Fleiri fréttir Lögðu hald á um 600 lítra af áfengi í Hafnarfirði Lögreglan í Hafnarfirði lagði gær hald á um 500 lítra af áfengi í framleiðslu og um 100 lítra af fullframleiddu áfengi í húsleit í iðnaðarhúsnæði í bænum. Einnig var lagt hald á tæki og tól til framleiðslu áfengis. 13.10.2006 17:09 Sprengja N-Kóreumenn vetnissprengju næst? 13.10.2006 17:06 Sparisjóðir högnuðust um 9,5 milljarða í fyrra Samanlagður hagnaður sparisjóðanna á Íslandi í fyrra var rúmir 9,5 milljarðar króna. Þetta kom fram á aðalfundi Sambands íslenskra sparisjóða í Borgarnesi í dag 13.10.2006 16:55 Gorbachev líkir utanríkisstefnu Bandaríkjanna við alnæmi 13.10.2006 16:53 Ver verðlaunafénu til góðgerðamála Mohammad Yunus, sem hlaut í morgun friðarverðlaun Nóbels á ásamt Grameen-smálánabankanum sem hann stofnaði, hyggst verja verðlaunafénu, um 95 milljónum króna, til góðgerðamála. 13.10.2006 16:46 ELKEM flytur starfsemi sína frá Ålvik til Grundartanga Stjórn Elkem ákvað í dag að leggja niður drjúgan hluta af framleiðslu járnblendiverksmiðju félagsins í Ålvik í Noregi og flytja hana til Íslands. Forstjóri Járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga er að vonum ánægður, en þetta þýðir um fjörutíu ný störf í fyrirtækinu. 13.10.2006 15:56 Dýrasti veitingastaður heimsins 13.10.2006 15:54 Býður sig fram í 2. sætið Einar Már Sigurðarson, alþingismaður, býður sig fram í 2. sætið á lista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi í prófkjöri flokksins sem fram fer seinna í mánuðinum. 13.10.2006 15:50 Bandaríkin styðja andstæðinga Hamas 13.10.2006 15:36 Vilja fjölga opinberum störfum í Bolungarvík Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Bolungarvík skorar á ríkisstjórnina að fjölga opinberum störfum í Bolungarvík í stað þeirra starfa sem lögð hafa verið niður hjá Ratsjárstofnun á Bolafjalli. Það þykir ekki í samræmi við byggðaáætlun að flytja störf af landsbyggðinni. 13.10.2006 15:33 Segir von á fleiri kvörtunum til Samkeppniseftirlitsins Ólafur Magnússon, framkvæmdastjóri Mjólku, segir úrskurð Samkeppniseftirlitsins um að Osta- og smjörsalan hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína gagnvart fyrirtækinu sigur fyrir Mjólku. Hann segir að fyrirtækið hyggist senda fleiri mál til Samkeppniseftirlitsins vegna þess sem hann kallar undirboð Osta- og smjörsölunnar. 13.10.2006 15:23 Sprengdi Norður-Kórea bara dínamít ? 13.10.2006 15:13 Vinstri grænir flýta landsfundi Vinstrihreyfinginn – grænt framboð hefur ákveðið að flýta landsfundi sínum vegna komandi alþingiskosninga. Fundurinn er vanalega haldinn að hausti til en verður í febrúar á næsta ári, nánar tiltekið 23. - 25 febrúar árið 2007 á Grand Hóteli Reykjavík. 13.10.2006 15:08 Tveir slösuðust í vinnuslysi skammt frá Hvolsvelli Verið er að flyjta tvo menn með sjúkrabíl frá Hvolsvelli á slysdeild Landspítalans í Fossvogi eftir vinnuslys á bóndabæ skammt fyrir utan Hvolsvöll. Slysið var með þeim hætti að annar mannanna var að festa upp ljós og stóð í fiskikari sem fest var á gaffla á dráttarvél en karið rann fram af göfflunum og lenti ofan á manninum. 13.10.2006 14:54 Ungir leiðtogar ræða um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum Þessa dagana er haldinn hér á landi alþjóðlegur samráðsfundur um aðgerðir gegn loftlagsbreytingum að frumkvæði samtaka ungra forystumanna á heimsvísu, Young Global Leaders, sem starfa á vettvangi hinnar árlegu Davos-ráðstefnu, World Economic Forum. 