Fleiri
Sprengjuógn í Lundúnum 11.1.2007 16:45 Kúrdar skamma Bandaríkjamenn Héraðsstjórn kúrda í Írak, fordæmdi í dag árás bandarískra hermanna á ræðismannsskrifstofu Írans í borginni Abril. Héraðsstjórnin sagði að þetta væri bæði brot á sjálfstæði héraðssins og alþjóðlegum reglum um friðhelgi. 11.1.2007 16:29 Útibú frá þýðingamiðstöð utanríkisráðuneytisins opnað á Akureyri Ákveðið hefur verið að opna útibú frá þýðingamiðstöð utanríkisráðuneytisins á Akureyri. Gert er ráð fyrir fjórum starfsmönnum á Akureyri en þeir starfa í fjarvinnslu frá þýðingamiðstöðinni sem staðsett er í Reykjavík. Áætlað er að starfsemin á Akureyri geti hafist í byrjun apríl. 11.1.2007 16:28 Lacrosse-leikmenn í faðernispróf Dómari í nauðgunarmáli hefur skipað þremur lacrosse-leikmönnum að gefa lífssýni til faðernisprófs eftir að kona sem nýverið eignaðist dóttur kærði þá fyrir að hafa nauðgað sér í gleðskap í Duke University í Bandaríkjunum. Lögfræðingar konunnar fóru fram á faðernisprófið í desember. 11.1.2007 16:22 Hjálpaði Bin Laden að flýja Afganski uppreisnarleiðtoginn Gulbuddin Hekmatyar sagðist í sjónvarpsviðtali í dag hafa aðstoðað Osama bin Laden að flýja þegar Bandaríkjaher lét sprengjum rigna yfir Tora Bora fjöllin, þar sem bin Laden hafðist við um tíma árið 2001. 11.1.2007 16:05 Sjá næstu 50 fréttir
Ósætti meðal ungra sjálfstæðismanna vegna veitingu frelsisverðlauna Ungir sjálfstæðismenn í Fjarðabyggð styðja ekki veitingu Samband ungra sjálfstæðismanna á frelsisverðlaunum SUS til Andra Snæs Magnússonar. 12.1.2007 13:57
Átök eftir föstudagsbænir í Bagdad Hópur vígamanna sem grunað er að hafi verið sjíamúslimar réðust til atlögu á súnnímosku þegar föstudagsbænum var að ljúka í Bagdad í dag. Tveir verðir sem vörnuðu þeim inngöngu særðust í árásinni en enginn særðist alvarlega. Mennirnir virtu að vettugi vikulegt bílabann í kringum föstudagsbænir á götum Bagdad. 12.1.2007 13:37
Al-Kaída-menn sagðir í Pakistan Leiðtogar al-Kaída hryðjuverkanetsins hafast við í Pakistan og þaðan vinna þeir að því að styrkja samtökin um allan heim. Þetta er mat Johns Negroponte, yfirmanns leyniþjónustustofnana Bandaríkjanna og verðandi aðstoðarutanríkisráðherra. 12.1.2007 13:30
Fjarskiptasamband Háskóla Íslands rofnar ekki Fjarskiptasamband Háskóla Íslands, Landspítala-háskólasjúkrahús og annarra stofnana rofnar ekki á meðan viðgerð stendur yfir á CANTAT-3 sæstrengnum. 12.1.2007 13:22
Flugskeyti skotið að bandarísku sendiráði Talið er að öfgasinnaðir vinstrimenn hafi verið að verki þegar flugskeyti var skotið að sendiráði Bandaríkjanna í Aþenu í Grikklandi í morgun. Enginn særðist í árásinni. 12.1.2007 13:05
Lofar reiðum hermönnum bættum aðstæðum Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, lofaði í dag að bæta aðstæður hermanna í Bretlandi um leið og hann sagði hermönnum að þeir yrðu að halda áfram að berjast til þess að Bretar töpuðu ekki áhrifum sínum á alþjóðavísu. Þetta var í fyrsta skipti sem forsætisráðherrann viðurkennir reiði hermanna og lofar að bregðast við. 12.1.2007 13:04
