Fleiri fréttir

Mikil bið eftir flugi

Miklar tafir hafa verið á öllu innanlands- og millilandaflugi í dag. Veðurútlit fyrir eftirmiðdaginn er þar að auki ekki gott. Miklar raðir eru nú við innritun í flugstöðinni á Reykjavíkurflugvelli.

Alþingi verður að rannsaka hlerunarmál

Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, segir að ekkert muni ganga að upplýsa hleranamál fyrr en Alþingi láti þau til sín taka, eins og gert var í Noregi. Ríkissaksóknari felldi í gær niður rannsókn á meintum hlerunum á símum Jóns Baldvins með þeim rökum að ekkert væri fram komið sem styddi fullyrðingar hans um hleranir.

Guðmundur Jónsson í Byrginu var kærður í morgun

Ólöf Ósk Erlendsdóttir lagði fram kæru í dag á hendur Guðmundi Jónssyni, forstöðumanni Byrgisins. Þrjár konur að auki hafa haft samband við lögreglu vegna tengsla sinna við Guðmund. Ólöf sagði sögu sína í Íslandi í dag í gær. Hún fór í meðferð á Byrginu í apríl 2004 og kveðst hafa hafið náið samband við Guðmund Jónsson forstöðumann 18. nóvember sama ár. Að hennar sögn lauk sambandinu fyrir þremur til fjórum vikum. Í viðtalinu í gær sakaði hún Guðmund um fjársvik og trúnaðarbrest. Hún hefur margvísleg gögn undir höndum sem sanna kynferðislegt samband milli þeirra Guðmundar, þar á meðal myndbönd, myndir, tölvupósta, bréf og ljóð.

Menn um borð í flutningaskipinu að kanna ástandið

Landhelgisgæslan hefur flutt fjóra starfsmenn Olíudreifingar í flutningaskipið Wilson Muuga, sem strandaði við Hvalsnes í vikunni, en þeir ætla að reyna að undirbúa skipið fyrir olíudælingu þegar hún verður möguleg.

Kynóðir krakkar

Hundruð leikskólabarna eru rekin úr skóla eða fá áminningar, vegna kynferðislegs áreitis, í Bandaríkjunum, á hverju ári. Nýjasta tilfellið er fimm ára drengur sem var rekinn heim fyrir að klípa jafnöldru sína í bossann.

För flutningabíla flýtt vegna veðurs

Þeir flutningabílar sem áttu að leggja af stað frá Landflutningum-Samskipum á Patreksfjörð, Tálknafjörð og Bíldudal í dag hefur verið flýtt vegna veðurs. Í stað þess að leggja af stað klukkan fjögur í dag fara þeir á hádegi.

Lennon, John Lennon

Síðustu tíu skýrslur bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, um John Lennon hafa nú verið gerðar opinberar, og þykja heldur broslegar. Í þeim er ekkert að finna sem ekki var almenn vitneskja á þeim árum, um þennan skelfilega útsendara vinstri aflanna.

Átök í Gazaborg

Átök blossuðu upp í kvöld í Gazaborg nærri heimili utanríkisráðherra ríkisstjórnarinnar, Mahmoud al-Zahar. Kúlnahríð dundi á hverfinu og hart var tekist á samkvæmt vitnum á svæðinu. Ekki var þó vitað hvort að um væri að ræða átök á milli Hamas samtakanna og Fatah stuðningsmanna.

Þakplötur á ferð og flugi um land allt

Björgunarsveitir víða um land hafa verið ansi uppteknar í kvöld en veðurofsinn hefur verið mikill. Þakplötur hafa víða tekist á loft sem og fótboltamörk í Vík í Mýrdal. Björgunarsveitin á Akranesi er enn með vakt við höfnina en smábátar hafa losnað upp en þá tókst þó að festa aftur.

Lögregla í Kína bannar stripplingahlaup

Lögregla í Kína bannaði í dag fjöldahlaup sem átti að hlaupa á aðfangadagskvöld til þess að mótmæla of miklum umbúðum á víni. Ástæðan fyrir banninu var þó að allir sem áttu að taka þátt í því áttu að vera naktir.