13.10.2006 14:36 Art Festival 13.10.2006 14:34 Bandaríkjamenn útiloka hernað gegn Norður-Kóreu 13.10.2006 14:34 Rannsókn á orkustuldi látin niður falla Ríkissaksóknari hefur tekið ákvörðun um að ljúka máli vegna meints þjófnaðar á orkuforða á Ísafirði. Lögreglu var tilkynnt um málið þegar verið var að vinna að breytingum á götu í bænum en þar kom í ljós að tengingum í rafmagstöflu hafði verið breytt og vaknaði þá grunur um þjófnað á orkuforða. 13.10.2006 14:24 Bráðnandi jökulhettur ógna lífi í Afríku 13.10.2006 14:13 Danskir múslimaklerkar vilja frið 13.10.2006 13:42 Níu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir eignaspjöll Karlmaður hefur verið dæmdur í níu mánaða fangelsi, sem er skilorðsbundið til þriggja ára, í Héraðsdómi Reykjaness fyrir eignaspjöll. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa slegið ítrekað í vélarhlíf og framrúðu leigbíls með þeim afleiðingum að vélarhlífin rispaðist og framrúðan brotnaði. 13.10.2006 13:39 Tyrkir hóta Frökkum hefndum Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands, sagði í dag að Tyrkir myndu leita hefnda gegn Frökkum, sem í gær samþykktu lög um að skilgreina það sem glæpsamlegt athæfi að neita því að Tyrkir hafi framið þjóðarmorð á Armenum í fyrri heimsstyrjöldinni. 13.10.2006 13:32 Spyr hví Týr sé merktur Coast Guard Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur lagt fram fyrirspurn á Alþingi til dómsmálaráðherra, um hvers vegna varðskipið Týr sé núna merkt Landhelgisgæslunni á ensku, á hliðum skipsins. 13.10.2006 13:16 Segir mannleg mistök hafa valdið mismundandi verðlagningu Forsvarsmenn Osta- og smjörsölunnar segja að mannleg mistök hafi orðið þess valdandi að Mjólka hafi þurft að greiða meira fyrir undanrennuduft en Ostahúsið. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá fyrirtækinu í kjölfar úrskurðar Samkeppniseftirlitsins um að Osta - og smjörsalan hafi brotið gegn samkeppnislögum með verðlagningunni. 13.10.2006 13:08 Gagnrýna hvor aðra fyrir gagnrýni Ríkisendurskoðun og Umhverfisstofnun gagnrýna nú hvor aðra fyrir gagnrýni hvorrar á verkum annarrar og er mergur málsins orðinn aukaatriði. 13.10.2006 12:45 Ræða ekki málefni einstakra starfsmanna Stjórnendur álvers Alcan í Straumsvík segjast ekki ætla að ræða málefni einstakra aðila innan fyrirtækisins, en eins og kunnugt er héldu starfsmenn fjölmennan fund í Hafnarfirði í gær til að mótmæla uppsögnum þriggja starfsmanna fyrirtækisins fyrir skemmstu. 13.10.2006 12:30 Gorbastjov hugsanlega heiðursforseti Friðarstofnunar Reykjavíkur Höfði verður aðsetur Friðarstofnunar Reykjavíkur sem verður að veruleika innan tíðar. Svo gæti farið að Mikail Gorbatsjov yrði heiðursforseti stofnunarinnar. Fyrrum forseti Slóvakíu sem undirbýr stofnunina segir Ísland besta staðinn fyrir friðarviðræður. 13.10.2006 12:16 Sakar Kristján Þór um að ljúga að kjósendum sínum Bæjarfulltrúi L-listans á Akureyri vill að bæjarstjórinn taki sér launalaust leyfi meðan hann gegni prófkjörsbaráttu. Hann sakar Kristján Þór Júlíusson um að hafa logið að kjósendum sínum. 