Fleiri fréttir

Stjórnvöld þurfa að taka í taumana

Stjórnvöld þurfa að taka í taumana í stjórnleysinu sem ríkir í stóriðju- og virkjanamálum. Þetta sagði formaður Samfylkingarinnar, sem kynnti rammaáætlun flokksins er lýtur að náttúruvernd, á Alþingi í dag. Formaðurinn neitar því að þetta séu viðbrögð við skoðanakönnun Blaðsins, sem sýnir fylgistap Samfylkingarinnar og fylgisaukningu Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs.

Í gæsluvarðhald eftir Kompás

Hálffimmtugur karlmaður var í héraðsdómi í dag úrskurðaður í gæsluvarðhald í eina viku. Maðurinn er einn af þeim fimm sem fóru í íbúð, sem Kompás hafði tekið á leigu, í þeirri von að hitta þrettán ára stúlku.

Fjármagnstekjufólk greiði til samfélagsins

Skattkerfið þarf að ná til fólks sem hefur fjármagnstekjur en greiðir ekki venjulega skatta, segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna. Á þriðja þúsund landsmanna hefur eingöngu fjármagnstekjur og borgar ekkert til sveitarfélaganna.

Upptaka af loftárás á bandamenn

Breskir fjölmiðlar birtu í dag myndband sem er sagt sýna bandaríska hermenn fella breskan bandamann sinn í loftárás í Írak fyrir tæpum 4 árum. Myndbandið hefur valdið miklu fjaðrafoki í Bretlandi.

Húsnæðislán bankanna hækkað fasteignaverð

Vextir á íbúðalánum eru hærri nú en þeir voru fyrir innreið bankanna á húsnæðislánamarkaðinn. Innkoma bankanna var mislukkuð segir sjálfstæður fjármálaráðgjafi.

Vistheimili ríkisins verða rannsökuð vegna Breiðuvíkur

Félagsmálaráðherra ætlar að láta rannsaka málefni vistheimilisins í Breiðuvík og fleiri stofnana og hagi þeirra sem þar voru vistaðir. Til greina kemur að greiða vistmönnum bætur vegna hrottalegrar meðferðar á heimilinu.

Varnarliðið skuldar íslenskum fyrirtækjum

Íslensk fyrirtæki kvarta undan því að hafa ekki fengið greitt fyrir vörur hjá Varnarliðinu, um eða yfir hálfu ári eftir að herinn fékk vörurnar. Reikningarnir eru ýmist sendir til höfuðstöðva hersins á Ítalíu eða í Bretlandi.

Þriggja mánaða fangelsi fyrir fólskulega árás

Tveir karlmenn um tvítugt þurfa aðeins að sitja í þrjá mánuði í fangelsi fyrir fólskulega árás gegn jafnaldra sínum. Þeir rændu honum við þriðja mann og óku með hann upp í Heiðmörk þar sem þeir gengu í skrokk á honum. Maðurinn hlaut lífshættulega áverka.

Stjórnvöld án markmiða í loftlagsmálum

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir íslensk stjórnvöld ekki hafa sett sér markmið um takmörkun á losun gróðurhúsalofttegunda eins og flestar þjóðir Evrópu hafi gert. Forsætisráðherra segir að Íslendingar muni ekki skerast úr leik þegar reynt verði að ná samstöðu þjóða um þetta mál.

Nýr milljarða fjárfestingasjóður

Nýr fjárfestingasjóður sem er í meirihlutaeigu lífeyrissjóða hefur lokið fjármögnun sinni og hefur nú 5,5 milljarða til að fjárfesta í sprotafyrirtækjum. Ísland er annað vænlegasta landið fyrir fjárfesta í Evrópu samkvæmt nýrri könnun

Nowak kærð fyrir morðtilraun

Lögreglan í Orlando í Flórída hefur ákært geimfara vegna tilraunar til morðs. Geimfarinn, Lisa Nowak, reyndi að ræna konu sem hún hélt að væri samkeppnisaðili um ástir annars geimfara, William A. Oefelein. Nowak var handtekin fyrir líkamsárás í gær og átti að sleppa henni gegn tryggingu í dag.