Atkvæðagreiðslu frestað til laugardags

Sendiherra Rússlands hjá Sameinuðu þjóðunum sagði í kvöld að líklegt væri að atkvæðagreiðslu í öryggisráðinu vegna ályktunar um refsiaðgerðir vegna kjarnorkuáætlunar Írans yrði frestað til laugardags.

Maður ákærður fyrir fimm morð

Breskur maður, Steven Wright, var í dag ákærður fyrir morð á fimm vændiskonum í austurhluta Englands. Hann er grunaður um að hafa myrt þær á síðustu fimm vikum.

Ingunn AK komin að landi á ný

Landfestar togarans Ingunn AK gáfu sig í óveðrinu í kvöld og rak hann um höfnina um tíma. Rakst hann meðal annars í löndunarkrana hjá fiskimjölsverksmiðjunni og skemmdi hann en dansaði framhjá togaranum Bjarna Ólafssyni AK.

Samkomulag nánast í höfn

Viðræður um hugsanlegar refsiaðgerðir vegna kjarnorkuáætlunar Írans eru á lokastigi og samningamenn voru leggja lokahönd á tillögu sem öryggisráð Sameinuðu þjóðanna mun greiða atkvæði um á morgun.

Vatnsmagn í Ölfusá minnkar

Lögreglan á Selfossi sagði í kvöld að flóðið í Ölfusá væri að minnka samkvæmt mælum í ánni og er búist við því að það taki vatnsmagnið um sólarhring að fara niður fyrir varúðarmörk. Einnig hefur gengið mjög vel að dæla upp úr húsum sem flæddi inn í svæðinu.

Bandaríski herinn ákærir átta hermenn

Bandarísk heryfirvöld hafa nú kært alls fjóra vegna morða á allt að 24 óvopnuðum óbreyttum borgurum í bænum Haditha í Írak en atburðirnir áttu sér stað í nóvember á síðasta ári. Einnig eru fjórir til viðbótar kærðir fyrir að hafa tekið þátt í ódæðinu á annan hátt.

Öxnadalsheiði lokuð vegna veðurs

Lögreglan á Akureyri var rétt í þessu að senda frá sér tilkynningu um að vegurinn á Öxnadalsheiði hefði lokast. Starfsmenn vegagerðarinnar eru að störfum við að aðstoða bíla sem fastir eru en einn flutningabíla er fastur þversum á veginum.

Bílslys í Hafnarfirði

Árekstur varð á mótum Álftanesvegar og Hafnarfjarðarvegar, eða Engidalnum, um klukkan hálf átta í kvöld. Skemmdust báðir bílar það mikið að þurfti að draga þá af vettvangi. Ökumaður annars bílsins þurfti að fara á slysadeild til skoðunar en enginn meiddist alvarlega í slysinu.

Átökin í Sómalíu breiðast út

Stjórnarherinn í Sómalíu, sem studdur eru af Eþíópíu, hefur í dag barist heiftarlega við íslamska uppreisnarmenn sem stjórna meirihluta landsins. Er þetta þriðji dagurinn í röð sem barist er.

Skilur eftir sig velferðarkerfi í molum

Einn nafntogaðasti einræðisherra í heimi, forseti Túrkmenistans, lést úr hjartaáfalli í nótt, 66 ára að aldri. Þar með lýkur, í Mið-Asíuríkinu Túrkmenistan, einni taumlausustu sjálfsdýrkun sem um getur í seinni tíð. Þó er ekki víst hvort þegnar hans fái til baka þau mannréttindi sem þeir hafa farið á mis við í valdatíð hans.

Ung kona vitnar um kynferðissamband við Guðmund í Byrginu

Tuttugu og fjögurra ára kona, sem var skjólstæðingur Guðmundar Jónssonar forstöðumanns Byrgisins, vitnar um það, í viðtali í Íslandi í dag á eftir, að hún átti í kynferðissambandi við hann í nærri tvö ár. Hún hefur sett sig í samband við lögreglu og mun leggja fram formlega kæru í fyrramálið.