13.10.2006 12:09 Vefritið Vefritið opnað í dag Nýtt vefrit um pólitík og samfélagsmál, Vefritið, var opnað formlega í dag. Fram kemur í tilkynningu frá ritstjórn Vefritsins að í það skrifi fjölbreyttur hópur ungs fólks sem eigi það sameiginlegt að vera frjálslynt félagshyggjufólk. 13.10.2006 11:48 Misnotaði markaðsráðandi stöðu sína gagnvart Mjólku Samkeppniseftirlitið telur að Osta-og smjörsalan hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína gagnvart Mjólku ehf og þannig brotið gegn samkeppnislögum. 13.10.2006 11:37 Friðsamleg mótmæli fyrir utan sendiráð Dana í Djakarta Hópur múslíma kom saman fyrir framan sendiráð Danmerkur í Djakarta í Indónesíu í morgun til þess að mótmæla nýjum teikningum af Múhameð spámanni sem birst hafa á vegum Danska þjóðarflokksins að undanförnu. Mótmælin voru þó fámenn og friðsamleg en þau áttu sér stað eftir föstudagsbæn múslíma. 13.10.2006 11:28 Hershöfðinginn stendur við yfirlýsingar sínar Nýr yfirmaður breska heraflans, Sir Richard Dannatt, segist standa við yfirlýsingar sínar um að réttast væri að Bretar kölluðu fljótlega hermenn sína heim frá Írak. Yfirlýsing hans er á skjön við stefnu breskra stjórnvalda og hefur Dannatt verið kallaður á fund varnarmálaráðherra Breta. 13.10.2006 11:28 Kasparov óttast um líf sitt 13.10.2006 11:20 Íslendingarnir byrjaðir aftur Breska blaðið Guardian segir frá endurnýjuðum þrótti íslenskra fjárfesta í bresku fjármálalífi eftir sex mánaða hvíld. Í grein blaðsins segir, að fjármálakrísan í vor, sem sumir fjármálaskýrendur töldu að hefði getað komið vestrænum fjármálamökuðum á kné, fái að líkindum endi í mjúkri lendingu, og þess vegna séu til dæmis Landsbankinn, Kaupþing og Eggert Magnússon komnir af stað með ný áform. 13.10.2006 11:19 Tvöfaldaður á næstu árum Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra, segir að vegurinn á milli Reykjavíkur og Selfoss verði tvöfaldaður á næstu árum. Þetta muni liggja fyrir í nýrri vegaáætlun sem ríkisstjórnin kynnir í vetur. 13.10.2006 11:15 200 börn bíða eftir plássi á frístundaheimili Um 200 börn bíða nú eftir plássi á á frístundaheimilum borgarinnar og furðar fulltrúi Samfylkingarinnar í Hverfisráði Grafarvogs, Dofri Hermannsson, sig á sinnuleysi borgaryfirvalda í málinu. Í tilkynningu frá Dofra segir að vegna skorts á starfsfólki séu 63 börn á biðlista eftir plássi á frístundaheimili í Grafarvogi einum og séu sum þeirra fötluð eða með þroskafrávik og þurfi á sérstökum stuðningi að halda. 13.10.2006 10:48 Fimm látnir eftir sjálfsmorðsárás í Kandahar Að minnsta kost fimm óbreyttir borgarar létust í sjálfsmorðssprengjuárás á bílalest á vegum Atlantshafsbandalagsins í borginni Kandahar í suðurhluta Afganistans í morgun. Tveir hermenn á vegum NATO særðust í sprengingunni en ekki hefur verið gefið upp hverrrar þjóðar þeir eru. 13.10.2006 10:40 Tólf ákærðir fyrir mótmæli við Kárahnjúka Búið er að birta tólf þeirra sem mótmæltu við Kárahnjúkavirkjun í sumar ákærur fyrir að fara í óleyfi inn á virkjanasvæðið. Brot þeirra varða allt að eins árs fangelsi. 13.10.2006 10:32 Bænir í stað boltans Knattspyrna hefur lotið í lægra haldi fyrir trúariðkun í Nígeríu. Færa þurfti kappleik landsliðs karla sem skipað er leikmönnu 20 ára og yngri frá þjóðrleikvanginu í höfuðborginni Abuja vegna kristinnar bænasamkomu. Leikurinn fer fram á laugardaginn en samkoman hefst annað kvöld og stendur í sólahring. 