Fleiri fréttir

Mátti vart tæpara standa

Björgunarbáturinn Oddur V. Gíslason var sendur af stað frá Grindavík eftir að tilkynning barst Landhelgisgæslunni um olíulausan bát á reki suðvestur af Reykjanesi. Að sögn Guðjóns Sigurðssonar, skipstjóra á björgunarbátnum, mátti vart tæpara standa því veður versnaði mjög. „Ef við hefðum verið seinna á ferðinni hefðu þeir jafnvel þurft að halda sjó,“ segir Guðjón.

Sláandi áhrif atvinnuleysis

Lokaverkefni Elínar Valgerðar Margrétardóttur í mannauðsstjórnun við Háskóla Íslands fjallaði um vinnumarkaðsúrræði fyrir atvinnulausa og hvort þau væru í samræmi við kröfur á vinnumarkaði.

Ljósfyrirbrigði út af Skerjafirði

Margir borgarbúar, þeirra á meðal lögreglumenn og slökkviliðsmenn, sáu ljósfyrirbrigði út af Skerjafirði um klukkan hálf fjögur í nótt, sem talið var neyðarblys.

Loftárás á Gaza í nótt

Að minnsta kosti sex, þarf af tvö börn, létust í loftárás Ísraelsmanna á Gazaborg í nótt. Tuttugu og fjórir særðust í árásinni.

Tæp tvö hundruð létu lífið

Sjö sprengjur sprungu í lestarkerfi Bombay (Mumbai), fjölmennustu borgar Indlands, í gær, sem ollu dauða á annað hund­rað manns og særðu um 500 að sögn lögreglustjóra borgarinnar. Utanríkisráðherra kallar árásina „svívirðilegt hryðjuverk“.

Fimmtíu milljónir í bætur

Það sem af er árinu hefur Landspítali - háskólasjúkrahús þurft að greiða um fimmtíu milljónir í skaðabætur vegna þriggja dómsmála þar sem spítalanum er stefnt. Tvö málanna varða læknamistök og eitt var vegna veikinda sem starfsmaður hlaut af vinnu á sjúkrahúsinu.

Þúsundir hætta lífi sínu fyrir spennu

Á hverju ári koma þúsundir manns saman í spænsku borginni Pamplona til þess að taka þátt í nautahlaupinu sem þar fer fram. Þá er mannýgum nautum sleppt í borginni og látin hlaupa eftir fyrirfram girtri leið á meðan mannfjöldi hleypur undan þeim.

Segjast geta sýnt fram á svik

Vinstrimaðurinn Andrés López Obrador ásakar nú alríkisembættismenn og saksóknara og telur að jafnvel dómarar hafi tekið þátt í kosningasvikum gegn sér fyrr í mánuðinum. Hann sýndi fréttamönnum í gær myndbandsupptöku af manni í Guanajuatofylki, sem var að troða atkvæðaseðlum í kjörkassa í síðustu kosningum.

Einstein átti tíu ástkonur

Margt nýtt hefur komið í ljós varðandi einkalíf Alberts Einstein eftir að Hebreski háskólinn í Jerúsalem hófst handa við að rannsaka gríðarstórt bréfasafn hans, en Einstein var einn af stofnendum skólans.

Aðgreining bók- og starfsnáms afnumin

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra kynnti nýja hugsun í uppbyggingu framhaldsskólanáms í gær, sem gefur skólum tækifæri til að halda í sérkenni sín, um leið og bóknámi og starfsnámi er gert jafn hátt undir höfði.

Nýr framhaldsskóli í mótun

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra skipaði í janúar síðastliðnum nefnd til að kanna hvernig efla mætti starfsnám til að stuðla að aukinni aðsókn að slíku námi og bæta tengsl starfsnáms á framhaldsskólastigi við grunnskóla- og háskólastig. Tillögur þessarar starfsnámsnefndar, eins og hún var nefnd, liggja nú fyrir og eru metnaðarfullar, jafnvel byltingarkenndar.

Tveir möguleikar Sundabrautar kynntir

Annar áfangi Sundabrautar hefur verið kynntur í tillögu að matsáætlun, sem fyrirtækið Línuhönnun hf. stóð að. Áfanginn mun vera 8 km langur vegur sem þverar Eiðsvík, Leiruvog og Kollafjörð og eru möguleikarnir tveir, ytri og innri leið.

Verstu umferðarhnútarnir óleysanlegir

Mislæg gatnamót Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar hefðu mátt sín lítils gegn þeim umferðarþunga sem skapaðist á sunnudag þegar landsmenn flykktust heim úr fríum til að sjá úrslitaleik Frakka og Ítala á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu. Þetta segir Jóhann Bergmann, deildarstjóri hjá Vegagerðinni.