Hermaður ákærður fyrir 13 morð

Bandarískur hermaður hefur verið ákærður fyrir að hafa myrt 13 óvopnaða óbreytta borgara í borginni Haditha í Írak en lögfræðingar hans skýrðu frá þessu í dag.

Kviknaði í út frá aðventukransi

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að íbúð á Reynimelnum fyrir stundu eftir að það kviknaði í. Aðventukrans hafði brunnið niður og við það kviknað í. Búið er að slökkva eldinn og slökkviliðsmenn eru nú að reykræsta íbúðina.

Sér ekki fyrir endann á verkefnum björgunarsveita

Allt innanlandsflug lá niðri eftir hádegi í dag og miklar tafir voru á Keflavíkurflugvelli vegna hvassviðris. Björgunarsveitir á Suðvesturhorninu hafa farið í fjölmörg óveðursútköll í dag og sér ekki fyrir endann á verkefnunum.

Skagafjörður eins og hafsjór yfir að líta

Skagafjörður er nú eins og hafsjór yfir að líta en Héraðsvötnin eru stífluð á tveimur stöðum. Hópar björgunarsveitarmanna hafa í dag reynt, við erfiðar aðstæður, að bjarga hrossum sem orðið hafa innlyksa.

Sjálfstæðisflokkur samþykkir framboðslista í Reykjavíkurkjördæmum

Framboðslistar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður og norður voru samþykktir á fundi í fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík í dag. Geir H. Haarde, forsætisráðherra, verður í 1. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður og Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður, verður í efsta sæti á lista flokksins í Reykjavík norður í alþingiskosningunum í maí á næsta ári.

Níðstöng veldur vandræðum

Bóndinn í Otradal við Bíldudal hefur reist manni í plássinu níðstöng með áfestum kálfshausi og ósk um útlegð eða dauða. Þetta er gert til að hefna hvolps sem varð fyrir átta tonna dráttarvél fyrir ári síðan og drapst. Sá sem varð fyrir níðinu varð hefur kært málið til lögreglu sem morðhótun.

Skriðuhætta ekki enn liðin hjá

Talið er að skriðuhætta sé ekki enn liðin hjá í innanverðum Eyjafirði og þá sérstaklega við bæinn Grænuhlíð. Í ljósi þess er lagt til að fólk hafist ekki við á þeim bæjum sem í mestri hættu eru taldir, það er á svæðinu frá Æsustöðum að Arnarfelli, að báðum bæjum meðtöldum.

Ekkert ferðaveður á Holtavörðuheiði

Vegagerðin hefur sent frá sér viðvörun og segir að ekkert ferðaveður sé á Holtavörðuheiði og Vatnsskarði vegna mikillar hálku og stórhríðar.

Selfosslögreglan fær nætursjónauka

Fulltrúar Suðurlandsvegar ehf, sem stefnir að bættum vegasamgöngum á Suðvesturhorni landsins, afhentu lögreglunni á Selfossi í hádeginu í dag, dimmasta degi ársins, nætursjónauka til eftirlitsstarfa. Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður, tekur við sjónaukanum, sem á að auðvelda lögreglunni eftirlitsstörf, en allir vegir utan þéttbýlis á Suðurlandi, eru ólýstir.

Kóraninn notaður við embættistöku

Deilur hafa blossað upp á bandaríska þinginu vegna þess að nýkjörinn þingmaður Minnesota fylkis, Keith Ellison, ætlar sér að nota Kóraninn þegar hann sver embættiseið en Ellison er múslimi. Þingmenn hafa jafnan notað biblíuna við athafnir sem þessar þó svo að samkvæmt lögum sé þess ekki krafist.

Nýjasta Harry Potter bókin heitir.....

Rithöfundurinn J.K. Rowling hefur upplýst hvað verður nafnið á sjöundu og síðustu Harry Potter bókinni. Hún mun heita "Harry Potter and the Deathly Hallows."