Bensínverð lækkar í kjölfar lækkunar á heimsmarkaðsverði Olíuverð hélt áfram á lækka á heimsmarkaði í gær og í morgun lækkaði ESSO bensínlítrann hér á landi, fyrst olíufélaganna. Atlantsolía fylgdi í kjölfarið. FÍB segir að olíufélögin hafi hækkað álagningu um rösk átta prósent í fyrra. 12.1.2007 13:00
Neyðarrennibraut losnaði úr hólfi vélar Icelandair Verið er að rannsaka hvað olli því að neyðarrennibraut fyrir farþega losnaði úr hólfi við neyðarútgang yfir væng á flugvél Icelandair skömmu fyrir lendingu á Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn síðdegis í gær. 12.1.2007 12:45
Jafet gefur kost á sér til formanns KSÍ Jafet S. Ólafsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Verðbréfastofunnar og Íslenska útvarpsfélagsins, hefur ákveðið að gefa kost á sér í kosningu til formanns KSÍ á ársþingi sambandsins sem haldið verður þann 10. febrúar næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá honum. 12.1.2007 12:30
Geir segir umræðu um evruna á villigötum Geir H. Haarde, forsætisráðherra, segir umræðu um evru og stöðu krónunnar á villigötum og í raun fjarstæðukennda. Nefnd ríkisstjórnarinnar undir forystu dómsmálaráðherra um stöðu Íslands gagnvart Evrópusambandinu skilar skýrslu á næstu vikum. 12.1.2007 12:12
Góð vetrarfærð og greiðfært í borginni Góð vetrarfærð er á landinu og greiðfært um höfuðborgarsvæðið þrátt fyrir snjóinn sem kyngdi niður í nótt. 12.1.2007 12:10
Óttast að sprengja nótina vegna mikillar síldar Síldveiðiskipið Krossey er komið til Grundarfjarðar til að kasta á síldina þar en hún er svo þétt að skipstjórinn óttast að sprengja nótina. Sérfræðingar Hafrannsóknarstofnunar eru komnir á staðinn til að rannsaka þetta náttúrufyrirbrigði. 12.1.2007 12:00
Mikilvægt að fylgjast með verðþróun á matvörumarkaði Alþýðusamband Íslands segir mikla hækkun á matar- og drykkjarvörum á milli desember og janúar valda nokkrum áhyggjum og ýta enn undir mikilvægi þess að fylgjast vel með þróun á þeim markaði á næstu mánuðum í aðdraganda aðgerða til lækkunar á matvöruverði. 12.1.2007 11:50
Karlmenn 30 milljónum fleiri en konurnar Fullorðnir kínverskir karlmenn verða 30 milljónum fleiri en konur á sama aldri innan 15 ára. Þetta orsakast af strangri stefnu stjórnvalda til að ná tökum á fólksfjölgun í Kína, með því að takmarka barneignir við eitt barn á hvert par. Kynbundnar fóstureyðingar hafa verið stundaðar markvisst síðan þá. 12.1.2007 11:35
Segja 70 hirðingja hafa verið drepna í loftárásum í Sómalíu Bresku hjálparsamtökin Oxfam greindu frá því í dag að 70 hirðingjar hefðu verið drepnir í loftárásum sem átti að beina gegn íslamistum í Suður-Sómalíu á síðustu dögum. 12.1.2007 11:33
Farsímasamband á öllum Hringveginum eftir ár Farsímasamband verður á öllum Hringveginum eftir eitt ár. Fjarskiptasjóður og Síminn skrifuðu í dag undir samkomulag um að Síminn taki að sér verkefni við uppbyggingu GSM-farsímakerfisins. 12.1.2007 11:28
Bandaríkjamenn handtaka sex Írani Íraski herinn skýrði frá því í kvöld að alþjóðlegt herlið undir forystu Bandaríkjamanna hneppti í dag sex Írana í varðhald eftir að hafa ráðist á ræðismannsskrifstofu Írans í borginni Irbil. Bandaríski herinn sagðist hafa handtekið sex manns á sama svæði en minntist ekkert Írana eða ræðismannsskrifstofu. 11.1.2007 23:30