12.10.2006 23:45 Bannað að gleðja hermenn á vakt Ráðamenn í Tælandi, sem rændu þar völdum í síðasta mánuði, hafa bannað þarlendum dansmeyjum að dansa nærri hermönnum og skriðdrekum þeirra á götum Bangkok. Aðfarir þeirra dragi athylgi mannanna frá því að gæta þess að allt fari fram með frið og spekt á götum borgarinnar. 12.10.2006 23:15 Atkvæðagreiðslu frestað Kínverjar og Rússar hafa fengið það í gegn að atkvæðagreiðslu Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um ályktun Bandaríkjamanna vegna kjarnorkutilrauna Norður-kóreumanna verður frestað. Bandaríkjamenn vildu að greidd yrðu atkvæði um tillöguna á morgun en svo virðist sem það verði ekki gert fyrr en í fyrsta lagi um helgina. 12.10.2006 22:45 Madonna tekur að sér barn frá Malaví Poppsöngkonana Madonna og eiginmaður hennar, breski kvikmyndaleikstjórinn Guy Ritchie, sóttu í dag um að fá að ættleiða ársgamlan dreng frá Malaví. Þau tóku drenginn í fóstur í dag eftir að dómari í heimalandi hans hafði heimilað það. Um leið lögðu hjónin fram formlega umsókn um að fá að ættleiða hann. 12.10.2006 22:18 Yfirmaður breska heraflans vill kalla hermenn heim frá Írak Yfirmaður breska heraflans vill kalla alla breska hermenn í Írak heim. Hann segir veru þeirra þar auka á óstöðugleika í landinu. Þessi yfirlýsing hans er algjörlega á skjön við stefnu breskra stjórnvalda. 12.10.2006 21:58 Tyrkir kjósa þing að ári Tyrkneska þingið samþykkti í dag að boða til þingkosninga að ári. Áður höfðu stjórnmálaskýrendur í Tyklandi gert því skóna að Réttlætis- og þróunarflokkurinn, sem situr í ríkisstjórn, ætlaði að boða til kosninga hið fyrsta. 12.10.2006 21:44 Fela sig meðal maríúana-plantna Kanadískir hermenn sem berjast nú við Talíbana í Afganistan hafa mætt heldur óvenjulegum vegtálma á ferð sinni. Þar eru að ræða skóglendi þar sem þriggja metra háar maríúana-plöntur vaxa. Erfiðlega hefur reynst að finna þá Talíbana sem þar fela sig. 12.10.2006 20:31 Sjá næstu 50 fréttir
Lögðu hald á um 600 lítra af áfengi í Hafnarfirði Lögreglan í Hafnarfirði lagði gær hald á um 500 lítra af áfengi í framleiðslu og um 100 lítra af fullframleiddu áfengi í húsleit í iðnaðarhúsnæði í bænum. Einnig var lagt hald á tæki og tól til framleiðslu áfengis. 13.10.2006 17:09
Sparisjóðir högnuðust um 9,5 milljarða í fyrra Samanlagður hagnaður sparisjóðanna á Íslandi í fyrra var rúmir 9,5 milljarðar króna. Þetta kom fram á aðalfundi Sambands íslenskra sparisjóða í Borgarnesi í dag 13.10.2006 16:55
Ver verðlaunafénu til góðgerðamála Mohammad Yunus, sem hlaut í morgun friðarverðlaun Nóbels á ásamt Grameen-smálánabankanum sem hann stofnaði, hyggst verja verðlaunafénu, um 95 milljónum króna, til góðgerðamála. 13.10.2006 16:46
ELKEM flytur starfsemi sína frá Ålvik til Grundartanga Stjórn Elkem ákvað í dag að leggja niður drjúgan hluta af framleiðslu járnblendiverksmiðju félagsins í Ålvik í Noregi og flytja hana til Íslands. Forstjóri Járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga er að vonum ánægður, en þetta þýðir um fjörutíu ný störf í fyrirtækinu. 13.10.2006 15:56
Býður sig fram í 2. sætið Einar Már Sigurðarson, alþingismaður, býður sig fram í 2. sætið á lista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi í prófkjöri flokksins sem fram fer seinna í mánuðinum. 13.10.2006 15:50