Ríkissaksóknari telur ekki ástæðu til að rannsaka hleranir frekar

Ríkissaksóknari sér ekki ástæðu til að halda áfram rannsókn á ætluðum hlerunum á síma Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrverandi utanríkisráðherra, og starfsmönnum á meðan þeir gengdu störfum í utanríkisráðuneytinu. Ríkissaksóknari fól lögreglustjóranum á Akranesi að rannsaka hvort um hleranir hefði verið að ræða. Að lokinni rannsókn telur lögreglustjórinn ekki ástæðu til að rannsaka málið frekar.

400 tonna flugvél snerist á staðnum

400 tonna fraktflugvél snerist um 35 gráður á Keflavíkurflugvelli rétt fyrir fjögur-leytið í dag. Flughált er á vellinum og slær hátt í 30m/s í verstu hviðunum. Búið er að raða kubbum við hjól vélarinnar og raða slökkvilbílum við vélina til að taka af henni mesta vindinn.

Landsbankinn hækkar vexti

Landsbankinn ætlar að hækka óverðtryggða inn- og útlána um allt að 0,25 prósentustig frá og með 1. janúar 2007. Í tilkynningu frá bankanum segir að hækkunin sé í beinu framhaldi af hækkun stýrivaxta Seðlabanka Íslands í morgun.

Valkyrjur í vígahug

Þrjár breskar konur, vopnaðar handtöskum sínum, stöðvuðu hættulegan glæpamann sem var á flótta undan lögreglunni, og komu honum undir manna hendir. Maðurinn var eftirlýstur fyrir árásir á þrjá lögregluþjóna, og ólöglegan vopnaburð.

Björgunarsveitarmenn önnum kafnir á suðvesturhorninu

Björgunarsveitarmenn Landsbjargar eru nú í nokkrum óveðursútköllum á suðvesturhorninu. Í Þorlákshöfn voru þakplötur farnar að fjúka af fiskimjölsverksmiðju. Þá er stór skemma í byggingu í Keflavík en sú nýbygging er að liðast í sundur og er allt tiltækt lið frá Björgunarsveitinni Suðurnes að vinna í því verkefni.

Björguðu um 70 hrossum á Skeiðum

Björgunarfélag Árborgar hefur staðið í ströngu í dag vegna vatnavaxtanna í Hvítá og Ölfusá á Suðurlandi. Fyrr í dag komu þær yfir 70 hrossum til bjargar við bæinn Vorsabæ I á Skeiðum og voru hrossin rekin á sund með þremur eða fjórum bátum. Öll sluppu þau lifandi.

Reynt að bjarga hrossum í Skagafirði

Björgunarsveitarmenn í Skagafirði hafa síðan á hádegi reynt að bjarga hrossum sem hafa orðið innlyksa vegna flóðs í Héraðsvötnum. Nokkrir hópar björgunarsveitamanna eru nú á bátum og reyna að ná hrossunum á þurrt.

Ekki hægt að nota landganga í Leifsstöð

Vindur er nú orðinn það mikill í Leifsstöð að ekki er hægt að nota landganga flugstöðvarinnar og því mikil seinkun á flugi. Í sterkustu vindhviðunum slær upp í 55 hnúta, eða rúmlega 28 m/s á vellinum. Seinkun á flugi frá vellinum er nú allt upp í fjóra og hálfan tíma.

Harðar deilur um líknardráp á Ítalíu

Ítalskur læknir segist hafa slökkt á öndunarvél dauðvona sjúklings síns, til þess að binda enda á þjáningar hans. Sjúklingurinn hafði tapað máli sem hann höfðaði til þess að fá að deyja. Ættingjar og vinir mannsins voru viðstaddir þegar slökkt var á öndunarvélinni.

Saka landlækni um dylgjur

Ritstjórar tímaritsins Ísafoldar saka Matthías Halldórsson, landlækni, um að vera með dylgjur um það að í nýjasta hefti tímaritsins sé að finna ósannsögli og rangfærslur í grein um elliheimilið Grund. Ritstjórar blaðsins ætla að kanna hver lagaleg staða tímaritsins er vegna umæla landlæknis.

Sjá næstu 50 fréttir