Fleiri fréttir Kristinn efast um að tekjuskattur skili sér Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir í dag á vefsíðu sinni að hann efist um að reiknaðar skattgreiðslur fjármálafyrirtækja hér á landi skili sér til ríkissjóðs. 5.2.2007 20:14 Róbótar finna sennilega ekki líf á Mars Ef það er líf á Mars, er það sennilega of langt undir yfirborði plánetunnar til að vélmenni geti fundið það og greint. Þetta er niðurstaða sérfræðinga á vegum Evrópsku geimferðastofnunarinnar. Ástæðan er sú að hafi nokkurn tímann verið líf á borð við einfrumunga eða bakteríur á Mars þá hefur geimgeislun fyrir löngu eytt um það öllum ummerkjum. 5.2.2007 19:56 Krókódíll í lauginni Saklausum gestum, sem ætluðu að fá sér sundsprett í almenningslaug í Darwin í Ástralíu, brá heldur betur í brún í morgun. Í þann mund sem ljós laugarinnar voru kveikt, svo þeir gætu dýft sér ofan í, skaust tæplega tveggja metra langur ósakrókódíll úr trjáþykkninu og ofan í laugina á undan þeim. 5.2.2007 19:45 Fjögur nauðgunarmál frá áramótum Óvenju mörg kynferðisafbrotamál hafa komið upp á Norðurlandi síðustu vikur, að sögn Daníels Guðjónssonar yfirlögregluþjóns á Akureyri. Nú um helgina kom upp mál á skemmtistað á Akureyri þar sem grunur leikur á að konu um tvítugt hafi verið nauðgað á salerni. 5.2.2007 19:30 Sterkt samband á mili steranotkunar og ofbeldisverka Rannsóknir á Norðurlöndum hafa sýnt að sterkt samband er á milli ofbeldisverka og steranotkunar og hefur það meðal annars komið fram í mjög alvarlegum tilvikum heimilisofbeldis. Engar rannsóknir hafa verið gerðar hér á landi um tengsl ofbeldis og steranotkunar og í ofbeldismálum kannar lögregla ekki sérstaklega hvort um steraneyslu sé um að ræða 5.2.2007 19:15 Giuliani færist nær framboði Rudy Giuliani, fyrrum borgarstjóri New York borgar, hefur færst skrefi nær því að tilkynna framboð sitt til forsetaembættis Bandaríkjanna. Giuliani var rétt í þessu að skila inn blöðum þar sem hann lýsir yfir framboði sínu. 5.2.2007 19:15 Segja stjórnarliða í leikritagerð Stjórnarandstaðan sagði Sigurð Kára Kristjánsson, þingmann Sjálfstæðisflokksins, og forsætisráðherra hafa sett á svið leikrit í fyrirspurnatíma á Alþingi í dag, þar sem þingmaðurinn vakti athygli á nýrri skýrslu um tekjuskiptingu á Íslandi. Sigurður Kári sagði stjórnarandstöðuna ekki þola upplýsingar um góða stöðu mála í landinu. 5.2.2007 19:01 Skipulögðu rán og nauðganir á stúlkum Breskur dómstóll hefur dæmt þrjá menn til langrar fangelsisvistar fyrir að áforma að ræna tveimur stúlkum og nauðga þeim. Mennirnir skipulögðu illvirkið á spjallrás á internetinu. 5.2.2007 19:00 Aldraðir óánægðir með að ráðherra styðji þá með þeirra eigin fé Stjórn Landssambands eldri borgara lýsir yfir undrun og óánægju með að stjórnvöld hafi stutt blaðaútgáfu sambandsins með fjármagni úr Framkvæmdarsjóði aldraðra. "Stormur í vatnsglasi" segir heilbrigðisráðherra. 5.2.2007 19:00 Bílaflotinn allur á vetni innan 30 ára Vetnisverkefnið með Strætó sýnir að hægt hefði verið að minnka losun á koltvísýringi í andrúmsloftið um 20 þúsund tonn á síðustu tveimur árum ef allir strætisvagnar hefðu gengið fyrir vetni. Í morgun voru kynntar tillögur um breytingar á gjaldtöku á bifreiðar sem tekur mið af losun þeirra á koltvísýringi og líst iðnaðarráðherra vel á tillögurnar. 