Samfylkingin vill fresta stóriðjuframkvæmdum

Samfylkingin vill fresta stóriðjufamkvæmdum í Straumsvík og Helguvík. Þetta kom fram í ræðu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur í umræðu sem fram fór á Alþingi í dag. Umræðan var vegna frumvarps um rammaáætlun um náttúruvernd.

Morðingi Önnu Lindh fær ekki að fara heim

Hinn serbneski morðingi Önnu Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar, fær ekki að afplána lífstíðar fangelsisdóm sinn í Serbíu. Sænsk fangelsisyfirvöld höfnuðu beiðni þar um, eftir að hafa fengið þau svör frá Serbíu að óljóst væri hvort refsing hans yrði stytt þar.

Mótmæla í rúminu

Bandarískt par mótmælir nú í rúminu heima hjá sér að hætti Johns Lennons og Yoko Ono, gegn stríðinu í Írak. Ernie og Lynn Seewer frá Mobile í Alabama hafa fært rúmið sitt inn í stofu og vilja að aðrir fylgi fordæmi sínu. Ernie sagði Press-Register að eins og John Lennon væri honum sama að gera sig að fífli, ef skilaboðin kæmust áfram. Ernie kennir fjölmiðlaframleiðslu í háskólanum í suður Alabama.

Tuttugu og fimm ára rútuferð

Jaeyaena Beuraheng er múslimi af malaiskum uppruna sem hvorki kann að tala eða skrifa taílensku. Hún bjó í einu af þrem múslimahéruðum syðst í Thaílandi, sem voru innlimuð í Taíland fyrir meira en eitthundrað árum. Þau hafa hinsvegar aldrei runnið saman við Taíland og tungumál og siðir eru allt aðrir.

Tengibrautin í samræmi við lög

Bæjarstjóri Mosfellsbæjar segir að heimild til að veita framkvæmdaleyfi fyrir tengibraut um Álafosskvísl hafi verið skýr og í fullu samræmi við lög og reglur. Gengið hafi verið úr skugga um það á fundi bæjarins með fulltrúum Umhverfisstofnunar 5. febrúar. Ekki hafi þurft að leita umsagnar Umhverfisstofnunar í þriðja sinn.

Ódýrara að aka um Hvalfjarðargöngin

Veggjöld um Hvalfjarðagöngin lækka frá og með 1. mars næstkomandi. Þannig lækkar stök ferð fólksbíla úr eitt þúsund krónum í níu hundruð krónur. Gjaldið fyrir staka ferð hefur verið þúsund krónur frá því göngin voru opnuð 1998. Bæði er um lækkun virðisaukaskatts að ræða og lækkun fyrirtækisins.

Dæmdir fyrir að ræna manni og misþyrma honum

Héraðsdómur Reykjaness dæmi í dag þrjá unga karlmenn fyrir að ræna í maí á síðasta ári tvítugum karlmanni og misþyrma honum. Þeir námu manninn á brott af heimili hans í Garðabæ, óku með hann upp í Heiðmörk og gengu í skrokk á honum þar.

Lýst eftir 16 ára stúlku

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir 16 ára stúlku Guðrúnu Maríu Pálsdóttur. Ekkert hefur til hennar spurst síðan þriðjudaginn 30. janúar. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Guðrúnar Maríu eru beðnir að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1100.

Brúðarmeyjar til leigu

Kínversk stúlka hefur stofnað fyrirtæki sem séhæfir sig í leigu á brúðarmeyjum. Xu Lisha er nemandi í Tækniskólanum í Tianjin. Í auglýsingu á internetinu leitar hún að grönnum háskólanemum, glæsilegum í útliti, sem hafi hæfileika til að bregðast fljótt og vel við atvikum í brúðkaupum.

Frumvarp um losun gróðurhúsalofttegunda

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun frumvarp umhverfisráðherra um losun gróðurhúsalofttegunda. Frumvarpinu er ætlað að gefa stjórnvöldum tæki til að stjórna losun koldíoxíðs frá stóriðju.

