Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Færri kertabrunar Fyrstu tvær vikurnar í desember hefur kertabrunum fækkað um 75% frá meðaltali síðustu ára sem telur 24 kertabruna á tímabilinu. Einungis sex kertabrunar hafa verið tilkynntir. 17.12.2006 13:45
Dæmdir til dauða fyrir að bjarga ekki konu Dómstóll á Srí Lanka hefur dæmt tvo menn til dauða fyrir að valda dauða konu þegar flóðbylgjan mikla skall á eynni annan dag jóla 2004. Myndbandsupptaka sýnir þegar þeir slíta af henni hálsfesti og skilja svo eftir í vatnsflaumnum. 17.12.2006 13:30
Fangageymslur fullar í Reykjavík Fangageymslur lögreglunnar í Reykjavík voru fullar í morgun eftir erilsama en þó stórslysalausa nótt. Að sögn lögreglu var töluvert um ölvun í miðborginni. Lítið fór fyrir jólaskapinu nú þegar vika er til hátíðar ljóss og friðar. Erfiðlega gekk að tjónka við menn og fólk fært í fangageymslur þar sem það svaf úr sér áfengisvímu. 17.12.2006 13:15
300 handteknir í Kaupmannahöfn Á þriðja hundrað manns voru handtekin þegar til átaka kom á milli mótmælenda og lögreglu í Kaupmannahöfn í gærkvöld. Grjóti og flöskum var kastað að lögreglu sem svaraði með því að skjóta táragasi á mannfjöldann. 17.12.2006 13:00
Lögðu undir sig landbúnaðarráðuneytið Loftið er lævi blandið á heimastjórnarsvæðum Palestínumanna eftir að liðsmenn Fatah-hreyfingar Mahmoud Abbas lögðu undir sig landbúnaðarráðuneyti heimastjórnarinnar í morgun. Áhlaup Fatah kom í kjölfar árásar grímuklæddra byssumanna á æfingasvæði lífvarða Abbas í morgun en einn lét þar lífið. Abbas býr skammt frá ráðuneytinu og því segjast Fatah-menn hafa verið að tryggja öryggi hans með því að taka það yfir. 17.12.2006 12:45
Hluta miðbæjarins var lokað Hluta miðbæjarins í Vestmannaeyjum var lokað í gærkvöld þegar eldur kviknaði í Fiskimjölsverksmiðju Ísfélagsins. Ediksýra í tonnavís var geymd í húsinu og óttuðust menn mjög að stórslys hlytist af. Sex menn út eiturefnadeild Slökkviliðsins í Reykjavík voru sendir til Eyja með þyrlu Landhelgisgæslunnar og voru að fram á nótt við að koma sýrunni undan eldtungunum. Að sögn lögreglunnar í Vestmannaeyjum leikur grunur á að kveikt hafi verið í. 17.12.2006 12:30
Felldur eftir að hafa traðkað 14 til bana í ár Indverskir fílaveiðimenn felldu í gær stóran fílstarf sem sagður er hafa traðkað 14 manns til bana síðastliðið ár. Tarfurinn, sem heimamenn kalla Osama bin Laden, var orðinn sannkallaður ógnvaldur í Assam-héraði og því þótti ekki annað fært en að drepa hann. 17.12.2006 12:15
Time: Internetið gjörbylt fjölmiðlun Bandaríska tímaritið Time hefur valið "þig" sem mann ársins 2006 fyrir framlag þitt til að gerbylta allri fjölmiðlun í heiminum með hjálp internetsins. Að mati blaðsins hafa bloggsíður og vefsvæði á borð við You-tube breytt valdajafnvæginu í fjölmiðlun á kostnað stóru fyrirtækjanna. 17.12.2006 12:00
Fallegasti jólaglugginn Gluggi verslunar Blue Lagoon að Laugavegi 15 í Reykjavík hlaut viðurkenningu Þróunarfélags miðborgarinnar fyrir fallegasta jólagluggann í ár. Einar Örn Stefánsson framkvæmdastjóri félagsins sagði að einfalt og stílhreint útlit jólagluggans hefði vakið athygli dómnefndarinnar. 17.12.2006 11:45
Eldsvoði í brúðkaupsveislu Í það minnsta 22 konur og börn týndu lífi í eldsvoða í brúðkaupsveislu í austanverðu Pakistan í gær, brúðurin þar á meðal. Eldurinn kviknaði í tjaldi þar sem veislan var haldin en karlkyns gestirnir voru í öðru tjaldi, eins og siður er á þessum slóðum, og sakaði því ekki. 17.12.2006 11:30
Bilun í Cantat sæstreng Bilun kom upp í Cantat sæstreng Símans um kl. 23:30 í gærkvöld og hefur bilunin áhrif á netsamband til útlanda þar sem bandbreid minnkar. Ekki er vitað hvað veldur sambandsleysinu en unnið er að því að komast að hvað veldur. Bilunin hefur óveruleg áhrif á talsímaumferð. 17.12.2006 11:15