5.2.2007 18:54 Framlög til varnarmála aukin George Bush lagði fjárlagafrumvarp sitt fyrir Bandaríkjaþing í dag en það hljóðar upp á tæplega tvö hundruð þúsund milljarða íslenskra króna. Fjórðungur þeirra upphæðar rennur til hermála en skorið verður niður á heilbrigðissviðinu. 5.2.2007 18:45 Fjöldamorð í Neðra-Saxlandi Lögreglan í Neðra-Saxlandi í Þýskalandi rannsakar nú morð á sex manns en lík þeirra fundust á kínverskum veitingastað í bænum Sittensen í morgun. 5.2.2007 18:45 Skrá yfir dæmda kynferðisbrotamenn á Íslandi Svo gæti farið að skrá yfir kynferðisbrotamenn yrði að veruleika á Íslandi, samkvæmt samningi Evrópuráðsins um meðferð slíkra brotamanna. Slík skrá hefur ekki verið haldin á Íslandi fyrr. 5.2.2007 18:45 Leynisamkomulag brot á lögum og jafnvel stjórnarskrá Talsmenn vinstri grænna og Samfylkingarinnar segja að lög og jafnvel stjórnarskrá hafi verið brotin þegar viðaukum við varnarsamninginn var haldið leyndum fyrir Alþingi. Forsætisráðherra og utanríkisráðherra eru sammála um að innihald viðaukanna kalli ekki á leynd, en tíðarandinn hafi verið allt annar fyrir hálfri öld en nú. 5.2.2007 18:43 Kuldaköst að vori heyri sögunni til Kuldaköst á vorin heyra sögunni til á Íslandi en um leið verður norðanáttin algengari, gangi spár um hlýnun loftslags eftir. Þetta er mat Haraldar Ólafssonar, veðurfræðings, sem segir sumarið lengjast í báða enda en áfram verði kalt yfir hávetur. 5.2.2007 18:30 56,5 milljónum úthlutað Baugur Group úthlutaði í dag 43 aðilum 56,5 milljónum úr Styrktarsjóði Baugs Group. Þetta var í þriðja sinn sem úthlutað var úr sjóðnum. Styrktarsjóði Baugs Group hf. er ætlað að styðja margvísleg líknar og velferðarmál auk menningar listalífs. Styrkirnir voru veittir í Iðusölum við Lækjargötu. 5.2.2007 18:29 Íslensku forvarnarverðlaunin í annað sinn Íslensku forvarnaverðlaunin verða veitt í annað sinn í apríl og standa tilnefningar nú yfir. Markmiðið er að verðlauna þá sem þykja skara fram úr í forvarnastarfi og hvetja þá og aðra til góðra verka. Viðurkenningarnar eru veittar í þrem flokkum: Í fyrsta lagi til fyrirtækis sem skarað hefur framúr í forvörnum, í öðru lagi til einstaklings sem sýnt hefur forystu og frumkvæði í forvörnum og loks til félagasamtaka eða stofnana sem eru í fararbroddi í forvörnum. 5.2.2007 18:19 100 milljón króna villa rústuð Hundrað milljón króna hús sem hæstaréttarlögmaður keypti fyrir rösku ári, var rifið í dag. 5.2.2007 17:45 Umferðarteppa í Ártúnsbrekku Miklar umferðartafir eru nú í Ártúnsbrekku vegna aftanákeyrslu sem þar varð. Lögreglan segir að ekki sé vitað hvað olli árekstrinum. Engin slys urðu á fólki í árekstrinum og bílarnir skemmdust lítið. 5.2.2007 17:18 Grunaðir um að hafa smyglað kókaíni til landsins Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa flutt til landsins tæp 108 grömm af kókaíni. 5.2.2007 17:00 15 ára falsaði debetkort 15 ára stúlka sótti um debetkort fyrir eldri konu og skilaði mynd af sér með. Hún vitjaði kortsins og tók út fimmhundruð krónur í hraðbanka. Upp komst um kortafalsið og hefur stúlkan fengið eins árs skilorðsbundin dóm. 5.2.2007 16:54 Viðbúnaðarstig vegna fuglaflensu ekki aukið hér á landi Landbúnaðarstofnun hefur ákveðið að gera ekki breytingu á viðbúnarðarstigi vegna fuglaflensu hér á landi en fuglaflensa hefur greinst í alifuglabúi á Bretlandseyjum. 