var í dag kjörinn nýr formaður KSÍ. Geir hlaut yfirburðakosningu í kjörinu eða alls 86 atkvæði. Jafet Ólafsson hlaut 29 atkvæði en Halla Gunnarsdóttir hlaut 3 atkvæði. Geir tekur við starfi formanns af Eggerti Magnússyni, sem nú stígur af stóli eftir 18 ára langa setu. 10.2.2007 14:16
Tilnefningar til Blaðamannaverðlauna Íslands Blaðamannafélagið hefur birt tilnefningar til Blaðamannaverðlauna Íslands ársins 2006. Verðlaunin verða veitt laugardaginn 17. febrúar. 10.2.2007 14:03
Páfagauki stolið af fuglasýningu Verðmætum páfagauki var stolið af fuglasýningu í Blómaval í Skútuvogi í gær. Fuglinn er Sun Conor fugl og hvarf hann rétt fyrir lokun í búðinni. Fuglinn var laus en þar sem hann er vængstýfður er ljóst að hann hefur ekki komist burt sjálfur. 10.2.2007 13:47
Verið að draga vélarvana bát til Skagastrandar Björgunarbáturinn Húnabjörg er á leiðinni til Skagastrandar með vélarvana bát. Báturinn, Afi Aggi EA-399, er frá Dalvík og óskuðu skipverjar eftir aðstoð á sjöunda tímanum í morgun en þá hafði vél bátsins bilað og sjór komist í vélarrúm. 10.2.2007 13:24
Enn mótmælt við al-Aqsa moskuna Palestínumenn og Arabar búsettir í Ísrael héldu í morgun áfram mótmælum sínum við al-Aqsa moskuna í Jerúsalem. Grjóti var kastað að rútu með ferðamönnum, eldar kveiktir og rúður brotnar. 10.2.2007 13:15
Obama býður sig fram Barack Obama öldungardeildarþingmaður mun í dag lýsa því formlega yfir að hann bjóði sig fram sem forsetaefni demókrata fyrir bandarísku forsetakosningarna 2008. 10.2.2007 12:45
Sylvía Nótt ekki dauð úr öllum æðum Sylvía Nótt er ekki dauð úr öllum æðum þótt lítið hafi farið fyrir henni hér á landi eftir þátttöku hennar í Söngvakeppni sjónvarpsstöðva í Grikklandi í vor. Hún undirritaði hljómplötusamning í morgun sem sagður er vera stærstur sinnar tegundar á Íslandi. 10.2.2007 12:45
Einhugur um að koma í veg fyrir kjarnorkuáform Írana Angela Merkel, kanslari Þýskalands, sagði í morgun að alþjóðasamfélagið væri einhuga í að koma í veg fyrir að Írönum takist að koma sér upp kjarnavopnum og varaði þá við undanbrögðum. Undirbúningur að hernaðaraðgerðum gegn Íran er sagður langt kominn innan bandaríska stjórnkerfisins. 10.2.2007 12:16
Davíð telur ekki víst að Kaupþing skipti yfir í evru Davíð Oddsson seðlabankastjóri segir ekki endilega líklegt að Kaupþing skipti yfir í evru enda geti það haft ýmsar neikvæðar afleiðingar í för með sér fyrir bankann. Fari hins vegar svo óttast Davíð ekki afleiðingarnar, það myndi hugsanlega um skamma hríð skapa tímabundinn trúverðugleikavanda gagnvart krónunni. 10.2.2007 12:16
Skipverjar Castor Star bíða enn eftir launum Ekkert þokast í málum skipverja á flutningaskipinu Castor Star sem er við Grundatangahöfn. Fulltrúi útgerðarinnar kom aftur um borð í skipið í morgun en skipverjarnir hafa enn ekki fengið launin sín greidd. 10.2.2007 12:05