Óku á vegg Tvær stúlkur 16 og 17 ára gamlar, voru handteknar í Grindavík í nótt grunaðar um að hafa tekið bifreið ófrjálsri hendi og ekið henni á steinhleðsluvegg við skemmtistaðinn Festi. Þær sluppu án teljandi meiðsla en bifreiðin er mikið skemmd sem og veggurinn. Stúlkurnar gistu fangageymslur lögreglu í Keflavík í nótt. 17.12.2006 11:00
Vesturveldin styðja Abbas Sú ákvörðun Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, að boða til kosninga á heimastjórnarsvæðunum hefur almennt mælst vel fyrir á Vesturlöndum. Abbas boðaði til kosninga í gær eftir stigvaxandi átök liðsmanna Fatah og Hamas. Leiðtogar Hamas segja ákvörðun forsetans jafngilda valdaráni. 17.12.2006 10:45
Dansað í kringum jólatré með froskalappir Eitt sérstæðasta jólaball landsins var haldið í dag en þar var synt en ekki gengið í kringum jólatréð. Sportkafarafélag Íslands stóð fyrir þessu jólaballi í gjánni Silfru á Þingvöllum og að sjálfsögðu mættu jólasveinarnir á svæðið með froskalappir á fótum og súrefniskúta á baki. 16.12.2006 20:30
Bjartsýnn á framtíðina þrátt fyrir lítið fylgi flokksins Elsti stjórnmálaflokkur landsins, Framsóknarflokkurinn, fagnaði níutíu ára afmæli sínu í dag. Formaðurinn segist bjartsýnn á framtíðina en aldrei í sögu flokksins hefur fylgi hans mælst jafn lágt. 16.12.2006 20:15
Reykjanesvirkjun formlega vígð Reykjanesvirkjun var formlega vígð síðdegis í gær en hún markar tímamót í sögu Hitaveitu Suðurnesja, sem margfaldar rafmagnsframleiðslu sína með þessari framkvæmd. Reykjanesvirkjun kostaði yfir 13 milljarða í byggingu en nær öll raforkuframleiðslan fer til Norðuráls í Hvalfirði. 16.12.2006 19:30
Jákvæðar viðræður um Hatton Rockall Í gær fóru fram í Kaupmannahöfn viðræður Íslands, Bretlands, Írlands og Danmerkur, fyrir hönd Færeyja, um Hatton Rockall-málið, en öll þessi ríki gera tilkall til landgrunnsréttinda utan 200 sjómílna á svæðinu. 16.12.2006 19:00
Fimm hafa látist það sem af er desember Rúmlega tvítugur maður lét lífið í bílveltu á Álftanesvegi í nótt. Þrjátíu hafa látist í umferðinni það sem af er árinu, þar af fimm í desember. 16.12.2006 18:47
Ákvörðun Abbas kölluð valdarán Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, hefur boðað til þing- og forsetakosninga í þeirri von að þar með verði endi bundinn á valdabaráttu stríðandi fylkinga á heimastjórnarsvæðunum. Leiðtogar Hamas eru æfir yfir ákvörðuninni og kalla hana valdarán. 16.12.2006 18:30
Ástarbréf íslenskra kvenna á safn Ástarbréf íslenskra kvenna til eina skipverja franska rannsóknarskipsins Pourquois-pas sem komst lífs af þegar skipið strandaði út af Reykjanesi árið 1936, verða að öllum líkindum afhent Íslendingum með vorinu. Frændi skipverjans, sem nú er látinn, er staddur hér á landi. Olivier Le Bihan er mikilsvirtur safnstjóri í Frakklandi, en hann stjórnar fagurlistasafninu í Bordeaux. 16.12.2006 18:22
Rændu hálsfesti af drukknandi konu Dómstóll á Srí Lanka hefur dæmt tvo menn til dauða fyrir að valda dauða konu þegar flóðbylgjan mikla skall á eynni annan dag jóla 2004. Myndbandsupptaka sýnir þegar þeir slíta af henni hálsfesti og skilja svo eftir í vatnsflaumnum. 16.12.2006 17:48
Átök milli lögreglu og mótmælenda í Kaupmannahöfn Til átaka kom milli mótmælenda og lögreglu í Kaupmannahöfn í dag. Fólkið vildi með mótmælunum sýna andstöðu við það að unglingahúsi í Nørrebro í Kaupmannahöfn verði lokað. 16.12.2006 17:17