5.2.2007 16:51 Utanríkisráðherra hefði viljað betri skilasamninga vegna varnasvæðis Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri-grænna, sagði að lög hefðu jafnvel verið brotin á sínum tíma þegar ekki var haft samráð við Alþingi við gerð leyniviðauka með varnarsamningnum 1951. Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra sagði að hún hefði viljað sjá betri skilasamninga við Bandaríkjamenn vegna varnarsvæðisins í Keflavík. 5.2.2007 16:39 Stjórn SUS undrast styrki til sauðfjárræktar Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna lýsir furðu sinni á fyrirhuguðum samniingi milli ríkisstjórnarinnar og Bændasamtaka Íslands um styrki til sauðfjárræktar. Í tilkynningu til fjölmiðla segir að stórfelldar niðurgreiðslur í formi skattheimtu, framleiðsluhöftum og verðstýringu gangi þvert á flest grundvallargildi sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir. 5.2.2007 16:09 Sigurður Kári með leikrit á Alþingi? Nokkuð snarpar umræður voru á Alþingi í dag eftir að Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði forsætisráðherra og flokksbróðir sinn um nýja skýrslu Hagstofunnar um tekjudreifingu á Íslandi. Sigurður var af þingmönnum stjórnarandstöðunnar sakaður um að setja upp leikrit og hafa þannig teppt fyrirspurnartíma. 5.2.2007 16:08 Breskir fuglar bannaðir 5.2.2007 16:05 Rannsóknarsamstarf Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins og læknadeild Harvard háskólans í Bandaríkjunum munu vinna saman að rannsókn. Hún fer fram á fjórum heilsugæslustöðvum hérlendis með allt að 120 þátttakendum. 5.2.2007 15:35 Karlmenn við stýrið Tveir vinir í Kentucky ákváðu að ræna hraðbanka með hraði, svo þeir kæmust örugglega undan. Þeir bundu keðju í stuðarann á pallbínum sem þeir áttu, og vöfðu svo keðjunni utan um hraðbankann. Svo gáfu þeir allt í botn til þess að rífa hraðbankann út úr veggnum. 5.2.2007 15:35 Tekist á um ábyrgð í Byrgismálinu Forsætisráðherra telur ekki að Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra eigi að segja af sér vegna Byrgismálsins. Valdimar Leó Friðriksson, þingmaður Frjálslynda flokksins, spurði á Alþingi í dag hver bæri ábyrgð í málinu og velti því upp hvort að forsætisráðherra eða félagsmálaráðherra hefðu átt að segja af sér vegna málsins. 5.2.2007 15:26 Loftlagsmál rædd á Alþingi Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, spurði forsætisráðherra út í stefnu íslenskra stjórnvalda í loftlagsmálum í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Hún vildi vita hvernig forsætisráðherra ætli að beita sér í þessum málum. 5.2.2007 15:14 Vilja byggja upp alþjóðlegt orkufyrirtæki Geysir Green Energy í eigu FL Group, Glitnis og VGK Hönnunar, og Reykjanesbær hafa í dag undirritað viljayfirlýsingu um samstarf í þeim tilgangi að byggja upp leiðandi alþjóðlegt orkufyrirtæki. 5.2.2007 15:10 Handtóku þjófa á Miklubrautinni Fjórir þjófar voru handteknir á Miklubrautinni um hádegisbil í dag eftir eftirför lögreglu. Þjófarnir fóru inn í hús í Mosfellsbæ og höfðu sankað að sér nokkuð af munum þar þegar komið var að þeim við iðju sína. Þeir flúði inn í bíl en sá sem að þeim kom sýndi snör handtök og hringdi á lögreglu. 