Vilja fjölga opinberum störfum í Bolungarvík Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Bolungarvík skorar á ríkisstjórnina að fjölga opinberum störfum í Bolungarvík í stað þeirra starfa sem lögð hafa verið niður hjá Ratsjárstofnun á Bolafjalli. Það þykir ekki í samræmi við byggðaáætlun að flytja störf af landsbyggðinni. 13.10.2006 15:33
Segir von á fleiri kvörtunum til Samkeppniseftirlitsins Ólafur Magnússon, framkvæmdastjóri Mjólku, segir úrskurð Samkeppniseftirlitsins um að Osta- og smjörsalan hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína gagnvart fyrirtækinu sigur fyrir Mjólku. Hann segir að fyrirtækið hyggist senda fleiri mál til Samkeppniseftirlitsins vegna þess sem hann kallar undirboð Osta- og smjörsölunnar. 13.10.2006 15:23
Vinstri grænir flýta landsfundi Vinstrihreyfinginn – grænt framboð hefur ákveðið að flýta landsfundi sínum vegna komandi alþingiskosninga. Fundurinn er vanalega haldinn að hausti til en verður í febrúar á næsta ári, nánar tiltekið 23. - 25 febrúar árið 2007 á Grand Hóteli Reykjavík. 13.10.2006 15:08
Tveir slösuðust í vinnuslysi skammt frá Hvolsvelli Verið er að flyjta tvo menn með sjúkrabíl frá Hvolsvelli á slysdeild Landspítalans í Fossvogi eftir vinnuslys á bóndabæ skammt fyrir utan Hvolsvöll. Slysið var með þeim hætti að annar mannanna var að festa upp ljós og stóð í fiskikari sem fest var á gaffla á dráttarvél en karið rann fram af göfflunum og lenti ofan á manninum. 13.10.2006 14:54
Ungir leiðtogar ræða um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum Þessa dagana er haldinn hér á landi alþjóðlegur samráðsfundur um aðgerðir gegn loftlagsbreytingum að frumkvæði samtaka ungra forystumanna á heimsvísu, Young Global Leaders, sem starfa á vettvangi hinnar árlegu Davos-ráðstefnu, World Economic Forum. 13.10.2006 14:36
Rannsókn á orkustuldi látin niður falla Ríkissaksóknari hefur tekið ákvörðun um að ljúka máli vegna meints þjófnaðar á orkuforða á Ísafirði. Lögreglu var tilkynnt um málið þegar verið var að vinna að breytingum á götu í bænum en þar kom í ljós að tengingum í rafmagstöflu hafði verið breytt og vaknaði þá grunur um þjófnað á orkuforða. 13.10.2006 14:24
Níu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir eignaspjöll Karlmaður hefur verið dæmdur í níu mánaða fangelsi, sem er skilorðsbundið til þriggja ára, í Héraðsdómi Reykjaness fyrir eignaspjöll. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa slegið ítrekað í vélarhlíf og framrúðu leigbíls með þeim afleiðingum að vélarhlífin rispaðist og framrúðan brotnaði. 13.10.2006 13:39
Tyrkir hóta Frökkum hefndum Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands, sagði í dag að Tyrkir myndu leita hefnda gegn Frökkum, sem í gær samþykktu lög um að skilgreina það sem glæpsamlegt athæfi að neita því að Tyrkir hafi framið þjóðarmorð á Armenum í fyrri heimsstyrjöldinni. 13.10.2006 13:32
Spyr hví Týr sé merktur Coast Guard Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur lagt fram fyrirspurn á Alþingi til dómsmálaráðherra, um hvers vegna varðskipið Týr sé núna merkt Landhelgisgæslunni á ensku, á hliðum skipsins. 13.10.2006 13:16