Hraðaakstur undir Hafnarfjalli Tveir ökumenn voru teknir fyrir hraðaakstur undir Hafnarfjalli í nótt á 112 og 118 kílómetra hraða. Lögreglan í Borgarnesi vill koma þeim skilaboðum á framfæri að mikil hálka er á vegum í umdæmi hennar vegna hlýnunnar undanfarin sólarhring og eru því ökumenn beðnir að gæta ítrustu varúðar nú sem endranær. 10.2.2007 11:23
Dánarorsökin enn óljós Krufning á fyrirsætunni Önnu Nicole Smith, sem fannst látin á hóteli í Flórída í fyrrakvöld, leiddi ekki í ljós dánarorsök hennar en lögregla útilokar þó að henni hafi verið ráðinn bani. 10.2.2007 11:15
Sýkt kjöt fór líklega í verslanir Breskir embættismenn hafa viðurkennt að líkur séu á að sýkt kjöt af búi í Suffolk þar sem fuglaflensa greindist í síðustu viku hafi ratað í verslanir og verið selt neytendum. 10.2.2007 10:45
Íslenskukennslu fyrir erlent fiskvinnslufólk Íslenskukennslu fyrir erlent fiskvinnslufólk á Íslandi verður komið á, en sjávarútvegsráðherra og fulltrúi Fjölmenningarseturs á Ísafirði skrifuðu undir samning þess efnis í gær. 10.2.2007 10:39
Stuðningsmenn Gore undirbúa forsetaframboð Stuðningsmenn Al Gore vinna nú hljóðlega að því að undirbúa hugsanlegt framboð hans til forseta Bandaríkjanna. Gore segist þó sjálfur ekki ætla að bjóða sig fram. 9.2.2007 23:35
Burns segir Írana grafa sína eigin gröf Aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, Nicholas Burns, sagði í dag að Íranar væru að grafa sína eigin gröf þegar hann var spurður um kjarnorkudeiluna við þá. Bandaríkin hafa þegar lagt fram tilboð til viðræðna sem Íranar líta ekki við. 9.2.2007 23:16
Búlgarar þrýsta á líbýsk stjórnvöld Mörg þúsund manns söfnuðust saman á götum úti um alla Búlgaríu í dag til þess að sýna samstöðu með fimm samlöndum sínum sem voru dæmdir til dauða í Líbýu. Fimmmenningarnir voru dæmdir til dauða fyrir að hafa smitað fleiri en 450 börn af HIV veirunni. Fleiri en 50 þeirra hafa nú látist. 9.2.2007 22:49
Upplýsingum var hagrætt til að réttlæta innrás Formaður hermálanefndar öldungadeildar bandaríska þingsins gaf í dag til kynna að upplýsingum sem notaðar voru við ákvarðanatöku fyrir Íraksstríðið hefði verið hagrætt. 9.2.2007 22:21
SÞ ráðast inn í fátækrahverfi á Haiti Hundruð hermanna frá Sameinuðu þjóðunum gerðu í dag innrás í fátækrahverfið Cite Soleil í borginni Port-au-Prince á Haiti. Um 300 þúsund manns búa í hverfinu. Herinn var að reyna að handsama leiðtoga glæpagengis og yfirtaka svæðið sem gengið réði yfir. 9.2.2007 22:10
Geta lesið hugsanir Vísindamenn hafa þróað tækni sem getur séð fyrir hvað fólk ætlar sér að gera. Tækið greinir virkni heilans og fylgist með breytingum sem í honum verða eftir því hvað fólk hugsar um. Þannig er hægt að kortleggja aðgerðir í heilanum og því hægt að spá fyrir um hvað fólk er að hugsa. Aðferðin virkar nú í um 70% tilfella. 9.2.2007 21:45
Nýr forsætisráðherra skipaður í Gíneu Forseti Gíneu, Lansana Conte, tilnefndi í dag Eugene Camara sem nýjan forsætisráðherra landsins. Camara var áður ráðherra forsetans. Með þessari tilnefningu var Conte að koma til móts við stéttarfélög í landinu og kröfur þeirra. 9.2.2007 21:39