5.2.2007 14:53 Rússar gegn Serbum í Kosovo Rússar hafa óvænt tekið afstöðu gegn Serbum varðandi sjálfstæði Kosovo héraðs. Sameinuðu þjóðirnar hafa lagt til að Kosovo verði aðskilið frá Serbíu og fái aðild að alþjóðastofnunum. Það verði hinsvegar undir alþjóðlegu eftirliti áfram, og NATO sjái um friðargæslu. 5.2.2007 14:37 Vill skjóta afgreiðslu samningsins Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra, átti fundi með tveimur af framkvæmdarstjórum Evrópusambandsins og ræddi meðal annars samning um gagnkvæman markaðsaðgang fyrir landbúnaðarvörur. 5.2.2007 14:34 Börnum enn rænt til hernaðar Hundruð þúsunda barna eru enn neydd til þess að berjast í herjum og skæruliðasamtökum víðsvegar í heiminum. Bresku samtökin Björgum börnunum segja að haldið sé áfram að ræna börnum til hernaðar í að minnsta kosti þrettán löndum, frá Afganistan til Úganda. 5.2.2007 14:22 Frönsk útvarpsstöð á Íslandi Franska útvarpsrásin Radio France Internationale hóf útsendingar á Íslandi um helgina. Stöðinni er útvarpað allan sólarhringinn, alla daga vikunnar á tíðninni FM 89,0. 5.2.2007 14:18 Dýragarður sýnir manneskjur Kínverskur dýragarður leitar nú að sex sjálfboðaliðum til að búa á apasvæði garðsins í fimm daga. Garðurinn sem er í Xi'an borg leitar eftir þremur konum og þremur mönnum sem munu búa við sömu skilyrði og aparnir. Fólkið mun keppa um val á þvi hver sýnir dýrunum mesta alúð og eru 53 þúsund íslenskar krónur í verðlaun. 5.2.2007 13:58 Kona við stýrið 5.2.2007 13:45 Hinn fullkomni glæpur ? 5.2.2007 13:30 Fanga meinaður aðgangur að fangelsi Maður sem strauk úr fangelsi í Belgíu reyndi að gefa sig fram, en var vísað frá fangelsinu þar sem hann framvísaði ekki persónuskilríkjum. Hakim Ghazouani, 24 ára, strauk úr fangelsi í Ghent í síðasta mánuði eftir að hafa fengið leyfi til að fara til læknis. Lögreglan lýsti eftir manninum og varaði almenning við, en Ghazouani var dæmdur fyrir rán og fíkniefnasölu. 5.2.2007 13:25 Gámahöfnin í Reyðarfirði næst stærst Gámahöfnin í Reyðarfirði verður önnur stærsta höfn landsins með nýjum samning sem Alcoa Fjarðarál og Eimskip á Reyðarfirði undirrituðu í hádeginu. Um er að ræða einn stærsta skipaafgreiðslusamning sem gerður hefur verið hér á landi. 5.2.2007 13:13 Smástirni á leiðinni Vísindamenn fylgjast nú grannt með smástirninu Apophis sem talið er að muni koma óþægilega nálægt jörðu, fyrst árið 2029 og svo aftur 2036. Smástirnið verður þær nær jörðu en tunglið, og margir fjarskiptagervihnettir og það mun sjást greinilega með berum augum. Líkur á að Apophis lendi á jörðinni eru þó ekki taldir nema 1:24000. 5.2.2007 13:11 Varað við Nígeríubréfum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú mál þar sem Íslendingur lét glepjast af svokölluðu Nígeríubréfi. Slík bréf innihalda gylliboð sem ekki er innistæða fyrir og eru þau til þess eins að svíkja peninga af fólki. Lögreglan varar fólk fyrir að þiggja slík boð. 5.2.2007 13:00 Sterkt samband milli ofbeldisverka og steranotkunar Rannsóknir á Norðurlöndum sýna að að sterkt samband sé á milli ofbeldisverka og steranotkunar. Eru dæmi um mjög gróft ofbeldi og kemur það helst fram í mjög alvarlegu heimilisofbeldi. 5.2.2007 12:30 Nýr forstjóri Umhverfisstofnunar Umhverfisráðherra hefur ráðið Ellý Katrínu Guðmundsdóttur nýjan forstjóra Umhverfisstofnunar. Ellý Katrín lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1990 og meistaraprófi í umhverfis- og alþjóðarétti frá University of Wisconsin Law School árið 1997. 5.2.2007 12:21 Sjá næstu 50 fréttir