Vildi sprengja hús ráðherra

Danskur hægriöfgamaður og innflytjendaandstæðingur, Julius Børgesen, hefur verið handtekinn. Hann hafði hvatt til þess að heimili innanríkis- og heilbrigðisráðherra Danmerkur yrði sprengt með bensínsprengju.

Magnús Þór í ráðhúsið

Magnús Þór Gylfason hefur verið ráðinn skrifstofustjóri borgarstjóra til ársloka í afleysingum fyrir Kristínu Árnadóttur, sem fer í námsleyfi.

Svindl algengara en ekki

Í nýlegum úrskurði félagsdóms kemur fram að fyrirtækjum sé skylt að tryggja erlendu starfsfólki sínu viðunandi laun. Félagsdómur tók fyrir mál nokkurra Litháa sem höfðu fengið tuttugu þúsund krónur í mánaðarlaun. Samiðn höfðaði málið fyrir þeirra hönd. Þorbjörn Guðmundsson er framkvæmdastjóri Samiðnar.

Samningarnir taka sinn tíma

Ali Larijani, aðalsamningamaður Írans í kjarnorkumálum, sagði í gær að það myndi taka langan tíma að komast að samkomulagi í deilu Írans við Bandaríkin, Evrópusambandið, Rússland og fleiri ríki um áform Írana í kjarnorkumálum.

Dúkkur hafa lækningarmátt

Dúkkur og bangsar geta hjálpað Alzheimer-sjúklingum við að hafa samskipti við annað fólk. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem breskir vísindamenn gerðu á hjúkrunarheimili í Newcastle í Bretlandi, Alzheimer-sjúkdómurinn getur valdið því að fólk tapar vitrænum, félagslegum og tilfinningalegum hæfileikum sínum. Engin lækning er til við honum, en hann herjar helst á aldrað fólk.

Ósætti um Alfreð í nýju Blóðbankahúsi

Blóðbankinn fær ekki allt húsið að Snorrabraut 60 til afnota eins og yfirlæknir hafði gert ráð fyrir. Efsta hæð hússins fer að hluta til undir framkvæmdanefnd um byggingu hátæknisjúkrahúss með Alfreð Þorsteinsson í fararbroddi.

Dagurinn endurskilgreindur

Flugumferðarstjórar eru mjög óánægðir með nýlegan úrskurð Félagsdóms, þar sem þeir segja að ný skilgreining orðsins dagur líti dagsins ljós.

Níu hættu við

Hæstbjóðendur í fjórar parhúsalóðir og fimm einbýlishúsalóðir í Úlfarsfelli hafa fallið frá kaupunum. Reykjavíkurborg bauð lóðirnar út og námu allra hæstu tilboðin í þær allt að 21 milljón í einbýlin og 23 milljónum í parhúsalóðirnar.

Árið 2007 verði ár jafnra tækifæra

Evrópusambandið hefur ákveðið að árið 2007 eigi að hafa þema í þágu jafnra tækifæra fyrir alla. Samkvæmt heimasíðu sambandsins er markmiðið að vekja fólk til umhugsunar um rétt sinn til að njóta jafnra tækifæra og lífs án mismununar.

Hagnast um 57 milljarða króna

Hagnaður Alcoa nam 744 milljónum Bandaríkjadala eða sem nemur 57 milljörðum íslenskra króna á öðrum fjórðungi þessa árs. Þetta er besta afkoma í sögu fyrirtækisins, en hún er að mestu útskýrð með háu álverði og mikilli eftirspurn. Einnig hefur hagræðing verið aukin og tilkostnaður lækkaður, að sögn Alains Belda, stjórnarformanns Alcoa.

Guðni og Siv að íhuga málið

Guðni Ágústsson og Siv Friðleifsdóttir segjast bæði vera að íhuga hugsanlegt framboð til forystu í Framsóknarflokknum. Jónína Bjartmarz hefur gefið kost á sér til varaformanns Framsóknarflokksins en hún styður Jón Sigurðsson til formennsku.

Hundruðir fylgdu Heiðari til grafar

Gríðarlegur fjöldi fylgdi Heiðari Jóhannssyni vélhjólakappa til grafar á Akureyri í dag. Hundruð vélhjólamanna óku Heiðari til heiðurs í líkfylgd sem vart á sér hliðstæðu hér á landi.

Kalt vatn komið á ný

Kalt vatn var aftur komið á Seltjarnarnesi og í vestur-og miðbæ Reykjavíkur rétt fyrir klukkan níu í kvöld en kaldavatnslaust hafði verið á þessum stöðum frá klukkan sjö. Grafin hafði verið í sundur kaldavatnsstofnæð á horni Ingólfsstrætis og Sæbrautar sem orsakaði kaldavatnsleysið.

