Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lögsókn út af krossi Starfsmaður innritunarborðs Breska flugfélagsins British Airways hefur kært fyrirtækið eftir að það bannaði starfsmönnum að bera kross við einkennisfatnað þess. Nadia Eweida segir að hún hafi verið þvinguð til að fara í launalaust leyfi eftir að hún neitaði að taka krossinn af sér. 14.10.2006 21:00
Þrír létust í hríðarbyl í New York Þrír létust og þúsundir eru án rafmagns í Buffalo eftir að hríðarbylur gekk yfir New York ríki í gær. Rúmlega 60 sm snjór féll í miklu þrumuveðri á fimmtudag og föstudag, en það eru mestu snjóar í október síðan veðurstofan byrjaði mælingar fyrir 137 árum. Rafmagnsfyrirtæki áttu í miklum erfiðleikum að bæta úr rafmagsleysinu þar sem starfsmenn þeirra festust í snjónum eins og aðrir. 14.10.2006 20:45
Kidman rödd kvenna í Kosovo Kvikmyndaleikkonan og óskarsverðlaunahafinn Nicole Kidman hóf ferð um Kosovo í dag til að styrkja málefni kvenna í landinu og auka skilning á réttindum þeirra. Þetta er fyrsta embættisverk hennar sem velgjörðarsendiherra Sameinuðu Þjóðanna. Hún flaug frá Ítalíu til Pristinu, höfuðborgar Kosovo, eftir að hafa kynnt nýjust kvikmynd sína “Fur” á kvikmyndahátíð Rómaborgar. 14.10.2006 20:30
Ropandi beljur auka gróðurhúsaáhrif Vísindamenn í Bretlandi vinna nú að rannsóknum á áhrifum metangass sem kýr hleypa út í andrúsloftið þegar þær ropa, á hlýnandi loftslagi. Þar í landi reiknast vísindamönnununum til að í breskar kýr framleiði 3% af gróðurhúsaáhrifum í Bretlandi. Kýr auki þess vegna á hlýnun loftslags. 14.10.2006 20:15
Veiðisvæði rjúpu í Borgarfjarðarsýslu kortlögð Helstu veiðisvæði rjúpunnar í uppsveitum Borgarfjarðarsýslu hafa verið kortlögð þar sem hægt er að sjá hvar er leyfilegt að skjóta og hvar ekki. Kortið er gefið út af Hlunnindafélagi Borgarfjarðarsýslu sem var stofnað um nýtingu skotveiðihlunninda. Á kortinu er tilgreind landnýting, hvort viðkomandi svæði eða jörð sé friðuð og hvort landeigendur sjálfir nýta það til skotveiði eða leigi út. 14.10.2006 19:45
Lúðvík opnar kosningaskrifstofu í Reykjanesbæ Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi opnaði kosningaskrifstofu í Reykjanesbæ í dag. Skrifstofan er til húsa að Hafnargötu 86, í sal gömlu Aðalstöðvarinnar. Lúðvík er einn fjögurra frambjóðenda í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi sem sækist eftir að leiða listann. 14.10.2006 19:30
Hneyksli að svínað hafi verið á Mjólku Framkvæmdastjóri Félags íslenskra stórkaupmanna segir vonbrigði að í tillögum ríkisstjórnarinnar til lækkunar matvælarverðs sé ekki tekið á mjólkuriðnaðinum. Hann segir hneyksli að fyrirtæki í einokunarstöðu, eins og Osta- og smjörsalan, hafi svínað á fyrirtæki eins og Mjólku sem reyni að virkja samkeppni. 14.10.2006 19:15
Samkeppni nauðsynleg Framkvæmdastjóri Félags íslenskra stórkaupmanna segir vonbrigði að í tillögum ríkisstjórnarinnar, til lækkunar matvælarverðs, sé ekki tekið á mjólkuriðnaðinum. Hann segir hneyksli að fyrirtæki í einokunarstöðu, eins og Osta- og smjörsalan, hafi svínað á fyrirtæki eins og Mjólku sem reyni að virkja samkeppni. 14.10.2006 18:45
Nýtur ekki sömu virðingar og áður Nýtt fjögur þúsund manna verkalýðsfélag var stofnað í dag þegar Félag járniðnaðarmanna og Vélstjórafélag Íslands sameinuðust. Formaður félagsins, segir iðn- og tæknimenntun ekki njóta sömu virðingar og áður 14.10.2006 18:45