Sleppt eftir vist í Guantanamo fangabúðunum Sjö Afganar komu til heimalands síns í dag eftir nokkurra ára vist í Guantanamo fangabúðunum á Kúbu. Á fréttamannafundi í dag lýstu þeir yfir sakleysi sínu og reiði gagnvart bandarískum stjórnvöldum. 16.12.2006 16:34
Vonast til að yfirlýsing Abbas lægi öldur Stjórnvöld í Bandaríkjunum vonast til þess að yfirlýsing Mahmoud Abbas forseta Palestínu, um boða fljótlega til kosninga, lægi öldu ofbeldis sem ríkt hefur á svæði og stuðli að friði. 16.12.2006 15:39
Bjó yfir leynilegum upplýsingum Alexander Litvinenko, fyrrverandi njósnari hjá KGB, var myrtur vegna leynilegra upplýsinga sem hann hafði komist yfir um valdamikla stjórnendur í Rússlandi. 16.12.2006 15:23
Styrkja byggingu nýs íþróttahúss á Höfn Útgerðarfyrirtækið Skinney-Þinganess ætlar að styrkja byggingu nýs knattspyrnuhúss á Höfn í Hornafirði með að minnsta kosti 60 milljóna króna framlagi. Þetta er í tilefni að því að fyrirtækið fagnar nú 60 ára afmæli sínu. 16.12.2006 14:25
Háhraðatengingar á sunnanverðu Snæfellsnesi Í dag ganga þrjú sveitarfélög á Vesturlandi frá samningi við Hringiðuna um háhraðatengingar á sunnanverðu Snæfellsnesi. Sveitarfélögin eru Borgarbyggð, Eyja- og Miklaholtshreppur og Snæfellsbær. 16.12.2006 14:07
Messa hjá rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni Í morgun var messa rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar haldin í Dómkirkjunni. Þetta er önnur messan frá stofnun deildarinnar á íslandi, en tilefnið var að fagna degi Sánkti Nikulásar. 16.12.2006 13:30
Opið í Bláfjöllum Opið er á skíðasvæðinu í Bláfjöllum í dag. Svæðið opnaði klukkan eitt og verður opið til klukkan fjögur. Stólalyftan Gosi í Suðurgili er í gangi og einnig kaðallyftan Patti broddgöltur við Bláfjallaskála. 16.12.2006 13:15
Bónus gagnrýnir verðkönnun ASÍ á bókum Bónus gagnrýnir framkvæmd verðkönnunar á bókum sem gerð var í vikunni og neituðu Alþýðusambandinu að kanna verðlag í matvöruverslunum sínum. Þetta var gert þrátt fyrir yfirlýsingar forsvarsmanna Bónuss að þeir hefðu ekkert út á matvöruverðskannanir ASÍ að setja. 16.12.2006 12:48
Blair róaði Erdogan Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna ákváðu á fundi sínum í gær að gera hlé á aðildarviðræðum við Tyrkland en ítrekuðu þó að dyr sambandsins myndu áfram standa nýjum ríkjum opnar. Tony Blair forsætisráðherra Bretlands reyndi í morgun að sefa tyrkneska ráðamenn en þeir eru afar vonsviknir yfir ákvörðuninni. 16.12.2006 12:45
Abbas boðar kosningar Mahmoud Abbas forseti Palestínu sagði í ræðu nú í morgun að Hamas-samtökin bæru ábyrgð á róstunum sem nú ríkja á heimastjórnarsvæðunum. Hann hótaði að leysa ríkisstjórnina frá völdum og lét að því liggja að þing- og forsetakosningar væru á næsta leiti. 16.12.2006 12:13
Framsóknarflokkurinn fagnar afmæli í skugga lágs fylgis Framsóknarflokkurinn fagnar níutíu ára afmæli í dag og aldrei í sögu flokksins hefur fylgi hans mælst jafn lágt. Í tilefni afmælisins munu framsóknarfélög um land allt standa fyrir hátíðardagskrá. 16.12.2006 12:07
Lítt gefnir fyrir sopann Þingmenn á norska stórþinginu eru reglusamir í meira lagi, ef marka má frétt dagblaðsins Aftenposten. Þar kemur fram að á síðasta ári hafi ölsala í mötuneyti þinghússins verið svo lítil að hún jafngildi því að hver þingmaður hafi drukkið sem svarar fjórum matskeiðum af bjór á árinu. 16.12.2006 11:45
Rúmlega tvítugur maður lét lífið í bílveltu á Álftanesvegi Rúmlega tvítugur maður lét lífið í bílveltu á Álftanesvegi í nótt. Slysið varð á fyrsta tímanum í nótt en maðurinn var einn í bílnum. Hann var á leið út á Álftanes þegar bíll hans fór út af við Selskarð og valt. Maðurinn var látinn þegar lögreglan kom á staðinn. Tildrög slysins eru óljós. Þrjátíu hafa látið lífið í umferðinni á árinu en alls létust nítján í umferðinni á síðasta ári. 16.12.2006 11:24