Segir mannleg mistök hafa valdið mismundandi verðlagningu Forsvarsmenn Osta- og smjörsölunnar segja að mannleg mistök hafi orðið þess valdandi að Mjólka hafi þurft að greiða meira fyrir undanrennuduft en Ostahúsið. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá fyrirtækinu í kjölfar úrskurðar Samkeppniseftirlitsins um að Osta - og smjörsalan hafi brotið gegn samkeppnislögum með verðlagningunni. 13.10.2006 13:08
Gagnrýna hvor aðra fyrir gagnrýni Ríkisendurskoðun og Umhverfisstofnun gagnrýna nú hvor aðra fyrir gagnrýni hvorrar á verkum annarrar og er mergur málsins orðinn aukaatriði. 13.10.2006 12:45
Ræða ekki málefni einstakra starfsmanna Stjórnendur álvers Alcan í Straumsvík segjast ekki ætla að ræða málefni einstakra aðila innan fyrirtækisins, en eins og kunnugt er héldu starfsmenn fjölmennan fund í Hafnarfirði í gær til að mótmæla uppsögnum þriggja starfsmanna fyrirtækisins fyrir skemmstu. 13.10.2006 12:30
Gorbastjov hugsanlega heiðursforseti Friðarstofnunar Reykjavíkur Höfði verður aðsetur Friðarstofnunar Reykjavíkur sem verður að veruleika innan tíðar. Svo gæti farið að Mikail Gorbatsjov yrði heiðursforseti stofnunarinnar. Fyrrum forseti Slóvakíu sem undirbýr stofnunina segir Ísland besta staðinn fyrir friðarviðræður. 13.10.2006 12:16
Sakar Kristján Þór um að ljúga að kjósendum sínum Bæjarfulltrúi L-listans á Akureyri vill að bæjarstjórinn taki sér launalaust leyfi meðan hann gegni prófkjörsbaráttu. Hann sakar Kristján Þór Júlíusson um að hafa logið að kjósendum sínum. 13.10.2006 12:09
Vefritið Vefritið opnað í dag Nýtt vefrit um pólitík og samfélagsmál, Vefritið, var opnað formlega í dag. Fram kemur í tilkynningu frá ritstjórn Vefritsins að í það skrifi fjölbreyttur hópur ungs fólks sem eigi það sameiginlegt að vera frjálslynt félagshyggjufólk. 13.10.2006 11:48
Misnotaði markaðsráðandi stöðu sína gagnvart Mjólku Samkeppniseftirlitið telur að Osta-og smjörsalan hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína gagnvart Mjólku ehf og þannig brotið gegn samkeppnislögum. 13.10.2006 11:37
Friðsamleg mótmæli fyrir utan sendiráð Dana í Djakarta Hópur múslíma kom saman fyrir framan sendiráð Danmerkur í Djakarta í Indónesíu í morgun til þess að mótmæla nýjum teikningum af Múhameð spámanni sem birst hafa á vegum Danska þjóðarflokksins að undanförnu. Mótmælin voru þó fámenn og friðsamleg en þau áttu sér stað eftir föstudagsbæn múslíma. 13.10.2006 11:28
Hershöfðinginn stendur við yfirlýsingar sínar Nýr yfirmaður breska heraflans, Sir Richard Dannatt, segist standa við yfirlýsingar sínar um að réttast væri að Bretar kölluðu fljótlega hermenn sína heim frá Írak. Yfirlýsing hans er á skjön við stefnu breskra stjórnvalda og hefur Dannatt verið kallaður á fund varnarmálaráðherra Breta. 13.10.2006 11:28
Íslendingarnir byrjaðir aftur Breska blaðið Guardian segir frá endurnýjuðum þrótti íslenskra fjárfesta í bresku fjármálalífi eftir sex mánaða hvíld. Í grein blaðsins segir, að fjármálakrísan í vor, sem sumir fjármálaskýrendur töldu að hefði getað komið vestrænum fjármálamökuðum á kné, fái að líkindum endi í mjúkri lendingu, og þess vegna séu til dæmis Landsbankinn, Kaupþing og Eggert Magnússon komnir af stað með ný áform. 13.10.2006 11:19
Tvöfaldaður á næstu árum Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra, segir að vegurinn á milli Reykjavíkur og Selfoss verði tvöfaldaður á næstu árum. Þetta muni liggja fyrir í nýrri vegaáætlun sem ríkisstjórnin kynnir í vetur. 13.10.2006 11:15