Öryggisráð SÞ samþykkir refsiaðgerðir gegn N-Kóreu Bandaríkin, Bretland og Frakkland komust hjá ágreiningi við Rússland og Kína um refsiaðgerðir gegn Norður Kóreu og samþykktu öll 15 aðildarríki öryggisráðsins nýja ályktun. Hún felur í sér að Norður Kórea eyðileggi öll kjarnorkuvopn, gjöreyðingarvopn og langdrægar flaugar, en útilokar hernaðaraðgerðir gegn landinu. 14.10.2006 18:38
Vörugjöldin eru úrelt Samtök atvinnulífsins vilja fara aðrar leiðir en ríkisstjórnin ætlar til að lækka verð á matvælum og segja verðlag á Íslandi geta orðið svipað og í Finnlandi og Svíþjóð með því að afnema vörugjöld og lækka tolla. Samtökin segja ekki þurfa lækkun virðisaukaskatts til að ná fram lægra vöruverði. 14.10.2006 18:30
Samfylkingin vill meira fé í velferðarkerfið Það er ömurlegt að aldraðir og öryrkjar búi ekki við sómasamleg lífskjör á sama tíma og ríkissjóður hefur aldrei tekið til sín stærri hluta af þjóðarkökunni, segir formaður Samfylkingarinnar en Íslendingar eiga heimsmet í aukningu á skattbyrði, samkvæmt úttekt OECD. 14.10.2006 18:20
American Graffiti á Höfn Hornfirska skemmtifélagið frumsýnir í kvöld tónlistarsýninguna "American Graffiti" á Hótel Höfn. Tuttugu og sjö manns taka þátt í sýningunni. Allt eru það áhugaleikarar og tónlistarmenn frá Hornafirði. Kristín Geirsdóttir leikstjóri segir tækifæri á landsbyggðinni ekki mörg fyrir ungt fólk. "Mitt áhugamál er að gefa þessu unga fólki tækifæri til að þróa sig áfram í listinni." 14.10.2006 18:06
Sjálfsmorð eftir ímyndað morð unnustu Pakistanskur maður framdi sjálfsmorð fyrir utan hús unnustu sinnar í Karachi þegar hann hélt að hann hefði ráðið henni bana af gáleysi. Maðurinn var vopnaður byssu og skaut í sífellu af henni í loftið fyrir utan hús hennar í þeirri von að fá athygli unnustunnar og fá hana til að giftast sér tveim mánuðum fyrr en áætlað hafði verið. 14.10.2006 17:37
Skjóta Tíbeta á flótta Rúmenskir kvikmyndatökumenn náðu því á mynd þegar kínverskir landamæraverðir skutu á hóp Tíbeta sem var fótgangandi á leið yfir til Nepals. Tveir létu lífið. Kínversk stjórnvöld viðurkenna að átök hafi átt sér stað, en halda því fram að fólkið hafi ráðist á landamæraverðina. 14.10.2006 17:29
Helgi Laxdal formaður nýs verkalýðsfélags Helgi Laxdal, fráfarandi formaður Vélstjórafélags Íslands, verður fyrsti formaður nýs sameiginlegs verkalýðsfélags vélstjóra og járniðnaðarmanna sem stofnað var á Grand hóteli í dag. Hið nýja félag heitir Félag vélstjóra og málmiðnaðarmanna og hefur um 4.000 félagsmenn. 14.10.2006 17:06
Jón G. Snædal forseti Alþjóðafélags lækna Jón G. Snædal, læknir og sérfræðingur í öldrunarlækningum við Landsspítala Háskólasjúkrahús, var í dag kjörinn forseti Alþjóðafélags lækna á aðalfundi félagsins í Pilanesberg í Suður-Afríku. Jón er kosinn fyrir starfsárið 2007-2008, en kosningin er bæði viðurkenning fyrir íslenska lækna og mikill persónulegur heiður. 14.10.2006 15:58
Titringur í ríkisstjórn Reinfeldts Viðskiptaráðherra Svíþjóðar Maria Borelius hefur sagt af sér eftir einungis eina viku í embætti. Hún hefur viðurkennt að hafa ráðið barnfóstrur án þess að borga skatta og önnur launatengd gjöld. Forsætisráðherrann Fredrik Reinfeldt greindi frá því í útvarpsviðtali að þau hefðu komist að samkomulagi um afsögnina. 14.10.2006 15:22