Kristinn efast um að tekjuskattur skili sér Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir í dag á vefsíðu sinni að hann efist um að reiknaðar skattgreiðslur fjármálafyrirtækja hér á landi skili sér til ríkissjóðs. 5.2.2007 20:14
Róbótar finna sennilega ekki líf á Mars Ef það er líf á Mars, er það sennilega of langt undir yfirborði plánetunnar til að vélmenni geti fundið það og greint. Þetta er niðurstaða sérfræðinga á vegum Evrópsku geimferðastofnunarinnar. Ástæðan er sú að hafi nokkurn tímann verið líf á borð við einfrumunga eða bakteríur á Mars þá hefur geimgeislun fyrir löngu eytt um það öllum ummerkjum. 5.2.2007 19:56
Krókódíll í lauginni Saklausum gestum, sem ætluðu að fá sér sundsprett í almenningslaug í Darwin í Ástralíu, brá heldur betur í brún í morgun. Í þann mund sem ljós laugarinnar voru kveikt, svo þeir gætu dýft sér ofan í, skaust tæplega tveggja metra langur ósakrókódíll úr trjáþykkninu og ofan í laugina á undan þeim. 5.2.2007 19:45
Fjögur nauðgunarmál frá áramótum Óvenju mörg kynferðisafbrotamál hafa komið upp á Norðurlandi síðustu vikur, að sögn Daníels Guðjónssonar yfirlögregluþjóns á Akureyri. Nú um helgina kom upp mál á skemmtistað á Akureyri þar sem grunur leikur á að konu um tvítugt hafi verið nauðgað á salerni. 5.2.2007 19:30
Sterkt samband á mili steranotkunar og ofbeldisverka Rannsóknir á Norðurlöndum hafa sýnt að sterkt samband er á milli ofbeldisverka og steranotkunar og hefur það meðal annars komið fram í mjög alvarlegum tilvikum heimilisofbeldis. Engar rannsóknir hafa verið gerðar hér á landi um tengsl ofbeldis og steranotkunar og í ofbeldismálum kannar lögregla ekki sérstaklega hvort um steraneyslu sé um að ræða 5.2.2007 19:15
Giuliani færist nær framboði Rudy Giuliani, fyrrum borgarstjóri New York borgar, hefur færst skrefi nær því að tilkynna framboð sitt til forsetaembættis Bandaríkjanna. Giuliani var rétt í þessu að skila inn blöðum þar sem hann lýsir yfir framboði sínu. 5.2.2007 19:15
Segja stjórnarliða í leikritagerð Stjórnarandstaðan sagði Sigurð Kára Kristjánsson, þingmann Sjálfstæðisflokksins, og forsætisráðherra hafa sett á svið leikrit í fyrirspurnatíma á Alþingi í dag, þar sem þingmaðurinn vakti athygli á nýrri skýrslu um tekjuskiptingu á Íslandi. Sigurður Kári sagði stjórnarandstöðuna ekki þola upplýsingar um góða stöðu mála í landinu. 5.2.2007 19:01
Skipulögðu rán og nauðganir á stúlkum Breskur dómstóll hefur dæmt þrjá menn til langrar fangelsisvistar fyrir að áforma að ræna tveimur stúlkum og nauðga þeim. Mennirnir skipulögðu illvirkið á spjallrás á internetinu. 5.2.2007 19:00
Aldraðir óánægðir með að ráðherra styðji þá með þeirra eigin fé Stjórn Landssambands eldri borgara lýsir yfir undrun og óánægju með að stjórnvöld hafi stutt blaðaútgáfu sambandsins með fjármagni úr Framkvæmdarsjóði aldraðra. "Stormur í vatnsglasi" segir heilbrigðisráðherra. 5.2.2007 19:00
Bílaflotinn allur á vetni innan 30 ára Vetnisverkefnið með Strætó sýnir að hægt hefði verið að minnka losun á koltvísýringi í andrúmsloftið um 20 þúsund tonn á síðustu tveimur árum ef allir strætisvagnar hefðu gengið fyrir vetni. Í morgun voru kynntar tillögur um breytingar á gjaldtöku á bifreiðar sem tekur mið af losun þeirra á koltvísýringi og líst iðnaðarráðherra vel á tillögurnar. 5.2.2007 18:54