200 börn bíða eftir plássi á frístundaheimili Um 200 börn bíða nú eftir plássi á á frístundaheimilum borgarinnar og furðar fulltrúi Samfylkingarinnar í Hverfisráði Grafarvogs, Dofri Hermannsson, sig á sinnuleysi borgaryfirvalda í málinu. Í tilkynningu frá Dofra segir að vegna skorts á starfsfólki séu 63 börn á biðlista eftir plássi á frístundaheimili í Grafarvogi einum og séu sum þeirra fötluð eða með þroskafrávik og þurfi á sérstökum stuðningi að halda. 13.10.2006 10:48
Fimm látnir eftir sjálfsmorðsárás í Kandahar Að minnsta kost fimm óbreyttir borgarar létust í sjálfsmorðssprengjuárás á bílalest á vegum Atlantshafsbandalagsins í borginni Kandahar í suðurhluta Afganistans í morgun. Tveir hermenn á vegum NATO særðust í sprengingunni en ekki hefur verið gefið upp hverrrar þjóðar þeir eru. 13.10.2006 10:40
Tólf ákærðir fyrir mótmæli við Kárahnjúka Búið er að birta tólf þeirra sem mótmæltu við Kárahnjúkavirkjun í sumar ákærur fyrir að fara í óleyfi inn á virkjanasvæðið. Brot þeirra varða allt að eins árs fangelsi. 13.10.2006 10:32
Bænir í stað boltans Knattspyrna hefur lotið í lægra haldi fyrir trúariðkun í Nígeríu. Færa þurfti kappleik landsliðs karla sem skipað er leikmönnu 20 ára og yngri frá þjóðrleikvanginu í höfuðborginni Abuja vegna kristinnar bænasamkomu. Leikurinn fer fram á laugardaginn en samkoman hefst annað kvöld og stendur í sólahring. 12.10.2006 23:45
Bannað að gleðja hermenn á vakt Ráðamenn í Tælandi, sem rændu þar völdum í síðasta mánuði, hafa bannað þarlendum dansmeyjum að dansa nærri hermönnum og skriðdrekum þeirra á götum Bangkok. Aðfarir þeirra dragi athylgi mannanna frá því að gæta þess að allt fari fram með frið og spekt á götum borgarinnar. 12.10.2006 23:15
Atkvæðagreiðslu frestað Kínverjar og Rússar hafa fengið það í gegn að atkvæðagreiðslu Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um ályktun Bandaríkjamanna vegna kjarnorkutilrauna Norður-kóreumanna verður frestað. Bandaríkjamenn vildu að greidd yrðu atkvæði um tillöguna á morgun en svo virðist sem það verði ekki gert fyrr en í fyrsta lagi um helgina. 12.10.2006 22:45
Madonna tekur að sér barn frá Malaví Poppsöngkonana Madonna og eiginmaður hennar, breski kvikmyndaleikstjórinn Guy Ritchie, sóttu í dag um að fá að ættleiða ársgamlan dreng frá Malaví. Þau tóku drenginn í fóstur í dag eftir að dómari í heimalandi hans hafði heimilað það. Um leið lögðu hjónin fram formlega umsókn um að fá að ættleiða hann. 12.10.2006 22:18
Yfirmaður breska heraflans vill kalla hermenn heim frá Írak Yfirmaður breska heraflans vill kalla alla breska hermenn í Írak heim. Hann segir veru þeirra þar auka á óstöðugleika í landinu. Þessi yfirlýsing hans er algjörlega á skjön við stefnu breskra stjórnvalda. 12.10.2006 21:58
Tyrkir kjósa þing að ári Tyrkneska þingið samþykkti í dag að boða til þingkosninga að ári. Áður höfðu stjórnmálaskýrendur í Tyklandi gert því skóna að Réttlætis- og þróunarflokkurinn, sem situr í ríkisstjórn, ætlaði að boða til kosninga hið fyrsta. 12.10.2006 21:44
Fela sig meðal maríúana-plantna Kanadískir hermenn sem berjast nú við Talíbana í Afganistan hafa mætt heldur óvenjulegum vegtálma á ferð sinni. Þar eru að ræða skóglendi þar sem þriggja metra háar maríúana-plöntur vaxa. Erfiðlega hefur reynst að finna þá Talíbana sem þar fela sig. 12.10.2006 20:31