Rússneskt diskó og messa í Reykjavík Rússnesk menningarhátíð hófst í Neskirkju í Reykjavík í dag. Upphaf hátíðarinnar var messa að hætti rétttrúnaðarkirkjunnar, á verndardegi Maríu meyjar. Hátíðinni verður framhaldið í næstu viku og verður meðal annars boðið upp á rússneskt diskótek um komandi helgi. 14.10.2006 15:00
Kanadísk menningarhátíð í Gerðasafni Gunnar Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs, setti kanadíska menningarhátíð í Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni í dag að viðstöddum forseta Íslands. Anna Blauveldt, sendiherra Kanada á Íslandi, flutti ávarp. Forseti Íslands opnaði þrjár myndlistarsýningar í Gerðarsafni, þar sem teflt er saman list kanadísku frumbyggjanna, indíána og inúíta, og hinni vestrænu hefð. 14.10.2006 14:40
200 börn á biðlista eftir frístundaheimili Sextíu og þrjú börn eru á biðlista eftir frístundaheimili í Grafarvogi einum en 200 börn í höfuðborginni allri. Nú er þörf fyrir athafnastjórnmál, segir fulltrúi Samfylkingar í Hverfisráði Grafarvogs sem furðar sig á því sinnuleysi sem borgaryfirvöld sýna börnum og foreldrum. 14.10.2006 14:15
Lögreglan á Hvolsvelli varar við Emstruleið Lögreglan á Hvolsvelli varar fólk við að fara í Emstrur, en leiðin er lokuð innan við Fljótsdal í Fljótshlíð vegna vatnavaxta í Markarfljóti. Bíll valt í fljótið í morgun, en mennirnir þrír sluppu án meiðsla. Syðri fjallabaksleið er opin, en lögreglan biður fólk að fara varlega. 14.10.2006 13:39
Mikill fjöldi í áheyrnarprufur Mikill fjöldi fólks á öllum aldri var mættur í áheyrnarprufur fyrir X-factor á Hótel Nordica snemma í morgun. X-factor er hæfileika- og söngkeppni fyrir einstaklinga og sönghópa sem verður á dagskrá Stöðvar2 í vetur. Dómarar keppninnar, þau Einar Bárðarson, Páll Óskar og Ellý í Q4U velja þátttakendur úr hópnum og þeir sem þykja standa sig best verða að líkindum orðnir heimilisvinir með vorinu. 14.10.2006 13:19
Háskalegur dauðdagi flottur Stjórnvöld í Suður-Afríku reyna nú að koma böndum á nýjasta æðið hjá ungmennum í landinu. Það er svokölluð lestareið þar sem unglingar standa ofaná hraðlestum og reyna að forðast að lenda á rafmagnslínum. Fjölmargir hafa þegar látist eða stórslasast. Það eru einkum ungir karlmenn sem stunda þennan stórhættulega leik. 14.10.2006 13:01
Fundað á Bessastöðum um loftslagsbreytingar Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands segir tækifæri fólgin í baráttu gegn loftslagsbreytingum og að hún þurfi ekki að vinna gegn efnahagi. Þetta sagði hann á fundi um aðgerðir gegn þróuninni á Bessastöðum skömmu fyrir hádegi. Forystumenn úr alþjóðlegu viðskiptalífi eru komir hingað til lands til að funda um aðgerðir gegn loftlagsbreytingum. 14.10.2006 13:00
Sprengju líklega komið fyrir í farangri Spænsk kona sem handtekin var í Mexíkó um síðustu helgi, hefur verið ákærð fyrir að ætla að flytja sprengiefni til Spánar. Spænski konsúllinn í Cancún segir næsta víst að sprengiefnunum hafi verið komið fyrir í farangri hennar. Um sé að ræða unga stúlku sem var með eiginmanninum í brúðkaupsferð í Cancun, hún komi frá litlu þorpi í Galisíu og reki eigin hárgreiðslustofu. 14.10.2006 12:45
Ódýrari leið til lækkunar matarverðs Matarverð á Íslandi gæti orðið það sama og í Finnlandi og Svíþjóð með því að afnema vörugjaldakerfið og lækka tolla, segja Samtök atvinnulífsins. Lækkun virðisaukaskatts hefði ekki þurft að koma til. Samtökin telja að önnur leið en sú sem stjórnvöld hafa valið til lækkunar matvælaverðs, hefði verið vænlegri til árangurs. 14.10.2006 12:09