Segja „draumalandsverð“ afvegaleiðingu

Íslenskir kjúklingaframleiðendur bregðast við fréttum um fuglaflensu í Bretlandi og salmonellusmit í Svíþjóð. Þeir vilja benda á að allt innra eftirlit hér á landi er mjög virkt og litlar líkur á að hér komi upp skæðir faraldrar eins verið hafa í fréttum.

Kjósa um framboð

Félagsmenn í Framtíðarlandinu munu kjósa um það á morgun hvort þeir bjóði sig fram til Alþingis eða ekki. Til þess að af framboðinu verði þurfa 66,6% félagsmanna að samþykkja tillögu þess efnis.

Álaborg seld með kvóta frá Þorlákshöfn

Bergur Huginn í Vestmannaeyjum hefur keypt tog- og netabátinn Álaborg ÁR 25 af Eyrum ehf. í Þorlákshöfn. Báturinn er seldur með öllum kvóta, sem er 364 þorskígildistonn. Álaborg er 138 brúttórúmlestir, smíðuð á Ísafirði árið 1974.

Vill láta rannsaka drengjaheimilið í Breiðuvík

Félagsmálaráðherra telur mikilvægt að starfsemi á drengjaheimilinu í Breiðuvík á Vestfjörðum verði rannsökuð. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, vakti máls á fréttaflutningi Kastljósins af slæmri meðferð drengjanna sem þar dvöldu við upphaf þingfundar í dag.

Samfylkingin hvergi bangin

Varaformaður Samfylkingarinnar segir að nægur tími sé til að hífa upp fylgi flokksins fyrir kosningar og að formaður flokksins sé trompið í þeirri viðleitni. Helstu niðurstöður skoðanakannannar Blaðsins um fylgi stjórnmálaflokkana sem birt var í dag sýnir mikið fylgistap hjá Samfylkingunni frá síðustu kosningum og mælist hún nú með liðlega 19 prósenta fylgi en var með 31 prósent í kosningum 2003.

Málið á Laugum fullrannsakað

Sigurður Brynjúlfsson, yfirlögregluþjónn á Húsavík, segir að það muni ráðast á næstu dögum hvort mál nokkurra drengja sem námu á brott stúlkur undir lögaldri úr heimavistarskólanum á Laugum verði sent til ríkissaksóknara. Málið þykir fullrannsakað og hefur lögfræðingur embættisins það nú undir höndum.

Bæjarstjóri á „flæmingi“ undan lögunum

Varmársamtökin segja að bæjarstjóri Mosfellsbæjar hafi farið með rangt mál í fréttum í gærkvöldi varðandi mat á umhverfisáhrifum af tengibraut um Álafosskvos. Ragnheiður Ríkharðsdóttir bæjarstjóri sagði að vegna úrskurðar umhverfisráðherra um náttúruminjaskrá, hafi bænum ekki borið skylda til að óska eftir umsögn Umhverfisstofnunar um umhverfisáhrif. Þetta segja Varmársamtökin rangt.

Forsætisráðherra segir Byrgismálið hneyksli

Forsætisráðherra segir að Byrgismálið sé bæði fjárhagslegt og mannlegt hneykslismál, en telur að félagsmálaráðherra þurfi ekki að segja af sér embætti vegna þess. Málið sé allt til rannsóknar hjá réttum aðilum.

Tekist á um Baugsmálið

Skattrannsóknastjóri segir að ríkislögreglustóri hafi ekki lagaheimildir til að krefja embætti sitt um upplýsingar um skattamál einstaklinga, sem tengjast Baugsmálinu. Saksóknari efnahagsbrota hjá Ríkislögreglustjóra segir hins vegar að sér beri að sjá til þess að sekir menn sæti refsimeðferð.

Bandaríkjamenn skutu á Breta

Breska götublaðið Sun og AP fréttastofan hafa komist yfir upptökur úr stjórnklefa bandarískrar orustuþotu sem skaut á bílalest breskra hermanna í Basra í Írak fyrir tæpum fjórum árum.