Framlög til varnarmála aukin George Bush lagði fjárlagafrumvarp sitt fyrir Bandaríkjaþing í dag en það hljóðar upp á tæplega tvö hundruð þúsund milljarða íslenskra króna. Fjórðungur þeirra upphæðar rennur til hermála en skorið verður niður á heilbrigðissviðinu. 5.2.2007 18:45
Fjöldamorð í Neðra-Saxlandi Lögreglan í Neðra-Saxlandi í Þýskalandi rannsakar nú morð á sex manns en lík þeirra fundust á kínverskum veitingastað í bænum Sittensen í morgun. 5.2.2007 18:45
Skrá yfir dæmda kynferðisbrotamenn á Íslandi Svo gæti farið að skrá yfir kynferðisbrotamenn yrði að veruleika á Íslandi, samkvæmt samningi Evrópuráðsins um meðferð slíkra brotamanna. Slík skrá hefur ekki verið haldin á Íslandi fyrr. 5.2.2007 18:45
Leynisamkomulag brot á lögum og jafnvel stjórnarskrá Talsmenn vinstri grænna og Samfylkingarinnar segja að lög og jafnvel stjórnarskrá hafi verið brotin þegar viðaukum við varnarsamninginn var haldið leyndum fyrir Alþingi. Forsætisráðherra og utanríkisráðherra eru sammála um að innihald viðaukanna kalli ekki á leynd, en tíðarandinn hafi verið allt annar fyrir hálfri öld en nú. 5.2.2007 18:43
Kuldaköst að vori heyri sögunni til Kuldaköst á vorin heyra sögunni til á Íslandi en um leið verður norðanáttin algengari, gangi spár um hlýnun loftslags eftir. Þetta er mat Haraldar Ólafssonar, veðurfræðings, sem segir sumarið lengjast í báða enda en áfram verði kalt yfir hávetur. 5.2.2007 18:30
56,5 milljónum úthlutað Baugur Group úthlutaði í dag 43 aðilum 56,5 milljónum úr Styrktarsjóði Baugs Group. Þetta var í þriðja sinn sem úthlutað var úr sjóðnum. Styrktarsjóði Baugs Group hf. er ætlað að styðja margvísleg líknar og velferðarmál auk menningar listalífs. Styrkirnir voru veittir í Iðusölum við Lækjargötu. 5.2.2007 18:29
Íslensku forvarnarverðlaunin í annað sinn Íslensku forvarnaverðlaunin verða veitt í annað sinn í apríl og standa tilnefningar nú yfir. Markmiðið er að verðlauna þá sem þykja skara fram úr í forvarnastarfi og hvetja þá og aðra til góðra verka. Viðurkenningarnar eru veittar í þrem flokkum: Í fyrsta lagi til fyrirtækis sem skarað hefur framúr í forvörnum, í öðru lagi til einstaklings sem sýnt hefur forystu og frumkvæði í forvörnum og loks til félagasamtaka eða stofnana sem eru í fararbroddi í forvörnum. 5.2.2007 18:19
100 milljón króna villa rústuð Hundrað milljón króna hús sem hæstaréttarlögmaður keypti fyrir rösku ári, var rifið í dag. 5.2.2007 17:45
Umferðarteppa í Ártúnsbrekku Miklar umferðartafir eru nú í Ártúnsbrekku vegna aftanákeyrslu sem þar varð. Lögreglan segir að ekki sé vitað hvað olli árekstrinum. Engin slys urðu á fólki í árekstrinum og bílarnir skemmdust lítið. 5.2.2007 17:18
Grunaðir um að hafa smyglað kókaíni til landsins Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa flutt til landsins tæp 108 grömm af kókaíni. 5.2.2007 17:00
15 ára falsaði debetkort 15 ára stúlka sótti um debetkort fyrir eldri konu og skilaði mynd af sér með. Hún vitjaði kortsins og tók út fimmhundruð krónur í hraðbanka. Upp komst um kortafalsið og hefur stúlkan fengið eins árs skilorðsbundin dóm. 5.2.2007 16:54
Viðbúnaðarstig vegna fuglaflensu ekki aukið hér á landi Landbúnaðarstofnun hefur ákveðið að gera ekki breytingu á viðbúnarðarstigi vegna fuglaflensu hér á landi en fuglaflensa hefur greinst í alifuglabúi á Bretlandseyjum. 5.2.2007 16:51