Prestur dæmdur til dauða Hæstiréttur í Nígeríu hefur dæmt prest til dauða fyrir að hafa brennt sex konur en ein af þeim lést af sárum sínum á sjúkrahúsi. Presturinn, sem kallaður er séra Kóngur, var fundinn sekur um fimm morðtilraunir og eitt morð. 11.1.2007 23:15
Bloggarar metnir til jafns við fjölmiðla Réttaryfirvöld í Washington í Bandaríkjunum hafa ákveðið að leyfa bloggurum að fylgjast með réttarhöldunum yfir Lewis Libby, fyrrum aðstoðarmanni Dick Cheney, til jafns við hefðbundna fjölmiðla. Munu þeir fá alls fjögur sæti við réttarhöldin en búist er við því að Cheney eigi eftir að bera vitni við þau. 11.1.2007 23:00
Samúræji til bjargar! Lögreglan í bænum South Shields í Bretlandi er að reyna að hafa upp á dularfullum samúræja sem birtist upp úr þurru og hjálpaði tveimur lögreglumönnum að verjast þremur vopnuðum glæpamönnum og handtaka þá. Dularfulli samúræjinn hvarf síðan út í næturmyrkrið, sporlaust. 11.1.2007 22:45
Klósettfiskabúr? Þeir sem ætla sér að endurnýja baðherbergið hjá sér á næstunni gætu haft áhuga á því nýjasta í bransanum, klósett sem er líka fiskabúr. Klósettið, sem á frummálinu er kallað „Fish 'n Flush“, er gegnsætt og samanstendur af vatnskassa og fiskabúri. 11.1.2007 22:30
Átök í Líbanon Vígamenn múslima og líbanskar hersveitir börðust í dag í suðurhluta Líbanon og þurftu hundruð manna að flýja heimili sín vegna þess. Hefur fólkið meðal annars leitað sér hælis í moskum nálægt heimilum sínum. Samkvæmt heimildum meiddust tveir hermenn þegar á þá var skotið við leit í bíl og varð það upphafið að átökunum. 11.1.2007 22:15
NATO banar 150 talibönum Norðuratlantshafsbandalagið (NATO) skýrði frá því í dag að það hefði banað allt að 150 vígamönnum talibana í bardögum í austurhluta Afganistan síðastliðna daga. Herlið frá Pakistan hjálpaði til við undirbúning bardagans. 11.1.2007 21:47
Bangladesh frestar kosningum Yfirvöld í Bangladesh hafa frestað umdeildum kosningum sem áttu að fara fram þann 22. janúar næstkomandi þar sem forseti millibilsstjórnar landsins sagði af sér í dag. Ástæðan fyrir afsögn hans er talin vera mikil gagnrýni á hann fyrir að undirbúa kosningarnar ekki nógu vel en talið er að afsögn hans eigi eftir að draga úr óstöðugleika í landinu. 11.1.2007 21:11
Refsiaðgerðir hafa ekki áhrif á Íran Yfirmaður leyniþjónustna Bandaríkjanna, John Negroponte, sagði í ræðu í öldungadeild Bandaríska þingsins í kvöld að Íran gæti staðið af sér þær efnhagsþvinganir sem alþjóðasamfélagið hefur sett á landið. Bandaríkjastórn bindur einmitt vonir við hið andstæða, nefnilega að Íran eigi eftir að láta undan þrýstingnum og hætta við kjarnorkuverkefni sín. 11.1.2007 20:53
Þingið rýmkar lög um stofnfrumurannsóknir Bandaríska þingið, sem nú er undir stjórn demókrata, greiddi í dag atkvæði með þeirri tillögu að aflétta takmörkunum á fjármögnun stofnfrumurannsókna sem George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, hafði áður sett. 11.1.2007 20:29