Forstjóri Cartoon Network segir af sér Forstjóri Cartoon Network, Jim Samples, sagði af sér í dag eftir að ein auglýsingaherferð stöðvarinnar fór úr böndunum. Auglýsingaherferði snerist um það að búa til lítil ljósaskilti sem sýndu persónu úr teiknimyndaseríu gefa dónalega bendingu á þann er á horfði. Þeim var síðan komið fyrir á fjölförnum stöðum í Boston í Bandaríkjunum. 9.2.2007 21:00
Ekkert óeðlilegt við dauðdaga Önnu Nicole Ekkert kom í ljós í krufningu Önnu Nicole Smith sem bendir til þess að eitthvað óeðlilegt hafi verið við dauðdaga hennar. Enn hefur ekki verið staðfest hvers vegna hún lét lífið. Lögreglustjórinn á Dania Beach, Charlie Tiger, sagði á fréttamannafundi í kvöld að það myndi taka þrjár til fimm vikur að rannsaka gögnin úr krufningunni. Anna Nicole Smith lést í gærkvöldi á hóteli við Dania Beach. Hún var 39 ára þegar hún lést og lætur eftir sig 5 mánaða dóttur. 9.2.2007 20:45
Fóstureyðingar brátt leyfilegar í Portúgal Fimm skoðanakannanir sem birtar voru í Portúgal í dag gefa til kynna að landsmenn muni aflétta banni við fóstureyðingum í þjóðaratkvæðagreiðslu sem fer fram á sunnudaginn kemur. Samkvæmt könnunum segja 52 til 58 prósent landsmanna að þeir ætli að segja já við tillögum ríkisstjórnarinnar sem munu leyfa fóstureyðingu allt til tíundu viku meðgöngu. 9.2.2007 20:37
Kona verður forseti Harvard Elsti háskóli Bandaríkjanna, Harvard, mun um helgina tilnefna Drew Gilpin Faust sem forseta skólans. Hún verður fyrsta konan sem gegnir þessari stöðu í 371 ára sögu skólans. Þetta þýðir stefnubreytingu á málum skólans en fyrrum forseti skólans, Lawrence Summers, þurfti að segja af sér vegna athugasemda um konur. Þær þóttu vera litaðar af kvenfyrirlitningu. 9.2.2007 20:15
Eldflaug skotið á hótel í Mogadishu Eldflaug var skotið á hótel í Mogadishu, höfuðborg Sómalíu, í dag. Enginn lést í árásinni en fjöldi manns slasaðist. Einnig voru mótmæli í borginni vegna nærveru afrískra friðargæsluliða og hótuðu mótmælendur að ráðast gegn þeim. 9.2.2007 19:57
Úrskurðir í safni Pósts og síma Samkvæmt skýrslu Kaldastríðsnefndar Alþingis eru dómsúrskurði um hleranir lögreglu á árunum 1945 til 1991 að finna í skjalasafni Pósts- og Síma sem enn á eftir að fara yfir. Gögnum lögreglu var eytt 1976. Nefndin leggur til að sérstöku safni yfir gögn um öryggismál verði komið á fót. 9.2.2007 19:29
Uggur í skipverjum Uggur er í skipverjum um borð í flutningaskipinu Castor Star, sem hefur verið í Grundartangahöfn síðan í fyrradag. Þeir segjast ekki hafa fengið greidd laun og rýran kost vera um borð. Fulltrúi útgerðarfélagsins kom um borð í morgun og hefur fram eftir degi ráðið ráðum sínum með íslenskum lögfræðingi. 9.2.2007 19:23
Foreldrar Sólons óska eftir skýrslutökum yfir núverandi og fyrrverandi starfsmönnum Icelandair Innlent