Utanríkisráðherra hefði viljað betri skilasamninga vegna varnasvæðis Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri-grænna, sagði að lög hefðu jafnvel verið brotin á sínum tíma þegar ekki var haft samráð við Alþingi við gerð leyniviðauka með varnarsamningnum 1951. Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra sagði að hún hefði viljað sjá betri skilasamninga við Bandaríkjamenn vegna varnarsvæðisins í Keflavík. 5.2.2007 16:39
Stjórn SUS undrast styrki til sauðfjárræktar Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna lýsir furðu sinni á fyrirhuguðum samniingi milli ríkisstjórnarinnar og Bændasamtaka Íslands um styrki til sauðfjárræktar. Í tilkynningu til fjölmiðla segir að stórfelldar niðurgreiðslur í formi skattheimtu, framleiðsluhöftum og verðstýringu gangi þvert á flest grundvallargildi sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir. 5.2.2007 16:09
Sigurður Kári með leikrit á Alþingi? Nokkuð snarpar umræður voru á Alþingi í dag eftir að Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði forsætisráðherra og flokksbróðir sinn um nýja skýrslu Hagstofunnar um tekjudreifingu á Íslandi. Sigurður var af þingmönnum stjórnarandstöðunnar sakaður um að setja upp leikrit og hafa þannig teppt fyrirspurnartíma. 5.2.2007 16:08
Rannsóknarsamstarf Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins og læknadeild Harvard háskólans í Bandaríkjunum munu vinna saman að rannsókn. Hún fer fram á fjórum heilsugæslustöðvum hérlendis með allt að 120 þátttakendum. 5.2.2007 15:35
Karlmenn við stýrið Tveir vinir í Kentucky ákváðu að ræna hraðbanka með hraði, svo þeir kæmust örugglega undan. Þeir bundu keðju í stuðarann á pallbínum sem þeir áttu, og vöfðu svo keðjunni utan um hraðbankann. Svo gáfu þeir allt í botn til þess að rífa hraðbankann út úr veggnum. 5.2.2007 15:35
Tekist á um ábyrgð í Byrgismálinu Forsætisráðherra telur ekki að Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra eigi að segja af sér vegna Byrgismálsins. Valdimar Leó Friðriksson, þingmaður Frjálslynda flokksins, spurði á Alþingi í dag hver bæri ábyrgð í málinu og velti því upp hvort að forsætisráðherra eða félagsmálaráðherra hefðu átt að segja af sér vegna málsins. 5.2.2007 15:26
Loftlagsmál rædd á Alþingi Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, spurði forsætisráðherra út í stefnu íslenskra stjórnvalda í loftlagsmálum í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Hún vildi vita hvernig forsætisráðherra ætli að beita sér í þessum málum. 5.2.2007 15:14
Vilja byggja upp alþjóðlegt orkufyrirtæki Geysir Green Energy í eigu FL Group, Glitnis og VGK Hönnunar, og Reykjanesbær hafa í dag undirritað viljayfirlýsingu um samstarf í þeim tilgangi að byggja upp leiðandi alþjóðlegt orkufyrirtæki. 5.2.2007 15:10
Handtóku þjófa á Miklubrautinni Fjórir þjófar voru handteknir á Miklubrautinni um hádegisbil í dag eftir eftirför lögreglu. Þjófarnir fóru inn í hús í Mosfellsbæ og höfðu sankað að sér nokkuð af munum þar þegar komið var að þeim við iðju sína. Þeir flúði inn í bíl en sá sem að þeim kom sýndi snör handtök og hringdi á lögreglu. 5.2.2007 14:53