Veður tefur innanlandsflug Slæmt veður hefur tafið flugumferð í morgun. Flogið var til Akureyrar og Egilstaða, en flug til Ísafjarðar liggur niðri og verður athugað klukkan rúmlega tvö. Þá á að athuga flug til Færeyja og Akureyrar nú um hádegið. 14.10.2006 12:04
Kortavelta dregst saman Kortavelta hefur dregist saman um rúmlega 3% frá því í ágústmánuði. Þetta kemur fram í hálffimm fréttum KB banka. Samdráttinn má aðallega rekja til minnkandi veltu í debetkortum, en hún dróst saman um 9% milli mánaða. Velta þeirra í septembermánuði nam rúmlega 33 milljörðum króna. 14.10.2006 11:45
Geislavirk efni nærri tilraunastað Frumrannsóknir bandarískra sérfræðinga sýna að geislavirk efni hafi fundist nærri þeim stað þar sem Norður-kóreumenn segjast hafa sprengt kjarnorkusprengju í tilraunaskyni á mánudaginn. Heimildarmaður í bandaríska stjórnkerfinu hefur staðfest þetta bæði við Reuters-fréttastofuna og CNN í kvöld. 13.10.2006 23:49
Skilorðsbundið fangelsi fyrir að koma sök á vinkonu sína Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag konu á þrítugsaldri í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að gefa upp nafn vinkonu sinnar í þrígang þegar lögregla hafði afskipti af ferðum hennar á bifreið í febrúar og mars 2002. 13.10.2006 23:36
365 þúsund Írakar á vergangi Mörg þúsund Írakar flýja nú heimaland sitt á degi hverjum. Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna segir þetta stöðuga og lágværa brottflutninga. Þeim Írökum sem leita hælis á Vesturlöndum fjölgi dag frá degi. Auk alls þessa séu 365 þúsund Írakar á vergangi og þeir verði aðeins fleiri eftir því sem á líði. 13.10.2006 23:01
Skilgreininga þörf í ljósi þjónustusamnings Stjórn Framleiðendafélagsins SÍK fagnar nýjum þjónustusamningi Ríkisútvarpsins og Menntamálaráðuneytisins þar sem kveðið er á um verulega aukinn hlut íslensks dagskrárefnis í Sjónvarpinu á næstu 5 árum. Telur stjórn félagsins að skilgreina þurfi ýmis atriði í samningnum til að eyða öllum vafa um hvert stefni í reynd með honum. 13.10.2006 22:38
Nýr megrunardrykkur reynist umdeildur Sérfræðingar í heilbrigðisgeiranum gera lítið úr fullyrðingum Coca-Cola og Nestle um að nýr drykkur frá þeim hjálpi fólki við að létta sig drekkið það þrjár 30 millilítra dósir á dag. 13.10.2006 22:17
Sýknaður af ákæru um að rjúfa friðhelgi einkalífs Díönu og Dodis Franskur dómstóll hefur sýknað breskan ljósmyndara af ákæru um að hafa skert friðhelgi einkalífs Díönu prinsessu af Wales og Dodi Fayeds. Jason Fraser tók myndir af parinu þar sem þau kysstust á snekkju við ítölsku Rívíeruna í ágúst árið 1997, nokkrum dögum áður en þau týndu lífi í bílslysi í París. Það var faðir Dodis, auðjöfurinn Mohamed Al Fayed, sem kærði Fraser. Dómsorð í málinu hefur enn ekki verið birt opinberlega. 13.10.2006 21:35
Meðferð á föngunum í Guantanamo rannsökuð Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur fyrirskipað rannsókn á meintri illri meðferð á föngum í Guantanamo-fangabúðunum á Kúbu eftir að fréttir bárust af því að fangaverðir stærðu sig af því að hafa barið og misþyrmt föngum þar. 13.10.2006 21:04
Kortavelta dróst saman í september Kortavelta í september nam 56,2 milljörðum króna sem er um 3,3% minna en mánuðinn á undan. Í Hálf-fimm fréttum KB-banka segir að samdráttinn megi einkum rekja til minnkandi veltu í debetkortum en heildarvelta debetkorta hafi numið rúmum 30 milljörðum króna í september og hafi dregist saman um 9% milli mánaða. Heildarvelta kreditkorta hafi numið rúmum 20 milljörðum króna í september sem sé um 7% hækkun frá ágústmánuði. 13.10.2006 20:30