Gates segir aukninguna til skamms tíma Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, Robert Gates, sagði við fréttamenn í dag að hann búist við því að aukningin á hermönnum í Írak myndi aðeins vara í nokkra mánuði fremur en ár. 11.1.2007 20:09
Búist við árekstri skips og borpalls í Norðursjó Björgunarsveitir þurfa að sækja starfsmenn olíuborpalls á Norðursjó þar sem stjórnlaust skip er við það rekast á hann samkvæmt fréttum frá strandgæslunni í Bretlandi. Alls voru 30 starfsmenn á borpallinum og er þegar búið að flytja 20 þeirra í land með þyrlum. 11.1.2007 20:02
Stór skjálftahrina fyrir utan Siglufjörð Stór jarðskjálftahrina fór í gang um 30 kílómetra norður fyrir Siglufirði klukkan hálfsex í kvöld. Entist hún í rúman klukkutíma og urðu skjálftarnir 17 talsins og þar af voru fimm þeirra 3 á Richter. Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur sagði í samtali við fréttamann Vísis að ekki væri óalgengt að svona hrina yrði á nokkura ára fresti á þessum stað. 11.1.2007 19:29
Fimm ár frá því Guantanamo-búðirnar tóku til starfa Fimm ár eru liðin frá því að fyrstu fangarnir komu til fangabúða Bandaríkjamanna við Guantanamo-flóa á Kúbu vegna gruns um aðild að hryðjuverkum. Af þessu tilefni efndi Íslandsdeild Amnesty International til útifundar á Lækjartorgi nú síðdegis. 11.1.2007 19:00
Spilaði frá sér fjölskylduna Tæpleg fertugur spilafíkill spilaði frá sér tvær eiginkonur. Hann hætti að spila fyrir fjórum árum en skuldar yfir fimmtán milljónir króna og er með ónýtt nafn í bönkunum. 11.1.2007 18:45
Ruddust inn á ræðismannsskrifstofurnar Bandaríska ríkisstjórnin ætlar að fjölga í herliði sínu í Írak um rösklega tuttugu þúsund manns á næstu vikum í þeirri von að þar með dragi úr ofbeldinu í landinu. Hersveitir Bandaríkjamanna réðust inn í ræðismannsskrifstofur Írans í bænum Irbil í Norður-Írak í dag. 11.1.2007 18:45
Sveitarfélögin fari varlega í að ryðja burt skógræktarsvæðum Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu verða að íhuga það mjög vel hvort það sé þess virði að ryðja burt skógræktarsvæðum til að fá nýtt byggingarland. Þetta segir bæjarstjórinn í Garðabæ, sem jafnframt er formaður Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. 11.1.2007 18:43
Pólitísk viljayfirlýsing um að þróa öryggissamstarf Íslendinga og Dana Samkomulag íslenskra og danskra stjórnvalda, sem undirritað var í dag, um aukið samstarf Landhelgisgæslunnar og danska sjóhersins, er að mati Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra pólitísk viljayfirlýsing um að þróa samstarf þjóðanna í þágu aukins öryggis borgaranna. 11.1.2007 18:38
Tugmilljóna tjón á flugvél Flugstoða Tugmilljóna tjón varð þegar flugvél Flugmálastjórnar, nú Flugstoða, hlekktist á í flugtaki á Reykjavíkurflugvelli í hádeginu í dag. Flugstjórinn hætti við flugtak þegar hann varð þess var að flugvélin lét ekki að stjórn. Báðir spaðar vélarinnar skemmdust sem og hjólabúnaður og skrokkur. 11.1.2007 18:24