Rússar gegn Serbum í Kosovo Rússar hafa óvænt tekið afstöðu gegn Serbum varðandi sjálfstæði Kosovo héraðs. Sameinuðu þjóðirnar hafa lagt til að Kosovo verði aðskilið frá Serbíu og fái aðild að alþjóðastofnunum. Það verði hinsvegar undir alþjóðlegu eftirliti áfram, og NATO sjái um friðargæslu. 5.2.2007 14:37
Vill skjóta afgreiðslu samningsins Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra, átti fundi með tveimur af framkvæmdarstjórum Evrópusambandsins og ræddi meðal annars samning um gagnkvæman markaðsaðgang fyrir landbúnaðarvörur. 5.2.2007 14:34
Börnum enn rænt til hernaðar Hundruð þúsunda barna eru enn neydd til þess að berjast í herjum og skæruliðasamtökum víðsvegar í heiminum. Bresku samtökin Björgum börnunum segja að haldið sé áfram að ræna börnum til hernaðar í að minnsta kosti þrettán löndum, frá Afganistan til Úganda. 5.2.2007 14:22
Frönsk útvarpsstöð á Íslandi Franska útvarpsrásin Radio France Internationale hóf útsendingar á Íslandi um helgina. Stöðinni er útvarpað allan sólarhringinn, alla daga vikunnar á tíðninni FM 89,0. 5.2.2007 14:18
Dýragarður sýnir manneskjur Kínverskur dýragarður leitar nú að sex sjálfboðaliðum til að búa á apasvæði garðsins í fimm daga. Garðurinn sem er í Xi'an borg leitar eftir þremur konum og þremur mönnum sem munu búa við sömu skilyrði og aparnir. Fólkið mun keppa um val á þvi hver sýnir dýrunum mesta alúð og eru 53 þúsund íslenskar krónur í verðlaun. 5.2.2007 13:58
Fanga meinaður aðgangur að fangelsi Maður sem strauk úr fangelsi í Belgíu reyndi að gefa sig fram, en var vísað frá fangelsinu þar sem hann framvísaði ekki persónuskilríkjum. Hakim Ghazouani, 24 ára, strauk úr fangelsi í Ghent í síðasta mánuði eftir að hafa fengið leyfi til að fara til læknis. Lögreglan lýsti eftir manninum og varaði almenning við, en Ghazouani var dæmdur fyrir rán og fíkniefnasölu. 5.2.2007 13:25
Gámahöfnin í Reyðarfirði næst stærst Gámahöfnin í Reyðarfirði verður önnur stærsta höfn landsins með nýjum samning sem Alcoa Fjarðarál og Eimskip á Reyðarfirði undirrituðu í hádeginu. Um er að ræða einn stærsta skipaafgreiðslusamning sem gerður hefur verið hér á landi. 5.2.2007 13:13
Smástirni á leiðinni Vísindamenn fylgjast nú grannt með smástirninu Apophis sem talið er að muni koma óþægilega nálægt jörðu, fyrst árið 2029 og svo aftur 2036. Smástirnið verður þær nær jörðu en tunglið, og margir fjarskiptagervihnettir og það mun sjást greinilega með berum augum. Líkur á að Apophis lendi á jörðinni eru þó ekki taldir nema 1:24000. 5.2.2007 13:11
Varað við Nígeríubréfum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú mál þar sem Íslendingur lét glepjast af svokölluðu Nígeríubréfi. Slík bréf innihalda gylliboð sem ekki er innistæða fyrir og eru þau til þess eins að svíkja peninga af fólki. Lögreglan varar fólk fyrir að þiggja slík boð. 5.2.2007 13:00
Sterkt samband milli ofbeldisverka og steranotkunar Rannsóknir á Norðurlöndum sýna að að sterkt samband sé á milli ofbeldisverka og steranotkunar. Eru dæmi um mjög gróft ofbeldi og kemur það helst fram í mjög alvarlegu heimilisofbeldi. 5.2.2007 12:30
Nýr forstjóri Umhverfisstofnunar Umhverfisráðherra hefur ráðið Ellý Katrínu Guðmundsdóttur nýjan forstjóra Umhverfisstofnunar. Ellý Katrín lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1990 og meistaraprófi í umhverfis- og alþjóðarétti frá University of Wisconsin Law School árið 1997. 5.2.2007 12:21