Sek þar til sakleysi sannast Kona í Vestamannaeyjum fékk tæplega fjögur þúsund króna stöðumælasekt, fyrir að leggja bíl sínum ólöglega í Reykjavík í síðasta mánuði. Það þykir svo sem ekki í frásögur færandi, nema vegna þess að bæði konan, og bíllinn hennar, voru í Vestmannaeyjum umræddan dag. Hún fékk þau svör hjá Bílastæðasjóði að hún yrði að borga sektina eða sanna fjarveru sína úr höfuðborginni og myndi úrskurðarnefnd þá taka ákvörðun um niðurfellingu sektarinnar. 16.12.2006 11:00
Aftökum í Flórída frestað Jeb Bush, ríkisstjóri í Flórída og bróðir George Bush Bandaríkjaforseta, hefur fyrirskipað að öllum aftökum í ríkinu verði frestað um óákveðinn tíma. Ástæðan er misheppnuð aftaka með eitursprautu á Angel Nievez Diaz fyrr í vikunni en hún tók rúman hálftíma í stað fimmtán mínútna. 16.12.2006 10:45
Bréfin frá Bandaríkjunum biðu í 7 ár Rússneskir bréfberar hafa hafist handa við að bera út fjögur og hálft tonn af bréfum og pökkum sem voru send frá Bandaríkjunum árið 1999. Ríkisrekin póstþjónustan í Rússlandi segir bið bréfanna ekki sína sök heldur skellir skuldinni á hafnaryfirvöld í Finnlandi, þar sem gámurinn með póstinum "gleymdist" í 7 ár. 15.12.2006 23:30
Hetjutenórinn ber við lágum blóðsykri Roberto Alagna, tenórinn frægi sem hljóp af sviðinu á La Scala óperunni í miðri aríu þegar áhorfendur bauluðu á hann, ber því við að hann þjáist af lágum blóðsykri og hafi því ekki getað klárað atriðið eða sýninguna. Hann ætlar að kæra óperuna fyrir að hafa rekið sig úr sýningunni. 15.12.2006 23:30
Ólga um nýjan ráðherra í Danmörku Sama dag og Carina Christensen er skipuð í embætti neytendaráðherra í Danmörku í stað Lars Barfoeds, sem sagði af sér á miðvikudaginn, er búið að ata hana auri í dönsku blöðunum. Vinnueftirlitið hefur gert athugasemdir við húsgagnaverksmiðju sem hún rekur og samkeppnisaðili hefur stefnt fyrirtækinu fyrir iðnstuld. 15.12.2006 22:32
Bin Laden kampavín í glösin um áramótin Perúskir bruggarar hafa skipt út andliti jólavínsins á flöskunum: í staðinn fyrir að jólasveinninn brosi framan í fólk er álíka skeggjaður karl en ekki jafn góðlegur kominn í staðinn. Og nafnið hans stendur líka á flöskunum: Bin Laden Kampavín! Yfirvöld hafa hins vegar hellt niður kössum af Osama-drykknum og segja hann óhæfan til manneldis. 15.12.2006 21:34
Stjórn VG styður Álfheiði Stjórn VG styður yfirlýsingu Álfheiðar Ingadóttur, fulltrúa flokksins í stjórn Landsvirkjunar, fyrr í dag. Álfheiður gekk af síðasta fundi núverandi stjórnar Landsvirkjunar í dag til að mótmæla því að raforkuverðið til Alcan sé ekki gefið upp. Í yfirlýsingu frá VG segir að slíkt standist ekki kröfur um opna og lýðræðislega stjórnsýslu. 15.12.2006 21:26
Gerviskinnið var ekta í Macy's Dýraverndunarsamtök ásaka stórverslunina Macy's í New York um að selja úlpu með þvottabjarnarskinni á hettunni með því að merkja hana á vefsíðu sinni á þann veg að loðkraginn væri gerviskinn. Samtökin sögðust hafa keypt slíka úlpu og séð þá að á miða í henni stæði "ekta þvottabjarnarskinn". 15.12.2006 20:34
Þrír myrtir í skotárás á Jamaíka Byssumenn drápu þrjá menn og særðu tvo til viðbótar nærri nokkrum fínustu hótelum við Montego-flóa á Jamaíka í dag, sama dag og ferðamannavertíðin byrjar þar fyrir alvöru. Byssumennirnir, sem klæddir voru í einkennisbúninga lögreglu, skutu á fólk sem stóð á gangstétt úr bíl á ferð. Árásin tengjast bardögum götugengja. 15.12.2006 20:07
Unnustan stal senunni Vilhjálmur Bretaprins útskrifaðist í dag úr Sandhurst-herskólanum á Englandi. Unnusta hans, Kate Middleton, vakti mikla athygli við athöfnina. 15.12.2006 20:00