Síldin drap þorskinn Þorskeldisfyrirtæki á Grundarfirði missti allan þorsk í kerjum sínum, um 20 tonn, vegna stórgöngu síldar inn í fjörðinn. Leiða menn líkur að því að síldargangan hafi valdið súrefnisskorti í sjónum í firðinum og því hafi þorskurinn drepist. 11.1.2007 18:22
Engin hætta á ferðum í Lundúnum Pakkinn sem varð til þess að breska lögreglan lokaði fjölfarinni götu í miðborg Lundúna í dag var ekki hættulegur. Lögregla rannsakaði málið og komst að því að ekki var um sprengju eða annað slíkt að ræða og var hann því fjarlægður og er nú verið að opna götuna á ný. 11.1.2007 17:57
Þriðjungur heyrnarlausra beittur kynferðislegu ofbeldi Í nýrri könnun sem var gerð á meðal heyrnarlausra á Íslandi sagðist þriðjungur svarenda hafa verið beittur kynferðislegu ofbeldi. Eru þetta að minnsta kosti 30 einstaklingar. Félag heyrnarlausra lét gera könnunina með stuðningi félagsmálaráðuneytisins en Ráðgjöf og greining annaðist gerð hennar. 11.1.2007 17:24
Björgunarsveitir í viðbragðsstöðu vegna ófærðar Snjó hefur haldið áfram að kyngja niður á höfuðborgarsvæðinu síðdegis og hálka er mikil. Björgunarsveitir á suðvesturhorninu eru í viðbragðsstöðu. Færð gæti tekið að spillast og skyggni orðið mjög slæmt í skafrenningi fljótlega, því vindur er að aukast og mjöllin er létt. Sigðurður Þ. Ragnarsson á Veðurstofu Stöðvar 2, segir að vindur gæti verið kominn upp í 13-18 m/sek á áttunda tímanum í kvöld við Faxaflóa, um Snæfellsnes og austur um Hellisheiði. Hvassviðrið geti síðan staðið fram eftir nóttu, en lægt með morgninum. 11.1.2007 17:21
Starfshópur á að fara yfir málefni spilasala í borginni Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag að skipa starfshóp til að fara yfir málefni spilasala í borginni og rekstur spilakassa. Hópurinn á að fara yfir staðsetningu salanna og hvort að setja eigi sérstök skilyrði í lögreglusamþykkt Reykjavíkur um reksturinn. 11.1.2007 16:45
Kúrdar skamma Bandaríkjamenn Héraðsstjórn kúrda í Írak, fordæmdi í dag árás bandarískra hermanna á ræðismannsskrifstofu Írans í borginni Abril. Héraðsstjórnin sagði að þetta væri bæði brot á sjálfstæði héraðssins og alþjóðlegum reglum um friðhelgi. 11.1.2007 16:29
Útibú frá þýðingamiðstöð utanríkisráðuneytisins opnað á Akureyri Ákveðið hefur verið að opna útibú frá þýðingamiðstöð utanríkisráðuneytisins á Akureyri. Gert er ráð fyrir fjórum starfsmönnum á Akureyri en þeir starfa í fjarvinnslu frá þýðingamiðstöðinni sem staðsett er í Reykjavík. Áætlað er að starfsemin á Akureyri geti hafist í byrjun apríl. 11.1.2007 16:28
Lacrosse-leikmenn í faðernispróf Dómari í nauðgunarmáli hefur skipað þremur lacrosse-leikmönnum að gefa lífssýni til faðernisprófs eftir að kona sem nýverið eignaðist dóttur kærði þá fyrir að hafa nauðgað sér í gleðskap í Duke University í Bandaríkjunum. Lögfræðingar konunnar fóru fram á faðernisprófið í desember. 11.1.2007 16:22
Hjálpaði Bin Laden að flýja Afganski uppreisnarleiðtoginn Gulbuddin Hekmatyar sagðist í sjónvarpsviðtali í dag hafa aðstoðað Osama bin Laden að flýja þegar Bandaríkjaher lét sprengjum rigna yfir Tora Bora fjöllin, þar sem bin Laden hafðist við um tíma árið 2001. 11.1.2007 16:05