Vilja aftur að samningaborðinu Norður-kóreumenn eru tilbúnir til að snúa aftur að samningaborðinu og ræða næstu skref í kjarnorkudeilu sinni við vesturveldin. Alexander Alexeyev, vara-utanríkisráðherra Rússlands, sagði þetta í viðtali við Itar-Tass fréttastofuna síðdegis í dag. Ekki kemur fram í fréttinni að stjórnvöld í Pyongyang setji nokkur skilyrði fyrir því að hefja viðræður á ný eftir tæplega eins árs hlé. 13.10.2006 20:21
Ungt fólk getur auðveldlega nálgast fíkniefni Mjög auðvelt er fyrir ungt fólk að nálgast fíkniefni. Unglingur á vegum fréttaskýringarþáttarins Kompáss gat á skömmum tíma komist yfir þó nokkurt magn fíkniefna, sem ritstjóri þáttarins skilaði svo til lögreglu í dag. Lögreglan tók við efnunum og boðaði ritstjórann í yfirheyrslu vegna málsins. 13.10.2006 20:09
Mjólka ætlar að senda fleiri mál til Samkeppniseftirlitsins Samkeppniseftirlitið telur að Osta- og smjörsalan hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína gagnvart Mjólku ehf. og þannig brotið gegn samkeppnislögum. Mjólka hyggst senda fleiri mál til Samkeppniseftirlitsins. 13.10.2006 19:45
Ban Ki-Moon næsti framkvæmdastjóri SÞ Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna skipaði í kvöld Ban Ki-Moon, utanríkisráðherra Suður-Kóreu, í embætti framkvæmdastjóra samtakanna. Hann tekur við af Kofi Annan um næstu áramót. 13.10.2006 19:30
Úrskurður um gæsluvarðhald felldur úr gildi Hæstiréttur felldi í dag úr gildi úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að maður skuli sæta gæsluvarðhaldi til 21. nóvember næstkomandi vegna rannsóknar á stórfelldu fíkniefnasmygli. Maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 15. ágúst. Fram kemur í úrskurði Héraðsdóms að maðurinn er grunaður um að hafa aðstoðað tvo aðra menn sem teknir á Keflavíkurflugvelli við komuna til landsins 9. ágúst sl. með töluvert af fíkniefnum meðferðis. Maðurinn er grunaður um að hafa skipulagt, haft milligöngu um og fjármagnað ferð mannanna tveggja sem teknir voru með fíkniefnin. 13.10.2006 19:15
Skattbyrði jókst hvergi meira en á Íslandi Aukin skattbyrði á síðasta ári nemur svipaðri upphæð og heildarútgjöld ríkisins til menntamála á þessu ári. Stefán Ólafsson, prófessor, segir að skattbyrðin á Íslandi hafi aukist þrisvar sinnum meira en í Bandaríkjunum, sem glími við kostnað af tveimur styrjöldum. Fjármálaráðherra segir auknar tekjur ríkissjóðs hafa skilað sér í aukinni velferðarþjónustu. 13.10.2006 18:46
Verða af flýttum starfslokum Starfsmenn álversins í Straumsvík, sem sagt er upp störfum á seinni árum starfsævinnar, missa af flýttum starfslokum sem starfsmönnum með langan starfsaldur hjá fyrirtækinu bjóðast samkvæmt kjarasamningi. 13.10.2006 18:45
Hefði getað breytt sögunni Leiðtogafundurinn í Höfða var enn dramatískari en áður var talið. Þetta sýna skjöl sem nýverið voru gerð opinber þar sem samtöl Gorbatsjovs og Reagans eru birt orðrétt. Aðeins vantaði herslumuninn til þess að fundurinn hefði breytt heiminum varanlega og gert hann að betri og öruggari stað, að mati bandarísks fræðimanns sem lesið hefur hvert einasta orð sem leiðtogunum og ráðgjöfum þeirra fór á milli 13.10.2006 18:40