Appelsínubyltingin súrnar

Ný ríkisstjórn er tekin við völdum í Úkraínu, sem kommúnistar og sósíalistar eiga sæti í, en hún er talin hliðholl valdhöfum í Rússlandi

Ekkert kalt vatn í miðborginni

Kaldavatnslaust er nú á Seltjarnarnesi og í vestur- og miðbæ Reykjavíkur. Ekki er vitað að svo stöddu hvað veldur en samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitunnir er verið að kanna málið. Við segjum nánar frá þessu þegar frekari upplýsingar berast.

Sáðfrumur ræktaðar úr stofnfrumum

Vísindamönnum hefur í fyrsta sinn tekist að rækta sáðfrumur úr stofnfrumum. Ekki er þó þar með sagt að ófrjósemi í körlum heyri héðan í frá sögunni til.

Methagnaður hjá Alcoa

Hagnaður Alcoa Corp. nam 744 milljónum Bandaríkjadala eða sem nemur 57 milljörðum íslenskra króna á öðrum fjórðungi yfirstandandi árs. Þetta er besta afkoma í sögu fyrirtækisins.

Notkun kreditkorta 22,2% meiri nú en í fyrra

Þenslan kemur meðal annars fram í notkun Íslendinga á kredit- og debetkortum. Kreditkortavelta heimilanna var 22,2% meiri í frá janúar til maí á þessu ári en á sama tíma í fyrra, eða um 90 milljarðar króna. Aukning síðustu tólf mánuði er 18,2% borið saman við tólf mánuðina næstu á undan. Þetta kemur fram í Hagvísum Hagstofunnar. Debetkortavelta jókst um 10,4% í janúar til maí 2006. Aukning síðustu tólf mánuði er 14,8%. Samtals jókst innlend greiðslukortavelta heimila síðustu tólf mánuði um 16,3%. Kreditkortavelta Íslendinga erlendis jókst um 34,6%á tímabilinu janúar til maí frá sama tíma árið áður.

Níu lóðir standa eftir

Níu lóðir í landi Úlfarsárdals standa eftir en þær voru í hópi 104 lóða sem boðnar voru út í febrúar. Lóðirnar verða settar í hóp lóða í sama hverfi sem er óráðstafað. Ekki liggur fyrir með hvaða hætti þeim verður útdeilt.

Álagið að sliga hjúkrunarfræðinga

Hópur reyndra hjúkrunarfræðinga við Landspítalann er að því kominn að hætta vegna viðvarandi álags, segir formaður félags hjúkrunarfræðinga. Formaður stjórnarnefndar spítalans segir molbúahátt ráða för þegar stjórnvöld ákveði fjárframlög til Landspítalans.

Samruni Lyfja og heilsu og Lyfjavers ógildur

Samkeppniseftirlitið ógilti í dag samruna lyfsölufyrirtækjanna Lyfja og heilsu og Lyfjavers. Í úrskurðinum segir að skaðlegra áhrifa samrunans hefði að óbreyttu aðallega gætt á markaði fyrir smásölu lyfja og á markaði fyrir lyfjaskömmtun en sá markaður hefur vaxið á undanförnum árum. Í krafti stöðu sinnar hefði félagið takmarkað samkeppni og getað hagað verðlagningu, þjónustu og viðskiptaskilmálum að verulegu leyti án tillits til keppinauta eða viðskiptavina.

Dæmdur í fangelsi fyrir að breyta lyfseðli

Héraðsdómur Austurlands dæmdi í dag rúmlega fimmtugan karlmann fyrir skjalafals. Í mars á þessu ári framvísaði hann lyfseðli á lyfið Parkódín Forte, sem hann hafði fengið framvísað hjá tannlækni, en afmáði kross aftan við texta sem tilgreindi að lyfseðlinum mætti aðeins framvísa einu sinni. Í stað þess lét hann líta þannig út fyrir að lyfseðilinn mætti afgreiða fjórum sinnum á minnst sjö daga fresti. Maðurinn játaði brot sitt og var það virt til refsilækkunar. Hann var því dæmdur til fangelsi í þrjátíu daga en einnig var litið til þess að hann hefur ekki gerst sekur um refsiverðan verknað áður og því fellur refsingin niður haldi maðurinn skilorð í tvö ár frá því dómur var kveðin upp.

Auðvelt að sitja í Seðlabankanum og gagnrýna

Það er auðveldara að sitja í Seðlabankanum heldur en að bera ábyrgð í ríkisstjórn þegar kemur að stjórn efnahagsmála, segir forsætisráðherra. Hann er sannfærður um að verðbólgan sé á niðurleið. Davíð Oddsson Seðlabankastjóri sagði fyrir aðeins fimm dögum að aðgerðir Seðlabankans væru of varfærnar ef eitthvað væri.

Góðæri hjá útgerðarfélögum

Góðæri ríkir nú hjá útgerðarfélögunum þar sem verðmæti fiskiaflans hefur hækkað mikið á þessu ári á sama tíma og gengi krónunnar hefur veikst. Ekki er útlit fyrir að verð á aflanum lækki á næstunni.

Sjá næstu 50 fréttir