Fasteignaverð lækkar í höfuðborginni

Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hefur nálgast þolmörk og lækkaði á síðasta ári. Sveitarfélögin auka óvissu á fasteignamarkaði með því að upplýsa ekki um lóðaframboð. Forstöðumaður Rannsóknaseturs um húsnæðismál segir þó enga holskeflu lækkana framundan.

Börn sjá klám á netinu

Nærri sex af hverjum tíu breskum börnum hafa fyrir slysni rambað inn á klámsíður á netinu. Prófessor í geðlækningum við London School of Economics sem gerði rannsókn með þessum niðurstöðum segir engan sýnilegan árangur af forritum og netvörnum sem eiga að sía út óæskilegt efni.

Uppbygging Vatnsmýrarinnar rædd í dag

Tillaga Samfylkingarinnar um uppbyggingu þekkingarklasa í Vatnsmýrinni verður til umræðu í borgarstjórn í dag. Byggir hún stefnumótun og þróun síðustu ára, m.a. samningum við Háskóla Íslands, Háskólan í Reykjavík og Landsspítala-háskólasjúkrahús.

Dæmdur fyrir gagnastuld frá Decode

Fyrrverandi starfsmaður Íslenskrar erfðagreiningar var í dag dæmdur í tveggja mánaða fangelsi fyrir að stela gögnum frá Íslenskri erfðagreiningu. Dómurinn er skilorðsbundinn til tveggja ára. Verjandi mannsins segir niðurstöðuna byggða á misskilningi.

Sænskt fjölskyldufólk háð hinu opinbera

Í nýrri bók sænska hagfræðingsins Dr. Fredrik Bergström er tekið fyrir hvernig háskattapólitík í Svíþjóð hefur gert venjulegt sænskt fjölskyldufólk háð hinu opinbera um efnahagslegt og félagslegt öryggi. Höfundurinn heldur fyrirlestur í Háskólanum í Reykjavík um efni bókarinnar og annarar bókar þar sem borin eru saman lífskjör í Svíþjóð og Bandaríkjunum.

Önnur bréfsprengja í Englandi

Tveir særðust þegar bréfsprengja sprakk í skrifstofubyggingu í Berkshire í suðurhluta Englands í morgun. Í gær slasaðist ein kona þegar önnur bréfsprengja sprakk á skrifstofu í London. Byggingin í Berkshire var rýmd eftir sprenginguna í morgun. Lögregla segir of snemmt að segja til um það hvort sprengingin í dag og sú í gær tengist.

Lunga Björns Bjarnasonar féll saman

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, þurfti að leita sér læknisaðstoðar í gær en við skoðun kom í ljós að hægra lunga hans hafði fallið saman.

Stjórn mynduð í Hollandi

Kristilegir demókratar, Verkamannaflokkurinn og Kristilegi flokkurinn virðast vera að ná saman um samsteypustjórn í Hollandi. Tveir mánuðir eru frá þingkosningum í landinu.

Indverjar ræða við Google

Google á nú í viðræðum við indversku ríkisstjórnina vegna Google Earth forritsins. Indversk yfirvöld eru hrædd um að of mikið sjáist á myndunum sem eru í Google Earth og að öfgamenn geti notað þær sem teikningar.

Öldungadeildin styður Bush

Öldungadeild bandaríska þingsins hafnaði í kvöld tillögu sem hefði lýst yfir óánægju þingsins með aukningu hermanna í Írak. Frumvarpið var ekki bindandi fyrir George W. Bush, forseta Bandaríkjanna. Það var hugsað sem opinber yfirlýsing um andstöðu við áætlanir Bush.

Íranar segja frá framförum 11. febrúar

FARS, fréttastofa íranska ríkisins, sagði frá því á laugardaginn var, að 11. febrúar yrði sagt frá stórkostlegum framförum í kjarnorkuáætlun landsins. 11. febrúar er lokadagur hátíðahalda sem minnast uppreisnarinnar í Íran árið 1979.

Sjá næstu 50 fréttir